Morgunblaðið - 26.06.1983, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.06.1983, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1983 Verkamannaflokknum má enn nefna efnahagsmálasérfræðing- inn Peter Shore, sem þykir manna málsnjallastur en er um margt sérkennilegur í skoðun- um. Þannig vill hann, að Bret- land segi sig úr EBE, en er aftur á móti eindreginn stuðnings- maður NATO. Roy Hattersley (fyrir miðju) við brottför á Reykjavíkurflugvelli í nóvember 1975 er hann og hinir brezku fulltrúarnir í landhelgis- riðræðunum þá héldu heim í fússi ;ftir aðeins 40 mínútna fund, eftir ið slitnað hafði upp úr viðræðun- im. því yfir; að þessi slit á samn- ingaviðræðum stofnuðu í hættu „lífi og öryggi fjölmargra brezkra sjómanna. Ef brezka flotans reynist þörf, þá er hann til reiðu og mun verða sendur til hjálpar á Islandsmið". Hattersley tók þátt í samn- ingaviðræðum Breta við Efna- hagsbandalag Evrópu, þegar Bretland gekk í bandalagið og það kom mörgum á óvart, að hann skyldi ekki segja skilið við Ströng ganga framundan Hvernig sem fer með val á leiðtoga Verkamannaflokksins, blasir sú staðreynd við, að flokk- urinn á fyrir höndum erfiða og langa göngu til þess að komast til fyrri áhrifa í brezkum stjórn- málum. Nýbyrjuðu kjörtímabili lýkur ekki fyrr en 1988 og það má búast við að ekki verði efnt til nýrra kosninga fyrr en þá. Þannig að Verkamannaflokkur- inn verði allan þennan tíma í stjórnarandstöðu. Jafnvel þótt flokkurinn muni að nýju sveigj- ast nær miðju, en í því liggur Kinnock eða Hattersley Hvor verður leiðtogi brezka Verkamannaflokksins? Baráttan innan brezka verkamannaflokksins um, hver taka skuli við af Michael Foot sem leiðtogi flokksins er þegar komin í algleyming. Það er líka mikið í húfi. Bæði stefna og gengi flokksins eru að sjálfsögðu að verulegu leyti komin undir því, hver valinn verður. Denis Healey, varaformaður flokksins hefur vafalítið haft hug á því að gera sína síðustu tilraun til þess að verða flokksleiðtogi, en skoðanakannanir í vor sýndu, aö hann var vinsælastur af forystumönnum Verkamannaflokksins á meðal almenn- ings. Staöreyndin er hins vegar sú, að margir af áhrifa- meiri forystumönnum brezku verkalýðshreyfíngarinnar hafa ótvírætt gefíð í skyn, að hann væri orðinn of gamall. Nú sé rík þörf á að fá fram yngri mann, sem geti gefíð flokknum nýjan svipð. Tony Benn, sem um langt jafnframt er hann þó talinn vera sem um skeið hefur verið einn helzti for- ingi vinstri arms Verkamanna- flokksins og var einn helzti höf- undur hinnar misheppnuðu stefnuskrár flokksins fyrir ný- afstaðnar þingkosningar, hafði áformað að gefa kost á sér sem flokksleiðtogi. En hann féll óvænt í kosningunum og er því væntanlega úr leik að sinni. Kinnock sigurstrang- legastur Sá, sem nú þykir líklegasti eft- irmaður Foots er Neil Kinnock frá Wales. Hann er aðeins 41 árs gamall, rauðhærður og talar með sterkum hreim Wales-bú- ans. Hann þykir góður ræðu- maður og nýtur sín vel í sjón- varpsumræðum, sem setja æ meiri svip á alla kosningabar- áttu jafnt í Bretlandi seem ann- ars staðar. Tengsl Kinnocks við Verkamannaflokkinn eru gömul og rótgróin. Faðir hans og afi voru báðir námuverkamenn í Wales og sjálfur hefur hann starfað í þágu Verkamanna- flokksins lengst af, eftir að hann komst til vits og ára og verið þingmaður flokksins um alllangt skeið. Hann hefur þó aldrei verið ráðherra, á meðan Verkamanna- flokkurinn hefur farið með völd, en hefur hins vegar farið með menntamál i svonefndu skugga- ráðuneyti flokksins undanfarin ár. Kinnock þykir um margt vinstrisinnaður. Hann hefur krafizt þess m.a., að Bretar af- vopnist einhliða og gangi úr Efnahagsbandalagi Evrópu. En kænn hagsýnismaður og virðist þegar hafa skipt um skoðun að verulegu leyti varðandi aðild Bretlands að EBE. Það, sem háir honum helzt, er sennilega reynsluskortur, því að sumum finnst hann enn of ungur og óreyndur til þess að verða leið- togi Verkamannaflokksins, en þá yrði