Morgunblaðið - 27.05.1983, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 27.05.1983, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1983 Astvaldur Þórö- arson — Fæddur 19. nóvember 1908 Dáinn 21. maí 1983 „Hvert göfugt hjarU i sér helgidótn þar angar skínandi eilífðarblóm, hver hugans göfgi því blóm sem bar og guð er daglegur gestur þar. Er hræddi þig lífsins tál og tóm þú flýðir í hjarta þíns helgidóm. Þar alltaf í raunum athvarf var, þú hittir guð á gangi þar.“ (Stefán frá Hvítadal.) í dag verður til moldar borinn Ástvaldur Þórðarson, fv. hafn- sögumaður í Keflavík. Nú er loksins lokið langri bar- áttu míns kæra vinar við sjúkdóm þann er hann tók fyrir fjórtán ár- um. Þvílík hetjulund og lífsþrótt- ur. Er við kynntumst varð okkur strax vel til vina, ég leit alltaf á hann sem vin frekar en tengdaföð- ur. Ástæður þess voru fyrst og fremst að við áttum margt sam- eiginlegt. Lífshlaup okkar rædd- um við með þeim hug að bæta mætti manninn frekar en dæma. Skipstjórahlutverkið hentaði hon- um vel og átti hann þá aldrei í erfiðleikum með að láta álit sitt í ljós. Ég man vel er við vorum sam- an í veiðitúrum hve honum fannst ég lítið veiðimannlegur er ég þræddi maðkinn á öngulinn. Þetta var það sem ég átti erfiðast með. í gegnum árin, eftir að hann fór að finna fyrir sjúkdómi sínum meir og meir, breyttist líf okkar beggja á þann veg, að við urðum háðari hvor öðrum. Alltaf var von um bata og að hann næði einum veiði- túr í viðbót. Hann sagði svo oft er skammdegismyrkrið grúfði yfir: „Þegar fer að hlýna hefjumst við handa." í mörg ár studdum við hvorn annan og góðum tímum gát- um við bætt við í minningabókina. Síðan kom tímabil vonleysis og hvorugur gátum meir. Við sættum Minning okkur við þetta. Hann dæmdi eng- an. Á svona löngum tíma vill sá sem úr umferð er tekinn gleymast af fjöldanum. Þetta fannst honum eðlilegt. Hann hafði þá, sem kær- astir voru, Hjört, bróður sinn, og konu hans, sem reyndust honum alltaf vel. Eins og hann sagði: „Hún Áslaug er svo ágæt.“ En þeir sem reyndust honum best, hjúkr- unarlið deildar A-5 á Borgarspít- alanum, voru honum eins og stór- kostlegustu vinir. Hann kunni að meta það. Nota ég hér með tækifærið og þakka ykkur öllum fyrir. Eins vil ég þakka starfsliði Hafnarbúða frábæra umönnun og hjúkrun. Nú, er leiðir skilur, er ég glaður í mínu hjarta yfir hvernig lokin urðu. Þau urðu eins og hann ósk- aði sjálfur. Ég vona að tengda- faðir minn hafi það gott og að hann sé laus við allt erfiðið. Því trúi ég. Hafi hann þökk fyrir allt. Ég er þakklátur guði fyrir okkar samveru. Róbert Gísli Hermanns- son — Kveðjuorð Fæddur 28. febrúar 1916 Dáinn 8. janúar 1983 Gísli var óvenjulegur og ágætur maður. Hann vildi hvers manns vanda leysa í stóru og smáu. Hvorki hann né móðir hans, Ragnheiður Gísladóttir, þekkti orðið nei. Hann sagði alltaf að sín kynslóð yrði að fórna sér til þess að þeirri næstu liði betur; blóðið væri þykkara en vatnið. Þegar ég og litla dóttir mín komum til íslands eftir stríðslok, þá tók öll fjölskyldan á móti okkur með stórri kaffiveislu. Síðan var okkur vísað inn í hjónaherbergi, og þar bjuggu við þrjú í eitt ár í góðri sambúð við fjölskylduna. Því skrifa ég þetta, að 1. október 1943 gaf þýska herstjórnin í Danmörku út tilskipun um að allir danskir