Morgunblaðið - 30.06.1983, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 30.06.1983, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1983 35 Fréttir af Skák- félagi Akureyrar Skák Margeir Pétursson Starfsomi Skákfélags Akureyrar hefur verið með allra mesta móti það sem af er þessu ári. Mörg mót hafa verið haldin og skákmenn á vegum félagsins hafa gert víðreist með góðum árangri. Pálmi Pét- ursson varð skákmeistari Norður- lands með því að sigra á Norður- landsmótinu sem haldiö var á Sauðárkróki, en það var óvenju vel skipaö að þessu sinni. Pálmi hélt síðan suður helgina á eftir og varð þá efstur í áskorendaflokki á Skákþingi íslands og öðlast því rétt til setu í landsliðsflokki næsta ár. Fulltrúar Akureyringa í lands- liðsflokknum hafa oft orðið að bíta í það súra epli að berjast um neðstu sætin, en svo fór þó ekki nú því Gylfi Þórhallsson hlaut þar sex vinninga af 11 mögulegum og varð í sjötta sæti og Askell Örn Kára- son varð í sjöunda til áttunda sæti með fjóra og hálfan vinning. Af starfinu heima í héraði er það að segja að á Skákþingi Ak- ureyrar varð Jón Björgvinsson hlutskarpastur í A-flokki með fimm og hálfan vinning af sjö mögulegum, en annar varð Kári Elísson með fimm vinninga. Gylfi Þórhallsson lenti í þriðja sæti með fjóra vinninga. Gylfi leiddi mótið lengst af, en tapaði tvéimur síðustu skákunum og var þar með úr leik. í B-flokki sigraði Sveinn Pálsson og Ungl- ingameistari Akureyrar varð Arnar Þorsteinsson. Þá var í sjöunda sinn haldið minningamót um Júlíus Boga- son. Þar urðu þeir ólafur Krist- jánsson og Jón Garðar Viðars- son jafnir og efstir með fimm vinninga af sjö mögulegum. Ein- vígi um efsta sætið lauk síðan með sigri Ólafs, lVfe — xk. Þriðja sætinu deildu þeir Gylfi Þór- hallsson og Sigurjón Sigur- björnsson, sem hlutu fjóra vinn- inga. í unglingaflokki sigraði Eymundur Eymundsson. Sá hluti starfseminnar sem heppnaðist verst var þátttaka Skákfélagsins í deildakeppninni, en það varð í sjöunda og næst- neðsta sæti í fyrstu deild. Orsak- aðist þetta fyrst og fremst af því að illa gekk að smala sterkustu skákmönnum félagsins saman á einn stað þegar tefla átti. Skákfélag Akureyrar hefur nú um nokkurt skeið haft fast hús- næði undir starfsemi sína þar sem Skákheimilið að Strandgötu 19 er. Þetta húsnæði er í eigu Akureyrarbæjar, en félagið sér um allan rekstur þess. I sumar verða haldnar æfingar einu sinni í viku, á fimmtudögum kl. 20. í stjórn SA síðasta starfsár voru þeir Gylfi Þórhallsson, formaður, Halldór Jónsson, varaformaður, Jón Garðar Viðarsson, gjaldkeri, Áskell örn Kárason, ritari, Jakob Þór Kristjánsson, áhaldavörður, og meðstjórnendur eru þeir Pálmi Pétursson og Sveinbjörn Sig- urðsson. Sem sjá má af þessari upptalningu eru virkustu skák- menn félagsins jafnframt í stjórn þess og mættu önnur tafl- félög taka sér þetta til fyrir- myndar. Um hvítasunnuna styrkti Kaupfélag Eyfirðinga Skákfé- lagið til að halda myndarlegt helgarskákmót og tóku þátt í því nokkrir öflugir skákmenn að sunnan. Sigurvegari í því varð Jóhann Hjartarson eftir harða keppni. Skákin, sem hér fer á eftir, var tefld á KEA-mótinu. Helga Ólafsson, alþjóðlegan meistara, sem hefur hvítt, þarf ekki að kynna, en Halldór Jóns- son, sem hefur svart, var um árabil öflugasti skákmaður á Akureyri. Hvítt: Helgi Ólafsson Svart: Halldór Jónsson Drottningarindversk vörn 1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rf3 — b6, 4. a3 — Bb7, 5. Rc3 — d5, 6. cxd5 — Rxd5, 7. Dc2 Tízkuafbrigðið á síðasta Ólympíuskákmóti. 7. — Rxc3, 8. bxc3 — Be7, 9. e4 — Rd7, 10. Bd3 — c5, 11. 0-0 — 0-0, 12. De2 — Hc8, 13. Bb2 — Rf6 Virkara er 13. — Dc7. Nú nær hvítur álitlegri sóknarstöðu. 14. Re5 — De7, 15. f4 — Hfe8, 16. Hael — Bf8, 17. f5 — Bd6!, 18. Rxl7? Glæfralega teflt. Eftir 18. Rg4 — Rxg4, 19. Dxg4 — e5! stendur hvítur heldur betur. 18. — Bxh2+!, 19. Khl — exf5, 20. e5 — Dxf7, 21. Hxf5 — Bg3, 22. Hefl — cxd4, 23. cxd4 — Dd7?? Þar missti svartur af stór- kostlegu tækifæri. Hinn bráð- snjalli leikur 23. — Dg6! tryggir svörtum unnið tafl vegna hótun- arinnar 24. — Dh6+ með máti í kjölfarið. 24. Hxf6 bætir þá ekk- ert úr skák fyrir hvít vegna 24. — Dg5 með endurnýjaðri mát- hótun. 24. De3! — Bxe5, 25. dxe5 — Rd5, 26. Dh3! og svartur gafst upp, því nú er það hvítur sem hefur mátsóknina. Stutt en viðburða- rík skák. Sumarbústaður óskast Stórt fyrirtæki í Reykjavík óskar eftir aö kaupa sumarbústaö fyrir starfsfólk sitt. Fjarlægöamörk 120 km frá Reykjavík. Tilboðum meö sem gleggstum upplýsingum og verö- hugmyndum skal skilaö á auglýsingadeild Morgun- blaösins eigi síöar en föstudaginn 1. júlí merkt: „S — 8627“. Einbýlishúsið að Engimýri 1 í Gaiðabæ e r t i I söl u. Veið kr. 2.850.000- HNIN&AHÚS UR TRÉ A STCYPTUM óftUNNI «IS>SnTA71J r? ■ |C r-KN rv «e«? J 1 V, Húsiö er tvflyft timburhús, byggt eftir teikningu Viðars Olsen, arkitekts, meö einingum frá Hús- einingum hf. Húsið verður selt fullfrágengið að utan ásamt bflskúr og sléttaðri lóð. Engimýri 1 er einn af betri stöðum Garðabæjar, steinsnar frá Bæjar- braut. Húsið er mjög vandað, byggt af Beyki sf. Húsasmíða- meistari er Reynir Sigurðsson. Húsið er samtals 189,9 mz að flatarmáli, hæðin 105,8 mz og risið 84,1 mz. Þar að auki fylgir bflskúr sem er 29,9 m2. Húsið er tilbúið til afhendingar strax! ALLAR UPPLÝSINGAR GEFUR Gísli Jónsson Rjúpufelli 36, Reykjavík Sími 72794 WftHÁ.0 ÓSA w Gódan daginn! s Vörumarkaðurinn kf. o

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.