Morgunblaðið - 19.06.1983, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1983 37
Halldóra H. Valdi-
marsdóttir - Minning
Látin er í Reykjavík frú Hall-
dóra Helga Valdemarsdóttir, eftir
stutta veru hér á þessari storð,
hún lést í Borgarspítalanum þann
8. júní eftir stutta en erfiða sjúk-
dómslegu. Frú Halldóra kenndi
fyrst þess sjúkdóms er dró hana
til dauða þann 14. maí sl., var lögð
inn á nefndan spítala þann 19. maí
og andaðist þar um hádegisbil
þann 8. júní.
Halldóra fæddist á Raufarhöfn
þann 9. maí 1930. Ung að árum
fluttist hún til Reykjavíkur, hún
gekk í Ljósmæðraskólann og út-
skrifaðist þaðan með góðum vitn-
isburði vorið 1950.
Halldóra giftist Guðmundi
Halldórssyni, bifreiðastjóra, þann
11. nóvember 1950. Þeim Halldóru
og Guðmundi fæddust sex bðrn.
Þau eru: Rósa Anna, f. 1951, gift
Guðlaugi Nielsen, bifreiðastjóra,
Guðmundur, f. 1953, kvæntur
Guðrúnu Þ. Óskarsdóttur, Valde-
mar, f. 1955, kvæntur Þórunni
Kristjánsdóttur, Dóra Kristín, f.
1957, gift Þórhalli Bjarnhéðins-
syni, sjómanni, Jón Elías, f. 1964,
heitbundinn Elsu Kristfnu Helga-
dóttur og Halldór f. 1967, þeir
tveir síðastnefndu eru enn f for-
eldrahúsum.
Þau Guðmundur og Halldóra
reistu sér, af litlum efnum, mynd-
arlegt einbýlishús að Langagerði
6. Munu þau oft hafa lagt nótt við
dag til þess að koma húsinu upp og
skapa sér og sínum það öryggi sem
allir óska sér.
Frú Halldóra vann meðfram
húsmóðurstörfum, hún vann um
tíma sem hjúkrunarkona á Elli-
heimilinu Grund, en sl. 10 ár var
hún ljósmóðir á Landspítalanum
þar af 8 ár á vökudeild Barnaspft-
ala Hringsins, utan þessa var frú
Halldóra alltaf boðin og búin til
þess að vaka yfir sjúkum og grun-
ar mig að sjaldan hafi hún þegið
þóknun fyrir.
Frú Halldóra er rómuð fyrir
snilli í matargerð og var hún oft
fengin til þess að sjá um veislur á
hátíðarstundum vina og kunn-
ingja.
Eg átti því láni að fagna að
kynnast frú Halldóru fyrir örfáum
árum á sólarströnd, en ekki hafði
ég þar lengi dvalið er ég tók eftir
konu sem dvaldi i næstu fbúð á
hótelinu, það sem vakti athygli
mína á umræddri konu, var að
hún virtist litla hvíld þurfa og að
hún var sifellt á þönum með fólk i
hjólastólum og hugfatlað fólk. Við
tókum tal saman og kvað frú Hall-
dóra þetta eitt af hugðarefnum
sínum að koma fólki sem svo er
ástatt fyrir sem mest í snertingu
við umheiminn og að það fengi
tækifæri til að vera meðal fólks,
sem að mati almennings telst eðli-
legt fólk.
Þetta tel ég lýsa lífshlaupi og
hugsjónum frú Halldóru, hún
mátti ekkert aumt sjá án þess að
gera það sem í hennar valdi stóð
til þess að bæta um.
Eftirlifandi faðir frú Halldóru
býr á fæðingarstað hennar, hann
er Valdemar Guðmundsson, f.v.
rafveitustjóri þar í byggð.
Það er huggun harmi gegn að
vera vitandi þess að frú Halldóra
á vísa góða heimkomu, ef eitthvað
má marka það sem mér var kennt
um líf eftir dvöl á þessari storð,
þar á ég við að meira er um vert að
gefa en að þiggja.
Frú Halldóra verður jarðsungin
frá Bústaðakirkju mánudaginn 20.
júní.
Eftirlifandi ástvinum vottum
við, ég og fjölskylda mín, okkar
dýpstu samúð.
Björn Helgason
Halldóra Helga Valdimarsdótt-
ir fæddist 9. maí 1930 á Raufar-
höfn. Foreldrar hennar voru hjón-
in Rósa Anna önundardóttir og
Valdimar Guðmundsson, rafveitu-
stjóri á Raufarhöfn.
