Morgunblaðið - 30.06.1983, Qupperneq 1
48 SIÐUR
145. tbl. 70. árg.
FIMMTUDAGUR 30. JUNI 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Símamynd AP.
Washington, 29. júní. AP.
RONALD Reagan, forseti, sagði á
blaðamannafundi að hann hefði
aldrei séð skjöl, sem Jimmy Carter
fyrrum forseti notaði til að búa sig
undir kappræður þeirra í síðustu
viku kosningabaráttunnar 1980.
Skjöl frá kosninganefnd Carters
hafa fundizt í fórum kosninga-
nefndar forsetans og Reagan seg-
ir, að þau hafi verið afhent dóms-
málaráðuneytinu, sem geti gert
allar viðeigandi ráðstafanir.
Um efasemdir út í stefnuna í
Mið-Ameríku sagði Reagan að
e.t.v. þyrfti að skýra betur út fyrir
almenningi það sem væri í húfi.
Hann kvað enn enga þörf fyrir
bandarískar bardagasveitir þar og
enga beiðni hafa komið fram um
slíkt.
Hann kvað greinileg teikn á
lofti um efnahagsbata og sagði að
nú væri búizt við 5,5% hagvexti í
ár.
Hann kvað vera í athugun að
aflétta nokkrum refsiaðgerðum
Bandarikjamanna gegn Pólverjum
ef pólska stjórnin leyfði starf
frjálsra verkalýðsféiaga sem væru
óháð stjórnvöldum.
Hann neitaði að svara því hvort
hann teldi að Lech Walesa ætti
Fyrsta norska
glasabarnið
Osló, 2S. júní, frá
Jan Erik Laure, fréttar. Mbl.
FYRSTA glasabarn Noregs kom í
heiminn á mánudaginn, alheilbrigt
3400 gramma stúlkubarn.
Foreldrarnir, Margrét 34 ára
og Hans 39 ára, rituðu breska
lækninum Patnck Steptoe fyrir
um þremur árum, er fyrstu til-
raunirnar voru gerðar með slík
börn. Steptoe var forvígismaður
og þremur árum síðar hafa þau
eignast sitt fyrsta barn þrátt
fyrir að norskir læknar hefðu
margsagt þeim að þau væru
dæmd til að vera barnlaus.
„Okkur var sagt að það væru
ekki nema 25 prósent líkur á því
að ég yrði þunguð, þannig að við
gerðum okkur ekki miklar vonir.
En þetta heppnaðist og við erum
í sjöunda himni. Meðgangan og
fæðingin gengu vel og ég á ekki
orð til að lýsa hugarástandi
okkar hjóna þessa stundina,"
sagði Margrét.
Skotið að kaf-
báti við Noreg
Osló, 29. júní. Frá Rolf Lövström, fréttaritara Mbl.
FREIGÁTAN „Narvik“ skaut í
kvöld sex flugskeytum að ein-
Reagan forseti sýnir skrá um gögn frá kosninganefnd Carters er fundust í
skjölum kosninganefndar forsetans. Reagan forseti sagði að öll gögnin hefðu
verið afhent dómsmálaráðuneytinu, sem gæti gert allar viðeigandi ráðstaf-
anir.
Reagan sá ekki
skjöl Carters
ekki að gegna virku hlutverki í
nýju verkalýðsfélagi.
Guatemala:
Byltingar-
tilraun?
Guatemalaborg, 29.júní. AP.
STJÓRNIN í Guatemala kunn-
gerði í dag fyrirætlanir um að nema
úr gildi ákvæði um mannréttindi og
hefta frelsi blaða frá og með degin-
um á morgun.
Áður hafði einn þeirra þriggja
herforingja, sem stjórna landinu,
hvatt til þess að Efrain Rios
Montt forseti legði niður völd.
Tilskipun verður gefin út og
mun að sögn talsmanns forset-
ans einkum beinast gegn fjöl-
miðlum svo að þeir geti ekki birt
„pólitískar æsifréttir".
Francisco Luis Gordillo Mart-
inez fyrrum ofursti hvatti til af-
sagnar Montts forseta í sjón-
varpsviðtali og sagði að hann
hefði reynt að múta sér til að
fara úr landi.
Yfirlýsing hans kom af stað
kvitt um yfirvofandi stjórnar-
byltingu og fréttir útvarps- og
sjónvarpsstöðva í einkaeign voru
ritskoðaðar eftir sjónvarpsvið-
talið.
hverju, sem talið er að sé kaf-
bátur, fyrir utan flugstöð norska
hersins í Andenes-firði í Norð-
ur-Noregi. Ekki var Ijóst hvort
flaugarnar hefðu hæft.
Það var í morgun sem yfir-
maður á freigátunni kom auga
á eitthvað sem líktist sjónpípu
á kafbáti í u.þ.b. fimm hundr-
uð metra fjarlægð og virtist
sem kafbáturinn stefndi þá út
á opið haf.
Sjónpípan sást skammt
undan flugstöð hersins í Ande-
nes, en þar hefur NATO höf-
uðstöðvar fyrir kafbátaleitar-
flugvélar í Noregi.
