Morgunblaðið - 30.06.1983, Qupperneq 48
BÍLLINN
BlLASALA SlMI 79944 SMIÐJUVEGI4 KÓBAVOGI
FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1983
RAY
CHARLES
Á ÍSLANDI
fimmtudaginn 7. júli kl.
20.00 og 23.00 á Broadway.
Takmark-
anir á flugi
einkavéla í
gærkvöldi
EFTIR vaktaskipti riugumferðarstjóra
kl. 19.30 í gærkvöldi var flugumferð
um Reykjavíkurflugvöll takmörkuð
mjög vegna þess að aðeins einn flug-
umferðarstjóri var til vinnu í flugturn-
inum af þremur sem þar íttu að vera á
vakt. Þeir sem mættu ekki voru sagðir
forfallaðir og ekki munu aðrir hafa
fengist til að hlaupa í skarðið. Aðeins
var afgreitt nauðsynlegasta flug svo
sem áætlunarflug og sjúkra- og neyðar-
flug en engum einkaflugvélum var
heimilað flugtak samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins.
Haukur Hauksson varaflugmála-
stjóri sagði í samtali við Mbl. í
gærkvöldi að sér hefðu borist kvart-
anir vegna þessa og myndi hann
kanna það í dag hvað hefði valdið
þessu. Samkvæmt upplýsingum Mbl.
í gærkvöldi stafar þetta af kjara-
deilu flugumferðarstjóra við yfir-
völd. f gærkvöldi var mjög gott veð-
ur og líklegt að mikil umferð einka-
flugvéla yrði á Reykjavíkurflugvelli.
Sagði varaflugmálastjóri að ef svo
væri þá teldi hann það fráleita að-
ferð hjá flugumferðarstjórunum að
snúa sér þannig gegn einkaflug-
mönnunum, sem fengju örfáa svona
góða daga á ári til að sinna áhuga-
máli sínu.
Tilraunavinnsla á
gulllaxi að byrja
TILRAUNAVINNSLA á gulllaxi er nú að hefjast á vegum Rannsóknar-
stofnunar fiskiðnaðarins. Að sögn Björns Dagbjartssonar, framkvæmda-
stjóra stofnunarinnar, er hér um samnorrænt rannsóknarverkefni að ræða
sem beinist að því að vinna fiskmarning úr vannýttum fiski.
Verkefni þetta er styrkt af
Norræna iðnþróunarsjóðnum og
vinnslan mun fara fram hjá
BÚR. Auk vinnslu á gullaxi mun
eins verða tilraunavinnsla á öðr-
um vannýttum fiskstofnum og
fiskúrgangi, ekki síst fiskhaus-
um.
Eins og fram hefur komið í
fréttum Morgunblaðsins veiðist
annað slagið töluvert af gulllaxi
með karfanum, allt að 1—2 tonn
í hverju hali. Að sögn Björns
Dagbjartssonar er ekki unnt að
fara beint í að veiða gulllaxinn
þótt Austur-Evrópuþjóðir hefðu
veitt fleiri þúsund tonn af gull-
laxi hér við land skömmu áður en
landhelgin var síðast færð út.
Norðmenn og Færeyingar hafa
veitt töluvert af þessum fiski, t.d.
hafa Norðmenn árlega framleitt
um 2 þúsund tonn af marningi úr
gulllaxi.
„Meðal þess úrgangs sem við
höfum sérstaklega áhuga á að
nýta eru fiskhausar. Að vísu hef-
ur tekist að selja herta hausa til
Nígeríu öðru hvoru en óvíst
hvernig það muni ganga í fram-
tíðinni. Þá má einnig nefna
marning af karfahryggjum og
þorskhryggjum. Það hefur sýnt
sig að unnt er að ná út marningi
af hausum og hryggjum sem
myndi auka nýtingu frystihús-
anna um 5—10%,“ sagði Björn
Dagbjartsson.
Víglundur Jónsson forstjóri Hróa hf. vegna pólska skipsins:
Sé ekki hvernig
við fjármögnum 30%
„ÞETTA gengur ekki enn upp hjá mér. Við erum aðeins búnir að greiða
10% en eigum að greiða 30% áður en skipið kemur í febrúar. Ég veit satt
að segja ekki hvernig maður kemst út úr þessu, en það er að minnsta kosti
ekki enn búið að loka alveg dyrunum á okkur,“ sagði Víglundur Jónsson
forstjóri Hróa hf. í Ólafsvík, er Mbl. spurði hann hvernig gengi að
fjármagna þau 30% af kaupverði pólska skipsins, sem Hrói hf. á að fá
afhentan í febrúarmánuði nk. Skip Hróa er eitt af þremur fiskiskipum
sem væntanleg eru til landsins vegna viðskiptasamnings, sem gerður var
við Pólverja fyrir um tveimur árum.
Víglundur sagðist einmitt vera
að vinna í málinu þessa dagana,
en hann sæi engan veginn út úr
því, þó svo hann hefði ekki gefist
upp. Aðspurður sagði hann enga
von til að fá fjármagn úr opin-
berum sjóðum, en sér fyndist
dæmið allt harla óréttlátt.
„Samningurinn er gerður í doll-
urum og þegar gengið var frá
honum var dollarinn á 8 krónur
en núna er hann kominn í 27
krónur. Skipið átti því upphaf-
lega að kosta um 17 milljónir en
er nú komið í á milli 60 til 70
milljónir," sagði hann.
