Morgunblaðið - 28.06.1983, Page 2

Morgunblaðið - 28.06.1983, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1983 Pólsku fiskiskipin: Greiðum 30% án þess að leita í opinbera sjóði — segir Haraldur Gíslason, stjórnarformaður Samtogs BRÉFASKIPTI eru nú í gangi sam- kvæmt heimildum Mbl. milli iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis vegna pólsku fiskiskipanna sem væntanleg eru til landsins. Iðnaðarráðherra sagði að- spurður um málið í gær, að hann gæti engar upplýsingar gefið á þessu stigi, að hans ósk væri deildarstjóri í ráðu- neytinu nú að vinna að úttekt á mál- inu. Samkvæmt heimildum Mbl. munu spurningar m.a. hafa vaknað um hvernig skipakaupin eru fjár- mögnuð, en Samtog í Vestmanna- eyjum, sem er kaupandi að tveimur skipanna, fékk nýverið fyrir- Tívolíið á Miklatúni: 30 þús. gestir fram til þessa GISKA má á að um 30 þúsund manns hafi sótt Tívolíið á Miklatúni fram að þessu. Aðsóknin var mjög dræm í rigningarveöri síðustu viku, en var á hinn bóginn mjög góð um helgina, að sögn Halldórs Guð- mundssonar, blaðafulltrúa fyrirtækisins. Halldór sagði það ráðast af mót nálguðust og eru fjárráðin aðsókninni í þessari viku og um næstu helgi hvort fyrirtækið borgaði sig. Það færi ekki endi- lega eftir þeim fjölda sem kæmi heldur því hvernig fólk verði sínu fé á svæðinu. „Við þóttumst til dæmis sjá það á eyðslu manna um helgina að mánaða- því minni," sagði Halldór. Þess má geta að Tívolínu lýkur á sunnudag. Tækin verða að vera komin í skip á þriðjudag og ekki unnt að framlengja veru þeirra hér, þar sem þau verða að vera komin til Löge á Sjálandi fyrir 11. júlí. Heimsókn George Bush GEORGE Bush, varaforseti Bandaríkjanna, er væntanlegur til landsins þriðjudaginn 5. júlí ásamt eiginkonu sinni, Barböru, og fylgd- arliði. Varaforsetinn kemur við hér á leiðinni vestur um haf, en hann er nú á ferðalagi um Evrópu. Fyrsta daginn verður hann viðstaddur móttöku bandaríska sendiherrans í tilefni þjóðhátíð- ardags Bandaríkjanna 4. júlí. Þá situr hann kvöldverðarboð for- sætisráðherrahjónanna á Hótel Sögu. A miðvikudag verða viðræður i stjórnarráðinu, þar sem varafor- setinn hittir að máli þá Steingrím Hermannsson, forsætisráðherra, og Geir Hallgrímsson, utanríkis- ráðherra. Að þeim viðræðum lokn- um verður farið til Þingvalla og þar verður hádegisverður í boði Alþingis. Ef veður leyfir verður síðdegis þann dag farið í laxveiði í Þverá í Borgarfirði og munu þyrlur frá varnarliðinu og landhelgisgæsl- greiðslu hjá því opinbera til að halda rekstri sínum gangandi, en það eins og mörg önnur fyrirtæki í fiskvinnslu og útvegi hefur átt í miklum fjárhagserfiðleikum. Kaupverð skipanna er rúmlega 2 milljónir dollara fyrir hvert þeirra. 