Morgunblaðið - 28.06.1983, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 28.06.1983, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1983 23 • Bandaríska stúlkan Martina Navratilova þykir líklegust til þess aö sigra í kvennaflokki í Wimbledon-tenniskeppninni sem lýkur um næstu helgi. Navratilova hefur um langt skeiö veriö í fremstu röö. Símamynd AP. I íprðltlr I Wimbledon: Connors sleginn út í gærkvöldi London, 27. júní. AP. ÞAU mjög svo óvæntu úrslit áttu sér staö í gærkvöldi í Wimble- don-tenniskeppninni að Jimmy Connors, sem flestir álitu sigur- stranglegastan í keppninni, var sleginn út. Það var 25 ára gamall Suöur-Afríkubúi, Kevin Curren, sem sýndi snilldarleik og sigraöi Connors 6—3, 6—7, 6—3, 7—6. Connors sigraöi í Wimbledon- keppninni í fyrra. Connors hélt þegar af staö heim til Bandaríkjanna og vildi ekki ræöa viö fréttamenn AP í London í gær eftir tap sitt. Hann var greini- lega mjög hræröur, hræröur yfir því aö vera sleginn út úr keppninni svo óvænt. Curren lék hlns vegar við hvern sinn fingur og sagöi viö fréttamenn AP aö þol og kraftur skiptu mestu þegar aö undanúr- slitunum kæmi. Ég tel mig eiga góöa möguleika úr þessu, bætti Curren viö. Átta keppendur eru nú eftir í karlaflokki og leika þeir saman sem hér segir: Curren og Mayotte, Lewis og Purcell, Tanner-Lendl og Mayer og McEnroe. Martina Navratilova þykir enn langsigur- stranglegust af kvenfólkinu og hef- ur hún ekki tapaö leik til þessa í keppninni. Meistaramót íslands í frjálsum íþróttum: Þokkalegur árangur fyrsta daginn MEISTARAMÓT íslands í frjálsum íþróttum hófst á Laugardalsvell- inum í gærkvöldi. Frekar var mót- iö dauft þegar á heildina er litið en þó sáust ágæt afrek í einstaka greinum. Veöur var þokkalegt á meöan á keppninni stóö en at- rennubrautir svo og hlaupabraut- irnar voru mjög þungar vegna langvarandi rigninga. Guömundur Skúlason sigraöi ör- ugglega ífyrstu grein mótsins, 400 m grindahlaupi, en tími hans var langt frá því að vera góöur. Úrslit í grein- unum: 400 yrindahlaup: sek. Guðmundur Skúlason Á 55,9 Jónas Egilsson ÍR 57,00 Birgir Jóakimsson ÍR 59,00 400 m grindahlaup kvenna: Sigurborg Guömundsdóttir Á 1:02,1 Valdis Hallgrímsdóttir KR 1:06,0 linda Loftsdóttir FH 1:09,0 Udo Beyer setti nýtt heimsmet í kúluvarpi um helgina í lands- keppni Bandaríkjanna og A- Þýskalands í frjálsum íþróttum. Beyer kastaöi kúlunni 22,22 m en fyrra heimsmetiö, sem var sett 1978, var 22,15 m. Þessi árangur Beyers kom talsvert á óvart og ekki hvaö síst honum sjálfum því bæöi var aö hann var snúinn um ökla og svo hitt aö Dave Laut kastaöi 21,87 í fyrsta kasti og þá taldi Beyer aö hann ætti ekki möguleika á aö sigra. En hann var ekki á því aö gefast upp og árangurinn varö heimsmet eins og áöur sagði. Árangur á þessu móti var í heild nokkuö góöur. Tom Petranoff frá Spjótkast kvenna: m iris Grönfelt UMSB 46,98 Birgitta Guójónsdóttir HSK 41,24 Bryndís Hólm ÍR 38,68 Oddur Sigurösson KR hljóp 200 m mjög létt og haföi ekkert fyrir því aö sigra örugglega. „Brautirnar eru mjög þungar og ekki gott aö hlaupa," sagöi Oddur eftir keppnina. 