Morgunblaðið - 28.06.1983, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 28.06.1983, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1983 Asa Björg Asgeirs- dóttir — Minning Fædd 15. júní 1964 Dáin 18. júní 1983 í dag kveðjum við ástkæra frænku, Ásu Björg, sem langt fyrir aldur fram er kölluð á fund feðranna. Ása Björg var dóttir Sigurlínar S. Óskarsdóttur frá Hábæ og Ásgeirs Friðjónssonar. Hún var fædd í Reykjavík og átti þar heima mestan hluta ævi sinnar. Hún Ása Björg var um margt sérstök stúlka. Ég minnist hennar fyrst þegar hún var þriggja ára. Hún var óvenju svipsterkt barn, með stór augu og gullna lokka. Hún var fjörug og síkát en vildi fara sínu fram. Helst vildi hún vera í sunnudagafötunum alla vik- una. Já, hún vildi vera fín í tauinu hún Ása mín. Nokkrum árum síðar erum við saman í Þykkvabænum hjá afa og Gústu. Hún flögrar um hlaðið, tín- ir sér túnfífla, býr sér til krans og skartar. Á kvöldin þegar við Gústa vöskum upp, segir Ása okkur sögur og leikur kallana í sveitinni af mikilli list. Á skólaárum mínum er ég tíður gestur á heimili Siggu frænku. Þó að þar sé stundum þröngt í búi er gestrisnin einstök. Alltaf fagnar Ása mér vel og stundum með gjöf- um. Enginn er örlátari en Asa. Mamma hennar segir mér að hún gæfi utan af sér fötin ef hún fengi sjálf að ráða. í skólanum er Ása dugleg að starfa. Hún semur heilu leikritin og leikur af mestu snilld. Hún hefur alveg ótrúlegt hug- myndaflug. Og hún teiknar líka öllum betur, einkum skopmyndir, þar sem kímnigáfan nær alveg fram í fingurgóma. Eftir því sem árin líða eignast Ása fleiri vini. Hún er vinsæl, enda er hún alltaf hrókur alls fagnaðar og tekst alltaf að koma fólki í gott skap. Það vantar mikið í hópinn ef Ása er ekki með. Að grunnskólanum loknum fer Ása að vinna, ýmist í Reykjavík eða Ólafsvík. Síðastliðinn vetur fer hún síðan í myndlistarnám til Danmerkur. Þar stendur hún sig vel og sýnir að hún er efni í list- málara. Þegar hún kemur heim nú í byrjun júní sýnir hún fjölskyldu sinni fallegar myndir sem hún hefur málað í skólanum. Þessar myndir urðu því miður þær síð- ustu sem Ása málaði því aðeins tveimur dögum eftir 19 ára af- mælið er Ása látin. Þessi stúlka sem átti framtíðina fyrir sér og átti eftir að njóta dásemda full- orðinsáranna. Hver er tilgangur- inn? Það er ekki í valdi okkar mannanna að efast um tilgang Guðs. Hans ráðstafanir hljóta að vera réttar. Hann hlýtur að hafa ætlað Ásu annað og verðugra hlutverk en hún hafði hér meðal vor. Við kveðjum Ásu með trega og söknuði. Minningin um skemmti- legar stundir með henni lifir. Elsku Sigga frænka, ég votta þér, fjölskyldu þinni og vin'um Ásu Bjargar innilega samúð mína. Steinunn Ósk Útburðarmálið: Leiðrétting JÓN Steinar Gunnlaugsson for- maður Lögmannafélags íslands hafði samband við Morgunblaðið út af frétt í blaðinu í gær um mál hjóna, sem Hæstiréttur dæmdi til að rýma íbúð sína. 31 í fréttinni var sagt frá því að hjónin hefðu farið fram á frestun framkvæmdar dómsins og vitnað í bréf hjónanna til Hæstaréttar þar sem þau sögðu að „Jón heitinn Ragnarsson hafði verið skipaður af Lögmannafélagi íslands" til að fara með mál þeirra. Einnig að lögmaður þeirra í Belgíu hafi gengið frá bréfi til Lögmannafé- lagsins þar sem óskað hafi verið eftir skipun annars lögmanns vegna fráfalls Jóns E. Ragnars- sonar. Jón Steinar sagði að Lögmanna- félag íslands skipaði aldrei lög- menn til að fara með mál ein- stakra manna. „Að því er þetta mál varðar, skrifaði belgíski lög- maðurinn Lögmannafélaginu -bréf og kvartaði undan því að þetta fólk ætti erfitt með að fá lög- mannsaðstoð hér á landi. Þá hafði ég persónulega milligöngu um að koma belgíska lögmanninum í samband við Jón E. Ragnarsson, sem reyndist fús til að taka málið að sér. Þetta kom aldrei til kasta Lögmannafélagsins, enda skipar það ekki lögmenn til að fara með mál einstakra manna," sagði Jón Steinar. smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Bútasala — Bútasala Teppasalan, Laugaveg 5. ísl. handverksm.þj. hefur starfskrafta. Sími 23944 frá kl. 7—11 f.h. Trésmiður til aðstoðar Uppsetning á öllum innróttingum og huröum. Panel- og þilju- klæöningar. Sími 40379. Hilmar Foss Lögg. skjalþýö. og dómtúlkur. Hafnarstr. 