Morgunblaðið - 19.05.1983, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1983
mmátm
}> sleppí eftiVrfettinum. Méresek.ki
vei \j\6 ab frlaupQ meb -ftMLan rnaga."
... að tala út um
hlutina.
Með
morgunkaffinu
TM tog U S Pat Off.-att rights reservad
• 1983 L«* Angetes Tttnes Syndicate
Af hverju ég drekk, það geri ég til l»að er ekkert því til fyrirstöðu að
að gleyma vínhneigð minni! þú getir lifað eðlilegu lífi svo sem í
viku eða tvær!
HÖGNI HREKKVISI
. þuETUR EKKI E.T.. .?/
Besti tón-
listarmað-
urinn í dag
4286-4056 og 9632-2003 skrifa:
„Velvakandi.
Við erum hér tvær og við vildum
koma þeirri ósk okkar á framfæri að
reynt yrði að fá David Bowie hingað
á listahátíð í sumar.
Hér erum við ekki aðeins að hugsa
um okkur sjálfar, heldur tölum við
fyrir munn margra. David Bowie er,
að okkar áliti, besti tónlistarmaður-
inn í dag, og hefur verið það í fjölda-
mörg ár. Við vitum að margir óska
þess að Duran Duran eða Culture
Club komi hingað (reyndar er það
útilokað fyrir þá síðarnefndu vegna
annríkis), en við, ásamt mörgum
öðrum, fullyrðum að þessar hljóm-
sveitir eru aðeins tískufyrirbrigði,
tvær af mörgum, sem skjóta upp
kollinum í ákveðinn tíma en hverfa
jafnskjótt aftur.
Og við vitum það fyrir víst að það
yrði komið til móts við sem flesta
með komu David Bowie, bæði þeirra
sem vilja diskóið og svo hinna sem
vilja þungarokkið, því að mjög
margir kunna vel að meta tónlist
hans.
Virðingarfyllst."
David Bowie
Verst að þú skyld-
ir ekki koma fyrr
Guðný Skeggjadóttir skrifar:
„Velvakandi.
í tilefni af myndum í Lesbók
Mbl. 10. maí er þetta skrifað:
Velkominn til íslands, Stanis-
las Bohic. Verst að þú skyldir
ekki koma fyrr. Þá hefðir þú
kannski getað bjargað miðbæ
Kópavogs, því að „útlendingar"
hafa alltaf verið marktækari en
innfæddir.
Ég vil leiðrétta það sem stend-
ur i Lesbókinni, að miðbærinn
þyki ágætur. Engan hef ég heyrt
svo skyni skroppinn að halda því
fram, nema ef vera skyldi þá
Járnkarla, sem bæinn skópu.
Heldur er það jafn stöðugt um-
ræðuefni okkar íbúanna og veðr-
ið, hvað ráðið hafi þessum
óskapnaði, og er þar margt til
nefnt, eins og hagsmunir og þá
hverra, algert getuleysi gagn-
vart verkefninu, smekkleysi í
umhverfismálum. Eða hvað
veldur?
Sem dæmi um klaufaháttinn
má nefna, að þær einu plöntur,
sem eru gróðursettar í miðbæn-
um, eru í hánorðri og að auki í
skugga háhýsa, þannig að hvorki
er þar sól né skjól, enda þrífast
þær alls ekki.
En eitt er víst, að miðbærinn,
sem meira virðist hannaður með
tilliti til rottubyggðar en manna,
verður ævarandi minnisvarði
um þá Karla, sem að honum
stóðu, og hvernig ekki á að búa
til miðbæ."
Þessir hringdu . . .
ABC eða
Associates
Krlingur Sigurðsson hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — Mikið
hefur verið skrifað um, hvaða
hljómsveit ætti að fá hingað til
landsins á listahátíð. Hvernig væri
að fá vandaða hljómsveit á borð við
ABC eða Associates?
ABC
Fæddist aðeins
eitt barn í Hafn-
arfirði á því
herrans ári 1970?
Amma i Hafnarfirði hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — Ég er
með hérna fyrir framan mig blað frá
Æskulýðs- og tómstundaráði Hafn-
arfjarðar. I þessu blaði eru kynntir
atvinnu- og afþreyingarmöguleikar
hafnfirskra barna og unglinga. Eftir
a i hafa gluggað í þetta blað dettur
mér helst í hug, að aðeins eitt barn
hafi fæðst hér í Hafnarfirði árið
í ófærðinni í Siglufirði.
1970, nefnilega sonardóttir mín.
Ætli það sé annars tilfellið? í
Vinnuskóla Hafnarfjarðar verða
tekin börn fædd 1968 og 1969. í
Skólagörðum Hafnarfjarðar er pláss
fyrir börn fædd 1971—74. En það er
sama hvar ég leita, hvergi er í þessu
skyni ætlað rúm fyrir árganginn frá
1970, enda varla von, ef hún sonar-
dóttir mín hefur verið eina barnið,
sem fæddist hér á því herrans ári.
Að vísu verð ég nú að draga nokkuð í
land með það sem ég hef sagt, því að
það eru opnar nokkrar leiðir til að fá
tímann til að líða, t.d. diskótek. Það
er sem sagt pláss fyrir hana sonar-
dóttur mína á diskóteki í sumar í
æskulýðsheimilinU. Þar getur hún
dansað og komist í leiktæki. Já, og
hún getur tekið úr sér hrollinn hjá
golfklúbbnum Keili, æft fimleika,
farið í siglingaklúbb og föndrað með
reyr. En hvergi er handtak að hafa.
Hvers á þessi árgangur að gjalda?
Alltaf tilbún-
ir til að moka
Matthías í Siglufirði hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: —
Okkur finnst það einkennilegt, sem
búum á mörkum hins byggilega
heims, hvað Vegagerð ríkisins er
ónýt við að halda okkur í akfæru
vegarsambandi. Vegagerðarmenn
þurfa ekkert að afsaka sig með því
að þeir hafi ekki tæki til þess, því
að þeir eru alltaf tilbúnir hérna hjá
bænum að fara og moka þennan
vegarspotta, þegar beðið er um það.
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Eitt þeirra raka sem til er gripið.
Rétt væri: Ein þeirra raka sem ...
(Orðið rök í merkingunni röksemdir er ekki til í
eintölu.)
Betur hefði farið: Meðal þeirra raka ...
Eða: Ein þeirra röksemda ...