Morgunblaðið - 28.06.1983, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JtJNÍ 1983
45
^lVakándi
SVARAR Í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Og svo eru menn að biðja
um heilbrigt þjóðfélag
Árni Helgason skrifar.
„Það voru uggvænlegar fréttir
sem blöðin fluttu um sfðustu helgi,
að innflutningur tóbaks hefði allt
að því tvöfaldast miðað við sama
tíma í fyrra. Á hvaða leið er þjóð-
félag okkar? Um leið og kjör fólks
eru stórskert af ráðandi öflum, þá
eykst notkun eiturs sem öllum er
til tjóns en engum til góðs. Eitur
keypt háu verði. Hvað veldur?
Menn tala um óhóflegt verð
matvæla í dag, þess nauðsynleg-
asta til að halda heilsu og kröft-
um. Hinu er sjaldan eða aldrei á
loft haldið þótt tóbak hækki í
verði og þjóðin eyði í slíkan varn-
ing fjölmargra íbúðarhúsa virði á
hverju ári. Og því síður er horft
aftur á veg og litin reynsla liðinna
kynslóða og afleiðingar af þessari
hörmungarnautn.
Hefir okkar litla samfélag efni á
að kaupa þessar dýru eiturlindir
bara til að blása þeim út í loftið,
eyðileggja lungu og önnur líffæri
og enda með hósta og harmkvæl-
um á sjúkrahúsi og eyða þar jafn-
vel ævinni í langvinnu stríði?
Brennt barn forðast eldinn var
sagt í gamla daga, en því er öfugt
farið í dag. Af reynslunni læra
menn var einnig sagt; þetta segir
enginn í dag. Menn hrista höfuðið
og jafnvel bölsótast yfir sköttum
og því að erfitt sé að lifa, á meðan
þeir brenna tugum og þúsundum
króna í neyslu skaðlegra efna.
Hvílíkt öfugstreymi.
Nei, það verður ekki séð að al-
menningur sé blankur í dag. Mað-
ur kemur ekki svo á almenna staði
að ekki sé þar púað út f loftið og
framan í mann þessari eiturgufu.
Ekkert tekið tillit til neins. Kæru-
leysið vex á andlitunum og fjar-
rænan er í algleymi. Hvílíkt og
annað eins, og svo eru menn að
biðja um heilbrigt þjóðfélag.
A meðan illa gengur að selja af-
urðir landsmanna, á meðan veiðar
minnka og atvinnurekstur dregst
saman, er dýrmætum gjaldeyri
eytt í skaðleg efni fyrir sál og lík-
ama og framtíðin þannig vörðuð
skaða og skömm.
Þetta er aldarandinn, segja
menn. Fylgjast með fjöldanum.
En væri ekki hollt að snúa þessum
aldaranda við og byrja nú veru-
lega að byggja upp varanlegt
þjóðfélag og afhenda afkomend-
unum nýtt og betra andrúmsloft?
Leggja þá peninga á banka sem
menn eyða í skaðlegar nautnir,
sem eyðileggja manninn fyrr en
síðar. Það, sem menn leggja á
sjóð, kemur atvinnuvegum okkar
til góða og þeim sem eru að byggja
upp framtíð íslands.
Er ekki vitlegra að standa að
slíkri uppbyggingu?"
Sfmi 44566
RAFLAGNIR
ORION
Stofnfundur félags höfunda
kennslubóka og fræðirita
veröur haldinn í Menntaskólanum viö Hamrahlíð föstu-
daginn 1. júií kl. 17. Til fundarins eru boöaðir þeir sem
hafa hagsmuna aö gæta vegna samninga um útgáfu og
fjölföldun á kennslugögnum og fræöiritum.
Nánari upplýsingar í símum 16034 og 37431.
Undirbúningsnefnd.
GR JÓTGRINDUR
Á FLESTAR TEGUNDIR BIFREIÐA
Eram sértiæfðlr IFIAT og CITROEN
SKEMMUVEGI 4
KOPAVOGI
SIMI 7 7840
CVERKSTÆÐIÐ
nostós
Hvers eigum við að gjalda?
3249-8272, 5535-5940, 7651-9595,
2586-2678 og 1446-5413 skrifa:
„Velvakandi.
Við sem vinnum í unglingavinn-
unni viljum spyrja, af hverju við
fáum ekki kaup ef við veikjumst.
Við vinnum úti allan daginn. Er
ekki gert ráð fyrir því, að við get-
um veikst? Eigum við að trúa því,
að ef við veikjumst, verðum við að
gera svo vel að fá ekkert kaup
þann daginn?
Var ekki nýlega verið að kvarta
yfir því, að kaupið væri of lágt.
Það dugir ekki einu sinni fyrir
skólabókum. Og ef við veikjumst í
vinnu: Hver tímir þá að sleppa
vinnudegi með svona kaup? Og
síðan mætir maður veikur til
vinnu og smit eru fljót að berast.
Við eigum heimtingu á að fá
kaup gegn læknisvottorði, ef slíkt
kemur fyrir, sem alltaf er hægt að
búast við og yfirvöld eiga að gera
ráð fyrir. Þetta er argasta órétt-
læti. Hvers eigum við að gjalda?“
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Hvernig hefur þetta gengið fyrir sig?
Rétt væri: Hvernig hefur þetta gengið?
Eða: Hvernig hefur þetta gerst?
Eða: Hvernig hefur þetta orðið?
Hamar og sög
er ekkinóg
NEMA ÞÚ VEUIR RÉTTA EFNIÐ^
Vegg- og loftklæðning
í glæsilegu úrvali
úr eiK, furu, aski, oragon-pine
gullálmi, pmrutré, bronni, antik-
•ik og 10 togundum til viöbótar.
^Verö trá aöoins kr. 110,- pr. m'
BJORNINN HF
Skúlalúni 4 - Simi 25150 - Reykjavik