200 m hlaup karla: sek. Oddur Sigurösson KR 22,09 Þorvaldur Þórsson ÍR 22,54 Egill Eiösson UÍA 22,71 i kúluvarpi karla sigraöi Helgi Þ. Helgason USAH, náði góöum árangri Helgi bætti sinn fyrri árangur um 40 sentimetra og er hann í mikilli framför. „Þaö var ekki gott aö kasta í kvöld þar sem kúluhringurinn var mjög háll eftir rigninguna, en ég er mjög ánægöur meö árangurinn og vonast fastlega til þess að ná 17 metrunum í sumar," sagði Helgi eftir keppnina. USA, hinn nýi heimsmeistari í spjótkasti sigraöi meö því aö kasta spjótinu 94,62 en Derlef Michel varð annar meö 94,08 metra. Af kvenfólkinu vakti mesta athygli til- raun Louise Ritter viö nýtt heims- met í hástökki, 2,03, en hún felldi í öllum tilraununum, en setti þó nýtt bandarískt met, tveir metrar slétt- ir. í 4 x 400 mtr. boöhlaupi karla sigraöi sveit Bandaríkjanna á 38,71 og munaöi þar mestu um frábæran sprett Carl Lewis en hann hljóp lokasprettinn mjög vel. Bandarísku stúlkurnar sigruðu í 4 x 100 metra boöhlaupinu á mjög góöum tíma, 41,63 en þær aust- ur-þýsku eiga heimsmetiö sem er 41,60. • Ragnheiöur Ólafsdóttir, FH, kemur í mark sem öruggur sigur- vegari í 800 m hlaupi kvenna í gærkvöldi á meistaramóti is- lands. Úrslit í kúluvarpi karla: m Helgi Þ. Helgason USAH 16,66 Pétur Guðmundsson HSK 15,29 Hástökk kvenna: María Guömundsdóttir HSH 1,68 íris Jónsdóttir UBK 1,68 Þórdís Hrafnkelsdóttir UÍA 1,65 Kristján Haröarson Ármanni sigr- aöi í langstökki karla. Lengi vel haföi Jón Oddsson KR forystuna en í næstsíöasta stökki náöi Kristján for- ystu meö stökki uppá 7,37 metra og nægði það til sigurs og íslands- meistaratitils í greininni. Langstökk karla:m Kristján Harðarson Á 7,37 Stefán Þ. Stefánsson ÍR 6,87 Spjótkast karla: Sigurður Einarsson Á 69,30 Unnar Garöarsson HSK 60,86 Oddný Árnadóttir hljóp 200 metr- ana mjög vel og sigraöi helsta keppi- naut sinn, Helgu Halldórsdóttur úr KR, örugglega. 200 m kvenna: sek. Oddný Árnadóttir ÍR 25,16 Helga Halldórsdóttir KR 25,83 Svanhildur Kristjánsdóttir UBK 26,34 EIN skemmtilegasta keppnisgrein þennan fyrsta dag mótsins var 5000 m hlaup karla. Þar sigraói Gunnar Páll Jóakimsson, kom langfyrstur í mark. Lengi vel haföi Siguröur P. Sigmundsson úr FH forystuna í hlaupinu en þegar einn hringur var eftir tók Gunnar mikinn sprett og stakk Sigurö hreiniega alveg af. 5000 m hlaup karla: mtn. Gunnar Páll Jóakimsson, ÍR 15.14,7 Sigurður P. Sigmundsson, FH15.21.1 Ágúst Þorsteinsson, UMSB 15,42,0 Steinar Friðgeirsson, ÍR 16,05,7 Guömundur Skúlason sigraöi í 800 metra hlaupi karla og tryggói sér þar meö landsliössæti i greininni. Guö- mundur hljóp létt og vel og virtist eiga nóg eftir þegar hann kom i mark nokkuö á undan Magnúsi Haralds- syni FH sem varð annar. 