Morgunblaðið - 27.05.1983, Blaðsíða 1
56 SÍÐUR
117. tbl. 70. árg. FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar tók við í gær:
Fyrsti rfkisrá&sfundur foraeta íslands med ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar á Bessa- I Hermannsson, forsætisrádherra, Ragnhildur Helgadóttir, mennUmálaráöherra, Matthías Á.
stöóum í gær. Frá vinstri: Matthías Bjarnason, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, Alex- Mathiesen, viðskipUráðherra, Jón Helgason landbúnaðar-, dóms- og kirkjumálaráðherra,
ander Stefánsson, félagsmálaráðherra, Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra, Geir Albert Guðmundsson, fjármálaráðherra, Sverrir Hermannsson, orku- og iðnaðarráðherra.
Hallgrímsson, utanríkisráðherra, frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, Steingrímur | Morgunbl»ðií/ól»fur k. M»gnús»or.
Höfuðáherzla verður
lögð á efnahagsmálin
Ekki gengið til kosninga fyrr en mikill og góður
árangur hefur náðst, segir forsætisráðherra
Á 326. ríkisráðsfundi sem haldinn
var á Bessastöðum kl. 16 í gær skip-
aði forseti íslands Steingrím Her-
mannsson forsætisráðherra og und-
irritaði skipunarbréf ráðherra í ráðu-
neyti hans. Á fyrri fundi ríkisráðs
sem hófst kl. 11.30 í gærmorgun
leysti forsetinn Gunnar Thoroddsen
og ráðuneyti hans frá störfum, en
ríkisstjórn hans hafði þá verið við
völd frá 8. febrúar árið 1980.
Steingrímur Hermannsson sagði
m.a. í viðtali við Mbl. eftir að hann
tók við forsætisráðherraembættinu,
að hann væri mjög ánægður með þá
samstöðu sem náðst hefði við
Sjálfstæðisflokkinn um ríkisstjórn-
armyndunina. Hann sagði þá leggja
höfuðáherslu á efnahagsmálin og
kvað aðila sammála um að ekki yrði
gengið til nýrra kosninga á næst-
unni — ekki fyrr en mikill og góður
árangur hefði náðst í efnahagsmál-
um.
Höfrungar
bjarga manni
Jarkaonville, Florida, 26. maf. AP.
MAÐIJR nokkur, sem féll útbyrðis þeg-
ar báti hans hvolfdi úti fyrir ströndum
Florida, sagði í dag, að hann ætti höfr-
ungum líf sitt að launa.
Þar sem maðurinn, Jeffery Barry,
36 ára gamall flugumferðarstjóri, féll
í sjóinn úði allt og grúði af hættu-
legum hákörlum en hann var ekki
fyrr kominn í vatnið en höfrunga-
hjörð kom að honum og skipaði sér f
órofa fylkingu allt f kringum hann.
Barry, sem er vel á sig kominn og
syndur sem selur, átti ekki annars
úrkosta en að reyna að synda til
lands og það tókst honum eftir tólf
stunda sund, örmagna og aðfram-
komnum. Allan þann tima hvikuðu
hvalirnir ekki frá honum og héldu
hákörlunum, sem fylgdu þeim eins og
skugginn, í hæfilegri fjarlægð.
„Höfrungarnir björguðu lífi mínu.
í tólf klukkutíma syntu þeir við hlið
mér. Hafi ég ekki verið trúaður mað-
ur áður, þá er ég það nú,“ sagði Barry
eftir að hann hafði jafnað sig á þoí-
rauninni.
Ráðherrar ríkisstjórnar Gunnars
Thoroddsen komu f fylgd eigin-
kvenna sinna til Bessastaða laust
fyrir kl. 11 í gærmorgun. Síðasti
ríkisstjórnarfundur þeirra hófst kl.