70% kaupverðsins er fengið að láni hjá skipasmiðastöðinni pólsku og ríkisábyrgð er á þeim lánum. Kaupendur verða aftur á móti sjálfir að fjármagna 30%, sem standa verður skil á fyrir komu skipanna, en tvö þeirra koma í lok þessa árs en hið þriðja í febrúar á næsta ári. Mbl. ræddi í gærkvöldi við Har- ald Gíslason stjórnarformann Samtogs, en Samtog er sameign fjögurra fiskvinnslufyrirtækja í Vestmannaeyjum. Spurningunni um hvernig kaupin væru fjármögn- uð svaraði hann á þá leið, að Sam- tog hefði öll tilskilin Ieyfi til kaup- anna og gengið hefði verið frá fjár- mögnun, en það væri mál fyrirtæk- isins hvernig að því væri staðið, en þess bæri að geta að hér væri um iangtímaáætlun að ræða, þar sem þeir hefðu ákveðið kaupin fyrir um tveimur árum þegar fyrirtækjun- um gekk allt í haginn. „Eigendur Samtogs hafa að fullu staðið við allar skuldbindingar í sambandi við kaupin og munu gera það áfram, án þess að leita í opinbera sjóði hvað þessi 30% varðar," sagði hann. Fífuhvammsbærinn rifinn VINNUSKÓLI Kópavogs vinnur nú við að rífa gamla Fífuhvammsbæ- inn, en hann er eitt af elztu húsum í Kópavogi. Bærinn eignaðist bæinn er hann keypti Fífuhvamm. Að sögn Árna Björgvinssonar, verkstjóra hjá bænum, hefur lengi staðið til að rífa bæinn, meðal annars í fyrra, en ekki hefur orðið af því fyrr en nú. Byrjuðu börnin á verkinu í gær og miðar vel áfram. Fargjöld milli staða erlendis í flugi: Geta verið bæði dýrari og ódýrari hér á landi George Bush, varaforseti unni flytja veiðimennina frá Þing- völlum. Síðdegis verður málsverð- ur að Bessastöðum í boði Vigdísar Finnbogadóttur, forseta íslands. Árdegis á fimmtudeginum verð- ur Stofnun Árna Magnússonar skoðuð og síðan verður farið til Keflavíkurflugvallar þar sem varaforsetinn og fylgdarlið hans kynna sér starfsemi varnarliðsins og hitta starfslið á flugvellinum. Heimsókninni lýkur kl. 13.00 þann sama dag. — segir Stefán Halldórsson hjá Arnarflugi „EIN ÁSTÆÐAN fyrir þessu er sú, að algengt er, að settar séu reglur varðandi hin lægri fargjöld, sem í boði eru hverju sinni, sem kveða á um, að þau megi aðeins selja í þeim löndum, sem verið er að fljúga á milli,“ sagði Stefán Halldórsson, hjá Arnarflugi, í samtali við Mbl., er hann var inntur eftir ástæðum þess, að á stundum kemur fram mismunur á verði á flugfar- seðlum milli staða erlendis, eftir því hvort þeir eru keyptir hér heima, eða á staönum. „Þessar reglur eru settar til að koma í veg fyrir, að flugfélög í einu landi geti boðið óvenjulega hagstæð fargjöld frá sínu heima- landi til annars ákvörðunarstaðar og selt þau í þriðja landinu. Hægt væri að hugsa sér, að það væri hagstæðara fyrir brezka ferða- menn, að fljúga í gegnum Holland til Sviss, en að fljúga með brezk- um flugfélögum beint," sagði Stef- án Halldórsson. Veðurútlit fram að helgi: Votviðri sunnanlands og vestan en góðviðri norðanlands og austan „VIÐ ERUM á það órólegum stað, að ég get ekkert sagt um horfurnar nema næstu fimm daga, á vangaveltum lengra fram í tímann væri ekkert byggjandi,“ sagði Markús Á. Einarsson veðurfræðingur er við spurðum hann hvað þeir Veðurstofumenn héldu um veðurhorfur í sumar, hvort hér yrði votviðrasamt eða þurrt og sólbjart. „Fimm daga spárnar, sem gerðar hafa verið í miðstöð evr- ópskra veðurstofa í Englandi, hafa reynst vel, en stefnt er að því að lengja þessar spár upp í tíu daga. Samkvæmt þessum spám verða suðvestlægar áttir ríkj- andi fram að helgi. Það þýðir að um sunnan- og vestanvert landið verður fremur