Morgunblaðið - 23.06.1983, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 23.06.1983, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1983 25 Mbl. RAX sem færði Vigdísi blómin, sem hún heldur á stendur vinstra megin á myndinni hjá it til hægri á myndinni er kona Stefáns Skarphéðinssonar, Ingibjörg Ingimarsdóttir, um afa síns úsdóttir, færði Vestur-Barðastrand- arsýslu að gjöf með þeim skilyrðum að reist yrði húsnæði yfir safnið. Mununum hefur Egill safnað allt frá unglingsárum og telur nú safnið á þriðja þúsund grípi. Uppistaða safnsins eru gripir tengdir sjávar- útvegi og hlunnindum. Frú Vigdís Finnbogadóttir og ættmenn hennar hafa einnig látið safninu í té gripi til varðveislu úr eign föðurforeldra hennar. Eftir að hafa opnað safnið formlega og skoðað það hélt frú Vigdís í Sauðlauksdal þar sem Stef- án Skarphéðinsson sýslumaður færði henni fyrrnefnt málverk að gjöf. Úr Sauðlauksdal var haldið inn til Patreksfjarðar þar sem kvöldverður var snæddur. Um kvöldið hittu Patreksfirðingar for- setann. í för með forseta íslands er Hall- dór Reynisson forsetaritari og kona hans, Guðrún Þ. Björnsdóttir. Stef- án Skarphéðinsson sýslumaður Barðstrendinga fylgdi forsetanum um sýsluna ásamt konu sinni, Ingi- björgu Ingimarsdóttur. Á morgun mun forsetinn heimsækja Tálkna- fjörð og Bíldudal, en síðdegis yfir- gefur frú Vigdís Barðastrandar- sýslu og sýslumaður ísafjarðarsýslu mun taka á móti henni á sýslumörk- unum. 'dís og Egill Ólafsson bóndi skoða muni í minjasafninu að Hnjóti. Egill Olafsson gaf nunina til safnsins, en þarna á veggnum eru munir úr búi foðurforeldra Vigdísar, Magðalenu Jónsdóttur og séra Þorvalds Jakobssonar í Sauðlauksdal. Frú Vigdís skoðar roðskó sem Ólafía Einarsdóttir gaf henni að Hnjóti. Ólafía er næst Vigdísi hægra megin á myndinni. Stefán Skarphéðinsson sýslumaður stendur hjá. Frá hádegisverðarboði í Fagrahvammi. Meðal gesta voru margir gamlir Rauðsendingar sem mundu afa hennar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.