Morgunblaðið - 28.06.1983, Side 32

Morgunblaðið - 28.06.1983, Side 32
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1983 Minning: Vilmundur Gylfa- son alþingismaður velja sér mark, áræðinn sem fljót- ið í leysingum. Þannig beljaði hugsjónin í brjósti hans, hugsjón hins unga og harðskeytta manns sem þolir ekki kyrrstöðuna. Hon- um var ekki tamt að bíða og þess vegna var honum ekki nóg að finna straumþunga leysinganna, hann vildi ryðja nýjan farveg, láta hrikta í bökkunum. Þannig var þessi ágæti drengur á sinn hátt náttúrubarn, utan við hinn hefð- bundna tíma og rúm. Hann túlk- aði og barðist fyrir mörgu sem öll- um er sameiginlegt, brýnum mál- um sem hafa lent í seinagangi kerfisþrælkunar. Þar átti hann marga skoðanabræður sem munu halda baráttunni áfram, okkur er það skylt, þvi eins og líf sprettur af lífi og dagur dettur af degi, á vonin farveg í brjósti hvers manns. Það munar svo litlu í mannlíf- inu hvar kippir af leið og enginn ræður för. Sár harmur er kveðinn að vini okkar sem varðist og barð- ist til hinzta dags. Undarlegur er þráður örlaganna, órannsakanleg- ir eru vegir Guðs. fláa skilur hnetti himingeimur. Hlað skilur bakka og egg. Kn anda, sem unnast, fer aldregi eiliTA að skiliA, kvað Jónas forðum, og hvað er meiri styrkur og von mannkyns en vilji og ósk um jöfnuð manna á milli. Vilmundur Gylfason lagði sitt af mörkum til þess að rækta þennan jöfnuð og í anda jafnréttis eiga menn samleið. Ágreiningur um leiðir að settu marki er eðli lífsins og Vilmundur lagði ekkert kapp á að vera allra, hann sigldi hispursiaust með sannfæringu sína i stafni. Myrkvaðist dagur, magnleysi fór um hlöð þegar kjölurinn í lífi þessa sumarbarns brast svo óvænt í hálfnuðum róðri. Drottinn gefi dánum ró, hinum líkn sem lifa. Árni Johnsen Kveðja Stundum skammaði ég Vilmund Gylfason á prenti. Og hann átti hvert orð skilið. En nú er Vimmi allur. Svipmikill bardagamaður er farinn á vit stórvirkja af öðrum heimi. Sviðið er mun fátækara fyrir bragðið. Meðalmaðurinn fær meira svigrúm. Valgerði og litlu börnunum sendum við okkar hjartans kveðj- ur. Megi algóður guð vernda þau á vegamótum. Og taka vel á móti sínum ágæta syni. Hann á það vissulega skilið. í guðs friði. Ásgeir Hannes Eiríksson Það ríkti aldrei nein lognmolla þar sem Vilmundur Gylfason var annars vegar. Hann varð strax í skóla forystumaður í félagslífi, að- sóps- og orkumikill, og eftir að hann snéri heim að loknu sagn- fræðinámi erlendis tók hann til við að hrista svo upp í samtíð sinni, fyrst með fréttaskýringum og viðtölum í sjónvarpi, síðan með blaðaskrifum og loks með stjórn- málaþátttöku, að þegar hann fell- ur frá, aðeins 34 ára að aldri, er hann kunnur hverju mannsbarni sem kerfisskelfir, hugmyndafræð- ingur og stjórnmálaforingi. Vilmundur var ekki byltingar- maður í hefðbundinni, pólitískri merkingu þess orðs, miklu fremur hægfara umbótasinni. En hann skar upp herör gegn ýmsum agnú- um á íslenzka stjórnkerfinu og gegn óeðlilegri samtvinnan lög- gjafarvalds og framkvæmdavalds og þeirri spillingar- og misréttis- hættu sem af því stafar. Vissulega tók hann oft ansi mikið upp í sig og skaut e.t.v. stundum yfir mark- ið, en aðalatriði er þó hitt að hann vakti menn til þarfrar umhugsun- ar um marga meinsemdina i okkar þjóðfélagi og stakk á mörgu kýl- inu. Vilmundur var hispurslaus í ræðu og riti og sagði sína mein- ingu hver sem í hlut átti. Hann hafði lag á að tala