Morgunblaðið - 28.06.1983, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1983
35
Minning:
Vilmundur Gylfa-
son alþingismaður
hann vel?“ „Blés hann aldrei
falskt?"
Hverju eigura við að svara? Við
vitum það ekki. Þetta voru töfrar.
Þetta var töframaður.
- O —
Vilmundi Gylfasyni kynntist ég
fyrst þegar hann kom heim frá
námi. Síðar urðum við samherjar.
Fyrst í framboði á Vestfjörðum
1974. Svo í þingflokki alþýðu-
flokksins frá 1978. Við fáa hefi ég
átt meiri samvinnu en hann. í Al-
þýðuflokknum vorum við bæði
mikið sammála og mikið ósam-
mála. Þar kynntist ég Vilmundi
bæði sem eindregnum samherja
og ákveðnum andstæðingi — og í
hvorugu hlutverkinu var neitt ver-
ið að skafa utan af hlutunum. Þeg-
ar hann fór úr Alþýðuflokknum
glataði ég samherja en eignaðist
ekki andstæðing. Samskipti okkar
og samræður urðu ekki minni við
brottför hans úr flokknum þótt
yrðu með öðrum hætti en áður
var.
Samt þekkti ég Vilmund Gylfa-
son ekki vel. Hann sagðist varast
að bindast vináttuböndum í gegn
um pólitík. Stjórnmál væru of
miskunnarlaus til þess að vinátta
og pólitík gætu farið saman nema
í hófi. Sinna vina leitaði hann
annars staðar en í gegn um stjórn-
málin Svo er um fleiri.
Engu að síður fór ekki hjá því
að svo löng og náin samvinna sem
okkar gæfi mér nokkra sýn undir
það ytra byrði, sem Vilmundur
Gylfason sýndi heiminum. Hann
gat verið svarakaldur, stórvrtur
og hlífðarlaus og á skapið lagði
hann ekki hömlur heldur leyfði
því að geisa eins og verkast vildi.
Sagði það, sem hann hugsaði.
Slíkur maður hlaut að vera í senn
kaldlyndur og ókífinn, eða hvað?
Sjálfur myndi hann vart bregða
sér við olnbogaskot og illmæli? En
því var ekki þannig varið. Þótt svo
virtist sízt vera var Vilmundur
Gylfason auðsærður og tók mjög
nærri sér ef einhver stakk hann
ónotaorði þótt hann svaraði kalt
og hryssingslega. Hið harð-
hnjóskulega yfirbragð, kaldlyndið
og hryssingshátturinn var sú skel,
sem hann hafði myndað sér til
varnar. Innra fyrir bjó ljóðrænt
og viðkvæmt hugarfar en það var
aðeins á vissum sviðum, sem hann
taldi sér óhætt að láta það í ljósi: í
ást á því lýrískasta í skáldskap og
tónlist. í þeim ljóðum, sem hann
sjálfur samdi. Þar var annar
Vilmundur á ferð en sá, sem hann
vildi, að umheimurinn hefði
hvunndagslega kynni af. örsjald-
an í umræðum var þó eins og ör-
skotsbrestur kæmi í skelina. Eins
og útihurðin hrykki upp og í gegn
um gættina mætti greina þá ljóð-
rænu og viðkvæmu sál, sem bjó á
bak við alla virkisveggina. En að-
eins andartak. Svo var hurðinni
snarlega skellt í lás og órofið stóð
harðhnjóskulegt yfirborð virkis-
múranna utan um innri mann
Vilmundar Gylfasonar.
Smekkur okkar Vilmundar
Gylfasonar á skáldskap var ekki
hinn sami. Á ég því erfitt með að
kveðja hann með tilvitnun í verk
þeirra þjóðskálda, sem hann mat
öðrum fremur. Ein vísa í kvæði
Fornólfs um Björn Guðnason í
Ögri og Stefán biskup er mér efst
í huga þegar ég kveð Vilmund og
kapítulann um hann í sögu lands
og flokks. Hún er svona:
„Krá ég hann ta pan medalmann,
meiri ad vexti fleiri
en svo var eins og sýndist hann
negfjnm fle.stum meiri
hjá annarri allri þjód.
Bædi af honum fustur geðs
og gerdarþokki «tóó“.
Af Vilmundi Gylfasyni stóð
bæði gerðarþokki og gustur geðs.
Skarðið þar sem hann stóð stend-
ur ófyllt. Ég votta eiginkonu hans
og börnum, foreldrum, bræðrum
og öðru skyldfólki samúð mína. Eg
sakna Vilmundar Gylfasonar og
þess tímabils, sem við hann verður
kennt.
