Morgunblaðið - 28.06.1983, Síða 40
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1983
„ pcxkkabir Ipú afia þinum -Pyrir
SmÚacLótið ?"
... að spyrja hann
ekki hvernig honum
hafi gengið í golf-
inu.
TM Rag U.S Pal Off —atl rtghts reservad
•1983 Los Angetes Timas Syndicate
Þetta er nú hola í lagi, kalla ég!
Með
morgunkaffinu
Ég hef enn ekki komið auga á
þessar sætu stelpur sem mvndirn
ar voru af á ferðapésanum!
HÖGNI HREKKVÍSI
Efrihlíð:
Smæð þessa ágæta barna-
heimilis ætti líka að vera
plús fyrir borgaryfirvöld
— Opið bréf til Davíðs Oddssonar borgarstjóra
Guðríður Loftsdóttir skrifar:
„Ég er alveg á nálum síðan ég
las Morgunblaðið 24.06 ’83, þar
sem sagt er frá því að byggja eigi
á svæðinu hjá Hamrahlíðarskóla.
Það er út af fyrir sig jákvætt. En
hvað verður um bæjarins besta
barnaheimili sem heitir Efrihlíð
og stendur á svæðinu miðju?
Þetta er heimilislegasta barna-
heimili sem ég veit um og það væri
synd að leggja það niður. Það er í
gömlu húsi sem þarf að endurnýja
eða rífa, og líklegt er að það verði
rifið. En hvað verður um starfs-
emina? Verður henni haldið
áfram í nýju húsi? (Vonandi.) Eða
verður starfsemin rifin upp með
rótum og börnum og fóstrum
dreift á önnur barnaheimili út um
allan bæinn. (Vonandi ekki.)
Ég á þarna persónulegra hags-
muna að gæta, þar sem sonur
minn dvelur þarna á daginn. Að
vísu er þetta barnaheimili lítið
miðað við önnur á Reykjavíkur-
svæðinu (aðeins tæplega 30 börn í
allt) en það er um leið stóri plús-
inn við það, því þess vegna m.a.
reynist það vera sérstaklega heim-
ilislegt fyrir börnin. Smæð þessa
ágæta barnaheimilis ætti líka að
vera plús fyrir borgaryfirvöld, því
þá þarf heldur ekki að byggja svo
stórt, ef út í það væri farið:
Ég bið þig, háttvirti borgar-
stjóri, að hafa skilning á máli
mínu og leyfa hinum heimilislega
anda Efrihlíðar að lifa, en ekki
tvístra góðum hópi.
Virðingarfyllst.“
Þessir hringdu . .
*
A hvaða for-
sendu var verkið
gefið frá Bessa-
stöðum?
Sigurbjörg Siguróardóttir
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja: — Mig langar að vita á
hvað forsendu það byggist að
forseti fslands taki málverk á
Bessastöðum og gefi það og
hvort það sé yfirleitt heimild
fyrir slíku. Mér er sama þó að
Arnfirðingar hafi gefið Sveini
Björnssyni málverkið.
Hvernig telja yf-
ir- völd stætt á
að loka fyrir
þessa þjónustu?
Móðir í Norðurbænum í Hafnar-
firði hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Mig langar til
að leggja orð í belg út af pistlin-
um sem birtist í dálkunum hjá
,þér á miðvikudag í síðustu viku
um gæsluvöllinn Norðurberg hér
í bæ. Okkur mæðrunum í Norð-
urbænum finnst það forkastan-
legt, hvernig staðið hefur verið
að þessu máli af hálfu
bæjaryfirvalda og vildum við
gjarna fá einhver svör frá þeim
um það, hvort hér sé um tíma-
bundnar ráðstafanir að ræða eða
endanlegar. Hvernig telja yfir-
völd sér stætt á að loka fyrir
þessa þjónustu, á meðan tveggja
til þriggja ára bið er eftir leik-
skólaplássi fyrir börn í Norður-
bænum? Við væntum svara við
þessum spurningum.
Kannski
ekki von
Guðmundur Gíslason, Kópa-
vogi, hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Við, sem ekki
viljum hundahald í Kópavogi og
höfum sýnt það með atkvæða-
greiðslu i skoðanakönnun, telj-
um, að ekki hafi verið tekið
mark á þeirri skoðanakönnun, og
kannski ekki von, þegar bæjar-
stjórn virðist meta meira hunda
og hundaeigendur í Kópavogi en
uppvaxandi æsku bæjarins, sbr.
aðförina að Víghólaskóla. Enda
erum við ekki jafn háværir og
hundaeigendur og hundar, því að
hvorirtveggju eru nú farnir að
gelta og það hátt.
Ennfremur langar mig til að
fá það upplýst, hvað forseti ís-
lands hefur heiðrað marga frá
upphafi, fyrst herra Sveinn
Björnsson og síðan hver og einn.
Mér sýnist nefnilega, að núver-
andi forseti, sem talaði um það í
framboðsræðum sínum, að þetta
þyrfti að gera með alveg sér-
stakri varkárni, hafi verið ósínk-
ur á orðurnar í sinni valdatíð.
Þess vegna væri fróðlegt að fá
töluiegan samanburð um þetta
efni.