Morgunblaðið - 28.06.1983, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1983
47
aftur saman í Vélskóla tslands þar
sem hann lauk vélstjóranámi og er
margs að minnast frá þeim árum.
Nú þegar komið er að leiðarlokum
hérna megin þakka ég Hauki allar
samverustundirnar og vinskapinn
í þeirri trú að við megum hittast
síðar hinummegin í landinu
bjarta.
Ég bið almáttugan guð að gefa
foreldrum Hauks, unnustu hans,
Ingu, og litla syni þeirra, ívari, og
öðrum ættingjum styrk og blessun
í harmi þeirra. Minning Hauks
mun lifa, þar fór góður drengur.
Hjalti Garöarsson
Ekki mun deilt um sannleiks-
gildi hins kunna spakmæiis: Vinn-
an göfgar manninn. Piltur, sem
elst upp á góðu alþýðuheimili með
foreldrum sínum, sívinnandi inn-
an og utan heimilis, ljómar á
fermingardegi sínum sem sterkur
stofn, er samfélagið væntir sér
góðs af í lífi og starfi, óskir, vonir
og bænir fylgja honum.
Reglusemi og prúðmennska
fylgdu Hauki Olasyni úr hlaði:
Akurgerði 4. Foreldrar hans eru
Jónína Björnsdóttir sjúkraliði og
Óli Þorsteinsson pípulagninga-
maður, bæði vinnuforkar. Haukur
átti eldri systur, Sigrúnu, arkitekt
í Danmörku. Haukur var snemma
verkafús bæði við sveitastörf og í
borginni og hafði sérstakan áhuga
á vélum og reyndi þar nokkuð á, er
hann varð eina vertíð aðstoðar-
maður við vélgæslu, er mun bæði
hafa ýtt undir námsvilja í þeirri
grein og bent til góðra hæfileika
þar til og hlaut að mér skilst vel
tiltrú þeirra, er á öruggum og dug-
andi manni þurftu að halda.
Eftir góð námslok í Vélskólan-
um, sannar það gott álit á 25 ára
gömlum pilti, að vera strax ráðinn
yfirvélstjóri á góðu skipi.
Maður á blómaskeiði ævinnar,
sem er að hefja sjálft ævistarfið,
að stofna heimili með unnustu
sinni og barni, leggur glaður upp í
sína fyrstu sjóferð sem fyrsti vél-
stjóri í fyrstu ferð þessa skips,
Gunnjöns GK 506.
Allt er þetta brosandi eins og
æskan, djarfhuga framtaksstarf
sem okkar litla þjóð byggir tilveru
sína á.
Þótt allt muni þar hafa verið
gert sem best úr garði, svo sem
hugir og hendur máttu best veita,
reynum við daglega, að eitt vald í
heiminum er æðra öllu mannlegu,
þrek og kjarkur megna þar ekki
viðnám að veita:
Oft þó sigri ofsa rok
ævidags á hausti og vori,
enginn veit hvort ævilok
eigi hann i næsta spori.
Svo ægisterk var þessi ógnar-
bára, eldsvoðinn, sem braut á
skipinu Gunnjóni, að þola máttu
skipverjar þá hörðu raun að geta
ekki bjargað úr eldsvoðanum þeim
félögum sínum Hauki ólasyni,
Eiríki Ingimundarsyni og Ragnari
Júlíusi Hallmannssyni, og þótt
hjálp bærist, reyndist baráttan
löng og hörð og mátti í öðru tilfelli
ekki tæpara standa.
Það má safna fleiru dýrmætu í
sjóði en gulli. Ævistörf móðurinn-
ar, Jónínu, utan heimilis að
hjúkra sjúkum, gera þeim sjúkra-
húsvistina sem þolanlegasta og
þess utan sýna öðrum nauðstödd-
um einstaklingum móðurlega um-
önnun og umhyggju sem okkur
þiggjendum og áhorfendum er
skylt að þakka vitandi, að hún á
inni í mörgum slíkum sjóðum óska
og bæna.
Auk okkar vandamanna og vina,
efast ég ekki um, að þessar sorg-
legu slysfarir snerta viðkvæma
strengi mjög margra um allt land,
biðjandi alveldi miskunnsem-
innar, að veita syrgjendum sinn
styrk: unnustu Hauks, Ingveldi
Gísladóttur, með ívar son þeirra á
fyrsta ári, foreldrum Hauks og
systur, öðrum ættmennum og vin-
um, sem og öllum, er af þessu slysi
eiga um sárt að binda.
Haukur var sannarlega trúr
þeirri kenningu: „Vinn þú meðan
dagur er, því nóttin kemur þá eng-
inn getur unnið," og þótt dagurinn
yrði styttri en hann og aðrir höfðu
vonað, vonum við, að fagrar minn-
ingar um góðan dreng mýki
dýpstu sárin.
Ingþór Sigurbj.
Hve sæl, ó, hve sæl er hver leikandi lund,
en lofaöu’engan dag fyrir sólarlags stund.
Um sólskin kvað fuglinn og sá hvergi skúr,
þa sólin rann í haf, var hann kominn í búr.
Ilm sumardag blómió í sakleysi hló,
en sólin hvarf, og éliö til foldar þaó sló.
Og dátt lék sér barniö um dagmálamund,
en dáið var og stirónað um mióaftans stund.
