Morgunblaðið - 23.06.1983, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1983
Höfn í Hornafirði:
Úrslit fengust í
þriðju atrennu
MIKIÐ var um að vera á Höfn í
Hornafirði um síöustu helgi, en þá
voru þar saman komin shotokan
karatefélög á íslandi.
Voru æfingabúdir undir stjórn
þjálfara Sindra frá Hornafiröi og
Uórshamars frá Reykjavík. Voru
raeðal annars haldnar nokkrar úti-
æfingar sem vöktu mikla athygli
bæjarbúa.
Landsþing shotokan karatefé-
laganna fór fram á laugardag og
var þar meðal annars á dagskrá
koma þýsks landsliðsmanns, Diet-
er Steinegg, en hann mun koma í
lok þessa mánaðar.
Sveitakeppni fór fram á sunnu-
dag og var keppt í kata sem er
niðurröðun á vörnum, höggum og
spörkum. Eru þar tækni, kraftur
og öndun mikil atriði. Eftir fyrstu
einkunnagjöf stóðu Sindri og
Þórshamar jafnir að stigum. Þeir
kepptu til úrslita og enduðu aftur
jafnir. I þriðju atrennu sigraði
Þórshamar naumlega. Má telja
þetta mjög gott hjá Sindra þar
sem deildin var stofnuð í haust.
Úrslit urðu þessi:
1. sæti — Þórshamar, Reykja-
vík: Böðvar Kristjánsson, Sigrún
Guðmundsdóttir, Sigþór Markús-
son.
2. sæti — Sindri, Hornafirði:
Þóra Erlingsdóttir, Hlynur Arn-
órsson, Björn Ingi Grétarsson.
3. sæti — Gerpla, Kópavogi:
Guðni Aðalsteinsson, Narfi Hall-
dórsson, Grímur Pálsson.
Iðkun á karate hefur færst mik-
ið í vöxt á síðustu árum. Bara
shotokan er æft í fimm héraðs-
samböndum.
SG
Frá setningu prestastefnunnar í hátíðarsal Háskóla íslands í fyrradag.
Lokadagur prestastefnunnar
PRESTASTEFNU íslands, sem
sett var í fyrradag, var haldið
áfram í gær. Framsöguræður voru
fluttar á setningardegi stefnunnar
og í gær fjölluðu umræðuhópar um
málefni hennar, sem að þessu
sinni er hinn lútherski arfur í
kirkju nútímans.
Framsöguræður á setningar-
degi prestastefnunnar fluttu sr.
Jónas Gíslason dósent um siða-
bótamanninn Martein Lúther,
sr. Þorbergur Kristjánsson um
stöðu kirkjunnar í þjóðfélaginu
og sr. Þorbjörn Hlynur Árnason
um guðfræði Marteins Lúthers.
í gær var prestastefnunni
haldið áfram og hófst annar
dagur stefnunnar á morgunbæn
í háskólakapellunni, sem séra
Ingibergur Hannesson prófastur
flutti. Því næst fjölluðu um-
ræðuhópar um málefni stefn-
unnar í kennslustofum Háskól-
ans, en eftir hádegi skiluðu
framsögumenn umræðuhópanna
áliti þeirra. Nokkrar umræður
fóru svo fram áður en haldið var
í kaffi í Norræna húsinu en þar
fór fram kynning á Lúthers-
árinu, m.a. á myndefni og ýms-
um þáttum sem verða á dagskrá
hjá kirkjunni í tilefni af 500 ára
afmæli Marteins Lúthers.
Lokadagur prestastefnunnar
hefst á morgunbæn sr. Hannesar
Arnar Blandon, en svo verður
umræðum frá fyrri dögum hald-
ið áfram og álitum skilað.
Kirkjufræðslunefnd mun flytja
greinargerð og svara fyrirspurn-
um um kl. 14 í dag, og að því
loknu verða önnur mál tekin
fyrir áður en stefnunni verður
slitið. Lokaþáttur prestastefnu
fslands verður samverustund í
biskupsgarði í kvöld.
Fulltrúar Reykjavíkurborgar ásamt bæjarstjóra og bæjarritara í Nuuk. F.v. Jörgen Sten Larsen, bæjarritari í Nuuk,
Markús Örn Antonsson, forseti borgarstjórnar, Peter Th. Högh, bæjarstjóri í Nuuk, Sigurjón Fjeldsted, borgarfull-
trúi, Guðrún Jónsdóttir, borgarfulltrúi, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi, Gunnar Eydal, borgarfulltrúi og
Jón G. Kristjánsson, starfsmannastjóri.