Sighvatur Björgvinsson
Kynni mín af Vilmundi Gylfa-
syni alþingismanni voru ekki löng
í tíma mæld, en ég stend mig að
því hvað eftir annað að minnast
einhvers frá þessum tíma eins og
það hefði átt sér stað á árum áður.
Það á rætur sínar að rekja til
þess hve ótrúlega margir og stór-
merkir atburðir hafa orðið á því
hálfa ári sem kynni okkar stóðu.
Þegar hópurinn, sem stofnaði
Bandalag jafnaðarmanna, fundaði
sólarhringunum saman í janúar
síðastliðnum og ætlaði réttilega
að kosningar yrðu í júnt, töldum
við okkur hafa fremur knappan
tíma til stefnu. Þegar svo var
ákveðið að kosningar skyldu fara
fram í apríl fór atburðarásin að
eiga sér stað með ótrúlega hröðum
hætti.
Vilmundur hafði í öllu þessu
starfi ótrúlega hæfileika til þess
að hrífa fólk með sér, taka tillit til
skoðana hinna ólíku hópa og sam-
ræma sjónarmið þeirra. Þá var
það og aðdáunarvert hvað Vil-
mundur gat ævinlega verið upp-
örvandi og okkur öllum til mikill-
ar hvatningar og stuðnings.
Stutt er á milli lífs og dauða og
það einasta sem við eigum örugg-
lega sammerkt er, að við fæðumst
öll og deyjum.
Á stundu sem þessari er óþarft
að hafa mörg orð um það hvaða
tilfinningar bærast innra, en við
hið ótímabæra fráfall Vilmundar
er mér efst í huga að þakka fyrir
örlagaríka en alltof stutta sam-
fylgd.
Innilegar samúðarkveðjur sendi
ég til Valgerðar, barnanna og ann-
arra ástvina.
Krístín S. Kvaran
Ég kynntist Vilmundi Gylfasyni
fyrst persónulega eftir að ég hafði
verið kosinn á þing í desember
1979. Auðvitað hafði maður fylgst
með honum úr fjarlægð, fyrst sem
hugmyndaríkum en óvægnum
blaðamanni og þátttakanda í sjón-
varps- og hljóðvarpsþáttum og
síðan sem sigursælum frambjóð-
anda í þingkosningunum 1978.
Vilmundur Gylfason var eins
konar „enfant terrible" íslenskra
stjórnmála þegar hann kom til Al-
þingis. Hann hafði vegið hart á
báðar hendur og af honum stóð
miki'l guf.tur. Málflutningur hans
var óvenjulegur, hann átti gott
með að ná til fólks og enginn vafi
er á því að hann átti stærstan þátt
í hinum mikla sigri, sem Alþýðu-
flokkurinn vann í alþingiskosning-
unum 1978.
Þetta er sú mynd af Vilmundi
sem sneri út. Tilviljun hagaði því
svo, að við Vilmundur höfðum
skrifstofu í sama gangi í Von-
arstræti 12, þar sem allmargir
þingmenn hafa aðsetur. Við rædd-
um því allmikið saman, oft yfir
kaffibolla inni á skrifstofum hvor
annars. Þá kynntist ég annarri
hlið á Vilmundi, sem ég mat mik-
ils. Hann var hreinskilinn og
hreinskiptinn, stór í lund og öll
smámunasemi og smámennska
voru honum víðs fjarri. Hann var
tilfinninganæmur og sá ýmsa
hluti í öðru ljósi en annað fólk,
eins og titt er um þá sem hafa
skáldlegt innsæi. Enginn vafi er á
því að hann bar mikla virðingu
fyrir þeim störfum, sem hann var
að vinna við á Alþingi. Þó að skoð-
anir væru að sjálfsögðu oft skipt-
ar um menn og málefni, þótti mér
vænt um manninn Vilmund og
mat hann meir eftir því sem ég
kynntist honum betur.
Vilmundur Gylfason var enginn
hversdagsmaður. Þegar honum
tókst best upp í ræðum á Alþingi,
fór hann á kostum og þá kom
glöggt í ljós afburðaþekking hans í
sögu og bókmenntum. Sú þekking
hafði án efa oft áhrif á skoðanir
hans. Þrátt fyrir nútímaleg vinnu-
brögð við fjölmiðlun og framsetn-
ingu skoðana og ýmsar nýtísku-
legar hugmyndir um þjóðfélags-
mál, var Vilmundur í mínum huga
„klassiker", sem dáði góðskáld for-
tíðarinnar eins og Matthías Joch-
umsson, svo að einhver sé nefndur.
