Morgunblaðið - 23.06.1983, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1983
Gonzales
vestrænu
WaKhington, 22. júní. AP.
Forsætisráðherra Spánar, Filipe
Gonzales, hefur fullvissað stjórnvöld
í Bandaríkjunum um að jafnaöar-
mannastjórn hans muni hvergi hrófla
við skuldbindingum Spánverja við
Atlantshafsbandalagið. Óvissu hefur
gætt að undanfórnu vegna fyrri um-
mæla Gonzalesar í þá átt að Spánn
kynni að segja sig úr bandalaginu.
Forsætisráðherrann sagði Reag-
an Bandaríkjaforseta á þriðjudag
að Spánn væri vestrænt ríki í bæði
menningarlegum og sögulegum
skilningi og væri því ósk Spánverja
treystir
tengslin
um flétta saman örlög Spánar og
annarra vestrænna ríkja fullkom-
lega rökrétt. Gonzalez skýrði einn-
ig frá því í Hvita húsinu í
Washington að stjórn hans reri að
því öllum árum að verða fullgildur
félagi í Efnahagsbandalagi Evrópu
og binda þannig enda á efnahags-
lega einangrun landsins.
Fréttir herma að þegar fundi
leiðtoganna lauk hafi Reagan ekki
verið í minnsta vafa um hollustu
Spánar við Atlantshafsbandalagið
og tengsl landsins og Bandarikj-
anna.
Prag:
Frelsisóp kæfð
með kylfum
Pr*g, 22. júní. AP.
TÉKKNESKIR lögreglumenn réð-
ust í dag með kylfur að vopni á hóp
manna, sem safnast hafði saman á
Wenceslaus-torgi í Prag og krafðist
þar friðar og frelsis.
Á Wenceslaus-torgi var haldinn
vel skipulagður fundur „Alþjóða-
þingsins fyrir friði og gegn kjarn-
orkuvopnum", sem tékknesk
stjórnvöld gangast fyrir þessa
dagana, og var opinbera hrópið
„Við viljum frið“. Þegar um 300
manna hópur tók sig hins vegar út
úr og tók að hrópa „Við viljum frið
og frelsi", „Afvopnið hermennina"
og „Burtu með herinn" brugðust
lögreglumennirnir hart við, réðust
Bretland:
Verðbólgan
komin í 3,7%
Verðbólga í Bretlandi hefur
aldrei verið minni en nú. Á síð-
asta tólf mánaða tímabili, frá
maí í fyrra til aprílloka í ár,
reyndist hún aðeins vera 3,7%.
Hefur verðbólga farið hrað-
lækkandi í stjórnartíð Thatch-
er og sem dæmi má nefna, að á
næsta 12 mánaða tímabili þar
á undan, aprílbyrjun í fyrra til
marsloka í ár, var verðbólgan
4%.
á fólkið með gúmmíkylfum og
börðu það.
„Friðarþingið" í Prag er sótt af
2.645 fulltrúum frá 140 löndum að
sögn skipuleggjenda þess. Fulltrúi
Breta er ein kvennanna, sem mót-
mælt hafa bandarískum stýri-
flaugum í Greenham Common í
Bretlandi. Hún sagði í ræðu, að
vitleysa væri, að bæði stórveldin
væru jafn sek, það væru Banda-
ríkin, sem væru sökudólgurinn.
Aðrar ræður eru í sama dúr og
hafa þátttakendur jafnan fyrir sér
mikinn borða með slagorðinu
„Samstaða með Sovétríkjunum að
eilífu".
Ovenjulegir
kuldar í Sovét
Moskvu, 22. júní. AP.
MIKIÐ og óvenjulegt kuldatíma-
bil herjar nú á Sovétmenn. Hita-
stigið í Moskvu fór í nótt niður í 2
gráður á celsíus og hefur ekki ver-
ið svo lágt á þessum árstíma allt
frá árinu 1910, að því er talsmenn
veðurstofu ríkisins segja. Verra
mun framundan og er víða spáð
næturfrosti á næstu dögum.
Kuldakast þetta er sagt stafa af
mikilli hæð yfir Eystrasalti.
Drottning setur
þing f Bretlandi
liondon, 22. júní. AP.
ELÍSABET II Bretadrottning setti í dag þing og sagði að ríkisxtjórn Margar-
et Thatchers myndi halda áfram strangri aðhaldsstefnu sinni í efnahagsmál-
um og hafa þéttingsfast taumhald á verkalýðsfélögnnum á öðru kjörtímabili
stjórnarinnar.
í ræðu drottningar kom einnig
fram að Thatcher myndi standa
vörð um stöðu Bretlands í Atl-
antshafsbandalaginu og endur-
nýja kjarnorkuvígbúnað landsins
til að svara ógnun Sovétríkjanna.
Formaður Verkamannaflokksins,
Michael Foot, brást við setn-
ingarræðu drottningar með því að
kalla hina yfirlýstu stjórnarstefnu
„kaldrifjaða og sjálfumglaða“.
