Morgunblaðið - 28.06.1983, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1983
21
Varaforsetinn
leikur við Borg
Stokkhólmi, 27. júní. AP.
GEORGE Bush, varaforseti Bandaríkjanna kom á mánudag í tveggja daga
opinbera heimsókn til Svíþjódar til viðræðna við sænska forsætisráðherrann,
Olov Palme, um heimsmálin. Bush mun einnig gefast kostur á að leika tennis
við Björn Borg, sem var sigurvegari á alþjóðamóti tennisleikara í Wimbledon
fimm sinnum.
Bandaríski varaforsetinn flaug
til Svíþjóðar frá Bergen í Noregi,
þar sem hann fór í eins dags
skemmtisiglingu ásamt konu sinni
í Harðangursfirði. Hann hafði áður
verið í Vestur-Þýzkalandi, þar sem
andstæðingar Bandaríkjanna
hentu grjóti og flöskum að bílalest
varaforsetans í Krefeld á laugar-
dag. Kanzlari Vestur-Þýzkalands,
Helmut Kohl, hefur fyrirskipað
rannsókn á því hvers vegna mót-
mælendurnir voru ekki handsam-
aðir áður en af grjótkastinu varð.
Sagði kanzlarinn í dag að ofbeldis-
aðgerðir mótmælendanna hefðu
skaðað orðstír Þjóðverja utanlands
og væru afsakanir yfirvalda í Rín-
Westfalen alls kostar ófullnægj-
andi.
Fteistandi
Færeyjaferðir
meðRaianda
Sumarleyfisferðir Faranda eru alltaf dálítið sérstakar. í
ferðina til Vínarborgar komust færri en vildu, og þannig
verður vafalaust með Farandaferðirnar til Færeyja.
Þær eru nefnilega dálítið sérstakar.
V aschenko-fólkið
til Vesturlanda
Vín, Moskvu, 27. júní. AP.
FJÖLSKYLDA, sem tilheyrir hvítasunnusöfnuðinum í Sovétríkjunum kom í
dag til Vínar eftir margra ára bið eftir vegabréfsáritun. Vín er fyrsti áfanga-
staður fjölskyldunnar á leið hennar til ísrael.
Það voru fimmtán meðlimir
Vashchenko-fjölskyldunnar sem
komu flugleiðis til Vínarborgar síð-
degis í dag þar sem Lydia Vasch-
enko, sem áður hafði fengið vega-
bréfsáritun frá Sovétríkjunum og
haldið til ísrael, kom til móts við
fjölskyldu sína.
Fimm ár eru liðin frá því Pyotr
Vaschenko, 55 ára, eiginkona hans
Augustina, 54 ára, Lydia og tvær
systur hennar komust fram hjá
sovéskum öryggisvörðum við
bandaríska sendiráðið í Moskvu
þar sem þau báðu um aðstoð við
öflun vegabréfsáritana fyrir fjöl-
skylduna.
Lubov Vaschenko, sagði við kom-
una í dag, að fjölskyldunni hefði
verið tikynnt að þeim hefði verið
veitt leyfi til að yfirgefa landið 22.
júní síðastliðinn og væri hún
þakklát bæði bandarískum og sov-
éskum yfirvöldum.
Farandi býður ferðir til Færeyja á þriðjudögum og laugar-
dögum, prýðilega gististaði, möguleika á skoðunarferðum um
eyjarnar átján, sérferðir til Klaksvíkur, heimsókn í Kirkjubæ,
- og svo má ekki gleyma verslununum í Þórshöfn, sem margar
hverjar gefa Kaupmannahafnarbúðunum lítið eftir!
Við minnum sérstaklega á Ólafsvökuna.
Þá dansa frændur okkar og syngja upp á gamla mátann og
klæðast þjóðbúningi til hátíðarbrigða.
Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofu okkar.
ffaiandi
Vesturgotu 4 - sími: 17415
-ferðir fyrir þá sem vilja eitthvað nýtt!
Verkföllunum
í Chile aflétt
Santiago, Chile, 27. júní. AP.
