Morgunblaðið - 31.05.1983, Blaðsíða 38
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. MAf 1983
Líf og fjör á Lækjartorgi
— þegar þúsundir unglinga streymdu þangað á hjólum sínum
Davíð Oddsson borgarstjóri ávarp-
aði ungmennin.
Á laugardaginn fylltist miðbærinn af börnum sem komu hjólandi í stórum hópum frá
grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. Síðastliðna viku hafa þau safnað fé til styrktar
fötluðum börnum, og afhentu það á laugardaginn. Að sögn Styrktarfélags fatlaðra söfnuð-
ust rösklega 750 þúsund, og vill félagið skila þakklæti til allra þeirra sem lögðu hönd á
plógin. Mikil skemmtun var haldin fyrir krakkana á Lækjartorgi þar sem fram komu bæði
skemmtikraftar og hljómlistarmenn. Davíð Oddson borgarstjóri flutti ávarp og loks var
dregið í happdrætti þar sem reiðhjól voru að sjálfsögðu í aðalvinninga. Um 6.000 þúsund
manns voru á skemmtuninni og voru það flest börn sem komið höfðu hjólandi Blm. Mbl.
rabbaði við nokkur þeirra á meðan á skemmtuninni stóð.
Ljósmyndir Mbl./ Emilfa.
Margir skemmtikraftar komu fram, hér er það Magnús Ólafson sem treður upp.
Guðmundur Stefánsson 9 ára:
„Þetta er alveg nýtt hjól, ég fékk
það í gær útaf hjóladeginum. Ég er
ekkert smeykur ( umferðinni, en ég
á eftir að fá mér svona bilafælu á
hjólið."
Eyþór Már Hilmarsson 10 ára:
„Ég hjólaði hingað heiman úr
Sörlaskjóli. Ég á ágætis 5 gíra hjól
sem er ársgamalt. Það hefur að vísu
bilað nokkrum sinnum, en það hafa
ekki verið nein stór vandræði. Ég
safnaði í einn og hálfan tíma og
fékk 800 krónur.“
Arnarhóllinn var þakinn reiðhjólum og minnti helst á hjólageymslur í Tókýó.