Morgunblaðið - 31.05.1983, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1983
27
Arsþing HSI um helgina:
Friðrik kjörinn formaður
• Frá vinstri: Reynir Karlsson, íþróttafulltrúi ríkisins, Njáll Eysteins-
son, Jón Siguriónsson, Selma Vigfúsdóttir, Jón Ármann Héöinsson,
stjórnarmaöur ISÍ, Sonja Gylfadóttir, og Níels Árni Lund, œskulýðs-
fulltrúi ríkisins. Sonja og Njáll eru meö hjólin sem þau fengu í verö-
laun. MorgunblaSið/Skapti.
Verðlaun veitt í rit-,
geróarsamkeppni ISI
FRIÐRIK Guömundsson var kjör-
inn formaöur Handknattleiks-
sambands íslands til eins árs á
ársþingi sambandsins um helg-
ina, í staö Júlíusar Hafstein, sem
nú lætur af embætti eftir fimm
ára formennsku. Á þinginu var
mikið rætt og mörg mál tekin
fyrir — og sögöu þeir sem lengi
hafa staöið í þessu aö menn
heföu haft óvenju mikiö til mál-
anna aö leggja.
Fjárhagsstaöa sambandsins er
ekki sem best um þessar mundir
— og til aö auka fé til sambands-
ins var samþykkt í fjárlögum um
300% hækkun á mótagjöldum fyrir
næsta keppnistímabil.
Hingaö til hafa erlendir leikmenn
sem leika meö íslenskum liöum
þurft aö búa hér á landi í a.m.k.
sex mánuöi áöur en þeir mega fara
aö leika meö liöinu — en á þinginu
var þessari grein breytt. Nú hlóöar
hún svo: „Aöeins einn leikmaöur,
erlendur ríkisborgari, má leika
meö meistaraflokki hvers félags,
og hafi hann haft búsetu hér á
landi a.m.k. frá upphafi keppnis-
tímabils, þ.e. frá 1. september.,,
HSÍ lagöi fram tillögu þess efnis
aö þátttökugjald i islandsmóti inn-
anhúss greiöist, „ef ekki er um
staðgreiðslu aö ræöa, meö þrem
jöfnum greiöslum ... “ Síðan var
sagt aö félög samþykktu víxla fyrir
greiöslunum, en yröu þeir ekki
greiddir á gjalddögum teldist félag
í vanskilum, og leikir því tapaöir
sem þaö léki meðan þaö væri í
vanskilum. Mikiö var rætt um
þessa tillögu og menn ekki á eitt
sáttir. Málalok uröu þau aö í staö
þriggja var samþykkt að um fjóra
gjalddaga yröi aö ræöa — og
einnig aö víxlum yröi sleppt, en
ákveöiö aö séu gjöld ekki greidd
15 dögum eftir gjalddaga, teldist
félag í vanskilum, og allir leikir því
tapaöir meöan svo er.
Þá var samþykkt naumlega til-
laga þess efnis aö tekjum og
kostnaöi af leikjum í riölakeppni
úrslitaleikja í 1. og 2. deild karla
(feröa- og gistikostnaöur) yröi
safnaö saman í einn pott og skipt
jafnt á milli leikaöila í viökomandi
riöli aö móti loknu — hvort sem
um tap eöa gróöa væri aö ræöa.
Hingað til hefur heimaliöiö fengiö
allan ágóöa af leikjum — eöa þurft
aö þorga brúsann hafi veriö um
tap aö ræöa.
Einnig má nefna aö á þinginu
var samþykkt aö breyta leiktima í
meistaraflokki kvenna í 2x30 mín.
og gert ráö fyrir í ákvæöum IHF, en
stúlkurnar hafa leikiö skemur
hingaö til. Þá var einnig samþykkt
aö aldursmörk í 2. og 3. flokki
kvenna yröu hækkuö um eitt ár.
— SH.
ÍÞRÓTTASAMBAND íslands efndi
til ritgerðarsamkeppni í sam-
vinnu viö íþróttafulltrúa og æsku-
lýðsfulltrúa ríkisins fyrr í vetur
fyrir börn og unglinga á aldrinum
11—15 ára. Efnisval var: Gildi
íþrótta, fyrir 13, 14 og 15 ára, og
Uppáhaldsíþróttin mín, fyrir 11 og
12 ára. Veitt voru ein stúlkna- og
ein drengjaverölaun t hvorum
flokki.
Mjög góö þátttaka var í þessari
samkeppni, og fékk dómnefndin
ails 142 ritgeröir. Mun fleiri voru
þó skrifaöar, þar sem íslensku-
kennarar viökomandi skóla völdu
tvær til þrjár bestu úr hverjum
bekk.
Verðlaun fyrir bestu ritgerðirnar
voru, í yngri flokknum: reiöhjól, og
í eldri flokknum: vikudvöl í æsku-
lýðsmiðstöð á Noröurlöndum í
sumar.