Vilmundur var afburða kennari og
vinsæll meðal nemenda sinna í
MR meðan hann stundaði þar
kennslu. Það þekki ég m.a. frá eig-
in börnum, sem þar hafa stundað
nám og sögðu oft sögur á heimil-
inu frá skemmtilegum kennslu-
stundum í sögu hjá Vilmundi.
Vissulega var það umdeild
ákvörðun, þegar Vilmundur sagði
sig úr Alþýðuflokknum og stofn-
aði Bandalag jafnaðarmanna. Það
var djarflegt tiltæki, en Vilmundi
tókst að breyta sér á skömmum
tíma úr orðháki, eins og oft ein-
kennir þá, sem eru í upphafi
framabrautar í stjórnmálum, í yf-
irvegaðan foringja, sem sló nýjan
tón í málflutningi. Fjölmiðlar
túlkuðu úrslit kosninganna í apríl
m.a. sem sigur Vilmundar og
Bandalags jafnaðarmanna. Miðað
við allar aðstæður var sú túlkun
réttmæt. Samt var Vilmundur
ekki ánægður. Það fann ég glöggt
á samtölum okkar eftir kosningar.
Sjálfur bjóst hann við meiru.
Hann vildi ekki vera hálfur í
neinu. Allt eða ekkert var í sam-
ræmi við hans skapgerð.
Nú að leiðarlokum minnist ég
júlíkvölds fyrir tæpu ári. Vil-
mundur kom heim til okkar hjóna,
færði okkur síðari ljóðabók sína
að gjöf og eyddi með okkur
ánægjulegu kvöldi. Við ræddum
bókmenntir og stjórnmál og Vil-
mundur las fyrir okkur úr bók
sinni. Á því kvöldi skynjaði ég
heitt og tilfinningaríkt hjarta
góðs drengs, sem þó virtist til-
búinn að bjóða heiminum byrginn,
ef svo bæri undir.
í þessari bók Vilmundar er
þetta ljóð:
Mér var sagt ad daudinn væri eins gódur
vinur því betur sem þú þekkir hann því
minna óttadistu hann. Eg gekk niður aó
vatninu og kastadi steini og vatnió gáraðist.
I>að var kvöld.
Og nú er hann allur, langt fyrir
aldur fram — aðeins 34 ára, en þó
liggur mikið eftir hann. Mikið var
einnig lagt á hann og konu hans,
Valgerði Bjarnadóttur, í persónu-
legu lífi.
Við í þingflokki sjálfstæð-
ismanna sendum Valgerði og
börnunum og Gylfa og Guðrúnu
og öðrum aðstandendum okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Hryggð okkar er meiri en orð fá
lýst.
Birgir ísl. Gunnarsson
Á Siglufirði er mánudagur.
Annir vinnudagsins eru sjálfum
sér líkar, rétt eins og Hólshyrnan
eða sléttur fjörðurinn. En fréttir
um lát Vilmundar Gylfasonar
gára yfirborðið. Menn staldra við,
segja fréttirnar óspurðir, hrista
höfuðið. Ummælin um stjórn-
málamanninn eru á ýmsa vegu, en
hver og einn er sleginn og menn
setur hljóða. Vilmundur ávann sér
slíka eftirtekt og slíkt orðspor sem
aflmikill einstaklingur og sér-
kennilegur stjórnmálamaður og
þjóðmálabaráttan verður ekki
söm um hríð eftir fráfall hans.
Hann var afar næmur á púlsæðar
stjórnmálanna og hugmyndir
fjöldans, miklu orðheldnari en
margur stjórnmálamaðurinn og
sérkennileg blanda af róttækum
sósíaldemókrata og rómantískum
íhaldsmanni. Þau hlutföll voru
þannig að mér, rauðliðanum, og
einhverjum djarftækum hægri
manninum þótti jafn áhugavert að
hlýða á skoðanir Vilmundar og
kljást við þær.
Margir munu eflaust minnast
Vilmundar sem alþýðlega stjórn-
málamannsins sem átti þátt í að
breyta stjórnmálamynstrinu oftar
en einu sinni á skömmum tíma.
Eða hins hvatvísa spyrjanda.
Um persónu Vilmundar kunna
ef til vill færri að skrifa. Mér er
tvennt efst í huga: Hrifnæmin og
skáldgáfan.
I Menntaskólanum í Reykjavík
var Vilmundur maður stórra
hugmynda og skjótra ákvarðana.
