Morgunblaðið - 30.06.1983, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 30.06.1983, Blaðsíða 26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1983 Leitað íslenskra þátttakenda í alþjóðlega fegurðarsamkeppni TÍMARITIÐ Samúel hefur tekid að sér að velja íslenskan þátttakanda i alþjóðafegurðarsamkeppn; sem haldin verður í Róm í október nk. á vegum tímaritsins „Pentho jse“. f samtali við Mbl. sagði Ólafur Hauksson, ritstjóri Samúels, að þessi keppni væri í mörgu frábrugð- in þeim aiþjóðakeppnum öðrum sem ísland hefur sent fultrúa á, bæði væru verðlaunin snöggtum hærri eða ein milljón dollara. Sá háttur verður hafður á í vali íslenska keppandans að forráða- menn Samúels taka við ábending- um um stúlkur út júlímánuð en síðan sér ritstjórn ásamt ljós- myndurum um að velja þá stúlku sem fer. íslenska þátttakandan- um, sem verður að vera orðin 18 ára, verður séð fyrir þeim klæðn- aði sem hún þarf til keppninnar og ferðir verða greiddar af forráða- mönnum keppninnar. Þá munu ljósmyndarar Samúels taka þær myndir sem stúlkan þarf að hafa með sér. Prestafélag íslands: Um 70 prestar sóttu aðalfundinn AÐALFUNDUR Prestafélags íslands var haldinn í Háskóla íslands mánudaginn 20. júní 1983 og hófst með ritningarlestri og bænagjörð. Kftir fundarsetningu og kosningu starfsmanna, flutti formaður félagsins, sr. Þorbergur Kristjánsson, ítar- lega skýrslu stjórnar um félagsstarfið og gjaldkeri las og skýrði rcikninga félags- ins. Fluttar voru greinargerðir starfsnefnda félagsins, kjaranefndar, starfskjara- nefndar og námsmats- og námsleyfanefndar. Urðu miklar umræður á fundinum um skýrslur stjórnar og starfsnefnda og um kjaramál prestastéttarinnar yfirleitt. Þá urðu einnig nokkrar umræður um kirkjuritið og útgáfu þess. Voru menn á einu máli um að brýnt væri að efla ritið og auka útbreiðslu þess. Úr stjórn áttu að ganga sr. Geir Waage og sr. Guðmundur Þorsteins- son, en voru báðir endurkjörnir. Stjórn Prestafélags íslands skipa eftirtaldir menn: Sr. Guðmundur Þorsteinsson, formaður, sr. Geir ' Waage, varaformaður, sr. Þórhallur Höskuldsson, ritari, sr. Karl Sigur- björnsson, gjaldkeri og sr. Þorberg- ur Kristjánsson, meðstjórnandi, en hann hafði eindregið beðist undan því að gegna formennsku áfram. Voru honum á fundinum þökkuð mikil og góð formennskustörf í þágu félagsins. Um 70 prestar víðsvegar af land- inu sátu þennan aðalfund Presta- félags íslands. Fréttatilkynning. Þetta er i fyrsta sinn sem keppnin er haldin en ráðgert er að hún fari fram árlega og þá í mis- munandi löndum. Dómarar verða frá ritstjórn „Penthouse" auk al- þjóðadómara í fegurðarsamkeppn- um og skemmtikrafta. Verður sig- urvegarinn valin út frá fimm aðal- atriðum þ.e. hvernig hún kemur fyrir í kvöldkjól og í sundbol, per- sónuleiki hennar, hugmyndaflug og frumleiki og að lokum hvernig hún myndast. Keppendur verða frá þrjátíu löndum þar af flestum Norður- löndunum. Norrænt sunnudagaskólamót: Jazz í Djúpinu „Hvað er maðurinn?“ „Hvað er maðurinn?