Morgunblaðið - 19.05.1983, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1983
33
Kaupþing hf.;
Bjóða einstaklingum
og íyrirtækjum gerð
greiðsluáætlana
Á TÍMUM verðbólgu og verd-
lána á fólk oft erfítt
með aó gera sér grein fyrir hvort
þad geti staftið í skilum meft þær
greiðsluskuldbindingar, sem til
hefur verið stofnað, t.d. vegna
kaupa á fasteign.
Fjölmargir aðilar, bæði
kaupendur fasteigna og aðrir
aðilar sem stunda sjálfstæðan
rekstur hafa leitað til Kaup-
þings og beðið fyrirtækið að
reikna út greiðslukjör lána
vegna fjárfestinga. Því hefur
Kaupþing ákveðið að bjóða
sérstaklega þá þjónustu að
gera greiðsluáætlanir fyrir
einstaklinga og aðila í at-
vinnurekstri.
Form þessara greiðsluáætl-
ana má laga eftir óskum hvers
og eins, en meginhugmyndin
er sú að gefa yfirlit yfir mán-
aðarlegar og árlega greiðslur
bæði miðað við verðlag í dag
og einnig miðað við ákveðna
forsendu fyrir verðbólgu.
Að sögn Kaupþings-manna
má t.d. sýna greiðslurnar sem
hlutfall af tekjum til að gefa
fólki hugmynd um hvernig það
þarf að haga fjármálum sínum
til að geta staðið í skilum.
Lög sett um refsivexti
af vanskilaskuldum hins
opinbera í Bandaríkjunum
I BANDARÍKJUNUM hafa ver-
ið samþykkt lög, sem skylda
opinbera aðila að greiða reikn-
inga fyrir vöru og þjónustu á
réttum gjalddögum, en greiða
refsivexti ella. Aður en þessi lög
voru sett komust viðskiptavinir
margra opinberra stofnana í
hreinustu vandræði vegna van-
skila þeirra. Þessar fróðlegu
upplýsingar er að fínna í nýjasta
fréttabréfí Verzlunarráðs ís-
lands.
„Hér á landi eru veruleg
brögð að því að opinberar
stofnanir greiði ekki reikninga
á réttum gjalddögum og neiti
jafnframt að borga dráttar-
vexti. Fyrirtæki, sem selja
þessum stofnunum vöru og
þjónustu eiga undir högg að
sækja við að leita réttar síns
og fá oft þau svör, að viðskipt-
um við þau verði hætt, ef þau
sætti sig ekki við þessa við-
skiptahætti.
Verzlunarráðið mun beita
sér fyrir því, að ákveðnar regl-
ur verði settar um greiðslu
dráttarvaxta hjá því opinbera
af vanskilaskuldum og er for-
dæmi frá Bandaríkjunum
ágætur stuðningur í þessu
máli,“ segir ennfremur í
fréttabréfinu.
Um 24% tekjuaukning hjá
McDonnell Douglas janúar-marz
TEKJUR McDonnell Douglas-fyrir-
tækisins bandaríska jukust um 24%
á fyrsta ársfjórðungi, þegar þær voru
samtals um 59,9 milljónir Banda-
ríkjadollara, sem jafngildir um 1.330
milljónum íslenzkra króna, borið
saman við 48,5 milljónir Bandaríkja-
dollara á sama tíma í fyrra, sem
jafngildir um 1.076 milljónum ís-
lenzkra króna.
Tekjurnar á hvern hlut eru á 1.
ársfjórðungi 1,51 Bandaríkjadoll-
ar, en voru til samanburðar um
1,23 Bandaríkjadollar á hvern hlut
á sama tíma í fyrra.
Magnús var inntur eftir því
hvort áskriftar- og auglýsingaverð
fyrirtækisins hefði verið hækkað
að raungildi síðan hann tók við
rekstrinum. „Við höfum ekki þurft
að gera það. Meginatriðið var að
fjölga viðskiptavinum, bæði
áskrifendum og auglýsendum. í
því sambandi vil ég geta þess, að
auglýsingaverð hjá okkur er um
12% lægra að raungildi en það var
þegar ég tók við og áskriftarverðið
er um 5—6% lægra," sagði Magn-
ús.
Hvernig er þá afkoma fyrirtæk-
isins?
„Eins og ég gat um í upphafi
stefnir í að allverulegur rekstr-
arhagnaður verði þegar á þessu
ári. Um verulegt tap var að ræða á
síðasta ári, en því dæmi hefur nú
verið snúið við. Greiðslu-
fjárstaðan hefur verið erfið, en
það stefnir í rétta átt og ætti að
vera komið í viðunandi horf á
þessu ári. Eitt fyrsta verk mitt
þegar ég tók við var að semja við
alla lánardrottna um vanskila-
skuldir. Þegar þessir hlutir voru
komnir í lag var tekin ákvörðun
um hlutafjáraukningu upp á 3
milljónir króna. Það var ákveðið
28. október og var allt hlutaféð
inngreitt fyrir síðustu áramót,"
sagði Magnús.
Um framtíðaráform fyrirtækis-
ins sagði Magnús: „Fyrirtækið
mun halda áfram útgáfu blaðanna
átta, sem koma út annan hvern
mánuð nema Ökuþór þriðja hvern.
Aðstæður í þjóðfélaginu leyfa hins
vegar ekki aukna útgáfutíðni að
sinni. Fyrirtækið mun auka þjón-
ustu sína á sviði bæklinga- og
blaðagerðar fyrir fyrirtæki og
stofnanir. Það hefur verið happ
fyrirtækisins, að hér starfar úr-
valsstarfsfólk, sem hefur stuðlað
að svo skjótu uppbyggingarstarfi,
sem raun ber vitni. Framtíðar-
markmið mitt er að bæta gæði og
útlit blaðanna og að gera fyrir-
tækið að traustu og áreiðanlegu
fyrirtæki á viðskiptasviðinu."
Að síðustu var Magnús Hregg-
viðsson inntur eftir ástæðum þess,
að hann fór út í fyrirtækjarekstur,
eftir að hafa starfað sem endur-
skoðandi og rekstrarráðgjafi um
13 ára skeið og hvort uppbygg-
ingarstarfið hafi ekki verið erfitt.
„Mér fannst hreinlega vera kom-
inn tími til að fara hinum megin
við borðið, ef svo má að orði kom-
ast, og spreyta mig sjálfur í stað
þess að vera alltaf í hlutverki
ráðgjafans. Enda hefur komið á
daginn, að ég sé alls ekki eftir
þeim skiptum. Hvað varðar upp-
byggingarstarfið, þá hefur það
auðvitað verið erfitt, en það er
ákveðinn kostur að koma inn í
fyrirtæki, sem var jafn illa statt.
Þá er auðveldara að gera nauð-
synlegar breytingar. Allir aðilar
eru mun jákvæðari fyrir slíku og
samheldnin meiri meðan verið er
að komast yfir erfiðasta hjallann."
The American Boychoir
Ameríski drengjakórinn
Besti drengjakór Bandaríkjanna.
TONLEIKAR
í Gamla Bíó
fimmtudaginn 19. maí kl.20.00.
föstudaginn 27. maí kl. 20.00.
Langholtskirkja mánudaginn annan í Hvítasunnu 23. maí kl. 17.00.
* Solignum
cokxjrless
woodpreservatve
ALLTTIL
FÚAVARNA
r‘ Wöodex
RR BYGGINGAVÖRUR HE
SUOURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331.