800 m hlaup karla: Guðm. Skúlason, Ármanni 1.55,21 Magnús Haraldsson, FH 1.56,55 Viggó Þórisson, FH 2.01,75 Stangarstökk: Siguröur T. Sigurðsson 5,00 Kristján Gissurarson 4,80 800 m hlaup kvenna: Ragnheiður Ólafsdóttir, FH 2.08,8 Hrönn Guðmundsdóttir, ÍR 2.15,44 4x100 m boðhlaup kvenna: Sveit ÍR 49.8 4x100 m boöhlaup karla: Sveit KR sigraði eftir mjög harða og hnifjafna keppni viö sveit iR-inga. Tími KR-sveitarinnar var 42,7 sek. en ÍR fékk 42,8 sek. Annar dagur meistaramótsins fer fram á Fögruvöllum í Laugardal í kvöld og hefst kl. 19.00. — ÞR. Udo Bayer með heimsmet í kúlu Góður árangur í landskeppni USA og A-Þýskalands Wilander úr leik McEnroe sektaður ÞAÐ er helat aö frétta frá Wimbledon-mótinu að í einliöa leik karla hafa oröið nokkur óvænt úrslit og eru þau helst aö Wilander var sleginn út úr keppninni um helgina. Hann tapaði fyrir Roscoe Tanner, gömlu kempunni frá Bandaríkj- unum í nokkuö skemmtiiegum leik þar sem Tanner haföi tals- veröa yfirburði. Tanner sem hefur ekki veriö hátt skrifaöur meðal tennisleikara að undan- förnu sagöi eftir leikinn aö hann heföi æft mjög vel fyrir keppn- ina og gegn Wilander heföi hann leikiö svipaö og gegn Borg hér áöur fyrr og þaö hefði gefið góöa raun. Hann vann 6—7, 7—5, 6—3 og 6—4. McEnroe er kominn í 16 manna úrslitin, hann burstaöi Brad Gilbert um helgina 6—2, 6—2 og 6—2. Hann og félagi hans í tvíliöaleik, Peter Flemm- ing, unnu í fyrstu umferö og hófu þar meö vörn sína en þeir hafa oröið sigurvegarar á Wimbledon tvívegis á síöustu fimm árum. McEnroe var sektaöur í þeim leik um 500 dollara og hefur nú veriö sektaður um 6250 dollara, en ef hann fer yfir 7500 þá fer hann sjálfkrafa í keppnisbann. Hjá kvenfólkinu gengur allt samkvæmt áætlun nema eftir aö Chris-Evert Lioyd var slegin út úr keppninni telja menn keppnina ekkert spennandi lengur því Martina Navratilova er nú talin örugg um sigur og þaö sé því aðeins formsatriði aö klára kvennakeppnina. Kári hættur hjá ÍBV Þaö vakti athygli þegar leikur ÍBV og Skagamanna hófst í Eyj- um um helgina aö aðalmarka- skorari þeirra Eyjamanna, Kári Þorleifsson, var ekki meö. Kári hafði skoraö fjögur mörk fyrir ÍBV í sumar og var markahæst- ur þeirra. í stuttu spjalli viö Mbl. tjáði Kári okkur aö hann væri hættur í fótbolta í sumar. Það heföi komið upp ágreiningur milli sín og þjálfarans og hann hefði veriö settur út úr liöinu og hann nennti ekki aö vera aö svekkja sig meira á þessu og heföi því ákveöið aö vera ekki meira meö í sumar. Kári sagði aö hann heföi einnig lent í deil- um viö þjálfarann í fyrra og hann væri bara búinn að fá nóg af þessu í bili. Kári hefur ekki í hyggju aö skipta um félag á þessu keppnistímabili þar sem það tekur svo langan tíma aö veröa löglegur meö nýju félagi. SUS.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.