Verðlaunahafar mættu í boö til
ÍSÍ á dögunum, þar sem reiöhjólin
voru afhent sínum nýju eigendum,
Sonju Gylfadóttur og Njáli Ey-
steinssyni úr Breiöholtsskóla. Sig-
urvegarar í eldri flokknum voru
Selma Vigfúsdóttir frá Gagnfræða-
skóla Ólafsfjarðar og Jón Sigur-
jónsson frá Gagnfræðaskóla
Sauöárkróks, og fara þau til Sví-
þjóöar seinna í sumar til vikudval-
ar.
— SH.
• Júlíus Hafstein, til vinstri, og Friörik Guömundsson, núverandi
formaður HSÍ, eftir aö HSÍ-þinginu lauk. Morgunbiabib/Skapti.
Lakari skórnir
Hvar er
léttleikinn?
— markalaust jafntefli kjörin úrslit
LEIKUR Víkinga og BraWablika á I Gelr Gunnleifsson, Bllkl,
Hallarflðtinni i Laugardal f gaar- skaut á
Einn leikur, vinur,
einn leikur ...
Ágæti S.H.
Undirritaöur var meöal áhorf-
enda leiks Víkings og Breiöa-
bliks í gærkvöldi. Víst er aö
áhorfendur luku upp einum
rómi að hvorugir skörtuöu sínu
fegursta í samleík eða tilburö-
um. Hitt er svo annaö mál hvern
veg snillingar á dagblööum
skara í glæður leiksins og upp-
lýsa lesendur eða leiöa þá í all-
an sannleik um orsakir og af-
leiöingar.
i Gísla sögu Súrssonar segir
frá því þegar kelling nokkur var
send frá Sæbóli aö Hóli til
njósna. Heldur veittist henni erf-
itt aö afla upplýsinga eöa gera
sér grein fyrir aðstæðum og var
þá nokkru heimskari er heim
kom ef einhverju munaði.
Skemmtilega þótti mér þú
S.H. vekja upp draug kellingar,
þá þú lagöist á njósn á ieik þess-
um og lamdir síöan visku þinni á
íþróttaörkina. Þar fullyröir þú
meöal annars óbeint aö aöall og
herkænska Magnúsar Jónatans-
sonar, þjálfara Breiöabliks, sé
grófur leikur og þaö sem á út-
lensku nefnist „kick and run“
(Þetta mun aö vísu vera heiti
þeirrar leikaöferöar sem ensk liö
hafa veriö kennd við undanfarna
áratugi, en í umræddri blaöa-
grein er senniiega átt viö hlaup
en lítil kaup.) Já, gáfaöur er him-
ininn. Þessi sleggjudómur um
Magnús hlýtur aö vera örverpi
vanþekkingar og fljótræöis en
ekki illkvitni. Ég hygg aö t.d.
leikmenn Breiöabliks þekki betur
til þjálfara síns en svo, aö þeir
taki undir þaö aö leikskipulag
hans bjóöi aöallega upp á hlaup
og spörk út í loftiö eöa kapp án
forsjár. Ef S.H. heföi t.d. komist á
snoðir um leik ÍBV og UBK í bæj-
arkeppninni um síðustu helgi
heföi hann séö fallegan samleik
og vel skipulagöan sóknarleik
UBK-liösins. Hvers vegna var þá
leikur Víkings og UBK ekki ásjá-
legri en raun þar vitni? Vegna
þess aö þarna öttu Islandsmeist-
ararnir kappi viö hættulega and-
stæöinga, leikmenn óttuöust
hvorir aöra og hvorir tveggja
voru þrungnir taugaspennu í
fyrsta leik þeirra á Islandsmótinu.
Þess vegna fýsti hvoruga aö taka
áhættu eöa „opna leikinn" (þó aö
Víkingar legöu aö sjálfsögöu
meira í sölurnar í þeim efnum,
þar sem þetta var heimaleikur
þeirra). I Ijósi þessa voru svæöi
lítt gefin eftir í leiknum, mjög
knappur tími vannst til að taka
knöttinn niður og leika honum og
kapp og harka hvorra tveggju var
í öndvegi.
Árangúr Magnúsar Jónatans-
sonar meö ísfiröinga í fyrra var
mjög góöur. Flestir leikmanna
voru fátæklega búnir tæknibrell-
um en þar sem á skorti tækni-
væöingu eöa knattmeöferð leit-
aöist þjálfarinn viö aö bæta upp
meö mýkt, þoli, baráttugleði og
síöast en ekki síst leikskipulagi
sem var til fyrirmyndar. Þær voru
ófáar glompurnar í vörn and-
stæöinganna, sem leikmenn
kunnu aö hagnýta sér og árang-
urinn varö: markhæsta lið ís-
landsmótsins. Nú ræöur Magn-
ús yfir leikmönnum meö meiri
knatttækni en margt þarf hann
aö færa til betri vegar frá því,
sem var í fyrra sumar er liö þetta
spyrnti fótum við fallgímaldinu
fram á síöasta leik.
í fyrsta lagi voru leikmenn út-
haldslitlir og skorti allan kraft.
