Morgunblaðið - 28.06.1983, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNl 1983
29
Stærðfræðingar þinga að Flúðum
ég vona, að henni líði vel, þar sem
hún er nú. Ég vona, að leiðir okkar
eigi eftir að liggja saman, þegar
þar að kemur.
Mig langar til að kveðja Bínu
með broti úr sálmi eftir Matthías
Jochumson.
Ó, bk-snuA stund, er burtu þukan Ifbur,
sem blindar þessi daurtleg augu vor,
en »dri dagur, dýrAarskær og blídur,
med drottins Ijósi skín á öll vor spor.
Sigrún Gísladóttir
Vissulega erum við oft minnt á
það í daglega lífinu hve „örstutt er
bil milli blíðu og éls“, sérstaklega
þegar vinir og vandamenn eru
burtkallaðir úr þessu jarðlífi með
snöggum hætti.
Það vekur okkur til umhugsun-
ar um staðreyndir lífsins, að eitt
sinn skal hver deyja og enginn veit
hvenær dauðinn ber að dyrum. Við
ástvinamissi og góðra vina finnst
okkur víst flestum, að myndist
tómarúm hið innra með okkur.
Svo varð um mig þegar ég frétti
andlát Jakobínu Pálmadóttur
vinkonu minnar og samstarfskonu
um 15 ára skeið. Þegar ég sit hér í
tofunni minni í Húsmæðraskólan-
um Ósk á ísafirði og skrifa þessar
fátæklegu línur um hana, þyrpast
að mér minningarnar frá þeim
tíma sem við unnum hér saman.
Þá var oft glatt á hjalla. Tóma-
rúmið fyllist og ég ylja mér vð
minningarnar, finn hve dýrmætt
er að eignast góða vini. Þó þeir
flytjist burtu um langan veg, jafn-
vel yfir gröf og dauða, lifa þeir
með okkur. Svo er líka Guði fyrir
að þakka, að hann gaf okkur fyrir-
heit um framhald lífsins á æðra
stigi, þegar jarðvistinni hér líkur.
Við eigum þá trú, að aftur hittist
vinir hinu megin.
Árið 1948 kom ég til ísafjarðar
til þess að taka við skólastjórn
Húsmæðraskólans á ísafirði.
Hann var þá að flytjast 1 nýtt og
glæsilegt skólahús og voru þetta
merk tímamót í sögu hans. Tveir
kennarar voru þá fastráðnir við
skólann, þær Jakobina Pálmadótt-
ir og Guðrún Vigfúsdóttir. Báðar
voru þær búnar að kenna við skól-
ann í þrjú ár og orðnar öllum
hnútum kunnugar. Man ég, að mér
fannst mikill styrkur í því að hafa
þær mér við hlið, þá sjálf ung og
óreynd. Jakobina var okkar elst og
fann og strax, að hennar dóm-
greind var óhætt að treysta. Þetta
voru yndislegir dagar, fullir ann-
ríkis, þegar við vorum að setja
skólann, fallegan og nýjan, i stand
til þess að taka á móti 40 stúlkum
svo von var á þá um haustið. Allar
gengum við að þessu starfi hress-
ar og glaðar, án þess að spyrja
hvort komin væri yfirvinna. Við
bjuggum allar í skólanum, sem
var eins og lítið samfélag og heim-
ilisandinn var góður.
Jakobína kenndi fatasaum og
allar hannyrðir, sem i þá daga
voru bæði fagrar og fjölbreyti-
legar. Hún hafði mjög næman
smekk fyrir hvað var fallegt og vel
gert. Við nemendur sína var hún
þolinmóð og kurteis, enda leituðu
þær óhræddar til hennar, utan
kennslustunda.
Á stóru skólaheimili reynir
mikið á hvern einstakling. Mér var
mikill styrkur í að hafa Jakobínu
mér við hlið, þegar eitthvað bját-
aði á í skólalífinu. Benti hún mér
þá gjarnan á tvær hliðar málsins
og tók málstað þeirra, sem í hlut
áttu. Aldrei heyrði ég hana hnjóða
í nokkurn mann eða fella harða
dóma. Hún var listelsk og fjölhæf,
hafði yndi af söng og hafði góða
söngrödd. Það var mikið sungið og
spilað í skólanum í þá daga. Jak-
obína las mikið og var vel heima í
íslenskum bókmenntum og hag-
mælt vel, enda átti hún ekki langt
að sækja það, dóttir þeirrar merku
konu, Kristínar Sigfúsdóttur,
skáldkonu.
Samtímis Jakobínu fyrir vestan
var Hólmfríður Jónsdóttir kenn-
ari. Var þeim mjög vel til vina og
féll Hólmfríður, glaðvær og gáfuð,
mætavel inn í kennarhópinn, enda
bjó hún lengst af í skólanum. Sér-
staklega eru mér minnisstæðir af-
mælisdagar okkar kennaranna. Þá
lögðu þær gjarnan saman og ortu
vísur og bragi, sem síðan voru
sungnir af mikilli kátínu.
