Morgunblaðið - 30.06.1983, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 30.06.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1983 3 Tímabært að stjórnvöld hefjist handa — segir Júlíus Sólnes um móttöku sjónvarpsefnis frá Evrópugervihnettinum ECS 1 „ÞESSI tnál eru í biðstöðu hjá okkur eins og er, nema hvað við vinnum að upplýsingasöfnun um þau. Einn úr nefndinni, Sigfús Björnsson, rafmagnsverkfræð- ingur, sem er erlendis um þess- ar mundir, er að viða þar að sér öllum þeim upplýsingum sem hann getur aflað og munum við skoða þær, þegar hann kemur heim í sumar,“ sagði Júlíus Sól- nes, bæjarfulltrúi á Seltjarnar- nesi í samtali við Mbl. Hann er formaður nefndar sem bæjar- stjórnin kaus til að gera tillögur um hvernig Seltirningar gætu notið sjónvarpssendinga er- lendra sjónvarpsstöðva. Júlíus sagði einnig þegar álits hans á þessum málum var leitað: „Mér finnst fyllilega tímabært að stjórnvöld fari nú þegar að undir- búa og athuga hvernig best verði að ná sjónvarpssendingum frá ECS 1., Upplýsinga- og fjarskipta- hnetti póst- og símamálastjórna Evrópuíandanna. Ég var nýlega staddur í Noregi og þar varð ég var við að Norðmenn, sem eru að- ilar að þessum ^fervihnetti, voru að undirbúa breytingu á útvarps- lögum sínum til að auðvelda einkaaðilum að nota sjónvarps- sendingar frá hnettinum. Það hef- ur einnig komið fram að Norð- menn hafa boðið hinum Norður- landaþjóðunum að nota þessa sjónvarpsrás. Ef það er þörf á því fyrir Evr- ópuþjóðir, sem njóta þetta 5—8 sjónvarpsstöðva, að auka fjöl- breytnina hjá sér, þá er ekki síður þörf á því hér þar sem ekkert næst, að komast í samband við þennan gervihnött," sagði Júlíus Sólnes. Sparkvöllur viö Jaðarsel? Borgarráð samþykkti á fundi sínum í síðustu viku tillögu Sigur- jóns Péturssonar um að fela garðyrkjustjóra að kanna hvort ekki væri hægt á ódýran og hag- kvæman hátt að koma upp litlum knattspyrnuvelli á svæðinu milli Fljótasels og Jaðarsels. Svæðið er við austurenda Jaðarsels skammt frá veginum upp á Vatnsendahæð. Jón L. í 3.—4. sæti ásamt Skembris JÓN L. Árnason gerði jafntefli við Skembris í 12. umferð al- þjóðlega skákmótsins í Bella Crkva í Júgóslavíu og er í 3.—4. sæti ásamt honum. Skák Mar- geirs Péturssonar og Mirkovic fór í bið og er staðan í skákinni tvísýn. Karl Þorsteinsson tapaði fyrir stórmeistaranum Sahovic, en Jóhann Hjartarson og Elvar Guðmundsson gerðu jafntefli í sínum skákum við óþekkta Júgóslava. Biðskák Margeirs Péturssonar úr 11. umferð við Urosevic lauk með jafntefli. Júgóslavanum tókst að finna jaftnteflisleið, en Mar- geir hafði betur. Staðan í mótinu er nú þannig, þegar ein umferð er eftir, efstir og jafnir eru Júgóslavarnir Mariano- vic og Martinovic með 9 vinninga og biðskák. í 3.-4. sæti eru þeir Jón L. og Skembris með 9 vinn- inga og þar á eftir þeir Murshed frá Bangla Desh og Nikolac frá Júgóslavíu með 8V4 vinning og biðskák, en Murshed kom á óvart og á unna biðskák við Marianovic, svo vel getur svo farið að hann verði í efsta sæti, þegar biðskákir hafa verið tefldar. Margeir er með 8 vinninga og biðskák, Karl Þor- steins 7'á og Elvar og Jóhann með 6Vfe vinning. Borgarrád: Leyfi veitt fyrir leiktækjasal og pylsuvögnum Borgarráð samþykkti á fundi sín- um í síðustu viku að veita leyfi fyrir rekstri leiktækjasalar