Víglundur sagði að ofan á
þetta vandamál Hróa hf. bættist
að þeir ættu óselt fullt hús af
fiski síðan í vetur. Hrói á fyrir
einn bát og hlut í togara, en
fyrirtækið hefur að sögn Víg-
lundar keypt fisk víða að.
Um 120 bíða hjartaþræðingar á Landspítalanum:
Unnið að endur-
bótum á tækinu
UNNIÐ HEFUR veriö ad endurbótum jafnframt því sem viöhald hefur farið
fram á röntgentæki því sem notað er til hjartaþræöinga og annarra æða-
rannsókna á Landspítalanum, en þetta er eina tækið sinnar tegundar á
landinu. Af þessum sökum hefur ekki verið hægt aö notast viö tækiö í tíu
daga , en gert er ráð fyrir að það komist í gagnið í byrjun næstu viku.
Umrætt tæki er nálægt því tíu
ára gamalt og var tækifærið notað
nú til þessara breytinga um leið og
sumar deildir sjúkrahússins loka
vegna sumarleyfa, því sjúklingar
þurfa að leggjast inn í tvo sólar-
hringa þegar þeir fara í hjarta-
þræðingu. Um 120 eru á biðlista
eftir hjartaþræðingu og er það
meðal annars vegna skorts á
sjúkrarúmum, en einnig bilaði
viðkomandi vél í vetur og var
stopp af þeim sökum um skeið,
eins og sagt var frá í fréttum á
þeim tíma.
Kjartan Pálsson, læknir á
hjartadeild Landspítalans, sagði í
gær í samtali við Morgunblaðið að
það væri óþægilegt að vera án
tækisins, einkum fyrir fólk sem
þyrfti að bíða. Það væri hins vegar
ekki þörf á öðru tæki til landsins,
því þetta tæki gæti annað þörf-
inni, þó það væri hins vegar komið
til ára sinna og gott væri að fá
nýtt. Hægt væri að taka um 50
manns í hjartaþræðingu á mánuði
hverjum. Þá sagði Kjartan að sú
staða gæti komið upp, þar sem
lægi á notkun tækisins, en það
væri óalgengt og í þeim tilfellum
væri sá kostur fyrir hendi að
senda sjúkiinga út, ef ekki væri
hægt að nota tækið hér af ein-
hverjum orsökum. Hér væri hins
vegar um eðlilegt viðhald að ræða
sem ekki yrði komist hjá.
Faxaflói:
Aukinn áhugi
á veiðum
í dragnót
AUKINN áhugi er nú á skarkolarveið-
um í dragnót á Faxaflóa að sögn Þórð-
ar Eyþórssonar, deildarstjóra í sjávar-
útvegsráðuneytinu. Að undanförnu
hafa aðeins 6 bátar fengið leyfi til að
stunda þær veiðar.
Að sögn Þórðar voru dragnótar-
veiðar bannaðar í Faxaflóa með lög-
um frá 1976. Síðan var gerð undan-
þága frá þeim lögum, fyrst hvað
varðaði tilraunaveiðar, en síðustu
tvö árin hafa 6 bátar haft leyfi til
þessara veiða og hafa þær gengið
vel. Sagði Þórður að skilyrði fyrir
þessum veiðum væri, að kolinn væri
unninn á þremur stöðum við flóann,
á Akranesi, í Reykjavík og Keflavík.
Sókn væri takmörkuð við 6 báta og
1.500 lesta hámarksafla.
Ferðagjaldeyr-
ir og flugvalla-
skattur til endur-
skoðunar í haust
„ÉG REIKNA með að þetta verði
tekið til athugunar við gerð fjárlaga-
frumvarpsins og afgreiðslu fjárlaga
á næsta þingi,“ sagði Albert Guð-
mundsson fjármálaráðherra, er Mbl.
spurði hann hvort ríkisstjórnin hefði
■ hyggju að afnema eða lækka sér-
stakt álag á gjaldeyri ferðamanna.
Fjármálaráðherra sagði að hið
sama ætti við um athugun á svo-
nefndum flugvallarskatti, en ráð-
herrann hefur lýst sig fylgjandi
því að þessum gjöldum verði af-
létt.
Handtekinn fyrir
ósiðlegt athæfi
UM fjögurleytið í gærdag var
maður handtekinn í skóginum
skammt frá Höfðabakkabrúnni
fyrir að hafa í frammi afbrigðilegt
kynferðislegt athæfi við stúlku-
börn á aldrinum 10—12 ára. Mað-
urinn mun þó ekki hafa leitað á
börnin. Hann hefur orðið uppvís
að líku athæfi fyrr.
Morgunblaðid/ RAX
Heitasti
dagur
sumarsins
í GÆR var heitasti dagurinn
suðvestanlands það sem af er
sumri, en rigningu er spáð
aftur í dag. Bændur eru nú
einn af öðrum að hefja slátt,
en þeir fyrstu byrjuðu á laug-
ardag. Hjónin á Neðra-Hálsi í
Kjós, Kristján Oddsson og
Dóra Ruf, voru ásamt öðru
heimilisfólki í óða önn að
hirða hey af túnum og setja í
votheysgryfju er Morgun-
blaðsmenn litu við á Neðra-
Hálsi í gær.
Sjá nánar á miðopnu.