gyðingar skyldu nauðugir fluttir í fangabúðir erlendis. Að- eins þeir sem giftir voru kristnum mönnum slúppu. Danska rfkið leyfði þá öllum sem þess óskuðu, að láta gefa sig saman í Ráðhús- inu. Góðvinir okkar, Tryggvi Briem og Sigurður Jóhannsson voru svaramenn. Síðan fór Gísli með mig í íslenska sendiráðið, og ég fékk íslenskt vegabréf. Foreldrar mínir og systir lentu í þýskum fangabúðum. Þau sultu í heilt ár þangað til við gátum sent þeim matarböggla með hjálp Rauða Krossins. Og föður mínum varð kleift að bjarga lífi móður minnar með því að múta þýskum hermanni með mat, þegar átti að senda hana veika í gasklefann. Hún var búin að fá heilablæðingu tvisvar áður en hún var send í fangabúðir. Þann 20. apríl 1945 komu bróðir Gísla, Svavar, og kona hans þýsk heim til okkar í Kaupmannahöfn á flótta undan Rússum. Við tókum vitanlega vel á móti þeim, og þau bjuggu hjá okkur til stríðsloka. Folke Bernadotte bjargaði fjöl- skyldu minni til Svíþjóðar. Gísli var kvíðafullur þegar faðir minn kom til okkar og þar var þýsk kona fyrir. En faðir minn var mik- ill mannvinur; hann sagði aðeins, að Þjóðverjar væru líka mannfólk; hann var ekki beiskur. Ég vil aftur færa læknunum dr. Þórði Oddssyni og Hauki Jónas- syni bestu þakkir fyrir það, af hve miklum skilningi þeir önnuðust mann minn í hinum erfiðu veik- indum hans. Þá vil ég einnig þakka sr. Árna Bergi Sigur- björnssyni fyrir ljúfmannlega að- stoð við mig. Ég bið þeim allrar blessunar. Betty Hermannsson Metsölublad á hverjum degi! ERÐKYNNING ERÐLAGSSIOFNUNAR íótifii't Verðkönnun í brauð- gerðarhúsum utan höfuðborgarsvæðisins í TÓLFTU Verðkynningu Verð- lagsstofnunar var greint frá verft- könnun á brauðum og kökum í brauftgerðarhúsum á höfuðborgar- svæftinu. f þrettándu Verðkynning- unni er haldift áfram að kanna verft á brauðum og kökum og nær könn- unin að þessu sinni til allflestra brauðgerðarhúsa utan höfuðborg- arsvæðisins, 31 alls. I könnuninni, sem gerð var dagana 10.—17. maí sl., var aðeins athugað verð á fyrr- nefndum vörum, en neytendum er ætlað að leggja mat á gæði vörunnar eða þjónustu framleiðenda. Vissir erfiðleikar eru við að bera saman verð á vörum í brauð- gerðarhúsum. Oft eru svipuð brauð nefnd mismunandi nöfnum «8 þyngd á einingum er einnig mjög breytileg. Því var í könnun- inni brugðið á það ráð að athuga þau brauðheiti sem algengust eru eða önnur brauð svipuð ef hin fyrrnefndu fengust ekki og má í athugasemdum sjá heiti þeirra. Verð á brauðum og smábrauðum eins og það birtist í könnuninni hefur verið umreiknað í kg-verð. Verð á kökum er hins vegar ein- ingarverð. í einstaka tilvikum selja brauðgerðarhús aðeins niðursneidd brauð. Miðast verðið í könnuninni þá við það þó almennt sé miðað við brauðin óskorin. Undantekninga sem þessara er getið í athugasemdum. í opnu blaðsins sést hvað ein- staka vörutegundir kosta í hverju brauðgerðarhúsi. í fimm öftustu dálkunum má í fyrsta lagi sjá meðalverð á höfuðborgarsvæðinu, eins og það reyndist vera í tólftu Verðkynningu Verðlagsstofnunar, en við skyndiathugun kom fram að verð er að mestu óbreytt frá því sem það var í þeirri könnun. Síðan má sjá meðalverð, lægsta og hæsta verð og mismun í prósent- um á hæsta og lægsta verði, eins og það er utan höfuðborgarsvæðis- ins. Er mismunur á hæsta og lægsta verði oft verulegur. í töfl- unni { opnu blaðsins má t.d. lesa eftirfarandi: 1. ódýrsta snittubrauðið kostar 32,85 kr. hvert kg, en það dýr- asta 116 kr. Mismunur er 253%. 