Morgunblaðið - 30.06.1983, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1983
13
Ungar meyjar að snyrta humar í álmunni sem ekki brann.
Svona lítur vinnslusalurinn út eftir brunann.
Mbl/ Einar Falur Ingólfsson
„Humarvinnslan hefur
gengid eins og fyrri ár“
r _ r
— segir Olafur B. Olafsson framkvæmdastjóri
Keflavíkur hf. en hún brann um miðjan maí.
SEM kunnugt er, var mikill
bruni í frystihúsinu Keflavík hf.
á Suðurnesjum, þann 17. maí sl.
í brunanum skemmdist allt hús-
ið og standa veggir einir eftir. Þó
er undanskilin ein álma sem úr
húsinu liggur. Að auki skemmd-
ust 55 tonn af óunnu hráefni og
rúm 2% af frystum afurðum í
frystigeymslu. Getur nærri að
tjón á fiski og kostnaður við að
bjarga afurðum frá skemmdum
nemi 2 millj. kr. en tjón á hús-
næði er enn ekki að fullu metið.
„Þetta olli mikilli röskun,"
sagði Ólafur B. Ólafsson fram-
kvæmdastjóri Keflavíkur hf.
„En búið er að bjarga rekstr-
arhliðinni að mestu leyti.
Humarvinnslan hefur gengið
eins og fyrri ár. Unnið er í
álmunni sem ekki brann og
humarinn fer í frystigáma því
frystiklefinn er ónothæfur.
Annað hráefni en humar fer
til vinnslu hjá Miðnesi i Sand-
gerði, en það er að hluta til
með sömu eigendur og Kefla-
vik hf. og auk þess með sam-
eiginlega tvo togara. Allir sem
hjá fyrirtækinu unnu eru
komnir í störf hjá Miðnesi, hjá
okkur í Keflavík eða hjá öðr-
um. Við gátum ekki tekið eins
mikið af skólafólki og verið
hefur, en þar munar 10 til 12
manns."
i sumQíleyfinu
I júlí '82 voru
27 úrkomudagarí Reykjavík
Reynsla farþeg
ans er bezta
staðfestingin:
„Viö erum búin aö feröast meö
mörgum ferðaskrifstofum, erlend-
um og innlendum. Útsýn er alveg í
sérflokki. Lipurö og öll framkoma
starfsfólks Utsýnar eru til mikillar
fyrirmyndar frá fyrstu til síöustu
handar. Viö þökkum hjartanlega
fyrir okkur. Viö fengum sannarlega
allt fyrir peningana."
Róbert Sigurösson og fjöl-
skylda, Dragavegi 4, R.
Reykjavík: Austurstræti 17, símar 26611,20100,27209.
Akureyri: Hafnarstræti 98, sími 22911.
Þrátt fyrir yfirlýsingar
fjölmiðla um samdrátt, hafa
leiguflugvélar Útsýnar
farið fullskipaðar suður
í sólarlöndin
Aö gefnu tilefni —
Útsýnarferóir
eru ekki á útsölu
— en við bjóðum þér vönduðustu ferðina
á lægsta verði miðað við gæði, t.d.
STRÖND SÓLBAÐS OG SKEMMTANA
COSTA DEL SOL
7. og 14. júlí með völdum gististöðum.
FJÚLSKYLDUPARADÍSINA
LIGNANO
12. júlí — 10 sæti laus — 26. júlí uppselt.
BESTU AOSTÚOU Á
MALLORCA
Hinn geisivinsæli gististaður — Vista Sol
5. júlí. 4 sæti laus — 26. júlí — fáein sæti.
Hvort sem þú velur ferö meö bílferjun-
um eða flug og bíl, þegar þú hefur gert
upp feröareikninginn verur leiguflug
Útsýnar ódýrast.
— Ódýrari pr. km en þegar þú ferð
með strætisvagni.