“ er yfirskrift norræna sunnudagaskólakennaramóts- ins sem sett var síðastliðinn mánudag og lýkur nú í dag. Sækja mótið um 80 kennarar frá Skandinavíu og fjöldi íslendinga að auki. f KVÖLD, fimmtudag, verður leik- inn jazz í Djúpinu, kjallara Horns- ins í Hafnarstræti. Þar er fimmtu- dagsjazzinn byrjaður aftur eftir nokkurt hlé. En ekki verður þó leik- ið öll fimmtudagskvöld. Þeir sem leika í kvöld eru Sigurður Flosason á altsaxófón, Björn Thoroddsen á gítar, Tómas R. Einarsson á kontrabassa og Guðmundur R. Ein- arsson á trommur. Sagði Bjarni Karlsson aðstoðar- æskulýðsfulltrúi að svona mót væri mikil uppörvun fyrir presta og aðra sem standa að kristinni fræðslu, um leið og það er mikil lyftistöng fyrir það geysimikla barnastarf sem unnið er á vegum kristinna safnaða. Mót þessi hafa verið haldin allt frá síðustu aldamótum og eru nú reglulega á fjögurra ára fresti. Þetta er í fyrsta skipti sem það er haldið á íslandi. Fyrirlestrar voru fluttir og unnið í hópum að verk- efnum tengdum barninu. f dag verður haldin fjölskyldusamkoma í Neskirkju í tengslum við mótið, er hún öllurn opin og börn og for- eldrar sérstaklega hvattir til að mæta. Hljómsveitin Frakkarnir. Reglulegir popptónleikar í Safari: Framlengt líf lifandi tónlistar — hljómsveitin iss! kemur fram í kvöld SVO virðist sem popptónlistarmenn hafi eignast nýjan heimavöll, ef svo má að orði komast. Eftir að tekið var fyrir tónleikahald í veitingahúsinu Borg (Hótel Borg) hafa popparar verið á hrakhólum. Nú hefur Safari, undir stjórn nýrra eigenda, ákveðið að bjóða upp á lifandi tónlist öll fimmtudags- og sunnudagskvöld. í kvöld, fimmtudag, kemur hljómsveitin iss! fram í Safari. Auk hennar leikur hljómsveitin Fitlarinn á þakinu og flutt verður atriði er nefnist Stormsker. Höf- uðpaur Fitlarans á bakinu er Valgarður Guðjónsson, sem eitt sinn tóð í forsvari fyrir Fræbbbl- ana. Á sunnudagskvöld kemur svo hljómsveitin Frakkarnir fram. Hún er ný af nálinni og skipuð þremur tónlistarmönnum, sem allir hafa getið sér gott orð innan popptónlistarinnar; Mike Pollock syngur og leikur á gítar, Finnur Jóhannsson leikur á gítar og Þor- leifur leikur á bassa. Hann var áð- ur í Egó. Þá er trommuleikarinn Gunnar ónefndur. Auk Frakkanna kemur Þor- steinn Magnússon fram á sunnu- dagskvöld með sérstaka dagskrá. „Junkman“ frumsýndur í Regnboganum REGNBOGINN hefur tekið til sýn- ingar, bandarísku kvikmyndina Junkman með þeim H.B. Halicki og Cristoper Stone í aðalhlutverkum. Fjallar myndin um flótta aðal- persónunnar Hollins undan mönnum sem reyna að koma hon- um fyrir kattarnef. Þegar honum tekst að komast í felur fer hann að rannsaka hverjir þessir menn eru og hversvegna þeir elta hann, og ýmislegt furðulegt kemur í ljós. verður sýning í sprangi undir Fiskhellum og sýna þar listir sínar unglingar undir stjórn Hlöðvers Johnsen. Kl. 17 á laug- ardag verður síðan skemmtisigl- ing umhverfis Eyjar með Herj- ólfi. í Félagsheimilinu verða kvikmyndasýningar, sýndar myndir frá gostímanum svo og ýmsar gamlar og nýjar Eyja- myndir. Á sunnudaginn verður hátíð- armessa í Landakirkju kl. 11 og mun biskup Islands, herra Pétur Sigurgeirsson, predika. Kirkju- kór Landakirkju frumflytur söngverkið Nelson-messan