Morgunblaðið - 28.06.1983, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 28.06.1983, Blaðsíða 16
8k*f 16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1983 mm 1 41 #* 1 y ECHO & THE BUNNYMEN £60 - GRYLIJRNAR - OEILDI í Laugardalshöllinni laugardagskvöldið 2. júlí kl. 20.00 Míðaverö kr. 390.- Forsala aðgöngumiða í hljómplötuverslunum Karnabæjar og Fálkans, Skífunni og Gramminu Á ísafirði var mikill mannfjöldi samankominn á Austurvelli til að fagna komu forsetans. Ef grannt er skoðað má sjá að fólk hefur jafnvel tekið sér stöðu á húsþökum. . Forsetaheim- sókn um Vest- firði lokið VELHEPPNAÐRI heimsókn forseta Islands um Vestfirði lauk á sunnudagsmorgun þegar sýslumaður og sýslunefnd N-ísa- fjarðarsýslu kvöddu forsetann á ísafjarðarflugvelli. I»á hafði forsetinn heimsótt flest byggð ból í Barðastrandar- og ísafjarð- arsýslum, þrýst ótal hendur, haldið ófáar ræður og þegið veit- ingar heimamanna. Alls staöar og stór hluti íbúa hvers staðar ann. Á síðasta degi heimsóknar for- setans var Reykjanes í Djúpi heimsótt á varðskipinu Ægi, sem beið forsetans í Súðavík. Eyjan Vigur í ísafjarðardjúpi var síðan heimsótt í boði bændanna Björns og Baldurs Bjarnasona og Sigríðar Salvarsdóttur. Frá Vigur var haldið til Bolung- arvíkur þar sem mannfjöldi fagn- aði komu forsetans á bryggjunni, lítill strákur færði forsetanum blóm og bæjarfógeti og bæjar- stjórn Bolungarvíkur tóku á móti forsetanum. Þaðan var gengið til var vel tekið á móti forsetanum kom til að heilsa upp á forset- reisulegs íþróttahúss þeirra Bol- víkinga, þar sem forsetanum var færður að gjöf jaspissteinn á silfurfæti og myndar silfurund- irstaðan brotnandi bárur á bjargi. Á steininn eru letruð orð Land- námu um landnám Bolungarvíkur. Ólafur Kristjánsson, forseti bæj- arstjórnar, bauð forseta velkom- inn til Bolungarvíkur og forseti heimsótti sjúkraskýlið á Bolung- arvík. Um kvöldið sat forseti kvöldverðarboð bæjarstjórnar Bolungarvíkur í Ráðhúsinu í Bol- ungarvík. Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, kveður Þröst Sigtryggsson, skipherra á Ægi, og þakkar honum fyrir samfylgdina um ísafjarðardjúp, áður en gengið er á land í Bolungarvík. Morgunblaðið/ RAX

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.