þannig að al- menningur skiidi og legði við hlustir. Má t.d. minna á orðin möppudýr og möppudýrsháttur sem hann kastaði inn í þjóðmála- umræðuna. Kosningaárangur Bandalags jafnaðarmanna í apríl sl. sem eins og árangur Alþýðu- flokksins í þingkosningunum 1978 var auðvitað fyrst og fremst hans verk, sýndi vel hæfileika hans til að hrífa fólk með sér. Þjóðmála- og stjórnmálaáhugi var honum í blóð borinn. Vilmundur var ham- hleypa til vinnu og kom ótrúlega mörgu í verk. Margar greinar hans svo sem um mörk og mis- notkun hugtakanna hægri og vinstri stefna og ritgerðir hans og útvarpserindi sagnfræðilegs eðlis hafa frambúðargildi. Minnisstæð- ar eru ennfremur blaðagreinar um Sjálfstæðisflokkinn þar sem hann hélt því fram að Sjálfstæðisflokk- urinn væri í reynd hugmynda- fræðilegur óskapnaður. Ég kynntist Vilmundi í mennta- skóla og átti ýmislegt saman við hann að sælda upp frá því. Undir hrjúfum skráp þjóðfélagsgagnrýn- andans og stjórnmálamannsins leyndist viðkvæmt listamannseðli, ör lund og heitar tilfinningar. Raunar kynntist alþjóð listfengi og smekkvísi Vilmundar i útvarps- þáttum sem hann gerði fyrir mörgum árum um ýmis ljóðskáld okkar. Vilmundur var afar skemmtilegur í persónulegum kynnum, gáfaður, glaðvær og hnyttinn í tilsvörum. Hann var höfðingi heim að sækja. Það er mikill sjónarsviptir að Vilmundi Gylfasyni. Kunningjar og vinir sjá á bak eftirminnilegum félaga. Þjóðin hefur misst litríkan karakter, húmanista og stjórn- málamann sem mikils mátti af vænta. En mestur er missir fjöl- skyldunnar. Ég og fjölskylda mín sendum Völu og börnunum, for- eldrum hins látna og bræðrum og öðrum ástvinum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Baldur Guðlaugsson Það var fyrir níu árum, að okkar leiðir lágu fyrst saman, þeg- ar við lentum í því ævintýri að vera saman á lista fyrir Alþýðu- flokkinn í Vestfjarðakjördæmi. Flokkurinn var þá í lægð sem stundum fyrr og síðar. Þar hófust strax góð kynni, sem með tíma þróaðist til innilegrar vináttu, sem aldrei bar síðan skugga á. Það var úr, að við fylgdumst að á skemmtilegum fundum á Vest- fjörðum, sem báðir höfðu mikið gaman af og lærðu nokkuð af — hvor á sinn máta. Vilmundur var þá þegar orðinn kunnur úr sjón- varpi sem ákveðinn spyrill og óvæginn og má segja, að í frétta- mennsku hafi hann brotið blað, því fram til þess tíma tíðkaðist að taka á fyrirmönnum með silki- hönzkum í ríkisfjölmiðlum. Mörg- um þótti hann of sókndjarfur og harðskeyttur. Ýmsir kenndu til undan aðfinnslum hans — en fleiri voru þeir þó, sem mátu hann fyrir heiðarleika, einurð og dugn- að. Hann færðist mikið í fang. Fáum var það ljósar en honum. Hann ætlaði að vinna mikið dags- verk á alltof stuttum degi. Hann var rómantískur elskhugi, sem skynjaði ekki tímann í öldum né jafnvel árum — honum var sér- hvert augnablik mikils virði. Um hann má segja líkt og um Arnljót, að í honum voru gull og grjót — andstæður voru miklar í geðslagi hans. Hann var blíðlyndur, við- kvæmur, ljóðrænn — en um leið harðsnúinn baráttumaður með skarpan skilning á siðfræði, sem löng og einbeitt söguiðkun hans hafði brýnt og eflt. Hann var mik- ill af kostum sínum sem göllum. Af hvorugu varð maður ósnortinn. Hann var þvílíkra sanda, að hvar sem hann kom gustaði af honum, enda hvorki af kyrrstöðufólki kominn né alinn upp í neinni lognmollu. Ég hef á skammri ævi ekki kynnst neinum manni jafn samkvæmum sjálfum sér í orði og æði sem