Eftirlifandi manni sínum, Guð-
mundi Halldórssyni, bifreiða-
stjóra, giftist Halldóra 11. nóv-
ember 1950. Börn þeirra eru: Rósa
Anna, Guðmundur, Valdimar,
Dóra Kristín, Jón Elías og Hall-
dór.
Halldóra stundaði nám í Hús-
mæðraskóla Hverabakka, Hvera-
gerði, 1948—1949. Hún lærði að
smyrja brauð og útbúa veisluborð
og starfaði við það samfara öðrum
störfum frá 1959—1971. Halldóra
lauk ljósmóðurprófi frá LMSÍ 30.
september 1950 og þá aðeins tví-
tug að aldri. Fyrstu ljós-
móðurstörf sín vann hún við Rauf-
arhafnarumdæmi seinni hluta árs
1950 til fyrri hluta árs 1951.
Ljósmóðurstörf hóf hún að nýju
árið 1974 við Fæðingadeild Land-
spítalans og starfaði þar til 1976
eða þar til hún réðst til starfa á
vökudeild Landspítalans við stofn-
un þeirrar deildar 2. febrúar 1976
og starfaði þar til dauðadags.
Hjúkrunarstörf stundaði hún á
Elliheimilinu Grund í Reykjavík
1963-1964 og 1971-1973. Hall-
dóra var formaður Félags starfs-
fólk í veitingahúsum 1959—1967.
Við Halldóra kynntumst fyrir
u.þ.b. níu árum, er foreldrar mínir
fluttu í Langagerði. Halldóru
kynntist ég í gegnum son hennar,
Jón Elías, en við vorum bekkjarfé-
lagar og góðir vinir. Frá því ég
flutti í Langagerði varð ég sem
grár köttur á heimili Halldóru og
átti jafn mikið heima þar eins og á
mínu eigin heimili. Til Halldóru
var gott að leita með áhyggjur og
vandamál, hún var þolinmóð við
okkur krakkana er þangað leituð-
um, þar vorum við alltaf velkomin.
Til Halldóru leituðu þeir sem
áttu um sárt að binda eða voru
heimilislausir. Hún lagði sig fram
við að hjálpa fólki til að finna til-
gang í lífinu og alltaf fann hún
ástæðu til að láta fólk fara frá sér
lífsglaðara en þegar það kom.
Halldóra var mikil handavinnu-
kona og saumaði út hinar falleg-
ustu myndir. Margir lærðu að
sauma út hjá henni og búa til fal-
lega hluti. Það var sama hversu
klaufalega maður fór að í byrjun,
með þolinmæði og þrautseigju
Halldóru tókst nemandanum
ævinlega að ljúka verki sínu á
sómasamlegan hátt.
Halldóru á ég mikið að þakka.
Hún miðlaði mér af lífsreynslu -
sinni og þekkingu. Síðast en ekki
síst þá hjálpaði hún mér að taka
ákvörðun um mitt ævistarf. Þó svo
að ég sé ekki búin að mennta mig
eins mikið og við Halldóra ætluð-
um, þá vonast ég til að ég eigi
einhvern tíma eftir að feta í fót-
spor hennar sem ljósmóður og að
ég muni geta unnið starf mitt af
jafn mikilli ánægju, fórnfýsi og
reisn og hún gerði.
Með þessum fátæklegu línum
mínum vil ég þakka Halldóru fyrir
þær stundir er við sátum saman
og þakka henni fyrir að senda mig
alltaf frá sér ánægðari manneskju
og vonandi örlítið betri.
Ég vil senda manni hennar,
börnum, tengdabörnum og barna-
börnum mínar innilegustu samúð-
arkveðjur.
Guðrún Kjartansdóttir
Túlípanaborginni veröur seint með
orðum lýst, hún kynnir sig best sjálf.
Við minnum hins vegar á að þessi lífs-
glaða heimsbprg, er aðeins í seilingar-
fjarlægð frá . spennanþi ævintýrum
hollenskra
baðstrand
"túlípanaakra,
trjálunda þar
a aorpa
f ■ ðsæl
AMSTERDAM - HOLLAND,
eitt og sama ævintýrið!
sem þú nartar í nestið með fjölskyld-
unni, Og gleymum ekki vindmyllunum
sem margar eru enn í fullum gangi,
ostamarkaðinum í Alkmaar, leikveröld -
inni í Beeksee Bergen, blómauppboð-
unum í Aalsmeer og skemmtigörðun-
um sem hvarvetna er að finna.
K-m'' Flugfólag með ferskan blæ
4RNARFLUG
Lágmúla 7, slmi 84477
XA/CT KOST