Morgunblaðið - 23.06.1983, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1983
37
Samvinnutryggingar:
4,1 milljón króna
hagnaður á sl. ári
I REIKNINGUM Samvinnutrygginga
g.t. kom fram, að rekstur trygginga-
greinanna gekk vel á árinu. Námu
bókfærð iðgjöld 221,4 milljónum
króna, en iðgjöld ársins 202,9 milljón-
um. Af heildariðgjöldum námu iðgjöld
frumtrygginga 90,8%, en endurtrygg-
ingaiðgjöld innlend og erlend 9,2%.
Iðgjöld ársins jukust milli ára um
64,8% í frumtryggingum, en um
105,6% í endurtryggingum. Aukn-
ing frumtryggingaiðgjalda var
næstum því jafn mikil og milli
næstu ára á undan, sem var meiri
aukning en þá hafði orðið um ára-
bil.
Greidd endurtryggingaiðgjöld
námu 42,7 milljónum króna, eða um
21% heildariðgjalda ársins.
Greiðslur endurtryggjenda á um-
boðslaunum og tjónum til félagsins
námu samtals 34,4 milljónum.
Bókfærð tjón á árinu urðu 108,8
milljónir króna, en tjón ársins 163,9
milljónir. Hafa bókfærð tjón hækk-
að um 54,8% milli ára, en tjón árs-
ins um 57,4%. Tjónaprósenta miðað
við iðgjöld ársins er 80,8%, en mið-
að við eigin iðgjöld er tjónaprósent-
an 86,7%.
Hagnaður varð af rekstri Bruna-
deildar, Sjódeildar og Ábyrgðar- og
slysadeildar og erlendum endur-
tryggingum, samtals 8,2 milljónir.
Bifreiðadeild og innlendar endur-
tryggingar skiluðu hins vegar tapi,
samtals að fjárhæð 4,1 milljón.
Samtals varð því hagnaðurinn 4,1
milljón.
Innlánsstofnanir:
Verulega hefur
dregið úr útlánum
til einstaklinga
— Samdrátturinn mun minni hjá fyrirtækjum
ÍJTLÁN innlánsstofnana, að endur-
seldum lánum meðtöldum, jukust
um 76% á 12 mánuðum til mafloka,
en hins vegar um 70% næstu 12
mánuði þar á undan. Mikil útlána-
þensla var á síðasta ári og tölur yfir
útlánaaukningu á hverju undan-
genginna 12 mánaða tímabili hækk-
uðu stig af stigi út árið og voru í
árslok 86,3% og í janúarlok á þessu
ári 87,6%.
Síðan hefur ferillinn lækkað
nokkuð, enda gerðu viðskipta-
bankarnir með sér samkomulag í
janúarmánuði um sérstakt aðhald
í útlánum auk þess sem nokkrir
gerðu samninga við Seðlabank-
ann.
Flokkun lána á lánþega bendir
til að bönkum hafi einkum orðið
ágengt við einstaklinga. Lán inn-
lánsstofnana til þeirra jukust afar
mikið á seinnihluta árs 1981 og
fyrstu mánuði ársins 1982. I lok
apríl á síðasta ári nam 12 mánaða
aukning þessara lána 92%, en
næstu 12 mánuði aðeins 51%.
Á lánum til fyrirtækja hefur
ekki komið fram hliðstæð breyting
þótt ferill 12 mánaða talna hafi
lækkað frá janúarlokum, þegar
hann var 97%. Til aprílloka er
hækkunin um 84%. Tölur um
flokkun lána í maílok liggja hins
vegar enn ekki fyrir.
Um 4,1% aukning
á raforkunotkun
RAFORKUNOTKUN jókst hér á
landi um liðlega 4,1% fyrstu þrjá
mánuði ársins, þegar heildarnotkun-
in var 938 gigawattstundir, borið
saman við 901 gigawattstund á sama
tíma (fyrra.
Aukningin í forgangsórku var
nokkru meiri, eða liðlega 5,14%.
Samtals var forgangsorkunotkun-
iií í ár 921 gigawattstund, en til
samanburðar 876 gigawattstundir
á Sama tíma í fyrra.
Forgangsorkan skiptist í al-
menna notkun, sem jókst um lið-
lega 7%, en hún var samtals 464
gigawattstundir, borið saman við
431 Gigawattstund í fyrra. Svo-
kölluð stórnotkun jókst um liðlega
2,7%, en hún var samtals 457 giga-
wattstundir, borið saman við 445
gigawattstúndir í fyrra.
Notkun á svokallaðri afgangs-
orku dróst saman Um 32% á
fyrstu þremur mánuðum ársins,
þegar hún var alls 17 gigawatt-
stundir, borið saman við 25 giga-
wattstundir á sama tíma í fyrra.
Breskur sjónvarpsmaður stjórnar
vísindaleiðangri um ísland
HINN kunni náttúrufræðingur og
landkönnuður David Attenborough
verður leiðangursstjóri hóps nem-
enda og kennara úr enskum
menntaskóla (Hampton School)
sem hyggst ferðast um norð-aust-
anvert landið í næsta mánuði. Hér
er um 22 manna hóp úrvalsnem-
enda að ræða og er ætlunin að
kanna á vísindalegan hátt jarð-
fræði og náttúru landsins.
Leiðangurinn mun standa yfir
í þrjár vikur og verður m.a.
staldrað við í Mývatnssveit og í
nágrenni Akureyrar. Mikill
áhugi er fyrir ferðinni í viðkom-
andi skóla og nefna má til marks
um það, að Attenborough hélt á
dögunum fyrirlestur í skólanum
er nefndist „Travels of a Natur-
alist“ og sóttu hann yfir 600
nemendur, kennarar og foreldr-
ar.
David Attenborough ætti að
vera íslendingum að góðu kunn-
ur. Hann er vinsæll sjónvarps-
maður í heimalandi sínu og ís-
lenska sjónvarpið hefur sýnt
þætti sem hann hefur gert, má
þar til dæmis nefna hinn vinsæla
framhaldsþátt „Life on Earth“
sem sýndur var í desember 1980
og janúar 1981.
i
í furu
erum viö fremstir
Hjá okkur er stórkostlegt úrval af vönduöum masífum furu-
húsgögnum á hagstæöu verði.
Greiðsluskilmálar í 6—8 mánuöi
HAGSÝNN VELUR ÞAD BESTA
HDS6ACN&BÖLLIN
BfLDSHÖFÐA 20 - 110 REYKJAVfK S 91-81199 og 81410