Neðri deild brezka þingsins mun
rökræða ræðuna síðar, en þing-
menn Verkamannaflokksins hafa
þegar kallað saman sérstakan
fund í tilefni hennar og leggja nú
á ráðin um hvernig snúast megi
við fyrirætlunum Ihaldsflokksins
innan þings sem utan.
„SAMSTAÐA, SAMSTAÐA“ Um tvær milljónir manna hlýddu á messu hjá Jóhannesi Páli páfa II í pólsku
borginni Kraków í gær og bar þar mikið á fánum með nafni Samstöðu. Síðar fóru um 50.000 manns í
mótmælagöngu um borgina en ekki kom þó til átaka við lögregluna, sem hafði uppi mikinn viðbúnað. AP.
Sovéskir byggja
eldflaugapalla
W ashington, 22. júní. AP.
LANDFLÓTTA Nicaraguabúi, fyrrum starfsmaður stjórnvalda þar í landi, Hinn er staðsettur um 20 kíló-
hefur skýrt frá því að verið sé að undirbúa byggingu tveggja eldflaugapalla
fyrir sovéskar flaugar í landinu.
Miguei Bolanos Hunter, en svo heitir maðurinn, sagði ennfremur að þær
ásakanir stjórnar Sandinista, að Bandaríkjamenn hefðu staðið að baki morð-
tilræðis við utanríkisráðherra landsins, Miguel D’Esconto, væru uppspuni frá
rótum.
Bolanos hélt í dag fund með
fréttamönnum, þar sem hann
skýrði frá þessu. Lét hann þess
jafnframt getið að ásakanir
stjórnvalda í landinu á hendur
Bandaríkjamönnum væru aðeins
settar fram í þeim tilgangi að
grafa undan stjórnarandstöðunni
í landinu.
Bolanos, sem er bandarískur i
aðra ættina, sagði fréttamönnum í
þaula frá starfi sínu sem öryggis-
vörður á vegum stjórnvalda og
kvaðst hafa flúið land vegna
ósættis við stefnu stjórnvalda.
Annar eldflaugapallanna, sem
hann skýrði frá, er við flugvöllinn
í Managua og er þegar tilbúinn.
metra frá höfuðborginni og verður
tilbúinn innan tveggja mánaða.
Hann sagði hins vegar ekkert um
hvort sjálfum flaugunum hefði
þegar verið komið fyrir.
Upplýsingar Bolanos eru að
hans sögn ekki byggðar á hans
eigin upplifun, heldur fregnum frá
kunningja, sem unnið hefur við
gerð pallanna. Jafnframt skýrði
hann frá því, að 80 MIG-orrustu-
þotur í eigu Sovétmanna væru
staðsettar á Kúbu og verða þær
formlega afhentar eftir kosningar,
sem haldnar verða I landinu 1985.
Reagan siglir í
endurkjörsátt
Maiu, 22. já>f. AP.
GEORGE Bush, varaforseti Banda-
ríkjanna gaf í skyn í sjónvarpsviðtali
í Vestur-Þýskalandi á þriðjudags-
kvöld að Reagan Bandarikjaforseti
hefði ákveðið að gefa kost á sér ann-
að kjörtímabil.
alltof útsjónarsamir til að fara
þannig að.“
Fréttaskýrandi komst svo að
orði eftir viðtalið við Bush, að ef
varaforsetinn gengi að því sem
vísu að Reagan yrði endurkjörinn,
þá væri hér um að ræða fyrstu
opinberu vísbendinguna um að
Reagan ætlaði að gefa kost á sér
aftur.
„Forsetinn siglir í átt til endur-
kjörs,“ svaraði Bush er vestur-
þýzkur fréttamaður gerði þá at-
hugasemd, að Sovétmenn kynnu
að bíða þar til eftir forsetakosn-
ingarnar 1984 áður en þeir legðu
fram nýjar tillögur í viðræðum
sínum við Bandaríkjamenn um
minnkun kjarnorkuvígbúnaðar í
Genf. „Ég held ekki,“ sagði Bush.
„Við ættum að vinna að friði og
afvopnun frekar en að vera með
vangaveltur um kosningar í fram-
tíðinni. Ég tel að Sovétmenn séu
Háþróaður tölvu-
búnaður
Wuhinfpon, 21. jnnf. AP.
RONALD Reagan, Bandaríkja-
forseti, hefur samþykkt útflutning
á háþróuðum tölvubúnaði til Kína
þrátt fyrir efasemdir um að hann
kynni að verða notaður í hernaði.
Mótmæli komu fram af hálfu
varnarmálaráðuneytisins, en
til Kína
Reagan tók af skarið og leyfði út-
flutninginn. Leyfi þetta stendur í
tengslum við ferð bandaríska
viðskiptamálaráðherrans, Mal-
colm Baldridge, en hann er nú í
Peking.