í dag er til moldar borinn frá
Bústaðakirkju ungur vinur okkar,
Haukur Ólason, Akurgerði 4, son-
ur Óla Þorsteinssonar pípu-
lagningamanns og Jónínu
Björnsdóttur, Yrsufelli 10, sem
vinnur við iðjuþjálfun á Borgar-
spítalanum. Eina systur átti hann,
Sigrúnu Óladóttur, sem er við
nám í Danmörku og býr þar með
fjölskyldu sinni, en kemur heim til
að kveðja kæran bróður.
Við getum vart trúað að hann sé
allur, hann sem var rétt að byrja
starfið, nýgenginn út úr skólanum
með vélstjóraprófið sitt. Það er
ekki löng lífssaga tuttugu og fimm
ára manns, sem er að byrja ævi-
starfið og ekki margt um að segja
þó að mörgum sé æskan besti tími
lífsins. Víst var alvara lífsins tek-
in við hjá Hauki, þar sem hann
átti heitmey, Ingveldi Gísladóttur,
fóstru, og lítinn níu mánaða
dreng, ívar. Það var líka glaður
maður, sem var að fara út í lífs-
baráttuna að vinna fyrir fjöl-
skyldunni sinni og byggja upp
fyrir framtíðina. Allir horfðu
glaðir fram á við. — Inga og
Haukur hafa verið saman síðan á
unglingsárum og stutt hvort ann-
að í námi og starfi, einnig átti
hann sitt annað heimili hjá for-
eldrum hennar. Sem drengur var
Haukur mörg sumur í Oddgeirs-
hólum í Hraungerðishreppi og oft
var rennt austur ef tækifæri gafst.
— Svo oft sem við höfum verið
gestir á heimili Jónínu og manns
hennar Þórðar Rafns Guðjónsson-
ar, glaðnaði í ranni er Haukur og
Inga litu inn og litli Ivar. Nú er
Haukur horfinn, við þökkum af
hjarta að hafa fengið að kynnast
honum. Öllum ástvinum hans
vottum við dýpstu samúð og biðj-
um þeim styrks á erfiðum stund-
um. Við minnumst einnig skipsfé-
laga hans, sem fórust með honum
í brunanum í Gunnjóni GK.
Flýt þér, vinur, í fegra heim.
Krjúptu aó fótum frióarboóans,
fljúgóu á vængjum morgunroóans
meira aó starfa Guós um geim.
Jóna Sigurðardóttir,
Jón Einarsson.
Sýnir í
Þrastarlundi
SVAVA Sigríður Gestsdóttir,
Selfossi, sýnir um þessar mundir
vatnslitamyndir og myndir málað-
ar á rekavið í Þrastarlundi. Svava
hefur stundað nám í Myndlist-
arskólanum í Reykjavík og Kaup-
mannahöfn. Sýningunni lýkur 28.
júní.
Aðstandendur dagskrárinnar eftir Samuel Beckett. Talið frá vinstri: Árni Ibsen, þýðandi verkanna og leikstjóri
Ólafur Sveinsson, framkvæmdastjóri Stúdentaleikhússins, Viðar Eggertsson, leikari og Stefanía Harðardóttir
frá Félagsstofnun stúdenta. Morgunbla»ift/ Kriatján
Stúdentaleikhúsið sýnir verk eftir Beckett
Laugardaginn 25. júní sl. frum-
sýndi Stúdentaleikhúsið fjögur
stutt leikrit eftir írska rithöfund-
inn Samuel Beckett, er ekki hafa
verið sýnd hérlendis áður.
Dagskráin nefnist Óstöðvandi
flaumur. Síðasta sýning hennar
verður fimmtudaginn 30. júní nk„
en sýningarstaður er Félagsstofn-
un stúdenta
Stúdentaleikhúsið sýnir um
þessar mundir fjögur verk eftir
írska ljóðskáldið, leikrita- og
skáldsagnahöfundinn Samuel
Beckett. Dagskráin nefnist
óstöðvandi flaumur, en hún mun
vera einn samfelldur orðaflaum-
ur. Verkin eru: Komið og farið
(Come and go), Ekki ég (Not I),
Svefnþula (Rockaby) og Fátt eitt
ósagt (Ohio Impromtu). Öll eru
verkin leikin hér á landi í fyrsta
sinn, en þýðandi og leikstjóri er
Árni Ibsen. Leikendur eru fimm
talsins, þau Hulda Gestsdóttir,
Rósa Marta Guðnadóttir, Soffía
Karlsdóttir, Hans Gustafsson og
Viðar Eggertsson. Boðið er upp á
veitingar eins og á fyrri sýning-
um leikhússins og þannig reynt
að ná stemmningu kaffileikhúss.
Volvo ’82 til sölu
Bíllinn er blásanseraður, mjög vel með farinn. Ekinn 30
þús. km. Útvarp og segulband.
Upplýsingar í 76522 í dag og næstu kvöld.
Gleðilegt
sumar ’83
Hægt er að kaupa hlutina smátt og smátt ef vill, t.d.
lyftanleg þök, bekkir, borð, skápar, eldhúsborð með
vask, vatnsdælu, eldavél og ísskáp.
Fullinnréttað íbúðarhús, bæöi á japanska og ameríska
pallbíla. Húsin eru lág á keyrslu, en vel mannhæð í
notkun.
Danskur tjaldvagn með fortjaldi. Tekur 3 mín. aö
reisa.
GísH Jónsson & Co. hf.,
Sundaborg 41. Sími 86644.
Fólksbflakerrur með Ijósum og varadekki. Stór dekk.
Hjólhýsin eru komin til landsins og meira fáum við
ekki í sumar. 16,18 og 20 fet.