honum. Á honum brotn- uðu ungum miklar öldur, sem fáir menn hefðu á hans aldri staðið af sér. Á skammri tið brá hann meira leiftri yfir íslenzk stjórn- mál en flestir gerðu á heilli þing- ævi. Hann var engu líkari en nátt- úrukrafti — óbeizluðum krafti ís- ienzkrar náttúru. Hann fyrirleit allt hið smáa í manninum, en viknaði af meðaumkun með þeim smáu í hópi okkar. Hér verður ekki skráð saga hans. Hún verður óskráð enn um sinn. Hún er enn að gerast. Hér verður heldur ekki sagt allt það, sem ég vildi segja mínum góða vini. Það bíður enn um stund. En alltaf eru gömul orð, flestum löngu gleymd, að skjóta upp kolli í huga mér ... Vitae summa brevis spem/ nos vetat incohare longam Ég bið honum guðs blessunar og megi góður Guð gefa ástvinum hans styrk. Bárður Halldórsson Á þessu nýliðna vori hélt stúd- entahópurinn frá Menntaskólan- um í Reykjavík upp á fimmtán ára stúdentsafmælið. Eins og áður, þegar árgangurinn kom saman, var glatt á hjalla og ekki dugðu minna en tvenn hátíðahöld til að marka tímamótin. Svo sem hæfir var þar ekki fengizt um það sem hryggði hvern og einn, heldur fremur það sem sameiginlega gladdi og kætti. Gamlar skóiasögur rifjaðar upp í endurbættum útgáfum og kankast á uns langt var liðið á morgun. Þar var okkur sízt í huga að ein- hver okkar væru að sjást í síðasta sinn, enda stutt liðið á lífsskeið og ótal margt ennþá ógert. Vilmundur Gylfason, sem við kveðjum í dag, var Inspector Scholae þegar við vorum í 6. bekk. Sem slíkur var hann foringi okkar og leiðtogi í skólalífi. Fyrr á skóla- tíð hafði hann lika gjarnan verið í fyrirsvari og áberandi bæði í leik og starfi. Þá, sem bæði fyrr og siðar, skar hann sig úr hópnum fyrir það að í kringum hann var alltaf eitthvað að gerast. Aldrei lognmolla heldur krappar bárur, sem ýmist báru á leið eða skvett- ust óþyrmilega í mót. Þannig minnumst við hans líka fyrir að taka alltaf afstöðu, vera aldrei hlutlaus heldur annaðhvort með eða á móti. Svo liðu menntaskólaárin og leiðir skildust. Vináttuböndin slitnuðu þó ekki þótt lengdist milli funda. Það fundum við best þegar við hittumst í vor. Við fylgdumst öll með Vilmundi og störfum hans, enda urðu þau mjög í sviðsljósinu. Hann varð fréttamaðurinn okkar, rannsóknarblaðamaðurinn okkar, þingmaðurinn okkar og jafnvel ráðherrann okkar. Þegar nú ferill- inn er allur má undrast hve miklu varð afkastað þó ævin yrði stutt. Ýmis voru líka þau sporin stigin sem marka og gleymast ekki. Vilmundur var sjálfum sér sam- kvæmur í því sem hann tók sér fyrir hendur. Það var í senn styrk- ur hans og veikleiki á þeirri braut sem hann markaði sér. Stjórnmál eru list hins mögulega, en honum hæfði betur að gera hið ómögulega mögulegt heldur en að gefa eftir. „Um grundvallaratriði semur maður ekki,“ sagði hann sjálfur. Vilmundar verður sjálfsagt minnzt sem „enfant terrible" ís- lenzkra stjórnmála. Hann hristi kerfið og skók og sást hvergi fyrir, því nú skyldi hlutum breytt. Hvergi var hopað þótt við ofur- efli sýndist að etja, og víst er um það að djúpstæðar breytingar urðu í íslenzkum stjórnmálum fyrir hans tilverknað. Vilmundur hafði þann hæfileika umfram flesta, að eins og finna á sér hvernig undirstraumar þjóð- arvitundarinnar lágu. Að því leyti var hann frábær stjórnmálamað- ur, sem átti létt með að vinna kosningasigra. Það gerði hann líka með eftirminnilegum glæsibrag. En hann var meira en stjórn- málamaður. Vilmundur var lista- maður með