Þaö þarf karft til aö sýna
skemmtilega tækni í 90 mínútur
og þaö þarf kraft til aö standast
atlögur haröra andstæöinga sem
eru e.t.v. ekki gyrtir öörum vopn-
um en hörku og krafti. Aö leika
af krafti er ekki þaó sama og aö
leika gróft Þaö var ekki rudda-
skapur andstæöinganna sem
vængstýföi Blikana í fyrra eins og
einhver spekingur hélt fram i
sjónvarpinu heldur máttleysi
þeirra sjálfra og röng þjálfun. í
ööru lagi var stálinu ekki stapp-
aö í leikmenn þegar á því harö-
asta stóö. í þriöja lagi var
leikskipulag vægast sagt dular-
fullt, liölega var leikiö um þveran
völl eins og undanfarin ár, en
þegar tók aö nálgast vítateig
andstæöinganna dundi ógæfan
yfir. Hreyfingar leikmanna og
gegnumbrot þar voru tilviljunum
háö þegar minnst var vonin voru
stundum allir fremstu menn
staddir á sama blettinum líkt og
agndofa hópur fuglaskoðara á
bryggjusporöi.
Magnús Jónatansson hefur
mikiö verk aö vinna meö hiö efni-
lega liö Breiöabliks. Hann hefur
tekið á hlutunum meö festu í vet-
ur og liðið er nú i mótun.
Hann ætlar sér áreiöanlega aö
leggja grunn aö fjölhæfu liði
framtiöarinnar þar sem enginn
þáttur góörar og árangursríkrar
knattspyrnu er vanræktur.
Aö lokum þakka óg S.H.
hressilegar greinar en minni jafn-
framt á aö aögát skal höfö þegar
mönnum eru hnýttir gullskór eöa
aðrir skór lakari.
Jón Þorvaldsson 5206—9580.
Ágæti Jón.
Umræddur leikur Víkings og
Breiðabliks var ekki góður, eins og
ég sagði í umsögn minni um hann.
Það veist þú jatn vel og aðrir sem á
hann horfðu og allir uröu Ifklega fyrir
vonbrigðum með liðin. En það sem
mest kom á óvart var hvernig Blik-
arnir spiluðu. Hve breyttir þeir voru
frá síöasta keppnistímabili. Undan-
farin ár hafa þeir veriö mjög lóttleik-
andi — en nú sat harkan að minu
mati í fyrirrúmi.
Ég sagði í greininni að þessi aðferð
gæti örugglega boriö árangur — og
þaö mun hún örugglega gera. En þu
veröur aö gæta aö því. elsku vinur, að
ég var að fylgjast meö einum leik og
skrifaöi því aöeins um þann eina leik.
Ég var ekki aö dæma Blikaliöiö i þeim
sautján leikjum sem þaö átti eftir þeg-
ar þessum var lokiö.
Ég vona aö Magnúsi takist aö sam-
eina þann kraft, sem nú einkennir lið
hans, og þann léttleika sem þessir
strákar hafa sýnt undanfarin ár. Þá
veröur Blikaliöiö enn erfiöara viöur-
eignar en nokkru sinni fyrr — þaö
hlytur þú aö skilja Ég sá ekki leik IBV
og UBK í bæjarkeppninni, og sá því
ekki „fallegan samleik og vel skipu-
lagöan sóknarleik UBK-liösins“. Það
er rétt hjá þér, aö Magnús Jónatans-
son hefur mikiö verk aö vinna meö hiö
efnilega liö Breiöabliks — sem hefur
veriö taliö efnilegt í allmörg ár — og
vel má vera aö honum takist þaö. Þaö
veröur tíminn aö skera úr um. Þú seg-
ir aö hann ætli sér áreiðanlega aö
leggja grunn aö fjölhæfu liöi framtíð-
arinnar, „þar sem enginn þáttur góðr-
ar og árangursríkrar knattsþyrnu er
vanræktur". Auövitað ætlar hann aö
gera það. Þaö væri nú annaö hvort!
En þaö sem þú gleymir, er aö ég var
aö skrifa um leikinn viö Víking á
fimmtudaginn 19. mái 1983 — ekki
einhvern leik einhvern tíma í framtíð-
inni. Ég var að dæma Blikaliðið eins
og það lék í þeim leik — og ég fer
aldrei ofan af því að sú gagnrýni sem
fram kom eftir þann leik var réttmæt.
Ég er ekki einn á þeirri skoðun.
Ég er ekki sammála þér í því, aö ég
hafi verið aö vekja upp einhvern
gamlan draug. En aö aðall og her-
kænska Magnúsar Jónatanssonar sé
grófur leikur og „kick-and run“ fót-
bolti! Þaö kom óbeint fram, segir þú,
og það hlýtur þá aö vera vegna þess,
að lið hans lék þannig — sem þaö
hefur aldrei gert áöur. Er það ekki
hann sem leggur línurnar? Þaö hlýtur
aö vera hann sem breytt hefur liðinu,
en ekki einhver annar. Breytingin er
kannski ekki — og vonandi ekki —
fullgerö, þaö hlýtur þú aö vona líka,
sért þú stuöningsmaöur Blika.— SH.