Morgunblaðið - 30.06.1983, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1983
15%
STAÐGREIÐSLU-
AFSLÁTTUR
Model Hjarta er íslensk gæðavara, hönnuð í gömlum
bændastíl, aðeins í nýrri og betri útfærslu.
Framieitt úr valinni, massífri furu. Fæst í Ijósum viöar-
lit eða brúnbæsaö og lakkaö með sýruhertu lakki.
Velja má á milli þess að seta og bak sé úr viöi eða
klætt með áklæði að eigin vali.
Model Hjarta nýtur verðskuldaöra vinsælda, enda
ákaflega hlýlegt sett, hvort sem er í borðstofunni eða
eldhúskróknum — og jafnt í nýjum húsum sem gömlum.
EÐA
20%
ÚTBORGUN
OG EFTIRSTÖÐVAR
Á 6-8 MÁN.
FRAMLEIÐANDt FURUHÚSGAGNA I HÆSTA GÆDA
FLOKKI
FCIPUHÓS ÍÐ HF.
Suðurlandsbraut 30 105 Reykjavík • Sími 86605.
Guðmundur Eyjólfs-
son lœknir - Minning
Fæddur 23. september 1916
Dáinn 23. júní 1983
Það vakti okkur mikið angur er
við fréttum lát vinar okkar, Guð-
mundar Eyjólfssonar, læknis.
Þar er horfinn yfir móðuna
miklu góður drengur og tryggur
og traustur vinur.
Hann stundaði læknisstörf sín
til hinztu stundar í orðsins fyllstu
merkingu, mikils metinn bæði af
sjúklingum sínum og samstarfs-
mönnum.
Leiðir okkar lágu saman fyrir
áratugum og tókst með okkur sú
vinátta, er engan skugga bar á.
Þótt annir og erill dagsins yrðu
þess oft valdandi að of langt milli
vinafunda áttum við margar glað-
ar stundir saman á heimili þeirra
hjóna Guðmundar og Guðríðar
þar sem gestrisni og myndarskap-
ur sátu í öndvegi.
Samleið þeirra hjóna var fágæt
og fögur. Æviþræðir þeirra voru
svo samofnir að þá mátti enginn
sundur slíta nema „maðurinn með
ljáinn" sem við öll endanlega föll-
um fyrir.
Guðmundur og Guðríður áttu
þrjá mannvænlega syni, Sigurjón,
Guðmund og Halldór, sem enn er í
heimahúsum. Þeir munu sárt
sakna góðs föður. Tengdadæturn-
ar tvær hafa mikið misst og litli
sonarsonurinn leggur ekki framar
hönd í hönd afa síns. Tvær systur
lifa Guðmund og mun þeim, Þóru
og Ástu, þykja skarð fyrir skildi.
Sárastur er harmur vinkonu
okkar, Guggu, orð eru hér einskis
nýt. Hún verður umvafin ástúð og
hlýju sinna nánustu, tíminn og
ljúfar minningar munu færa
henni frið og ró.
Brynhildur og
Albert Guðmundsson
Fæddur 8. september 1916.
Dáinn 23. júní 1983.
Fregnin um andlát starfsbróður
míns og vinar Guðmundar Eyj-
ólfssonar kom mér mjög á óvart,
þar eð ég vissi ekki annað en að
hann væri vel hraustur. Hann
mun þó um nokkurt skeið hafa
fengið óþægindi í hjartastað við
áreynslu, en lítið haft orð á því.
Þegar félagi og vinur hverfur af
sjónarsviðinu, koma margar
minningar upp í hugann.
Við Guðmundur kynntumst
fyrst veturinn 1948, skömmu eftir
að hann hóf störf í sérgrein sinni
hér í borg, en þá voru þrjú ár liðin
frá því ég opnaði hér lækninga-
stofu.
Um þessar mundir voru tíðir
fundir í Læknafélagi Reykjavíkur
og held ég að við Guðmundur höf-
um oftast verið þar, og fljótlega
vorum við orðnir góðir kunningj-
ar. Guðmundur var svo alúðlegur
og glaðvær, að gaman var að ræða
við hann. Félagslyndur og sam-
vinnuþýður var hann með afbrigð-
um, svo að þægilegt var að um-
gangast hann og starfa með hon-
um.
Við vorum báðir í stjórn Lækna-
félags Reykjavíkur um skeið. Guð-
mundur var þar tillögugóður og
einkar laginn við að ráða fram úr
erfiðum málum á farsælan hátt.
Hann var áhugasamur lax- og
silungsveiðimaður og vorum við
oft í veiði saman. Er vart hægt að
hugsa sér betri og ánægjulegri fé-
laga og ekki spillti það, þegar frú
Guðríður kona hans var með
okkur að veiðum, létt í lund eins
og hann og bæði voru þau af-
bragðs veiðimenn.