eftir tónskáldið Haydn í Samkomu- húsinu. Fjölbreytt fjölskylduhátíð Gosloka minnzt í V estmannaeyjum Vestmannaeyjum, 27. júní. VESTMANNAEYINGAR ætla að minnast þess um næstu helgi að sunnu- daginn 3. júlí verða liðin rétt 10 ár frá því eldgosinu lauk á Heimaey 1973. Þann dag kom opinber yfirlýsing um lok jarðeldanna og var þá strax tekið til við endurreisn bæjarfélagsins með þeim hætti sem heims- athygli vakti. Og nú eru sem sagt 10 ár liðin og ástæða talin til þess að fagna á þessum tímamótum. Sérstök framkvæmdanefnd hefur verið starfandi að undir- búningi og framkvæmd hátíða- haldanna og hefur hún fengið fjölmarga aðila, einstaklinga og félög, til liðs við sig. Hátíðin hefst á laugardag en aðalhátíðin verður sunnudaginn 3. júlí. Dagskráin verður mjög fjöl- breytt og reynt verður að gera sem flestum til hæfis. Þrjár sýningar verða opnaðar. Málverkasýning starfandi myndlistarmanna í Vestmanna- eyjum verður í Akogeshúsinu og þar verður einnig sýning á teikn- ingum Sigmunds Jóhannssonar, en hann hefur nú m.a. teiknað í Morgunblaðið í 20 ár. Myndlist- arfólkið sem á myndir á sýning- unni eru Alda Björnsdóttir, Guð- geir Matthíasson, Guðjón Olafsson, Guðni Hermansen, J6- hann Jónsson, Ragnar Engil- bertsson, Sigurfinnur Sigur- finnsson og Skúli Ólafsson. Tvær sýningar verða í Safnahúsinu. Sýning á gömlum ljósmyndum úr Eyjum í eigu Ljósmynda- safnsins og sýning á árangri fornleifarannsókna Margrétar Hermannsdóttur fornleifafræð- ings í Herjólfsdal. Á laugardaginn kl. 14 verður knattspyrnuleikur á Hásteins- velli milli drengjalandsliðsins og 2. flokks ÍBV og í leikhléi mun óskar Svavarsson sýna bjargsig í Fiskhellanefi. Eftir leikinn verður á Stakkagerðistúni sem íþróttafélögin Týr og Þór annast um. Lúðrasveit Vestmannaeyja leikur, forseti bæjarstjórnar, Sigurgeir Ólafsson, flytur ávarp. Ýmsum leiktækjum verður kom- ið upp á túninu og veitingar verða á boðstólum. Slegið verður upp barnaballi. Um kvöldið lýk- ur hátíðinni með kvöldverði í Samkomuhúsinu. Dansleikir verða föstudags- og laugar- dagskvöld á vegum samkomu- húsanna í bænum. Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur boðið forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur, og Steingrími Hermannssyni, for- sætisráðherra, til Eyja á sunnu- daginn. Einnig hefur nokkrum fulltrúum hjálparstofnana og vísindamönnum, sem unnu mik- ið starf í gosinu, verið boðið til hátíðahaldanna. I tengslum við goslokaafmælið verður hér um helgina vinabæja- mót þar sem 30 manns frá vina- bæjum Vestmannaeyja á hinum Norðurlöndunum heimsækja Vestmannaeyinga. Vinabæirnir eru Jyváskylá Finnlandi, Fred- rikshavn í Danmörku, Bárlange í Svíþjóð og Larvik í Noregi. Einnig var fulltrúm frá Götu í Færeyjum boðið að mæta á mót- ið en fyrirhugað er að taka upp vinabæjatengsl við Götu. Færey- ingarnir sáu sér ekki fært að mæta á mótið að þessu sinni. Það verður því mikið um að vera í Eyjum um næstu helgi og er búist við fjölmörgum gestum víða að. Svo er bara að hugsa hlýlega til veðurguðanna og óska eftir blíðviðri. - hkj.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.