Morgunblaðið - 30.06.1983, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1983
VIÐSKIPH
VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF
Umsjón: Sighvatur Blöndahl
Verðbólgumeistarar:
íslendingar
eru í 8. sæti
SÍÐUSTU tólf mánaða tölur sýna, að verðbólga í iðnríkjunum hefur hjaðnað
niður í um 5,3%, segir m.a. í nýjasta fréttabréfi Verzlunarráðs íslands.
„Það er aðeins broti lægra en
meðaltalsverðbólga í Asíulöndum
og lítið eitt betra en meðaltalið í
OPEC-ríkjunum. þessi samnburð-
ur er þó að nokkru villandi þar
sem opinberar tölur frá þessum
löndum eru oft fengnar með
niðurgreiðslum og styrkjum.
Það ríki sem stendur sig bezt í
verðlagsmálum er Saudi-Arabía.
þar lækkaði verðlag um 0,4% á
síðasta ári. Næst kemur Singa-
pore, en þar varð verðbólgan að-
eins 0,5% á einu ári. Suður-
Ameríkulöndin skipa sex efstu
sætin yfir lönd með mesta verð-
bólgu en ísland er í 8. sæti í
skránni yfir mestu verðbólguþjóð-
ir heims".
Danskur iðnaður:
Um 10% aukning í
fjárfestingu 1984
FJÁRFESTING í dönskum iðnaði
mun aukast um 10% á árinu 1984,
samkvæmt niðurstöðum spár Félags
danskra iðnrekenda, en þær voru
kvnntar á fundi með blaðamönnum
á dögunum.
Talsmaður félagsins sagði, að
aukning í fjárfestingu myndi
væntanlega nægja til að halda at-
vinnuleysinu í Danmörku í horf-
inu, en það hefur farið stöðugt
vaxandi hin síðari misseri.
Það kom ennfremur fram, að
fjárfesting í dönskum iðnaði mun
væntanlega aukast um nærri 5% á
yfirstandandi ári, en á síðasta ári
stóð fjárfesting hins vegar í stað.
Talsmaður Félags danskra iðn-
rekenda sagði að væntanlega
myndi aukin fjárfesting á þessu
ári skapa um 10.000 ný störf og
jafnvel enn fleiri á næsta ári.
Um 11% framleiðslu-
aukning janúar — apríl
FRANSKIR bflaframleiðendur
framleiddu samtals 1.075.389 bfla
fyrstu fjóra mánuði þessa árs, sem
er um 11% aukning frá því á sama
tíma í fyrra, samkvæmt upplýsingum
talsmanns samtaka framleiðenda.
í aprílmánuði varð framleiðslu-
aukningin um 13%, þegar samtals
voru framleiddir 263.356 bílar.
Talsmaður samtaka bílaframleið-
enda sagði aðalástæðuna fyrir
þessari framleiðsluaukningu nú
tilkomu nýrra bíla á markaðinn.
Nefndi hann t d. Renault 11, Peug-
eot 205 og Citroén BX.
Útflutningur franskra bíla-
framleiðenda jókst um 2,6%
fyrstu fjóra mánuði ársins, en
samtals voru fluttir 556.305 bílar
úr landi. Útflutningsaukningin
varð hins vegar nokkru meiri í
aprílmánuði, eða um 6%, þegar
alls voru fluttir út 137.658 bílar.
Nýskráningar bíla í Frakklandi
voru 2,5% færri fyrstu fjóra mán-
uði þessa árs en þær voru á sama
tíma í fyrra. Þá voru þær um 1,7%
færri en sömu mánuði árið 1981.
Nýskráningum fjölgaði hins vegar
í aprílmánuði um 3,4%.
Flutningsmiðlunarfyrir-
tækið Lema hefur sérhæft
sig í íslandsflutningum
„STARFSEMI fyrirtækisins hefur
farið stöðugt vaxandi og í dag eru
liðlega 80 íslenzk fyrirtæki í við-
skiptum við okkur,“ sagði Allan
IVJartin, forstjóri flutnings-
miðlunarfyrirtækisins Lema
International, í samtali við Mbl., en
fyrirtæki hans, sem var stofnað
1968, hefur sérhæft sig í þjónustu
við íslenzk fyrirtæki.
„Ástæðan fyrir því, að ég stofn-
aði flutningsmiðlunarfyrirtæki,
sem hefur sérhæft sig í þjónustu
við íslenzk fyrirtæki, er einfald-
lega sú, að ég starfaði áður fyrir
Jökla hf. í Bretlandi og kynntist
fjölmörgum íslenzkum aðilum í
þessari starfsgrein. Starfsemi
Jökla var síðan hætt eins og kunn-
ugt er og lét ég þá slag standa og
stofnaði Lema, sagði Allan Mart-
in.
Allan Martin sagði aðspurður
að nokkur íslenzk fyrirtæki væru
búin að vera í viðskiptum við
Lema allt frá stofnun þeirra, og
þau væru í raun bezti talsmaður
fyrirtækisins. Fyrirtækjum hefði
síðan stöðugt verið að fjölga og
væru liðlega 80 nú í föstum við-
skiptum eins og áður sagði.
„Við hjá Lema höfum leitazt við
að halda góðu sambandi við við-
skiptavini okkar á íslandi og
heimsækjum í því sambandi fs-
land reglulega. Þá fáum við tæki-
færi til að vera í persónulegra
sambandi við menn, auk þess að
kynna fyrirtæjcið fyrir hugsanleg-
um nýjum viðskiptavinum," sagði
Allan Martin.
Allan Martin sagði, að í við-
skiptum við Lema væru fyrirtæki
af öllum stærðum og gerðum ef
svo mætti að orði komast. Hann
Vísitalan var 98 stig, hafði fallið
úr 99 stigum í aprílmánuði. Vísi-
talan var hins vegar 101 stig í
maímánuði á síðasta ári. Hafði því
fallið um 3 stig milli ára.
Eftirspurn innanlands var sú
sama i maímánuði síðastliðnum
og hún var fyrir ári síðan, en hins
vegar var eftirspurn eftir vestur-
sagði ennfremur aðspurður, að
starfsemi Lema hefði eingöngu
verið bundin við ísland í upphafi,
en með árunum hefði starfsemin
þanizt og nú væru tveir stærstu
viðskiptahópar þess íslendingar
og Möltubúar.
Allan Martin sagði, að samstarf
Lema væri bæði mikið og gott við
íslenzku skipafélögin Eimskip og
Hafskip. „Annars sjáum við um að
koma vöru frá verksmiðju og að
skipi, auk allrar pappírsvinnu,
þannig að viðskiptavinir okkar
þurfa í raun ekki að koma nálægt
hlutunum fyrr en varan er komin í
vöruhús á íslandi. Við getum síðan
með viðskiptasamböndum okkar
innan Bretlands boðið mjög góð
verð fyrir flutninga innanlands,"
sagði Állan Martin að síðustu.
þýzkum framleiðsluvörum um
8,7% minni erlendis, en fyrir ári
síðan.
Talsmaður efnahagsmálaráðu-
neytisins sagði aðspurður, að bú-
ast mætti við að málin væru að
þróast í rétta átt með haustinu og
umtalsverð aukning yrði á eftir-
spurn undir lok ársins.
Minnkandi eftirspurn
eftir vestur-þýzkum
framleiðsluvörum
PÖNTUNUM í framleiðsluiðnaði í Vestur-Þýzkalandi fækkaði um 1% í
maímánuöi sl., að sögn talsmanns vestur-þýzka efnahagsmálaráðuneytisins,
sem sagði jafnframt, að pöntunum hefði fækkað bæði innanlands og utan.