11, sími 14824. Víxlar og skuldabréf i umboössölu. Fyrirgreiöslustofan, Vesturgötu 18, simi 16233. Þorleifur Guö- mundsson, heima 12469. Konan sem lagöi inn bréfið sitt í Landsbankann á þriöjudag- inn 21. og hitti mig á eftir, vin- saml. hringdu i sima 31672, þriöjud. 28. kl. 18.00. 1.—3. júlí 1983 Hekluferð Gengiö veröur á Heklu, gist á farfuglaheimilinu Leirubakka, nánari uppl. á skrifst. Laufásvegi 41 og í síma 24950. Farfuglar. UTIVISTARFERÐIR Helgarferðir 1.—3. júlí 1. Húsafell. Tjaldgisting. Sund- laug. Gönguferöir, t.d. í Surtshelli. 2. Eiríksjökull. Tjaldgisting. 3. Þórsmörk. Gist i nýja Útivist- arskálanum í Básum. Göngu- feröir fyrir alla. Sumarleyfi: 1. Noröur-Noregur, Trmosö. Göngu- og skoöunarferöir frá Tromsö. Ódýrt flug. 2. Hornstrandir — Hornavík. 15,—23. júlí. 3. Hornstrandir — Aöalvík. 15.—23. júlí. 4. Aöalvík — Lónafjöröur — Hornavík. 15.—23. júli (B). Upplýsingar og farseölar á skrifstofunni, Lækjargötu 6A, sími 14505 (símsvari). Sjáumst. Útivlst. Fíladelfía Kveöjusamkoma fyrir Norsku lúörasveitina i kvöld kl. 20.00. Fjölbreytt dagskrá. Ath.: Samkoman veröur í Fíla- delfíu FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR 11798 og 19533. Sumarleyfisferðir: 1. —10. júlí: Hvítárnes — Þver- | brekknamúll — Þjófadallr. j Gönguferö milli sæluhúsa. I þessari ferö veröur farið í Karls- drátt, gengiö á Hrútfelliö (1410 m), Fjallkirkjuna og víöar. Farar- stjóri: Hjalti Kristgeirsson. 2. —9. júlí (8 dagar): Hornvík Hornstrandir. Gist í tjöldum. Far- j arstjori: Gísli Hjartarson. 2. —9. júlí (8 dagar): Borgar- fjöröur eystri — Loömundar- fjöröur. Flogið til Egilsstaöa, þaöan með bíl til Borgarfjarðar. Gist í húsum. Fararstjóri: Tryggvi Halldórsson. Allar upplýsingar og farmiöa- sala á skrilstofunni, Óldugötu 3. Feröafélag islands. Hörgshlíð 12 Samkoma í kvöld kl. 8. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR 11798 og 19533. Miövikudagur 29. júní: 1. Kl. 08 Þórsmörk. Góð gisti- aöstaöa, fallegt umhverfl. Farmiöar seldir á skrifstof- unni, Öldugötu 3. 2. Kl. 20 (kvöldganga) Búr- fellsgjá — Kaldársel. Verö kr. 100,-. Farmiöar viö bíl. Feröafélag islands. eOEOWRNCWtFELAQ ISLANOSB FERÐAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR 11798 og 19533. Helgarferðir 1.—3. júlí: 1. Húnavatnssýsla — Vatns- dalsá — Alskaskálará. Gist í húsi. Gengiö með Alkaskál- ará. 2. Þórsmörk. Gönguferöir um- svæöiö. Gist í sæluhúsi. Farmiöasala og allar upplýsingar á skrifstofunni, Öldugötu 3. Feröafélag islands. K «.ii ÚTIVISTARFERÐIR Miðvikud. 29. júní kl. 20.00. Selför á Almenninga. Létt j ganga fyrir alla. Veör 130 kr. og j frítt fyrir börn. Brottför frá bens- I ínsölu BSi (í Hafnarfiröi v/kirkju- | garö). radauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar til sölu Fiskverkunarstöð á Suðurlandi Stööin er í 2200 fm húsnæöi. Allur búnaöur fyrir saltfiskskreiðar og síldarverkun, enn- fremur aöstaða fyrir véla- og netaverkstæöi Þorsteinn Garöarsson, viöskiptafræðingur, kvöld og helgarsími 99-3834. Fiskibátur óskast Höfum kaupanda aö góöum um 100 tonna bát. Þarf að vera góöur togbátur. Vantar einnig 12—60 tonna báta á skrá. Eignahöllin SSl?skipasi“a Hilmar Victorsson vlösklptafr. Hverfisgötu76 l húsnæöi í boöi Ferðafólk Akureyri 2ja herb. íbúö meö öllum húsbúnaði til leigu. Upplýsingar í síma 96-23525. tilkynningar Hestamannafélagið Andvari í Garðabæ og Bessastaðahreppi Dregiö hefur verið í happdrætti félagsins og upp komu eftirtalin númer: 1. vinningur: Reiöhestur aö andviröi 25.000 krónur nr. 4895. 2. vinningur: Feldmann-hnakkur nr. 2870. 3. vinningur: Feldmann-hnakkur nr. 321. Vinninga skal vitja hjá formanni félagsins, Andreasi Bergmann í síma 54079. fundir — mannfagnaöir Vörubílstjóra- félagið Þróttur Almennur félagsfundur veröur haldinn í húsi félagsins Borgartúni 33, fimmtudaginn 30. júní 1983 kl. 18.15. Fundarefni: 1. Tillöqur til lagabreytinga. 2. Formaöur Landssambands vörubifreiöa- stjóra segir frá samningum viö Vegagerö ríkisins. 3. Félagsmál. 4. Önnur mál. Stjórnin. Stjórnin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.