Við hjónin eigum ljúfar minn-
ingar frá heimsóknum þeirra til
okkar í sumarbústaðinn i Grafn-
ingnum í námunda við Sogið, en í
þeirri á vorum við að laxveiðum
öll fjögur saman við þau tækifæri.
Sömuleiðis buðu þau okkur til
sín í Brennuna í Borgarfirði til
laxveiða, og voru það mjög
ánægjulegar samverustundir.
Það yrði of langt mál að tíunda
allar þær veiðiferðir, sem við fór-
um saman, en oft ræddum við um
ýmis skemmtileg atvik frá þeim
ferðum.
Guðmundur hlaut góða mennt-
un í sérgrein sinni í Bandaríkjun-
um og var mjög glöggur, um-
hyggjusamur og góður læknir.
A þeim árum, sem við Guð-
mundur hófum störf hér í Reykja-
vík, var mjög erfitt að fá aðstöðu á
spítölum til þess að framvæma að-
gerðir, og er svo raunar enn. Það
var tæpast um annan stað að ræða
en Sjúkrahús Hvítabandsins og
þar gat maður aðeins öðru hvoru
fengið pláss fyrir einstaka sjúkl-
ing. Það var að sjálfsögðu alls ekki
nóg, svo að ég kom mér fljótlega
upp aðgerðastofu við lækninga-
stofu mína og framkvæmdi þar
flestar aðgerðir í sérgrein minni.
Þegar við Guðmundur höfðum
kynnst nokkuð, bauð ég honum að-
stöðu á aðgerðastofunni. Hann
þáði það og starfaði þar ásamt
mér í mörg ár.
Oft aðstoðuðum við hvor annan
þar, eftir því sem við var komið.
Það samstarf var eins og best varð
á kosið og ber engan skugga á ljúf-
ar minningarnar frá þeim
samverustundum.
Fyrir rúmum aldarfjórðungi
gengumst við Guðmundur fyrir
stofnun fyrsta félags háls-, nef- og
eyrnalækna hér á landi. Var ég þá
kjörinn formaður, hann ritari og
Eyþór Gunnarsson, sem látinn er
fýrir nokkrum árum, gjaldkeri.
Félagið starfar enn.
Guðmundur hefur frá upphafi
sýnt. félaginu okkar mikinn áhuga
og starfað þar ötullega og flutt er-
indi, síðast nú í vetur.
Hann gekk í Frímúrararegluna
árið 1959, en þá var ég orðinn fé-
iagi þar. I þeim félagsskap höfum
við átt fjölmargar ánægjulegar
stundir saman.
Guðmundur Eyjólfsson var afar
vinsæll læknir og eftirsóttur, og
nú er því að sjálfsögðu fjöldi
sjúklinga, sem saknar hans og
syrgir.
Þegar ég lít til baka yfir farinn
veg, finnst mér það ekki langt síð-
an við Guðmundur kynntumst, en
þó var það mestur hluti starfsævi
okkar beggja.
Það hefur verið mikill samgang-
ur milli heimila okkar um langt
árabil.
Mikil gæfa var það fyrir Guð-
mund að eignast Guðríði Sigur-
jónsdóttur fyrir lífsförunaut.
Sagt er að eiginkona og eigin-
maður skuli vera eitt og ég tel að
hægt sé að segja, að svo hafi verið
með þau hjónin. Ég held varla, að
ég hafi kynnst samhentari hjón-
um og tillitssamari hvoru við ann-
að.
Auk þess er frú Guðríður ein-
staklega rösk og dugleg við allt,
sem hún tekur sér fyrir hendur,
vel gefin og vellynd.
Á síðari árum hefur hún aðstoð-
að mann sinn á lækningastofunni,
auk þess sem hún hefur séð um hið
stóra og smekklega heimili þeirra
hjóna, enda mikil húsmóðir.
Elstu synir þeirra, Sigurjón og
Guðmundur, eru báðir kvæntir og
búa annarsstaðar í borginni, en sá
yngsti, Halldór, tuttugu og
tveggja ára, býr enn heima, þótt1
hann stundi nám erlendis um
tíma.
Við Þórdís, kona mín, og fjöl-
skylda okkar vottum frú Guðríði
og fjölskyldunni allri innilega
samúð okkar vegna fráfalls Guð-
mundar, þökkum trausta vináttu
og óskum honum Guðs blessunar
og velfarnaðar á þeim leiðum, sem
hann nú hefur lagt út á.
Útförin fer fram í dag frá
Dómkirkjunni.
Erlingur Þorsteinsson.
Guðmundur Eyjólfsson, læknir,
er látinn. Hann lést að heimili
sínu síðla kvelds 23. þessa mánað-
ar, og bar andlát hans brátt að.
Með honum er hniginn í valinn