Morgunblaðið - 30.06.1983, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1983
45
Á íslenskum vegum
eru ruddar á ferð
Ferðalangur skrifar:
„Velvakandi.
Ferðalög hér innanlands
hafa lengi verið áhugamál
mitt. Þó er farið að draga
verulega úr ákefðinni. Fram-
rúðubrot og lakkskemmdir eru
fylgifiskar slíkra ferðalaga.
Margsinnis hef ég staðið mig
að því að aka á miðjum vegi
móti ökuföntum, þannig að
þeir neyðist til að slá af ferð á
síðustu stundu áður en mæst
er. Þetta gefst einatt vel, en
veldur spennu og leiðindum
hjá manns eigin farþegum.
Um sl. helgi ók ég um Vest-
urlandsveg og hafði lofað að
hætta glannaakstri mót öku-
föntum. Nú, þetta var sama
sagan. Enginn undi því að aka
á eftir bíl á „aðeins" há-
markshraða, þótt á holóttum
malarvegum væri. Undan-
tekning var að mæta öku-
manni, sem kunni þá reglu að
hægja á ferð áður en mæst
var. Ofbeldið nær hámarki, ef
maður er svo bláeygður að
stöðva sjálfur og víkja sem
mest. Á íslenskum vegum eru
ruddar á ferð, sem hvorki vilja
né kunna að haga akstri eftir
aðstæðum.
Annað dæmi um ferðalanga:
Tjaldstæði er á Þingvöllum í
grennd við nýreistan þjón-
ustuskála. Á þessu flötum er
varla hægt að drepa niður fæti
fyrir hrossaskít og þessa gætti
víðar, svo sem á hlaði þjón-
ustuskálans og bekkjum, sem
víst átti að vera hægt að tylla
sér á. Ferðalangar, sem leigt
höfðu tjaldstæði þarna, máttu
svo þola það að góðglaðir
hestamenn flengriðu á flötun-
um meðfram tjöldunum. Þarf
fleiri gaddavíragirðingar eða
hvað?“
Þessir hringdu . . .
Hvorki lystugt
né lystaukandi
Guðmundur Gi.sla.son, Kópa-
vogi, hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Hvað kostar
útsending á 30 mínútna út-
varpsþætti, meðtalin þóknun
umsjónarmanns? Telur út-
varpsráð réttlætanlegt að
eyða fé fjárvana stofnunar, að
þeirra eigin sögn, í þátt eins
og Lystauka, frá Ríkisútvarp-
inu á Akureyri kl. 11.30—12.00
27. júní sl. Annan eins vitleys-
iskjaftavaðal hefur ekki verið
að heyra í útvarpinu í langan
tíma. Ef útvarpsráð telur
þetta afsakanlegt ættu þeir
sem það skipa að hætta að
væla um fjárhagsvanda stofn-
unarinnar. Að mínu mati var
þetta hvorki iystugt né lyst-
aukandi.
Þýöanda að
engu getið
Gréta Sigfúsdóttir hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: —
Mig langar að vita, hvort það
sé siður hjá útvarpinu að
þegja um nafn þýðanda, ef
flutt eru erlend ljóð. Þetta
gerðist á dögunum, er flutt
var ljóð eftir Tagore, að þýð-
andans, Gunnars Dal, var að
engu getið. Og í gærkvöldi
(mánudagskvöld 27. júní) ger-
ist þetta aftur, nú í erindi
Gísla Þórs Gunnarssonar, þar
sem hann vitnar í ljóð Kahl-
ilgibrans, án þess að geta þýð-
andans, sem sömuleiðis er
Gunnar Dal. Þetta finnst mér
óhæft, ekki síst með tilliti til
þess, að þeir eru sárafáir, sem
hefðu getað tekist þessar þýð-
ingar á hendur, hvað þá gert
það eins vel og hann.
SUMARHÚS
TEIKNINGAR
Við teiknum sumarhúsiö fyrir þig meö stuttum fyrir-
vara. Einnig meö staölaðar teikningar af sumarhús-
um. 11 geröir 33 fm til 60 fm. Sendum teikningar í
póstkröfu.
Teiknivangur,
Súöarvogi 4, R., sími 81317.
OPIÐ 13—19
Alltaf á fóstudögum
Hrafninn flygur
Ný kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar
Larry Hagman í hlutverki
J.R. í Dallas
Góömenni í hlutverki skúrksins?
Fleygnir kjólar og þröng-
ar buxur í tísku
Tískufréttir frá Kaupmannahöfn
Skrifið eða
hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til —
eða hringja milli kl. 11 og 12,
mánudaga til fdstudaga, ef þeir
koma því ekki við að skrifa.
Meðal efnis, sem vel er þegið,
eru ábendingar og orðaskipti,
fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en
nöfn, nafnnúmer og heimilisfong
verða að fylgja öllu efni til þátt-
arins, þó að höfundar óski nafn-
leyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaðsins
utan höfuðborgarsvæðisins, að
þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja
hér í dálkunum.
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Aukningin nemur þrjátíu pró sent.
Rétt væri: Aukningin nemur þrjátíu prósentum (þ.e.
þrjátíu hundraðshlutum).
0^ SIGGA V/öGA É 1iLVE»AN
FÚ GENGUR FRfl Dí?fl5LIMU
Föstudagsblaðið ergott forskot á helgina
AUGLVSíNGASTOFA KRISTlNAR HF