Fyrir utan freigátuna tóku
fimm minni herskip og skip
landhelgisgæslunnar þátt í
leitinni að kafbátnum ásamt
flugvélum.
Talsmaður hersins í Norð-
ur-Noregi, Björn Kibsgárd,
sagði í kvöld að það lægi ljóst
fyrir að ekki hefði verið um
neinar ferðir norskra kafbáta
að ræða um þetta svæði né
heldur bandamanna þeirra.
1 Símamynd AP.
Frá fundi leiðtoga Varsjárbandalagsins f Moskvu (talið frá hægri): Gromyko,
_ Andropov og Tikhonov
Ágreiningur innan
V arsjárbandalags?
Moskvu, 29. júní. AP.
Sovétmenn neituðu því í dag að um
ágreining hafi verið að ræða á leið-
togafundi Varsjárbandalagsins, eins
og vestrænir stjórnmálasérfræðingar
höfðu látið að liggja.
Heimildir í Sovétríkjunum og
vestrænir stjórnarerindrekar
höfðu gert ráð fyrir að aðal-
markmið fundarins væri að fá
fram sterk viðbrögð Varsjár-
Stuðningsmenn Arafats
hraktir úr Bekaa-dalnum
Bar Klias, Líbanon, 29. júní. AP.
Uppreisnarmenn tæmdu skrifstofu stuðningsmanna Yasser Arafats í þorpi í
Bekaa-dal í dag eftir að hafa náð henni á sitt vald með stuðningi Líbýu-
manna og Sýrlendinga í árás í nótt. Þessi bygging er staðsett 200 metra frá
sýrlenskri gæslustöð.
Fyrir utan einar búðir í bænum
Chtaura, hafa stuðningsmenn
Yasser Arafats nú misst allar
stöðvar sínar við þjóðveginn milli
Beirút og Damaskus, að því er íbú-
ar á þessum slóðum segja. Á sex-
tán kílómetra kafla við þjóðveginn
var ekki að sjá neina stuðnings-
menn Arafats í dag, en hins vegar
voru margir stuðningsmenn Saed
Mousa á ferð um þjóðveginn vopn-
um búnir og þá var einnig að sjá í
byggingum á þessum slóðum.
Skæruliðar Arafats í þorpinu
Bar Elias í Bekaa-dal höfðu áður
tilkynnt að þeir væru umkringdir
uppreisnarmönnum og Sýrlend-
ingar hefðu hindrað þá í að fara
leiðar sinnar .
Svo virðist sem þessi bardagi í
nótt hafi bundið endi á hreyfingu
sem hófst í síðastliðnum mánuði í
þá átt að reka stuðningsmenn
Arafats á brott frá Bekaa-dal í
norðurátt.
Lögreglan í Beirút segir 28
menn hafa fallið í síðustu bardög-
um innan PLO.
Abu Jihad, einn helsti aðstoðar-
maður Yasser Arafat, sagði í við-
tali við AP-fréttastofuna, að PLO
fagnaði tilraunum Arabaþjóða til
að reyna að léysa vandamál Sýr-
lendinga og PLO, en bætti því við
að skæruliðar í Austur- og Norð-
ur-Líbanon væru tilbúnir og hefðu
nægar birgðir til að „berjast
iengi".
Utanríkisráðherra Sýrlands
sagði í dag, að stjórn sín hefði var-
að Bandaríkjastjórn við því með
góðum fyrirvara, að hún myndi
hafna hvers konar samkomulagi
sem veitti ísraelum pólitískan eða
hernaðarlegan ávinning i Líbanon.
bandalagsins við ráðagerð
NATO-ríkjanna um að koma fyrir
572 meðaldrægum eldflaugum i
Vestur-Evrópu og telja þeir full-
víst að ágreiningur hafi verið milli
fulltrúa á fundinum um mál þetta,
úr því svo varð ekki.
Talið er að Nicolai Ceausescu,
leiðtogi Rúmeníu, hafi verið al-
gjörlega á móti slíkri lokasam-
þykkt og fullyrt er að hann hafi
fjarlægst stefnu Varsjárbanda-
lagsrikjanna að undanförnu.
f gær birti rúmenska fréttastof-
an til að mynda yfirlýsingu frá
Ceausescu þar sem hann hvetur til
afvopnunar jafnt hjá NATO-
ríkjum sem ríkjum Varsjárbanda-
lagsins. Yfirleitt minnast frétta-
stofur austantjalds aðeins á nauð-
syn afvopnunar Vesturveldanna
þar sem ekki er opinberlega viður-
kennt að austantjaldsríkin hafi
yfir umtalsverðum hernaðarmætti
að ráða.
Ceausescu lýsti þessu yfir fv.'ir
mánuði síðan, en sú staðreynd að
hann ítrekaði þessi ummæli sín nú
bendir til þess að Rúmenar séu
ekki sammála stefnu Sovétríkj-
anna í þessum málum og hafi vilj-
að minna á það.