skýjað og úrkoma alltaf öðru hverju, en um norð- austanvert og austanvert landið ætti að verða gott veður. Þetta þýðir þó ekki að alls ekkert geti rofað til hér sunnan- lands, og samkvæmt þessum spám yrði það helzt miðvikudag- urinr, sem gæti orðið góður hér,“ sagði Markús. Markús sagði að öðru hverju hefðu Veðurstofunni borist spár fyrir heilan mánuð, þar sem reynt hefði verið að segja fyrir um hvort mánuðurinn hafi átt að vera votviðrasamur eða þurr, hlýr eða kaldur. Þær koma ekki reglulega, en á sínum tíma tók Markús þær saman og við sam- anburð á þeim og raunverulegri veðráttu hefði komið í ljós að fyrir okkar svæði var ekkert á þeim byggjandi, eins og hann orðaði það. „Vitaskuld eru veðurfræð- ingar um heim allan að reyna að vinna að því að lengja spátíma- bilið, en það gengur hægt og það lengsta og bezta sem nú er völ á að mínu mati er það sem kemur frá evrópsku miðstöðinni í Eng- landi, en við fáum frá henni daglega yfirlit fimm daga fram í tímann, þar sem reynt er að glugga í helztu þróunareinkenn- in, og hafa þær ekki reynst illa,“ sagði Markús. í aðalatriðum er útlit fyrir hæglætisveður hér á landi fram að helgi. í dag, þriðjudag, verður líklega vestanátt og bjartviðri á austanverðu landinu, en skýjað og suddi sunnanlands og vestan. Á miðvikudag gæti birt til en síðan þykknar líklega aftur upp á fimmtudag, samkvæmt upplýs- ingum Veðurstofunnar. Þrálátt háþrýstisvæði, sem lítill bilbug- ur er á, er suður og suðaustur í hafi og beinir það lægðum að ís- landi. Svo virtist þó sem róleg- heit myndu færast yfir veðra- kerfin hér norður uppi og hugs- aniega væri hægt að fara að gera sér einhverjar vonir um breyt- ingar, en þær voru þó ekki sjá- anlegar. „Önnur ástæða fyrir þessu getur verið gengisþróunin. Svokallað farseðlagengi er hækkað í ákveðn- um stökkum, þannig að ákveðinn mismunur getur komið fram í verði. Notkun slíks gengis er í raun bráðnauðsynleg fyrir ís- lenzku félögin, vegna sífellds gengissigs. Á meginlandi Evrópu breytist verð aftur á móti yfirleitt ekki,“ sagði Stefán Halldórsson ennfremur. Stefán sagði ennfremur, að það væru ekki síður dæmi um hið gagnstæða, það er, að farseðlar í flugi milli staða erlendis væru ódýrari hér á landi, en ef þeir væru keyptir erlendis. Mætti þar til dæmis nefna, að sé farseðill keyptur hér á landi, er hann reiknaður samkvæmt venjulegu gengi, en ef hann er keyptur er- lendis, greiðist hann væntanlega með gjaldeyri, sem keyptur hefur verið með 10% álagi. Hasssmygl: Tveir útlending- ar kyrrsettir Utlendingunum tveim sem sátu í gæsluvarðhaldi vegna smygls á 800 grömmum af hassi hefur verið sleppt og málið sent saksóknara. Ctlendingarnir tveir voru hand- teknir 3. júní, annar í Reykjavík en hinn á Höfn í Hornafirði. Voru þeir þá nýkomnir frá Glasgow og Lon- don þar sem þeir höfðu keypt hassið. Hald var lagt á 200 grömm, en þeir höfðu þegar selt 600 grömm. Mennirnir hafa verið kyrr- settir hér á landi, þar til ákæra verður gefin út. Þeir komu hingað til lands í fyrrahaust og hafa unnið hér á landi síðan þá.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.