ákaflega viðkvæma lund og slíkum hæfir stjórnmála- vafstur illa. Ábyrgðin leggst þyngra á og sárin svíða dýpra. Úr skóla er það listamaðurinn Vilmundur sem er okkur minn- isstæður. Þá var meira upp úr því lagt að yrkja kvæði, setja saman gamanóperur og að frelsa heiminn í víðara samhengi en að rúmaðist innan íslenzkra stjórnmála. Heimurinn var líka frelsaður oft á dag, gjarnan yfir kaffibolla á Tröð. Það var svo ekki okkar mál þó að heimurinn frétti aldrei af frels- un sinni eða léti sér hana neinu varða. Valgerði og Vilmundi var af for- sjóninni úthlutað meiri byrðum en sanngjarnt sýndist að þau yrðu að þola. Nú er enn á Valgerði lagt að kveðja ástvin allt of fljótt. Vildu margir að þar væri hlíft, en enn sem fyrr ræður sá sem öllu er æðri. Við skólasystkinin biðjum bless- unar Valgerði, börnunum og að- standendum öllum um leið og við kveðjum Inspector Scholae — Vilmund Gylfason. Bekkjarráó 6. bekkjar MR 1968. Við mörkum líf okkar með tíma- mótum, viðburðum, sem setja mark sitt á okkur sjálf og um- hverfi okkar. í dag er einn slíkur, er við kveðjum bekkjarbróður og vin, Vilmund Gylfason, hinztu kveðju. Hugurinn leitar til baka til áhyggjulausra skóladaga, þeg- ar verkefnin voru leyst eftir því sem þau bar að höndum. Skólinn beið, stundum tilefni undirbún- ings en oftar heillandi tafl þar sem sá naut bezt, sem djarfast tefldi og gekk með sigur af hólmi. Viðhorf Vimma til námsins, sam- verunnar og samskiptanna við nemendur og kennara mótuðust af heillandi áhuga á því sem máli skipti, mannlegri reisn, human- isma og ríkri þörf fyrir að leggja sitt af mörkum í hverju máli. Það duldist engum, að hann gaf sig óskiptan í hverju því sem hann sinnti. Við vorum oft sammála, stundum ekki, en aldrei stóð okkur á sama. Maðuripn sjálfur, skap- gerð hans og framkoma leyfði ekki lognmollu eða afskiptaleysi. Slík- ur var ferill hans allur. Skólaárin eru ef til vill sá tími, er vináttubönd bindast hvað traustast fyrir lífið. Við erum öll í mótun og leitum hvert til annars. Sumir bindast fjölskylduböndum, aðrir treysta vináttu, en öll sækj- um við eitthvað hvert til annars, og gefur þá hver eftir efnum sín- um. Frjór hugur og leiftrandi framsetning er þá líkleg til að veita meira en hann þiggur, og svo var um Vilmund. Hann miðlaði af hugmyndaflugi sínu, stundum af rökvísi, stundum ekki, eins og gengur, en með glettni, oft hrjúfri en aldrei grófri. Það er ekki öruggt, að lærifeður vorir hafi alltaf metið lífsgleði og fjör bekkjarins okkar sem skyldi, enda ekki til þess ætlazt. Hitt er víst, að við vissum hvaðan neist- inn að gleðskapnum kom, og án hans hefði ekkert okkar viljað vera. Sannast sagna er það með ólíkindum, að Vimmi skyldi hafa þol til að sinna námi til viðbótar ótrúlegum afköstum og starfi í fé- lagslífi og ómældu framlagi til hvers kyns skólaskops. Fyrir þennan tíma þökkum við nú, þegar að leiðarlokum er komið. Fari félagi vor og vinur í friði og Guðs blessun fylgi honum. Bekkjarsystkini VI-C MR 1968. Það var þungbúinn sunnudagur þegar síminn hringdi vestur á Hjarðarhaga, færandi þá fregn að hann Vilmundur væri dáinn. Ekki hef ég í annan tíma staðið jafn skelfdur andspænis lögmálum lífsins. Hvers vegna fékk hann ekki að vera lengur hjá okkur? Spurningarnar sóttu á hugann meðan horft var út í rigninguna. Leiðir okkar Vilmundar Gylfa- sonar lágu saman þegar hann var tæplega þrítugur. Þótt hann væri þá röskum áratug eldri urðum