Morgunblaðið - 30.06.1983, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1983
Verkfræðilegar lausnir
— eftir Friðrik
Daníelsson
verkfrœðing
Eftirfarandi grein birtist í
Fréttabréfi Verkfræðingafélags
íslands, 10. tbl. 8. árg., og er
endurprenluð hér með leyfi höf-
undar:
Enn einu sinni hefur okkur ver-
ið tilkynnt að íslenska þjóðin eigi
við efnahagsvanda að stríða, at-
vinnuvegirnir séu að stöðvast,
verðbólgan æði áfram og að er-
lendi skuldabagginn sé að sliga
þjóðarbúið. Búið er að sannfæra
marga um að auðlindir hafsins séu
á þrotum. Svartsýnin er orðin slík
að þjóðhollir menn eru farnir að
sjá framtíðarsýn þar sem börnin
okkar taka á móti uppboðshöldur-
um frá erlendum bankastofnun-
um, sem eru komnir til að taka
togarana og traktorana í brota-
járn til að fá eitthvað upp í skuld-
irnar. Til þess að fá alla skuldina
greidda taka þeir svo virkjanirnar
og háhitasvæðin meðan síðasta
þorskkóðið syndir i svengdar-
krampa í kringum landið í leit að
síðustu loðnunni og útflutnings-
bótalömbin æða um örfoka landið
í leit að síðasta grasstráinu. Börn-
in okkar fá kannski vinnu við að
gefa gestunum nýræktaðan lax.
Ekki er að furða þó að þjóðholl-
ustu menn séu orðnir svartsýnir.
Það er margsinnis búið að gera
ráðstafanir til þess að taka á
vandanum en ekkert virðist
ganga.
Gerum grófan samanburð á
okkur og öðrum löndum, sem bet-
ur eru stödd: Við setjum okkar
fjármuni í einn togarann meðan
aðrar þjóðir setja sitt sparifé í
nýja tæknivædda framleiðslu,
vélmenni og tölvur. Meðan sjóða-
kerfið okkar dælir fjármagni í
taprekstur og fjárfestingu, sem
skilar ekki fjármagni aftur, þefa
fjárfestingasjóðir annarra landa
uppi fyrirtæki, sem líkleg eru til
þess að geta vaxið með nýrri
tækni og nýjum markaði og dæla
fjármagni þar í. Meðan aðrar
þjóðir verðlauna borgara sína
fyrir að setja sparifé sitt í arðbær
almenningshlutafélög, refsum við
okkar borgurum harðlega og
hlutafélögunum líka fyrir að sýna
arð. Og enn spyrja menn hvernig á
að leysa vandann svo dugi.
Fyrir verkfræðinga, sem lengi
hafa horft upp á bráðabirgðaúr-
Friðrik Daníelsson.
„Meðan aörar þjóðir
verðlauna borgara sína
fyrir að setja sparifé sitt
í arðbær almennings-
hlutafélög, refsum við
okkar borgurum harð-
lega og hlutafélögunum
líka fyrir að sýna arð.“
ræðin án þess að segja margt, er
þetta umhugsunarvert. Þeir vita
vel að efnahagurinn í landinu
byggir á því, að atvinnustarfsemin
skili meiri verðmætum en hún
þarft til sín. Það verður að sjálf-
sögðu ekki framkvæmt með nein-
um bókhaldsaðgerðum heldur með
tækni og réttri verktilhögun.
Með öðrum orðum, lausn
vandans er verkfræðileg. Sjóðirnir
þurfa að hætta að offjárfesta í
gömlu atvinnuvegunum en leita í
staðinn að arðbærum iðnaði til
þess að fjárfesta í, en reyna að
koma fjárfestingarmálum upp-
byggðra atvinnugreina yfir á
bankana. Sjóðirnir geta aðstoðað
betur við að koma nýrri tækni inn
í framleiðsluna. Verðlauna þarf
fólk í landinu með skattaívilnun-
um fyrir að hætta fé sínu í al-
menningshlutafélög, þeim mun
meira sem fyrirtækin eru arðsam-
ari. Og síðast en ekki síst, verk-
fræðingar landsins gætu farið að
reyna að komast að því hversu
margir togarar, frystihús og
dráttarvélar þurfi að vera í land-
inu og hvar og hvaða fyrirtæki
eigi að taka við af þeim, sem
hverfa. Að öðrum kosti verða
bókhaldslausnirnar notaðar
áfram en verkfræðilegu lausnirn-
ar látnar sitja á hakanum.
Upplýsinga-
bæklingur
um krydd
„KRYDDKVERIÐ" nefnist bækl-
ingur sem Haraldur Teitsson, mat
reiðslumaður, hefur tekið saman. í
bæklingnum er að finna upplýsingar
um 70 kryddefni, uppruna þeirra og
notkun.
í bæklingnum skilgreinir Har-
aldur krydd á fimm vegu, þ.e.
krydd unnið úr rótum jurta, krydd
úr berki jurta, krydd úr ávöxtum
eða fræjum jurta, krydd unnið úr
blómum og laufkrydd, blöð og
stönglar jurta.
Sjávarafurðasalan ASCO:
Framleiðsla hafin á fisk-
réttum til útflutnings
FYRIRTÆKIÐ ASCO, Suður-
landsbraut 10 í Reykjavík, á eins
árs afmæli um þessar mundir.
ASCO pakkar og dreifir ýmsum
sjávarafurðum en fyrirtækið var
upphaflega stofnað til að selja sigl-
ingar- og fiskileitartæki. Sú starf-
semi varð fljótlega að víkja þvf
sala fiskafurðanna krafðist allra
krafta fyrirtækisins. Fyrirtækið
verslar nú með allar fáanlegar
fiskafurðir og leggur það áherslu á
að vera með fyrsta flokks hráefni í
framleiðsluvörum sínum, vandaða
vöru og gott útlit neytendapakkn-
inga.
Á næstunni mun ASCO hefja
framleiðslu á fiskréttum og 1 því
skyni er verið að innrétta eldhús
í húsakynnum fyrirtækisins.
Þessir fiskréttir eru hugsaðir
bæði fyrir innanlands- og utan-
landsmarkað. Jafnframt er unn-
ið að athugun á innflutningi
vissra tegunda matvæla, svo sem
hveitis og niðursoðinna ávaxta.
Hjá ASCO eru nú 9 fastráðnir
menn í fullu starfi.
Sýnishorn af neytendaumbúðum fyrirtækisins.
LUÐA
RÆKJUR
Unnið að pökkun saltfisks hjá ASCO.
Bladburóarfólk
óskast!
Austurbær Úthverfi
Laugavegur 34—80
Barónstígur lægri tölur.
Hraunteigur
Kirkjuteigur
Selvogsgrunnur
Kópavogur
Kársnesbraut 2—56.
Upplýsingar í síma 35408.
wgtsnltfftfrtfr
Rásadur krossviöur
til inni- og útinotkunar
Þykkt 10 mm. Stærö 121x250 cm.
Finnsk gæöavara á hagstæöu veröi
'tB>ig£pMC».ai.’örui'erxíuMÍ#v
BJORNINN
Skúlatúni 4. Simi 25150. Reykjavik