2. Verðmunur á öðrum stórum brauðum er í öllum tilvikum yf- ir 100% á þeim ódýrustu og dýrustu. 3. Lægsta verð á brauðskurði er 3,00 kr. á hverju brauði, en það hæsta 6,00 kr og munar því um helming. 4. Heilhveitihorn kosta um 193 kr. hvert kg, þar sem þau eru dýr- ust eða jafnvirði eins kg af nautahakki. Lægsta verð á heil- hveitihornum er 49,55 kr hvert kg. Mismunur er 289,5%. 5. Þegar á heildina er litið er tölu- vert meiri munur að meðaltali á hæsta og lægsta verði á brauðum en kökum. Ef öll brauðin, þar með talin smá- brauð, hefðu verið keypt þar Athugasemdir 1) Nidursneitt braud 2) Frúarbrauö 3) Trefjabrauð 4) Kraftbrauð 5) Túristabrauð 6) Heilsubrauð 7) Hunangsbrauð 8) Sérbakað 9) Vitaminbrauð 10) Sojabrauð 11) Steinaldarbrauð sneitt 12) Svissbrauð 13) Sirópsbrauö 14) Heilsuhleifur 15) Klíðbrauð 16) Kornbrauð 17) Gróft franskbrauð 18) Víkmgabrauð sneitt 19) Kraftabrauð sneitt 20) Linubrauð 21) Krúska 22) Gufubakað brauð 23) Fiberbrauð 24) Munkabrauð 25) Dagleg brauð 26) Maltbrauð 27) Rúgkornabrauð 28) Landbrauð 29) Spesbrauð 30) Heilsukúlur 31) Hverabrauð 32) Trimmbrauð 33) Draumabrauð 34) Ristabrauð, sneitt 35) Heilsubrauð, sneitt’ 36) Rúghveitibrauð, sneitt 37) Klasabrauð 38) Skorpubrauð 39) Klausturbrauð 40) Smárabrauð sem þau reyndust ódýrust hefðu þau kostað 493,70 kr. en 1.254,75 kr. ef þau hefðu verið keypt þar sem þau voru dýrust, sem er 154,2% hærra verð. Sambærilegar tölur hvað varð- ar kökur eru hins vegar 218,15 kr. þar sem þær reyndust ódýr- astar og 373,85 kr. þar sem þær reyndust dýrastar og munar þar 71,4%. Hér er reyndar um ýtrustu mörk að ræða, en töl- urnar sýna að verulega má spara með verðsamanburði og þá ekki síst á brauðum. í báðum tilvikum er um að ræða meiri mismun en reyndist vera á höf- uðborgarsvæðinu. 6. Meðalverð á brauðum reyndist vera 0,8% hærra á höfuðborg- arsvæðinu en utan þess. Hins vegar reyndist meðalverð á kökum vera 8,4% hærra í brauðgerðarhúsum utan höfuð- borgarsvæðisins. Á baksíðu er gerður enn frekari verðsamanburður. Var valin sú leið að setja saman tvær inn- kaupakörfur í hverju brauðgerð- arhúsi. Var brauð í annarri körf- unni, en í hinni kökur. í fremri dálki baksíðunnar sést hvað inn- kaupakörfurnar kosta hjá hverj- um framleiðanda og í aftari dálki er gerður hlutfallslegur saman- burður á þessum tölum og lægsta verð sett sem hundrað. Einnig þar kemur fram verulegur verðmunur milli einstakra brauðgerðarhúsa: 1. ódýrasta brauðkarfan var í Brauðgerð KB, Borgarnesi, og kostaði 171,15 kr. Sú dýrasta fékkst í Gamla bakaríinu á ísa- firði og kostaði 251,45 eða 46,9% meira en sú ódýrasta. 2. Kökukarfan sem ódýrust var kostaði 263,40 kr. og fékkst hjá Bakaríinu í Grindavík, en sú dýrasta var í Gamla bakaríinu á Ísafirði og kostaði 370,55 kr. eða 40,7% meira en sú ódýr- asta. Verðkannanir Verðlagsstofnun- ar liggja frammi fyrir almenning hjá Verðlagsstofnun, Borgartúni 7, og hjá fulltrúum stofnunarinn- ar úti á landi. Þeir sem þess óska geta gerst áskrifendur að Verð- kynningu Verðlagsstofnunar sér að kostnaðarlausu. Síminn er 27422.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.