Morgunblaðið - 30.06.1983, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.06.1983, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1983 Filippus prins hafði viðdvöl í Reykjavík Filippus prins, maður Klísabetar Englandsdrottningar, hafði hálftíma viðdvöl á Reykjavíkurflugvelli í gær á ferð sinni til Kanada. Prinsinn notaði tímann til að fá sér kaffi og rjómapönnukökur. Myndin var tekin er Filippus prins gekk frá flugvél sinni til aðseturs Flugmálastjórnarinnar. Honum til hægri handar er William R. McQuillan sendiherra Stóra-Bretlands á íslandi, en honum á vinstri hönd er Haukur Hauksson varaflugmála- stjóri og Gunnar Sigurðsson flugvallarstjóri í Reykjavík. Ljósmji.d örn Gnnn.rSS»n DeOur með BSRB og fjármálaráðuneyti um dagpeninga: Ferðakostnaðarnefnd ákvað 31% hækkun 1. júní Fjármálaráðuneytið telur dagpeninga launatengd gjöld og eigi því að hækka um 8% Filippus prins, eiginmaður Elísab- etar Englandsdrottningar, haföi hálfrar stundar viðdvöl á Reykja- víkurflugvelli um hádegisbilið í gær á leið sinni til Kanada. Samkvæmt upplýsingum William R. McQuillan, sendi- herra Stóra-Bretlands á íslandi, var prinsinn á leið til Kanada í opinberum erindum og er við því búist að hann hafi einnig viðdv- öl í bakaleiðinni í næstu viku. „Hann er vanur að hafa við- komu á íslandi á ferðum sínum yfir hafið, hann hefur unun af að koma hingað. Meðan elds- neyti var sett á Andover-flug- vélina snæddi hann íslenskar rjómapönnukökur og drakk kaffi með,“ sagði McQuillan. Þess má geta að Filippus prins er vanur að stjórna flugvél konungsfjölskyldunnar sjálfur. 16 árekstrar frá hádegi SEXTÁN harðir árekstrar urðu í Reykjavík á tímabilinu frá hádegi og fram til kvöldmatar í gær að sögn lögreglunnar, en ekki munu þó hafa orðið alvarleg slys á fólki. Að líkindum hefur sólin og góða veðrið átt sinn þátt í þessari árekstrabylgju, en það sem af var vikunnar hafði ástandið í þessum efnum verið mjög gott. Aurskriða á ísafirði AURSKRIÐA féll fyrir ofan byggð- ina á Isafirði um hádegisbilið í gær. Skriðan féll úr svonefndum Gleið- hjalla og fór í skurð nokkurn, djúpan og víðan, sem lá þvert á stefnu skrið- unnar og er ætlaður til að taka á móti aurskriðum sem þessari. Engar skemmdir urðu á mannvikjum. Sprengja í trolli báts SKIPVERJAR á Reyni AK 18 fundu sprengju í trolli bátsins þar sem þeir voru staddir út af Reykjanesi kl. 8 í fyrradag. Þeir komu með sprengjuna til hafnar í Grindavík um kl. 17.30 sama dag og afhentu hana lögregl- unni. Lögreglan hafði samband við Landhelgisgæsluna sem ekki gat sinnt beiðni um að gera hana óvirka og var því haft samband við Varnarliðið í Keflavík. Sérfræð- ingar á þess vegum komu síðan og tóku sprengjuna í sínar vörslur. Af einhverjum ástæðum hafði lás, sem opnast þegar sprengjunni er hent, ekki opnast í þetta skiptið, en sprengjan sem hér um ræðir er notuð í mælingaskyni af Varnarlið- inu. Henni er ætlað að springa á tilteknu dýpi og senda frá sér hljóðmerki. Sprengjan var 3 kg að þyngd. BORUN fyrstu holunnar við Kröflu- virkjun á þe.ssu sumri stendur enn yfir og gengur nú vel að sögn Einars Tjörva Elíassonar, yfirverkfræðings Kröfluvirkjunar, en borun gekk heldur illa í fyrstu. Þessi fyrsta hola í sumar er boruð skáhallt niður í jörðina og urðu erfiðleikarnir þegar farið var í gegnum óummyndað berg sem, að sögn Einars Tjörva, féll inn í holuna. Eftir að bormönnunum tókst að komast í gegnum þennan tálma hefur þetta gengið vel og er núna búið að beygja holuna í end- anlega stefnu. ÁGREININGUR er risinn með Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja annars vegar og fjármálaráðu- neytinu hins vegar vegna hækkunar á dagpeningum innanlands. Þann 31. maí sl. sendi ferðakostnaðar- nefnd frá sér auglýsingu, þar sem Þegar lokið verður við borun þessarar holu er fyrirhugað að bora aðra nýja holu, en hún verður boruð beint niður samkvæmt hefðbundinni aðferð og síðan er fyrirhugað að bora skáhallt út úr gamalli holu við Kröfluvirkjun. Einar Tjörvi sagði að