Morgunblaðið - 23.06.1983, Qupperneq 1
48 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
139. tbl. 70. árg.
FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
„Þetta er mikilvæg
stund fyrir þjóðinau
LEYFISVEITINGU VEIFAÐ. Lech
Walesa hitti í gærkvöldi Jóhannes
Pál páfa II að máli í Krakow, en
engar myndatökur voru leyfðar á
fundinura. Hér sést hann leggja upp
í ferðina frá Gdansk og veifar sigri
hrósandi opinberu leyfi stjórnvalda
fyrir páfafundi og þriggja daga fríi
frá vinnu. ap
Dagar Glistrups taldir
í dönskum stjórnmálum?
Fundinn sekur um ein-
staklega gróf skattsvik
Kaupmannahöfn. 22. júní. AF. Frá fréttaritara Mbl.
Ilæstiréttur Danmerkur dæmdi í
dag Mogens Glistrup, stofnanda
Framfaraflokksins, í þriggja ára
fangelsi og til að greiða þrjár millj-
ónir ísl. kr. í sekt fyrir skattsvik.
Hundruð manna söfnuðust
saman úti fyrir hæstarétti í
morgun, og fagnaði fólkið ákaf-
lega þegar Glistrup kom út eftir
að dómurinn var ljós. Glistrup
hélt smátölu og sór þess dýran eið
„að berjast gegn þessu óréttlæti
meðan ég dreg andann".
Ekki þykir leika á því nokkur
vafi, að þingið muni svipta Glistr-
up þinghelgi svo fullnægja megi
dómnum yfir honum, enda hafa
flestir flokksleiðtoganna nú þegar
sagt, að Glistrup verði að víkja. 1
byrjun þessa mánaðar hætti Poul
Schlúter forsætisráðherra við að
leggja fyrir þingið ýmis mikilvæg
mál, en þá höfðu Glistrup og tveir
samflokksmenn hans snúist gegn
stjórninni svo minnstu munaði,
að hún yrði að fara frá. Almennt
Mogens Glistrup talar til fólks úti
fyrir hæstarétti Danmerkur eftir að
hann var dæmdur í þriggja ára fang-
elsi fyrir skattsvik. AP.
er búist við, að stjórnin eigi auð-
veldara með að koma málum sín-
um fram á þingi að Glistrup frá-
gengnum, enda er varamaður
hans sagður henni hlynntur.
Mogens Glistrup hefur setið á
þingi frá 1972 og hefur það verið
hans helsta baráttumál að berjast
gegn dönsku skattalöggjöfinni,
sem hann segir spillta og gegn-
umrotna. Við réttarhöldin yfir
honum sagði saksóknarinn hins
vegar, að Glistrup væri ekkert
annað en „kaldrifjaður bragðaref-
ur og gáfaður glæpamaður“, en
verjandi hans lýsti honum sem
manni, sem „byggi í eigin hugar-
heimi en vildi vel“.
Sjá: „Ég lofa að mæta til leiks
... “ á bls. 23
Óvæntur fundur páfa og Jaruzelskis hershöfðingja í
gærkvöldi — 10.000 lögreglumenn tvístruðu mótmæla-
göngu tugþúsunda manna í Krakow og Nowa Huta
„Arafat er að safna að sér
mönnum og ætlar að láta til skar-
ar skríða. Blóðsúthellingar eru
óhjákvæmilegar, en við erum við-
búnir þeim,“ sagði talsmaður upp-
reisnarmannanna í dag. Hann
fullyrti þó, að Arafat og menn
hans myndu aldrei komast til
Bekaa-dals, þar sem uppreisnar-
menn þykjast óhultir í skjóli sýr-
lenska hersins, og sagði að brátt
yrðu Arafat og menn hans flæmd-
ir á brott frá Trípólí.
Fréttir hafa verið um, að sýr-
lenskir hermenn hafi tekið sér
stöðu við hlið uppreisnarmann-
anna innan PLO gegn stuðnings-
mönnum Arafats en Assad, Sýr-
landsforseti, hefur neitað þeim
harðlega.
Krakow, 22. júní. AF.