Einhverju sinni fæddist sú hug-
mynd að helga Jóhannesi skáldi úr
Kötlum stóra og vandaða dagskrá
í tengslum við áramótafagnað
menntskælinga. Og viti menn:
Vilmundur, sannfærandi þungyrt-
ur, þaut um eins og vindsveipur
með frakkann flaksandi, ásamt
fjölda manns, þar til Laugardals-
höllin varð skáldinu slík hylling
að gamli maðurinn táraðist. Ljóð
Vilmundar sjálfs eru ef til vill í
ætt við látlausustu og innhverf-
ustu ljóð Jóhannesar, viðkvæmn-
islegur og fallegur skáldskapur,
ortur í fyrstu persónu til annarrar
persónu, sem Vilmundur bar djúp-
ar tilfinningar til, en flíkaði sjald-
an.
Þegar við sátum á loftinu heima
hjá Vilmundi fyrir skömmu og
ræddum hugmyndir hans að nýju
skipulagi verkalýðshreyfingarinn-
ar, snarstansaði hann í miðri
setningu, rauk upp og setti plötu
með ljúfum ballöðum á fóninn,
raulaði með smástund, annars
hugar, og sagði svo: „Er þetta ekki
fallegt?"
Svo tók hann upp þráðinn að
nýju.
Ari Trausti Guðmundsson
Það er sárt að horfa á eftir góð-
um liðsmanni í miðri baráttu.
Sárt er hans nú saknað sem vinar
og samherja. Kynni okkar hófust
með traustu handtaki fyrir fáum
mánuðum. Hið vingjarnlega ávarp
„Vilmundur, komdu sæll,“ var
upphaf kunningskapar sem því
miður varði alltof stutt. Þó vin-
átta okkar hafi ekki verið byggð á
áralöngum kynnum þá voru sam-
verustundirnar margar og þær
framkalla góðar minningar í huga
mér. Vilmundur kom eftir kosn-
ingar ætíð á skrifstofuna til mín á
morgnana og hugsaði upphátt yfir
kaffibolla. Skömmu síðar var
hann farinn til þess að sinna sín-
um störfum og skildi mig eftir öllu
fróðari um ýmislegt úr heimi
stjórnmálanna. Ein er sú minning
er seint fyrnist. Þá las hann mér
ljóð Stephans G. og kvaddi mig
með vinsamlega áritaðri bók. Sú
bók mun skipa öndvegi í mínu
safni. Missir okkar vina og sam-
herja er mikill. í þessum fátæk-
legu orðum votta ég Valgerði,
Guðrúnu og Baldri litla mínar
samúðarkveðj ur.
Arnar Björnsson
Það er meira en skarð fyrir
skildi við fráfall Vilmundar
Gylfasonar. Á starfsárum sínum
mótaði hann kafla í sögu þjóðar-
innar.
Það eru ekki mörgum mönnum
ætluð þau örlög að hafa á stuttri
ævi bein áhrif á sögu þjóðar sinn-
ar, en slíkur maður var Vilmundur
Gylfason.
Ég minnist þess, þegar ég hóf
nám í Menntaskólanum í Reykja-
vík, að þá var Vilmundur í 6. bekk
og inspector scholae. Þar fór mað-
ur, sem umhverfið mótaðist af.
Hann var frá fyrstu tíð foringi í
sínum hópi. Vilmundur bar með
sér strax í Menntaskólanum, að
hann myndi skilja eftir sig ótví-
ræð spor.
Ég kom heim frá námi 1977 og
hóf þá virkt starf í Alþýðuflokkn-
um, sem var á uppleið frá 1974
mest fyrir tilstuðlan Vilmundar.
Þessi skemmtilegi tími náði há-
marki í kosningasigrinum mikla
1978, þegar Alþýðuflokkurinn fékk
14 þingmenn.
Síðan hefur mikið vatn runnið
til sjávar. Á Alþingi og í flokks-
starfi fannst mér tvennt einkenna
Vilmund í stjórnmálabaráttunni.
í fyrra lagi einstæður hæfileiki
hans að meta pólitíska stöðu rétt.
Innsæi hans á pólitíska framtíð
var einstök og hef ég aldrei kynnst
manni, sem hafði jafnoft rétt fyrir
sér, þegar fram liðu stundir.
Hitt megineinkenni Vilmundar
var heiðarleiki hans. Stjórnmál
eru ekki alltaf á háu sviði, en allt-
af kom Vilmundur beint framan
að samherjum og andstæðingum í
stjórnmálum.
