Morgunblaðið - 30.06.1983, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1983
1LÖGUN
afléttvíni og þú sparar
minnst 1.800 kr.
ÁMAN ÁRMÚLA 21
C.S. AUTOGUMMI
SUMARHJÓLBARDAR
GÆÐA
HEILSOLUÐU
RADIAL
DEKKIN
v KOMIN
ÞJONUSTA
MEÐ
GÆÐA
VORUM
Erum bunir að fá dönsku
heilsóluðu radial sumardekkin
fra C.S. AUTOGUMMI i flestum stærðum.
Full ábyrgð — hagstæð verð.
^ VÉIADEILD SAMBANDSINS
HJÓLDARÐAR Hötöabakka 9 Rvík S: 83490
Sirkus a Islandi
Sirkus Arena í Laugardal
dagana 17. júlí til 7. ágúst
Forsala aðgöngumiða hjá Rakarastofu Jör-
undar Guðmundsson v/Hlemmtorg alla virka
daga frá kl. 1—5 frá og með 1. júlí nk.
Sími 23800.
GALLA CIRKUS ’83
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir GUÐM. HALLDÓRSSON
ÍJ ^
Amintore Fanfani fráfarandi forsætisriAberra greiðir atkveði I kosning-
unum.
De Mita reyndist dugmikill
andstæðingur Craxi. Hann hefur
barizt fyrir efnahagsstefnu í
anda Thatchers og fékk tii liðs
við sig Guido Carli, fyrrverandi
bankastjóra Ítalíubanka, sem
nýtur virðingar og búizt var við
að gegna mundi lykilhlutverki í
næstu stjórn. De Mita fékk einn-
ig nokkra unga, óflokksbundna
tæknifræðinga til að bjóða sig
fram sem óháða fyrir kristilega
demókrata og naut stuðnings
helztu frammámanna viðskipta-
lífsins.
Craxi hefur verið iaginn að
færa sér fjölmiðla í nyt, en að
þessu sinni stálu aðrir stjórn-
málaleiðtogar frá honum sen-
unni. Einnig var ljóst að mörg-
um kjósendum féll það ekki vel í
geð að hann hafði fellt þrjár rík-
isstjórnir einn síns liðs.
Það kom Craxi einnig í koll í
Óvissan eykst á Ítalíu
KRISTILECIR demókratar á Ítalíu urðu fyrir alvarlegasta áfalli sínu frá
stríðslokum í kosningunum á sunnudaginn og mánudaginn, þétt flokkur
þeirra sé enn sem fyrr stærsti stjórnmálaflokkur landsins. Flokkurinn
hlaut aðeins 32,9% atkvæða að þessu sinni miðað við 38,3% f síðustu
kosningum.
ó gengu kristilegir demó-
kratar til kosninganna undir
forystu nýs leiðtoga, Ciriaco de
Mita, sem hefur reynt að hleypa
nýju lífi í flokkinn. En hann
megnaði ekki að vinna bug á al-
mennri óánægju, sem ríkir með
stjórnmálakerfið á Ítalíu. Við
tekur mikið óvissusumar í ít-
ölskum stjórnmálum, en að lok-
um verður þó líklega mynduð
samsteypustjórn fimm mið- og
vinstriflokka.
Svo mikil er óánægjan með
stjórnmálakerfið að talið er að
allt að fjórðungur kjósenda hafi
notað atkvæði sín til að mót-
mæla því. Þetta bitnaði mest á
kristilegum demókrötum, þótt
þeir misstu einnig fylgi til fjög-
urra smáflokka, sem oft hafa
unnið með þeim: lýðveldissinna,
frjálslyndra, sósíaldemókrata og
sósíalista.
Flokkur nýfasista hagnaðist á
óánægju kjósenda og hlaut 6,8%
atkvæða, en það er mesta fylgi
er hann hefur fengið í fimmtán
ár. Lítill en hávær flokkur rót-
tækra, sem vill binda enda á
ofurvald stjórnmálaflokkanna,
hlaut 2,2%. Rúmlega 11 af
hundraði kjósenda kusu ekki,
þótt það sé skylda, og a.m.k.
fimm af hundraði skiluðu auðu,
eða eyðilögðu atkvæðisseðla
sína.
Leiðtogi sósíalista, Bettino
Craxi, kom kosningunum til leið-
ar, einu ári áður en kjörtímabili
lauk, í von um mikla fylgisaukn-
ingu. En flokkurinn bætti við sig
sáralitlu fylgi, það jókst úr 9,8 í
11,4 af hundraði.
Sósíalistar voru sannfærðir
um það í upphafi kosningabar-
áttunnar að þeir fengju svo
mikla fyigisaukningu að Craxi
yrði næsti forsætisráðherra.