hann samtímis leiðtogi stjórnarandstöðunnar í landinu. Strax og Kinnock tilkynnti, að hann gæfi kost á sér sem flokks- leiðtogi, hlaut hann stuðningsyf- irlýsingar frá ýmsum fjölmenn- ustu verkalýðssamböndum Bret- lands, sem stutt hafa Verka- mannaflokkinn frá fornu fari. Veðmálastofur í landinu, sem aldrei láta sitt eftir liggja, veðja nú 6—4 um, að Kinnock verði flokksformaður, en formanns- kjörið fer fram í október eftir allflóknu kerfi, þar sem verka- lýðssamböndin ráða yfir 40% at- kvæða, flokksfélögin 30% og þingflokkur Verkamannaflokks- ins í brezka þinginu yfir 30% at- kvæða. Staða Kinnocks hefur styrkzt verulega að undanförnu. Þannig lýsti samband starfs- fólks í verzlunum yfir stuðningi sínum við Kinnock sl. mánudag og Roy Hattersley sem vara- formann, en formleg kosning á þó eftir að fara fram í aðildarfé- lögum sambandsins, sem eru ekki færri en 1.000 að tölu. Kinnock kann þó að eiga enn erfiða baráttu fyrir höndum. Frá vinstri verður vafalaust vegið að honum af róttækum flokks- mönnum, sem ekki hafa gleymt því, að hann átti þátt í þeirri atlögu, sem gerð var að trotsky- Neil Kinnock ásamt Michael Foot. — Kinnock þykir hvað líklegaatar til | leiðtogi Verkamannaflokksins, er Ookksþingið kemnr saman í febrúar. istunum innan flokksins (Milit- ant Tendency), er reynt var að reka sem flesta þeirra úr Verka- mannaflokknum. Hattersley — kunnur íslendingum úr þorskastríðinu Helzti keppinautur Kinnocks um formannsstöðuna verður lík- lega Roy Hattersley, sem til- heyrir hægri armi Verkamanna- flokksins. Hattersley er senni- lega kunnari íslendingum en flestir aðrir brezkir stjórnmála- menn, sem nú eru í fararbroddi. Hann var aðstoðarutanríkisráð- herra Breta í þriðja þorskastríð- inu 1975 og aðalsamningamaður þeirra í viðræðunum þá við ís- lenzk stjórnvöld. Um miðjan nóvember það ár átti sér stað sögulegur fundur í þessum samningaviðræðum, þar sem slitnaði upp úr viðræðunum eftir aðeins 40 mínútna fund hér í Reykjavík og Hattersley og hinir brezku samningamennirnir héldu heim í fússi. Við heimkom- una til London lýsti Hattersley Verkamannaflokkinn og ganga í hinn nýstofnaða jafnaðar- mannaflokk, S.D.P. Engu að síð- ur lét hann það skýrt í ljós í kosningabaráttunni í vor, að hann var á öndverðum meiði við hina róttæku kosningastefnu- skrá flokksins. Þannig er hann andvigur einhliða afvopnun Bretlands og er því fylgjandi, að Bretar verði áfram aðilar að EBE. Stuðningsmenn Hattersley hafa nú uppi mikinn viðbúnað í því skyni að stöðva framsókn Kinnocks. Hafa þeir óspart lýst þeim síðarnefnda sem Michael Foot endurbornum, sem eigi ekki eftir að verða Verkamanna- flokknum annað en byrði, verði hann flokksleiðtogi. Hyggjast stuðningsmenn Hattersleys ein- kum sækja stuðning honum til handa hjá bandalagi opinberra starfsmanna og hjá sambandi flutningaverkamanna, en bæði þessi stéttarsambönd eru mjög vel skipulögð og öflug í Bret- landi. Af öðrum hugsanlegum fram- bjóðendum til formannskjörs í i aft taka við af Michael Foot sem sennilega helzta von hans til þess að vinna tapað fylgi að nýju, þá virðist slíkt engu að síð- ur falið einhvers staðar inni í fjarlægri framtíð. Von Verkamannaflokksins til þess að komast til valda fyrr, kann helzt að vera fólgin í því, að íhaldsflokkurinn tæki upp öfgakennda hægri stefnu eða að fyrirheit íhaldsflokksins um batnandi efnahagsástand i Bretlandi nái ekki fram að ganga. Sjálfur býr Verkamanna- flokkurinn enn við slík innan- flokksvandamál, að hann verður fyrst að ná að leysa þau, áður en hann hyggur á annað og meira. Innan flokksins ríkir mikil togstreita bæði að því er snertir menn og hugmyndafræði og svo langt gæti gengið, að flokkurinn ætti eftir að klofna í andstæðar fylkingar, sem þá verðu kröftum sínum fyrst og fremst hver gegn annarri en ekki gegn íhalds- flokknum og stjórn hans. (Samantekt: Magnús Sigurðsson. Heimildir: Economist, Sunday Times o.fl.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.