JÓHANNES PÁLL páfi II átti í
kvöld óvæntan fund með Jaruzelski
hershöfðingja og er opinberlega
sagt, að hann hafi verið haldinn að
beiðni kirkjunnar. Ekkert hefur enn
frést af viðræðum þeirra. Um tvær
milljónir manna hlýddu í dag á
messu páfa i Krakow og á eftir fóru
tugþúsundir þeirra í mótmælagöngu
um Krakow og nágrannaborgina
Nowa Huta. Lech Walesa beið þess í
kvöld að ganga á fund páfa.
Eftir fund með biskupum
Krakow-borgar fór páfi fótgang-
andi til Wawel-kastala skammt
frá, þar sem Jaruzelski hershöfð-
ingi og herstjórnandi í Póllandi
beið hans. Þeir ræddust við í 40
mínútur en ekkert hefur frést
hvað þeim fór á milli. Um 100.000
manns biðu á sama tíma fyrir
utan heimili páfa í Krakow og
sungu þar sálma og báðust fyrir.
Prestur kom þá út í einn glugga
hússins og hvatti fólkið til að
„biðja fyrir páfa, biðja um að heil-
agur andi styrki hann því þetta er
ákaflega mikilvæg stund fyrir
þjóðina".
Tvær milljónir manna hlýddu á
messu páfa í Krakow í morgun og
var þar látinn í ljós mikill og ein-
lægur stuðningur við Samstöðu,
hin bönnuðu verkalýðsfélög. Á eft-
ir fóru um 50—60.000 manns i
mótmælagöngu um Krakow og
Nowa Huta, nágrannabæ Krakow.
Fólkið söng nafn Walesa, bar fána
Samstöðu og gerði sigurmerkið
með fingrum sér. Um 10.000
lögreglumenn tvístruðu mann-
fjöldanum með því að aka inn í
göngurnar aftan frá og með því að
koma fyrir vegartálmunum sem
víðast á leið fólksins.
Lech Walesa og fjölskylda hans
komu til Krakow í kvöld og biðu
þess í kirkju í borginni að þeim
væri leyft að ganga á fund páfa.
Noregur:
Njósnara
vísað burt
Ósló, 22. júní. Fra frétta-
ritara Mbl., Jan-Erik Lauré.
Aðstoðarhermálafulltrúa við
sovéska sendiráðið í Ósló var í
dag vísað úr landi fyrir njósnir. í
tilkynningu frá norska utanríkis-
ráðuneytinu var þess ekki getið
hve umfangsmikil njósnastarf-
semin var eða hve mikið hún hefði
skaðað norska hagsmuni.
Norska leyniþjónustan hefur
haft auga með hermálafulltrú-
anum, Vladimir F. Zagrebnev, í
langan tíma og greip hann loks-
ins glóðvolgan þegar hann var
að fylgjast með umsvifum
norska hersins á herflugvelli í
Bodö í Norður-Noregi. Hermt
er, að Zagrebnev, sem er ofursti
að tign, hafi margreynt að kom-
ast í samband við menn, sem að-
gang hafa að hernaðarleyndar-
málum, og boðið þeim stórfé
fyrir upplýsingar.
Búist við blóðugum
átökum innan PLO
Trípólí, l)ama.skus, 22. júní. AF.
TIL stórtíðinda virðist vera að draga
í átökunum milli Arafats, leiðtoga
PLO, og þeirra skæruliða, sem gert
hafa uppreisn gegn yfirráðum hans.
Arafat er nú að koma upp nýjum
aðalstöðvum í borginni Trípólí í Líb-
anon og í dag sagði talsmaður upp-
reisnarmannanna, að þeir byggjust
við miklum átökum á næstunni.
Flestir helstu ráðamenn innan
PLO, Frelsisfylkingar Palestínu-
manna, sem hollir eru Arafat, eru
nú komnir til borgarinnar Trípólí
í Norður-Líbanon og eru að koma
þar upp nýjum aðalstöðvum fyrir
skæruliðahreyfinguna. Arafat
kvaðst í dag vera viss um, að hann
myndi bera sigur úr býtum í við-
ureigninni við uppreisnarmenn-
ina, sem lúta forystu Saeed Mousa
ofursta. „Það verður þó hvorki létt
verk né löðurmannlegt, það þykist
ég vita,“ sagði Arafat í viðtali við
fréttamann AP.