Þegar skoðanakannanir leiddu í
ljós að fylgi flokksins mundi lítið
aukast var gefið í skyn að Craxi
mundi segja af sér sem flokks-
leiðtogi. En fylgistap kristilegra
demókrata í kosningunum var
svo mikið að þrátt fyrir allt hef-
ur Craxi líklega færzt nær því
marki að verða forsætisráð-
herra.
Craxi felldi þrjár síðustu rík-
isstjórnir, tvær ríkisstjórnir
Giovanni Spadolini úr Lýðveld-
Ciriaco De MiU, nýr ritari kristi-
legra demókrata. Honum vannst
ekki tími til að breyta flokknum og
verður líklega að víkja.
isflokknum og ríkisstjórn Am-
intore Fanfani úr flokki kristi-
legra demókrata. Samband hans
við þessa flokka er því stirt.
I kosningabaráttunni ferðað-
ist Spadolini um alla ítalfu og
hvatti til „opnari" ríkisstjórnar
og sparnaðar, en sakaði sósíal-
ista að hafa staðið í vegi fyrir
hvorutveggja í ríkisstjórn.
Flokkur Spadolini bætti við sig
fleiri sætum í fulltrúadeildinni
en aðrir stjórnmálaflokkar og
hlaut 29 þingsæti í stað 16 áður.
Flokkurinn virðist hafa fengið
talsvert fylgi meðal ungra kjós-
enda og í Mílanó hafnaði hann í
þriðja sæti í stað sósíalista, á
eftir kristilegum og kommúnist-
um.
Almennt er talið að Craxi hafi
fellt stjórn Fanfani þar sem svo
virtist að De Mita, hinum nýja
ritara kristilegra demókrata,
ætlaði að takast að gefa flokkn-
um nútímalegt yfirbragð. Flestir
höfðu þó talið að slíkt væri
ógerningur, þar sem flokkurinn
hefur verið bendlaður við
óstjórn, spillingu og fyrir-
greiðslupólitík á 38 ára valda-
ferli. Craxi virtist hafa metið
stöðuna rétt að því leyti að De
Mita hafði gengið of langt í því
að útrýma gamaldags flokks-
klíkum, en ekki gefizt nægur
tími til að byggja upp nýja og
öfluga flokksvél, sem gæti leitt
kristilega demókrata til sigurs.
baráttu hans gegn spillingu, að
frambjóðandi sósíalista í Savona
skammt frá Genua og fleiri sósí-
alistar voru handteknir, ákærðir
fyrir spillingu. Áður höfðu
nokkrir leiðtogar sósíalista í
Torino einnig verið handteknir
ásamt nokkrum kristilegum
demókrötum og tveimur komm-
únistum. Borgarstjóri kommún-
ista í Torino hafði hins vegar
hreinan skjöld og borgarstjórnin
endurkaus hann.
Grunur leikur á að sósíalist-
arnir í Genúa hafi verið viðriðn-
ir frímúrarahneykslið, sem þar
var afhjúpað fyrir tveimur ár-
um. í kosningabaráttunni komu
fram margar ásakanir um spill-
ingu, þótt óvíst sé að þær hafi
haft mikil áhrif á kjósendur. Ein
var á þá leið að Aldo Moro, fv.
forsætisráðherra, hefði staðið í
tengslum við frímúrarafélagið í
Genua.
í Napoli, þar sem nokkrir leið-
togar kristilegra demókrata og
einn sósíalisti hafa verið hand-
teknir vegna Camorra-mafíu-
málsins þar, voru endurvaktar
ásakanir um að Ciro Cirillo úr
flokki kristilegra demókrata
hefði verið sleppt úr haldi fyrir
tveimur árum vegna samkomu-
lags Camorra-mafíunnar og
Rauðu herdeildanna.
Því var einnig haldið fram að
þrýstingur frá Camorra hefði
neytt tilræðismann páfa, Mehe-
met Ali Agca, til að bendla Búlg-
ari við páfatilræðið. Þessum
ásökunum hefur öllum verið vís-
að á bug. Kannski var það engin
tilviljun að þær komu fram í
kosningabaráttunni.
Upplausn virðist ríkja í flokki
kristilegra demókrata eftir
kosningarnar. Fram hafa komið
háværar kröfur um að De Mita
segi af sér og líklega verður
hann að víkja, þótt það geti bitn-
að á tilraununum til að breyta
flokknum.
Flokkurinn jók hvergi fylgi
sitt nema í Basilicata, kjördæmi
Emilio Colombo utanríkisráð-
herra, sem átti manna stærstan
>átt í því að samþykkt var að
oma fyrir stýrieldflaugum á
'kiley og senda friðargæzlu-
s eit til Beirút. Orslitin komu
n ög á óvart og nokkur ítölsk
dagblöð tala um „sögulegt hrun
kristilegra demókrata." Hvað
sem því líður er búizt við að
staða lírunnar veikist og efna-
hagsvandinn aukist.