11 og kl. 11.30 ríkisráðsfundur þar
sem Gunnar Thoroddsen lýsti því
yfir að stjórnarathafnir hefðu verið
afgreiddar eins og forseti Islands
hefði óskað á ríkisráðsfundi 28. apr-
íl 1983. Að lokinni afgreiðslu fyrir-
liggjandi mála leysti forsetinn rík-
isstjórnina frá störfum. Að því
loknu var fráfarandi ráðherrum og
eiginkonum þeirra boðið til hádeg-
isverðar. Þeir yfirgáfu Bessastaði
um kl. 14.
Rétt fyrir kl. 16 komu viðtakandi
ráðherrar að Bessastöðum, en mik-
ill fjöldi fréttamanna beið komu
þeirra fyrir utan forsetasetrið.
Fyrstur kom Matthías Á. Mathie-
sen viðskiptaráðherra, þá Ragn-
hildur Helgadóttir menntamálaráð-
herra, Halldór Ásgrímsson sjávar-
útvegsráðherra, þá Geir Haligríms-
son utanríkisráðherra. Næstur kom
Alexander Stefánsson félagsmála-
ráðherra, þá Jón Helgason land-
búnaðar-, dóms- og kirkjumálaráð-
herra. Albert Guðmundsson fjár-
málaráðherra kom næstur, þá
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra, litlu síðar Sverrir Her-
mannsson iðnaðarráðherra og á
mínútunni fjögur renndi Matthias
Bjarnason heilbrigðis- og félags-
málaráðherra í hlað.
Ríkisráðsfundur var síðan settur
og er Steingrímur Hermannsson
hafði lesið upp ráðherralista sinn
og lagt hann fyrir forsetann, féllst
hún á tillögu hans og gaf út úrskurð
um skipan og skiptingu starfa ráð-
herranna. Áð loknum ríkisráðs-
fundinum var haldinn stuttur ríkis-
stjórnarfundur, en engar afgreiðsl-
ur voru á honum. Áður en hið nýja
ráðuneyti yfirgaf Bessastaði þáðu
ráðherrarni- léttar veitingar.
Nýju ráðherrarnir fóru flestir frá
Bessastöðum í ráðuneyti sín og tóku
við lyklavöldum af fráfarandi ráð-
herrum. Ríkisstjórnarfundur er
boðaður kl. 10.30 árdegis og að sögn
forsætisráðherra Steingríms Her-
mannssonar verðnr þ?r gengið frá
5 bráðabirgðalögum vegna efna-
hagsraðstafana nkissljói nari mar.
Sjá viðtöl við ráðherra hinnar
nýju ríkisstjórnar á blaðsíðum
10, 16 og 17 og viðtöl við fráfar-
andi ráðherra á bls. 18 og 19.
Sýrlendingar
ögra ísraelum
Vopnahléð í Líbanon „á bláþræði“
Tel Aviv, Beinit, Amman, 26. maí. AP.
VOPNAHLÉIÐ, sem er á milli Sýr-
lendinga og ísraela í Líbanon, var i
dag sagt hanga „á bláþræði" eftir að
sýrlenskar orrustuvélar höfðu skotið
á ísraelska flugvél.
Sýrlensku orrustuvélarnar skutu
tveimur flugskeytum að ísraelsku
flugvélinni en misstu marks að því er
talsmaður ísraelsku herstjórnarinnar
sagði. Kvað hann þetta vera „alvar-
legasta atvikið í stöðugum vopna-
hlésbrotum Sýrlendinga".
Blöð og aðrir fjölmiðlar í Sýr-
landi sögðu í dag, að einskis yrði
látið ófreistað í baráttunni gegn
samkomulaginu um brottflutning
erlends herliðs frá Líbanon og að
ef til átaka kæmi milli Sýrlend-
inga og Israela yrði þar ekki um að
ræða takmarkaðar skærur heldur
allsherjarstríð.
óháða dagblaðið An-Nahar í
Beirut sagði í dag, að líbanska rík-
isstjórnin hefði verið vöruð við
hugsanlegum tilraunum til að ráða
Gemayel forseta af dögum í þeim
tilgangi að koma af stað borgara-
styrjöld í landinu og knýja fram
skiptingu landsins.