að Laugavegi 116 og fyrir rekstri pylsuvagna við Álfabakka og Sundhöll Reykjavíkur. Ráðið samþykkti að mæla með veitingu leyfis til rekstrar leik- tækjasalar að Laugavegi 116, sem Gunnlaugur Ragnarsson og Vil- hjálmur Svan Jóhannsson hyggj- ast reka þar. Þá samþykkti ráðið til bráða- birgða að veita Sigurði Breiðfjörð Ólafssyni leyfi til reksturs pylsu- vagns við Álfabakka og ennfremur var Valbirni Þorlákssyni veitt leyfi til reksturs vagns af þessu tagi við Sundhöll Reykjavíkur. Minnkandi eftirspurn eftir spariskírteinum ríkissjóðs SÖLU verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs í 1. flokki 1983 er nú að Ijúka, að sögn Stefáns Þórarinsson- ar í Seðlabanka íslands, en boönar voru út 50 milljónir króna í marz- byrjun. í fjárlögum er heimild til að bjóða út allt að 200 milljónir króna á þessu ári. Þegar hafa liðlega 47 milljónir selst, þannig að nærri liggur að útboðið seljist upp að þessu sinni. Utboðið nú er hins vegar nokkru minna en á sama tíma í fyrra, þannig að nokkuð hefur dregið úr eftirspurn eftir verðtryggðum spariskírteinum ríkissjóðs. Á síðasta ári var heildarútboðið 150 milljónir króna, þar af 75 milljónir í 1. flokki, sem seldist upp. Sala var hins vegar mun tregari i 2. flokki og seldust skír- teini fyrir um 53 milljónir króna. Aðspurður sagði Stefán Þórar- insson, að meginástæðan fyrir minnkandi eftirspurn væru ef- laust síauknir ávöxtunarmögu- leikar, sem fólk hefur, sérstaklega i bönkum og sparisjóðum. 2. flokk- ur verður síðan væntanlega boð- inn út um mánaðamótin ág- úst/september nk. AUÐUNN VESmRSKI hefði örugglega ekki farið að arka suður til Rómar ef Flugleiðir hefðu verið byrjaðir með bílaleigupakkana til Evrópu! Þegar Auðunn vestfirski hafði fært Danakonungi bjarndýrið eins og frægt varð um árið, lagði hann upp í labbið mikla suður til Rómar til þess að fá aflausn synda sinna hjá páfanum. Páfinn situr að vísu enn í Róm en nú er orðið minniháttar mál að komast þangað. Flug og bílferðir Flugleiða til borga Evrópu eru sennilega ódýrasti ferðamátinn í dag. Borg Verð kr. Afsl. f. börn 2-11 ára Brottfarard. París 12.312,- 4.900.- Laugardagur Kaupmannahöfn 12.958,- 5.100,- Þriðjudagur Stokkhólmur 14.083.- 5.800,- Miðvikudagur Gautaborg 13.170,- 5.100,- Fimmtudagur Osló 13.996,- 4.700.- Miðvikudagur Glasgow 10.297.- 3.900,- Föstudagur London 11.551,- 4.500.- Föstudagur Frankfúrt 12.328,- 5.000,- Fim/Sun Luxemborg 12.290,- 5.100,- Föstudagur Verðið hér að ofan miðast við að fjórir séu saman um góðan 5 manna bíl í tvær vikur. Auðvitað er líka hægt að vera 1, 3 eða fleiri vikur og fá bæði minni og stærri bíla. Innifalið er flugfar og bílaleigubíll með ótakmörkuðum akstri. Ekki er inmfalið bensín, flugvallarskattur, kaskótrygging og söluskattur af bílaleigubíl. Við minnum einnig á ódýra hótelgistingu, svo og sumarhúsin í Þýskalandi og Skotlandi, sem dæmi má nefna að gisting á góðum hótelum í Bretlandi, svokallað „Drive away UK", kostar frá kr. 712.- pr. mann á nótt eða frá kr. 9.968 - í tværvikur. Miðað er við gengi 1/7 1983 Allar nánari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða, umboðs- menn og ferðaskrifstofur. Skyldi Auðunn hafa verið með bílpróf? FLUGLEIÐIR Gott fólk hjá traustu félagi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.