síðustu, aðspurður um áhrif skjálftavirkn- innar á Kröflusvæðinu að undan- förnu, að hún hefði engin áhrif haft á borvinnuna, frekar en vant væri enda þessi skjálftar það litlir að þeir fyndust varla. tilkynnt var að greiöslur til kaupa á gistingu og fæði í einn sólarhring skyldu hækka um 31%, eða úr 810 krónum í 1.060 krónur frá og með 1. júní sl. Þann 14. júní sl. sendi síðan launadeild fjármálaráðuneytisins bréf þar sem tilkynnt var, að dagpeningar skuli hækka um 8% og verða 875 krónur. Eins og áður sagði er það svo- kölluð ferðakostnaðarnefnd, sem ákveður dagpeninga, en hún er skipuð einum fulltrúa BSRB, ein- um fulltrúa BHM og tveimur full- trúum tilnefndum af fjármála- ráðherra. Framangreind 31% hækkun var samkvæmt frétt BSRB ákveðin með atkvæðum allra nefndarmanna. Höskuldur Jónsson, ráðuneytis- stjóri fjármálaráðuneytisins, sagði í samtali við Mbl., að ráðu- neytið túlkaði dagpeninga sem hluta af launatengdum gjöldum og bæri því að hækka þau í samræmi við almenn laun. BSRB-menn túlka dagper.inga hins vegar sem greiðslu á útlögðum kostnaði. í frétt BSRB segir, að BSRB hafi leitað til Gests Jónssonar, hrl., og óskað eftir lögfræðilegri álits- gerð í málinu. Hefur sú álitsgerð Fjórðungsmótið á Melgerðismelum hefst í dag Frá Valdimar KristinsHyni fréttaritara Mbl. Mt*lgprdismt*lum. í DAG, fimmtudag, hefst fjórðungs- mót norðlenskra hestamanna að Melgarðsmelum. f gær var byrjað að selja inn á mótssvæðið en ekki eru fyrirliggjandi upplýsingar um fjölda seldra miða. Útlit er fyrir gott veður og ef svo fer sem horfir mega kepp- endur og áhorfendur vænta góðrar skemmtunar. Aðstaðan á Melgerðismelum er mjög góð jafnt fyrir áhorfendur og keppendur sem og starfsmenn mótsins. Mótsgestir streyma að úr öllum áttum bæði akandi og ríð- andi. Að sögn þeirra sem komu ríðandi þurftu þeir að fara mestan ef ekki allan hluta leiðarinnar eft- ir akvegum því reiðgötur í óbyggð- um eru ófærar vegna bleytu og snjóa. Þeir sem lengst eru að komnir ríðandi eru komnir alla leið sunnan úr Mosfellssveit. verið send fjármálaráðherra. „Niðurstaða lögfræðingsins er sú, að ákvörðun launadeildar fjár- málaráðuneytisins hafi ekki laga- stoð. Endanlegt svar við þessari niðurstöðu hefur enn ekki borizt BSBR, en mjög mikið hefur verið leitað til skrifstofunnar og spurt ráða um viðbrögð," segir orðrétt í frétt BSBR. Höskuldur Jónsson sagði að málið yrði tekið til um- fjöllunar á næstunni og augljóst væri, að aðilar yrðu að komast að niðurstöðu hið fyrsta. Kristín Huld Sigurðardóttir, fornleifafræðingur, við uppgröft í Suður- götu. Snældusnúður úr steini og hleðslur frá gamalli tið VEGFARENDUR um Vonarstræti og Suðurgötu hafa eflaust margir hverjir velt því fyrir sér hvaða framkvæmdir færu fram á þeim gatna- mótum. Þar er annars vegar verið að undirbúa flutning hornhússins upp í Árbæjarsafn og hins vegar er unnið að uppgreftri á lóð hússins. þess að hann væri frá miðöldum. Ekki er hægt að tilgreina aldur hans enn sem komið er. Kristín sagði að þau hefðu tafist nokkuð við uppgröftinn vegna veðurfars, enda óhentugt að grafa og teikna upp svæðið í votviðri. Vonaðist hún til, sem og flestir aðrir borg- arbúar, að sólin færi nú að láta sjá sig eftir mikla úrkomu und- anfarið. Kristín Huld Sigurðardóttir, fornleifafræðingur, er ein þeirra sem að uppgreftrinum standa, og tjáði hún Mbl. að þau hefðu komið niður á hleðslur frá fyrri tíð, en ekki væri hægt að kveða nokkuð á um aldur þeirra fyrr en jarðfræðingur hefði kannað jarðlögin í kring. Einnig hefði fundist hálfur snældusnúður og væri hann úr steini, sem benti til I MM Hagkaup opnar í Njarðvíkum Á morgun opnar Hagkaup stórmarkaö í Njarðvíkum, nánar til tekið að Fitjum. Þá opnar olíufélagið Skeljungur einnig þar bensín- og þjónustu- miðstöð og Tomma-hamborgarar veitingasölu. Meðfylgjandi mynd tók Einar Falur Ingólfsson í vikunni, þegar undirbúningur opnunarinnar var í fullum gangi. Borun gengur nú vel við Kröfluvirkjun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.