VÖRUBÍLAEIGENDUR og verka-
lýðsfélög afléttu verkfalli sínu aðfara-
nótt mánudags og sögðust vonast til
að herstjórnin myndi hlusta á kröfur
þeirra.
Verkfallið sem staðið hafði í
fjóra daga hafði ekki mikil áhrif á
starfsemi í landinu aðra en vöru-
flutninga og því var aflétt eftir að
biskupar rómversk-kaþólsku kirkj-
unnar gáfu út yfirlýsingu þar sem
Israel:
Augusto Pinochet og stjórn hans
var hvött til að hefja samningavið-
ræður við verkalýðsleiðtoga.
Adolfo Quinteros, formaður sam-
bands vörubílaeigenda, sagði á
fundi með fréttamönnum að hann
hefði staðið í óbeinum viðræðum
við Enrique Montero, innanríkis-
ráðherra, og tvo hershöfðingja.
Hann sagðist vænta þess að beinar
viðræður við stjórnvöld hæfust í
þessari viku.
Hungurverkfalli
lækna er lokið
Tel Aviv, 27. júní. AP.
ÍSRAELSKU læknarnir sem verið
hafa í hungurverkfalli síðustu tvær
vikurnar hafa látið af því og í gær
settust þeir að sinni fyrstu máltíð í
háa herrans tíð. Verkfallið, sem stað-
ið hafði yfir í 118 daga, leystist að
hluta, er ísraelska ríkisstjórnin bauð
læknum upp á að hlutlaus nefnd sæi
um kjarabótaumræðurnar fyrir hönd
ríkisvaldsins.
Þessi niðurstaða er ekki góð til
afspurnar fyrir ríkisstjórn Begins,
en hún er túlkuð á þá leið að
stjórnin hafi í raun gengið að öllum
kröfum lækna. Fjármálaráðherr-
ann, Roram Aridor, er sagður æfur
út í félaga sína í stjórninni, þar
sem hann hefur haldið mjög að sér
höndum í ríkisútgjöldum til þess að
stemma stigu við gífurlegri verð-
bólgu. Óttast hann að læknarnir
fái nú slíka kjarabót að það hleypi
skriðu af stað í atvinnulífinu. Blöð
í ísrael hafa látið að því liggja, að
láti Aridor ekki af störfum, verði
hann hreinlega látinn víkja.
Það var Menachem Begin, for-
sætisráðherra sjálfur, sem tók af
skarið, en honum hafði borist til
eyrna að dæmi væru til þess að
sjúklingar þjáðust mjög vegna
skorts á umönnun.
Flóðin á Indlandi:
Æ fleiri lík
Nýja Delhi, 27. júní. AP.
FLEIRI lík hafa fundist á flóöasvæð-
unum í Gujarat á Indlandi og í gær
var vitað um 412 sem drukknað
höfðu í hinum miklu vatnavöxtura
sem komu í kjölfarið á geysilegu rign-
ingaveðri. Var ausandi rigning í
marga daga og svo mjög bólgnuðu ár,
aö flæddi yfir 30 stíflur.
Indira Gandhi, forsætisráðherra
Indlands, hélt til flóðasvæðanna í
gær og skoðaði þau úr þyrlu. Hún
sagði að umfangsmikið hjálpar-
starf þyrfti til að koma öllu í samt
lag á ný og hét því að verja meira
fé til hjálparstarfs. 40.000 hús skol-
uðust burt í einni borg og í annarri
einangruðust 130.000 manns. Alls
hafa 61.000 nautgripir drukknað og
eignatjón annað hefur verið stór-
kostlegt.
J
1—
Hótd
f£~'
Stykkishólmur
Dýöur sumardaga viö
Breiöafjörö
Cisting í tvær nætur og sigling
meö Baldri um Breiöafjörö,
komiö viö í Flatey.
Verö aöeins 1750 krónur.
Skreppið í Stykkishólm, skoðið Snæfellsnes
og Breiðafjarðareyjar - perlur íslenskrarnáttúru -
slakið á í friðsæld á fyrsta flokks hóteli.
Hótel Stykkishólmur
JSm 938330