við fljótt góðir vinir. Þau ár sem síðan eru liðin hef ég orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að starfa náið með honum, bæði í pólitík og blaða- mennsku. Fyrst í Alþýðuflokknum og á Alþýðublaðinu en síðar á Nýju landi og í Bandalagi jafnað- armanna. Félagsskapurinn við þennan greinda og góðviljaða mann hefur verið mér ómetanlega lærdómsríkur. Með honum var auðvelt að deila sorgum sínum og gleði, enda stóð hann alltaf eins og klettur við hlið vina sinna. Sumrin á Alþýðublaðinu gerð- ust stundum nokkuð lífleg, full lífleg fannst sumum. Vilmundur gat ekki hugsað sér að kröftunum væri eytt í smeðjuleg viðtöl við flokksmenn. Hann vildi vera ær- legur og setja réttlætistilfinning- una ofar flokkshagsmunum. Þegar arir hvísluðust ætlaðist hann til að við töluðum tæpitungulaust svo enginn færi í grafgötur með hvað við væri átt. Eigi einhver þá einkunn skilið að hafa verið hamhleypa til vinnu þá er það Vilmundur. Sínar bestu blaðagreinar skrifaði hann gjarn- an á tíma sem venjulegir menn þurfa til að setja sig í stellingar. Hann skildi að stór orð eru nauð- synleg til að ýta við fólki og fá það til að hugsa. Þetta segir lítið um hann en mikið um okkur. Ritskoð- un og táimanir hvers konar voru eitur í beinum Vilmundar. Að- gangur að fjölmiðlum átti að vera einn helgasti réttur hvers manns. Þegar Vilmundur ritstýrði og and- stæðingarnir vildu koma höggi á hann var ekki við annað komandi en að slá greinum þeirra myndar- lega upp á besta stað — helst í hátíðarramma ef pláss leyfði. Vilmundi sárnaði þegar dagblöð fóru óvirðulega með greinar gagn- rýnenda sinna. Fyrir þrennar alþingiskosn- ingar fylgdi ég Vilmundi á vinnu- staðafundi hér í Reykjavík. Oft var hann baráttuglaður en aldrei eins og núna í vor. Á síðustu þrem vikum kosningabaráttunnar hélt hann fleiri tugi áróðursfunda í borginni. Eins og gengur reyndu andstæðingarnir einstaka sinnum að hrópa hann niður í upphafi funda. Á slíkum stundum fór Vilmundur á kostum og tókst best upp. Nær undantekningalaust urðu þetta bestu og ánægjulegustu stemmningsfundirnir, enduðu með dynjandi lófataki. Ekki svo að skilja að gömlu íhaldsjálkarnir hefðu nú allt i einu turnast og hætt að vera ósammála Vilmundi. Nei, skýringin var sú að þeir fundu að þessum manni var alvara og honum gekk gott til. í stað þess að hafa í frammi fagurgala sagði Vilmundur aðeins: Við viljum reyna og mér finnst það tilraunar- innar virði. Án fjármagns, flokksvélar og málgagns vildi hann bjóða fjórflokkunum byrg- inn. Nú skyldi hann standa og falla með sjálfum sér og vinum sínum. Þegar við í nóvember síðastliðn- um ræddum fyrst um það í alvöru hvort gerlegt væri að stofna nýja stjórnmálahreyfingu sem byði fram um allt land í komandi kosn- ingum töldu flestir öll tormerki á hugmyndinni. í fyrsta lagi allt of naumur tími. Ekki tækist að töfra fram 120 frambjóðendur ásamt hundruðum meðmælenda í öllum kjördæmum á þessum skamma tíma. í annan stað fengi hann ekki liðsauka á þingi og líklegast myndi tiltækið fella hann sjálfan. Þegar síðast taldi möguleikinn var nefndur, sagði Vilmundur: Þá stend ég bara upp, þakka fyrir mig og tek til við ljóðin og skákina. Það virðist kannski þverstæðu- kennt en honum fannst alls ekki óþægilegt að velta þessari hugs- anlegu niðurstöðu fyrir sér. Hann tók þátt í stjórnmálum til að afla skoðunum sinum fylgis. Gengi það

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.