Þegar Vilmundur beitti sér á
síðasta ári fyrir byltingu í hugsun
og aðferðum í pólitíkinni, sem
leiddi síðar til stofnunar Banda-
lags jafnaðarmanna, þá rökstuddi
hann skoðanir sínar af öllum þeim
krafti, sem í honum bjó.
Það var ekki hægt annað, en að
hrífast af eldmóði hans, og þessi
tími, sem við störfuðum saman í
Bandalagi jafnaðarmanna, verður
mér og fleirum ógleymanlegur.
Það, að hafa unnið með Vil-
mundi fyrir stefnumál Bandalags-
ins og hafa breytt stjórnmála-
þróuninni við síðustu Alþingis-
kosningar, var okkur í Bandalag-
inu verðmætara en orð fá lýst.
Vinnuharka Vilmundar var ein-‘
stök. Hann vann alla af sér og ekki
þýddi fyrir nokkurn að halda í við
hann. Það er ótvírætt, að hann var
afkastamesti maður á Alþingi þau
5 ár, sem hann átti sæti þar.
Frjóleiki hugar hans var ein-
stakur og hugmyndaauðgi hans
nær ótakmörkuð.
Eins og oft vill verða með mikla
andans menn, þá var Vilmundur
Gylfason ekki einn maður.
Hann var vinsæll kennari, af-
kastamikill blaðamaður, glöggur
pólitískur leiðtogi og hafði mjög
gott auga fyrir sögunni í öllum
sínum verkum, sem reyndar var
hans fræðigrein.
En hann var líka viðkvæm og
hlý persóna; maður, sem bæði orti
sjálfur og ræddi á góðum stundum
um skáldskap af slíku innsæi, að
því getur enginn gleymt, sem átti
þess kost að njóta með honum
slikra augnablika.
Hann var góður fjölskyldufaðir
og ávallt var opið hús hjá Valgerði
og honum. Valgerður og Vilmund-
ur voru einstaklega samrýnd. Hún
tók alltaf virkan þátt í verkum
hans og studdi hann í blíðu og
stríðu. Ekki veit ég, hve mikill
hluti Vilmundar var Valgerðar né
hve mikill hluti Valgerðar var
Vilmundar, en fyrir mér voru þau
sem ein sál og einn hugur.
Vilmundur gaf sér alltaf tíma
að leika við Gurru og Baldur litla,
þótt verið væri að ræða stórpóli-
tísk mál á Haðarstígnum. Þar var
gott að koma.
Það er ekki hægt að minnast
Vilmundar Gylfasonar í orðum.
Þjóðin hefur misst einn litríkasta
son sinn; mann, sem skóp örlög í
sögu hennar.
Við Kolbrún sendum Valgerði
og börnunum, foréldrum og
bræðrum hugheilar samúðar-
kveðjur.
Megi algóður Guð vera þeim öll-
um styrkur á komandi árum.
Ágúst Einarsson
óvænt varð helkalt á sumri.
Hret, sem enginn ræður við, fellir
jurt sem eftir var tekið. Jurt sem
átti djúpar rætur í tslandi sjálfu,
fellur í valinn á miðjum degi, svo
sárt, vonlaust, ósanngjarnt.
Vilmundur Gylfason var á svo
margan hátt barn sumarsins,
eldhugi, listrænn, bráðlátur, snjall
skylmingamaður í kosningabar-
áttu stjórnmálanna, en þegar
hann naut sín bezt var hann fyrst
og síðast ljúfmenni. Hann setti
svip á samtíð sína sem slunginn
stjórnmálamaður, í senn óvæginn
og tillitssamur.
Vilmundur hafði sérstakt næmi
fyrir titringi þjóðlífsins og á
hreyfingu undiröldu skoðana al-
mennings sigldi hann fleyi sínu í
baráttu stjórnmálanna. I brjósti
Þessa unga manns var togazt á,
skáldið og skynsemin. Vilmundur
hafði oft á orði að sá sem ekki
hefði ljóðrænuna næði ekki tón
fólksins. Þess vegna var hann
sterkastur þegar skáldið og skyn-
semin sömdu og lögðu til skyndi-
sóknar.
Um hann léku stormar í ræðu
og riti, lífsreynslan léku stormar í
ræðu og riti, lífsreynzlan ýmist
hvöss sem hörðustu byljir eða blíð
sem blærinn sem andar að ást-
föngnu auga.
Úr heimi er horfinn ungur mað-
ur, bæði ástsæll og gagnrýndur,
ótamt að fara fetið, skjótur að
SJÁ NÆSTU SÍÐU