Jakobína var afar vinsæl og au-
fúsugestur hvar sem hún kom, að
ég nú ekki tali um hve kær hún
var fjölskyldu sinni, sem er óvenju
samhent og ástrík. Man ég vel eft-
ir því, þegar systkinabörnin litlu
komu til hennar í heimsókn, hve
dátt var með þeim og henni. Hún
saumaði og prjónaði og puntaði
þau til. Eftir að þau urðu fullorðin
hefur þessi góða frændsemi hald-
ist. Veit ég, að þau sakna hennar
öll sárt. Mestur er þó missir Guð-
rúnar systur hennar, sem bjó með
henni síðustu árin eftir að hún
flutti suður. Marga ánægjustund-
ina hefi ég átt með þeim systrum á
fallega heimilinu þeirra. Ekki
gleymi ég heldur móttökunum á
Akureyri, hjá foreldrum þeirra,
þessu elskulega gáfaða fólki. Þar
andaði á móti manni góðvild og
hjartahlýja.
Nú þegar þessi trygga góða
vinkona er burt kvödd, veit ég með
vissu, að þær mörgu ungu stúlkur,
sem hún hefur leiðbeint um dag-
ana, minnast hennar með þökk og
hlýju.
Hér í Húsmæðraskólanum mun
Jakobínu ávallt minnst með virð-
ingu og þökk. Við Guðrún Vigfús-
dóttir, samkennarar hennar um
árabil, geymum minningu um góð-
an vin og samstarfsmann og send-,
um Guðrúnu systur hennar og
öðrum ættingjum, innilegustu
samúðarkveðjur.
Guð blessi minningu hennar.
Þorbjörg Bjarnadóttir,
skólastjóri.
Kveðja frá Zonta-
klúbbi Reykjavíkur
Jakobína Pálmadóttir, sem svo
skyndilega er horfin, var um ára-
raðir félagskona í Zonta. Jakobína
var traustur félagi sem studdi af
heilum hug þau mál sem unnið var
að. Hún var öllum til fyrirmyndar
með fágaðri framkomu sinni.
Um leið og við þökkum henni
trygga vináttu vottum við að-
standendum hennar innilega sam-
úð.
F.h. Zontaklúbbs Reykjavíkur,
Sigríður Haraldsdóttir.
Umboðsmaður Angloschool hér á
landi og Samvinnuferðir-Landsýn
efndu fyrir skömmu til getraunar og
var dregið úr úrlausnum nýlega. Upp
kom nafn Ólafs Sigtryggssonar og
hlýtur hann í verðlaun flugferð og
mánaðar skólavist í Englandi.
Ilrunamannahreppi, 24. júní.
I þESSARI viku var haldin hér að
Flúðum norræn ráðstefna stærðfrsði-
kennara í grunnskóla og í kennara-
menntun. Ráðstefnan hófst síðastlið-
inn sunnudag og henni lýkur í dag,
fostudag. þátttakendur voru 32, sextán
íslendingar og sextán frá hinum Norð-
urlöndunum, öllum nema Noregi.
Rætt hefur verið um námið frá
byrjun til kennaramenntunar, einn-
ig um áhrif tölvunotkunar í nútíma
þjóðfélagi o.fl. Ráðstefnugestum
hefur líkað dvölin vel hérna að Flúð-
um og einnig hefur verið farið í ferð-
ir á fagra og sögufræga staði hér í
Árnessýslu. I sambandi við ráðstefn-
una hefur verið opnuð sýning á
námsgögnum i kennslumiðstöðinni,
Laugavegi 66 í Reykjavík. Verður sú
sýning opin eitthvað fram í júlí.
Sig.Sigm.
8ESJI «£?
HJALPARKOKKURINN
KENWOOD chef
Verð kr. 7.465 ." (Gengi, 23.6/83.)
með þeytara, hrærara, hnoðara, grænmetis-
og ávaxtakvörn, plasthHf yfir skál.
KENWOOD CHEF er til í þremur mism. litum.
Ennfremur er ávallt fyrirliggjandi úrval auka-
hluta, svo sem, hakkavél, grænmetisrifjárn,
grænmetis- og ávaxtapressa, kartöfluafhýðari,
dósahnífur ofl.
Eldhússtörfin verða leikur einn
með KENWOOD CHEF
RAFTÆKJADEILD
PURINA kattafóðrið fæst í helstu
MATVÖRUVERSLUNUM
NÆRING VIÐ HÆFI - RANNSÓKNIR TRYGGJA GÆÐI
IRlcfí
PURINA Umboðið