Samskipti bæjar
stjórnar Nuuk
borgarstjórnar
NÝLOKIÐ er heimsókn sjö fulltrúa
frá Reykjavíkurborg til Nuuk á
Grænlandi, en þar dvöidu þeir í boði
bæjarstjórnar þar. Var með þessu
verið að endurgjalda heimsókn full-
trúa bæjarstjórnar í Nuuk til
Reykjavíkur sl. sumar.
Hér er um að ræða fyrstu form-
legu heimsóknina á milli höfuð-
staða landanna og var ákveðið á
fundi sem haldinn var í Nuuk, að
taka upp formleg samskipti höfuð-
borganna jafnframt því sem rætt
var um samvinnu varðandi at-
vinnumál á þann hátt, að nokkr-
um ungum Grænlendingum verði
gefinn kostur á að dveljast í
Reykjavík um skeið og kynnast ís-
lenskum atvinnuháttum. Af hálfu
bæjarstjórnarinnar í Nuuk komu
fram sérstakar óskir um sjávar-
útveg og fiskiðnað í þessu sam-
og
Rvíkur
bandi og ráðgera Grænlendingar
samskonar fyrirgreiðslu gagnvart
fslendingum. Einnig var lögð
áhersla á samskipti á sviði menn-
ingarmála. Þá bauð Reykjavíkur-
borg tveim grænlenskum ungling-
um til hálfs mánaðar dvalar í
Reykjavík sem skipulögð verður af
framkvæmdastjóra Æskulýðs-
ráðs.
Mývatnssveit:
Fjölmenn útför
Sigfúsar Bárðarsonar
MývatnsNveit, 20. júní.
ÚTFÖR Sigfúsar Bárðarsonar,
Helluhrauni 5, Mývatnssveit, var
gerð frá Skútustaöakirkju sl.
firamtudag að viðstöddu miklu fjöl-
menni. Sóknarpresturinn, séra Örn
Friðriksson, flutti útfararræðu og
jarðsöng.
Sigfús Þór Bárðarson var
fæddur á Akureyri 27. október
1932. Foreldrar hans voru Sigur-
björg Sigfúsdóttir og Bárður Sig-
urðsson, kennd við Höfða hér í
sveit. Sigfús flutti hingað í sveit-
ina ungur að árum, eftir að faðir
hans missti heilsuna, til móður-
bróður síns, Stefáns Sigfússonar,
og konu hans, Bjargar Jónsdóttur,
er þá bjuggu að Skútustöðum. Þar
ólst hann upp við ástríki fóstur-
foreldra sinna. Snemma fór Sigfús
að vinna, enda sérlega handlaginn
og ágætur starfskraftur, við hin
margvíslegustu störf, bæði hér í
sveitinni og víðar. Hann var góður
og traustur félagi í ungmennafé-
laginu Mývetningi, Karlakór Mý-
vatnssveitar, þá var hann einnig
einn af stofnendum Kiwanis-
klúbbsins Herðubreiðar.
Eiginkona Sigfúsar var Bergljót
Sigurbjörnsdóttir og lifir hún
mann sinn. Þau eignuðust fjórar
dætur sem allar eru á lífi. Þau
bjuggu um tíma á Heiði hér í
sveitinni, ennfremur á Skútustöð-
um, þar sem Sigfús var húsvörður
Skjólbrekku og stöðvarstjóri
Landssímans. Síðan lá leið hans
til Kísiliðjunnar þar sem hann
starfaði til dauðadags. Þau hjónin
komu sér upp íbúðarhúsi á Hellu-
hrauni 5 í Reykjahlíð þar sem þau
hafa búið síðustu árin. Starfsfé-
lagar Sigfúsar sakna góðs vinnu-
félaga enda verður hans skarð
vandfyllt. Þeir senda eiginkonu
hans, dætrum og öldruðum fóst-
urföður og öllum aðstandendum
innilegar samúðarkveðjur.
Kristján
jtt- »
„Svart og sykurlaust“
í leikför um Vestfirði
LEIKHÚSIÐ „Svart og sykurlaust" Hólmavík, þá í Trékyllisvík, þriðja
er um þessar mundir að leggja í sína sýningin verður svo á Hótel Klúku á
fyrstu leikför. Fyrst sýnir hópurinn á Ströndum og sú fjórða á Boröeyri.