Morgunblaðið - 30.06.1983, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1983
27
Jennifer Bate með
orgeltónleika í kvöld
HÉR á landi er nú stödd breski
orgelleikarinn Jennifer Bate, en
hún kom hingað á vegum Tónlist-
arfélags Fljótsdalshéraðs og er
það í annaö sinn sem hún er
hingað komin á þess vegum.
Jcnnifer hélt tónleika á Egilsstöð-
um um síðustu helgi en í kvöld
heldur hún tónleika í Krists-
kirkju við Landakot.
í spjalli við Mbl. sagði Jenn-
ifer Bate að það væri mjög
ánægjulegt að leika fyrir ís-
lendinga í annað sinn, en
hingað kom hún 1980 og lék þá
á Egilsstöðum og í Vestmanna-
eyjum. Hún hefur á undanförn-
um 15 árum ferðast víðsvegar
um heim og haft þann háttinn á
að vera ekki með eigið orgel,
heldur leika á þau orgel sem til
staðar eru hverju sinni. Sagði
hún þetta fyrirkomulag
skemmtilegt, því hún notar yf-
irleitt um tvo daga til að kynn-
ast hverju hljóðfæri, velur síð-
an dagskrá sem hentar og reyn-
ir þannig að ná því besta úr
hverju orgeli og að hafa sem
fjölbreytilegasta dagskrá.
Einnig sagði hún val á verkum
fara nokkuð eftir því hvort leik-
ið væri í kirkju þar sem áheyr-
endur sæu hana ekki eða í
hljómleikasal. Var hún mjög
ánægð með orgelið og hljóm-
burð í Krists kirkju.
Jennifer Bate
Á tónleikunum í kvöld verða
verk eftir Mendelssohn, Bach,
Vivaldi, Franck, Peeters, Reger
og Liszt og er dagskrá hennar
nokkuð breytt frá þeirri sem
hún flutti á Egilsstöðum en þar
voru tónleikar hennar teknir
upp fyrir ríkisútvarpið.
Tónleikar Jennifer Bate í
Krists kirkju verða þeir síðustu
sem hún heldur hér á landi að
sinni, en á morgun fer hún til
Cheltenhaw í Bretlandi þar sem
hún leikur á alþjóða tónlistar-
hátíð.
Rjómabúið hjá Baugs-
stöðum opið almenningi
EINS og undanfarin sumur veröur gamla rjómabúið hjá Baugsstöðum, aust-
an við Stokkseyri, opið almenningi til skoðunar á laugardögum og sunnudög-
um í júlí og ágúst, milli kl. 13 og 18.
10 manna hópar og fleiri geta ----------------------------------------
fengið að skoða búið á öðrum tím-
um ef haft er samband við gæslu-
manninn, Guðjón Sigfússon, Sel-
fossi, með góðum fyrirvara.
Vatnshjólið og.vélarnar munu
snúast í sumar og minna á löngu
liðinn tíma þegar vélvæðingin var
að hefjast í íslenskum landbúnaði.
Opið hús“
99
©
INNLENT
Á VEGUM Norræna hússins verður
í sumar eins og undanfarin sumur
svokallaö „Opið hús“ á fimmtu-
dagskvöldum og hefst fyrsta
dagskráin í kvöld, 30. júní, kl. 20.30.
A þessu fyrsta „Opna húsi“
sumarsins flytur dr. phil. Vésteinn
Ólason, dósent við Háskóla ís-
lands, fyrirlestur um bókmenntir
íslenska bændasamfélagsins. Þá
kveða Grímur Lárusson og Magn-
ús Jóhannsson rímur og sýndar
verða myndir Ósvalds Knudsens,
„Hornstrandir" og „Sveitin milli
sanda".
18. helgar-
skákmótið á
Reykhólum
HELGARSKÁKMÓT, það 18. í röð-
inni, verður haldið að Reykhólum
dagana 1.—3. júlí. Það eru tímaritið
Skák og Skáksamband íslands sem
að mótinu standa. Tefldar verða 7
umferðir eftir Skák-Monrad-kerfi. í
tveimur fyrstu umferðunum verður
umhugsunartíminn ein klukkustund
á mann, en í síðari umferðunum
fimm verður umhugsunartíminn lVi
klukkustund á fyrstu 30 leikina og
síðan hálf klukkustund til að Ijúka
skákinni.
Meðal keppenda verða margir
kunnir skákmenn hér innanlands.
Má þar nefna Helga ólafsson,
Sævar Bjarnason, Benóný
Benediktsson o.fl. 1. verðlaun eru
krónur 10 þúsund, 2. verðlaun
krónur 7.500 og 3. verðlaun 5 þús-
und, en einnig verða veitt verðlaun
í öldunga-, kvenna- og unglinga-
flokki. Þá eru einnig veitt verð-
laun fyrir bestan árpngur í hverj-
um fimm helgarskákmótunum.
Þátttöku skal tilkynna til tíma-
ritsins Skákar.
Vitni vantar
Slysarannsóknadeild rannsókna-
lögreglunnar auglýsir eftir vitnum
að árekstri á horni Fellsmúla, Háa-
leitisbrautar og Safamýri miðviku-
daginn 22. júní síðastliðinn, klukkan
16.50, milli bifreiðanna R-15555 og
R-8098.
VN/AT HOST SEjlPEN?
Túlípanaborginni veröur seint meö
oröum lýst, hún kynnir sig best sjálf.
Viö minnum hins vegar á aö þessi lífs-
glaða heimsbora er aðeins í seilingar-
fjarlægö frá spennandi ævintýrum
hollenskra » smá : orpajpj-túlípanaakra,
baöstrand^Tbb’frðsællé trjálunda þar
AMSTERDAM - HOLLAND,
eitt og sama ævintýriö!
sem þú nartar í nestið meö fjölskyld-
unni. Og gleymum ekki vindmyllunum
sem margar eru enn í fullum gangi,
ostamarkaöinum í Alkmaar, leikveröld -
inni í Beekse Bergen, blómauppboð-
unum í Aalsmeer og skemmtigörðun-
um sem hvarvetna er aö finna.
Flugfélag með ferskan blæ
ARNARFLUG
Lágmúla 7, slmi 84477