Morgunblaðið - 13.07.1983, Page 2

Morgunblaðið - 13.07.1983, Page 2
34 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1983 Ef til vill hefði Sean Connery komið betur út f „Annie“ en Albert Finney. Mmyndir sem aklrei voni geröar Hefði nokkur annar en Ben Kingsley komið til greina í hlutverk Gandhis? Hugsum okkur Jane Fonda í myndinni „The Eiorcist" ... eða Peter Ustinov f hlutverki „Inspector Clouseau". Yinsældir kvikmynda og hlutverka í kvikmyndum eru ekki bundnar við ákveðna uppskrift heldur virðast vegir þeirra nánast órannsakanlegir og oft tilviljunum háð hvaða myndir eða hvaða leikarar slá í gegn. Val á leikurum í hlutverkin getur hins vegar ráðið úrslitum, bæði til góðs og ills, enda eru verkin oftast mörkuð persónuleika þeirra og giidir þá einu, hvort þeir eru þekktir eða óþekktir. Við skulum til dæmis hugsa okkur eftirfar- andi: Robert Redford í hlutverki hins niðurbrotna og drykkju- sjúka lögfræðings, sem berst fyrir sjálfsvirðingu sinni í myndinni „Verdict" eða sköllóttan Sean Connery, dansandi í gegnum kreppuna miklu ásamt stúlkubarninu „Annie“ úr samnefndri kvikmynd. Auðvitað finnst okkur þetta óhugsandi enda voru allt aðrir leikarar í þessum hlutverkum, — Paul Newman í hinu fyrrnefnda og Albert Finney í hinu síðarnefnda. Þó hefði vel geta farið svo að þeir Redford og Connery hefðu birst okkur í hlut- verkum þcssum, ef mál hefðu þróast eins og efni stóðu til í upphafi. Og ef til vill hefðu örlög myndanna þá orðið önnur en raunin varð á. { sögu kvikmyndanna má finna fjölmörg dæmi um „mynd- ir, sem aldrei voru gerðar" eða myndir, sem tóku slíkum breyt- ingum frá því hugmyndin kom upp og þangað til hún var full- gerð, að hún átti ekkert sameig- inlegt með frumhugmyndinni nema ef til vill nafnið. Og ástæð- urnar fyrir þessum breytingum eru að sama skapi margvíslegar. Oft rekast á hagnaðarsjónarmið framleiðenda og listrænt mat leikara þannig að annað hvort er hlutverkinu breytt eftir hug- myndum leikarans eða þá að honum er sparkað og annar fenginn í hlutverkið. I annan stað má nefna dæmi þar sem skapgerð manna hefur ekki átt saman og leitt til breytinga á hlutverkaskipan og þegar frægir leikarar eiga í hlut er það ekki óalgengt að þeir sendi handritin heim til föðurhúsa með þeim ummælum að það sé ekki þess virði að líta við því. Engu að síð- ur hafa margar þessara kvik- mynda náð gífurlegum vinsæld- um. Jane Fonda var til dæmis boðið hlutverk í „The Exorcist", sem hún hafnaði og af sömu ástæðum sáum við aldrei Clint Eastwood í myndunum „Tower- ing Inferno" eða „Apocalypse Now“, en allar þessar myndir vöktu mikla athygli og fengu góðar viðtökur. Henry Fonda hafnaði hlutverki í „Network" á þeirri forsendu að það væri „móðursýkislegt", en fyrir sama hlutverk fékk Peter Finch óskarsverðlaun á sínum tíma. Þess má einnig geta að Finch fékk hlutverk sitt í „Sunday, Bloody Sunday" vegna veikinda Ian Bannen. Hið „ótúlkanlega" hlutverk Nicholsons ofursta í „Brúin yfir Kwai-fljótið“ hafði verið hafnað bæði af Noel Cow- ard og Charles Laughton áður en Alec Guinness tók það að sér, en þegar upp var staðið hafði myndin hlotið 34 alþjóðleg verð- laun. John Wayne endaði feril sinn með miklum glæsibrag í kvikmyndinni „The Shootist" en áður höfðu bæði Paul Newman og George C. Scott hafnað hlut- verkinu. Á hinn bóginn má einnig líta á „hlutverk, sem allir vildu leikið hafa“ og kvikmyndaspekúlantar hafa velt fyrir sér hvernig hefðu komið út í meðförum annarra leikara en þeirra sem endanlega fengu þau. Bette Davis hafði mikinn áhuga á aðalhlutverkinu í „Whoá Afraid of Virginia Woolf“, en varð að láta í minni pokann fyrir þeim Burton-hjón- um, Elísabetu og Richard. Vitað er að margar stórstjörnur höfðu hug á að fá hlutverk í „Gandhi" og hafa t.d. Alec Guinness, Anthony Hopkins og Dustin Hoffman verið nefndir í því sambandi. í þeirri mynd vann Ben Kingsley einhvern glæsi- legasta leiksigur seinni ára eins og kunnugt er. Tuttugu árum áð- ur hafði Peter O’Toole hreppt hlutverk „Arabíu-Lawrence" og bundið þar með endi á vonir Dirk Bogarde og Alan Ladd um að fá hlutverkið. Aðalhlutverkin í myndinni „The Man Who Would Be King“ fóru frá Humphrey Bogart og Clark Gable til Richard Burtons og Peter O’Toole áður en myndin var svo loksins gerð með Sean Connery og Michael Caine í þess- um hlutverkum og geta menn séð á þessu hversu langur tími leið frá því hugmyndin að gerð myndarinnar kom fyrst fram og þar til hún var kvikmynduð. Veikindi leikara og skapgerð hafa ósjaldan valdið breytingum á hlutverkaskipan, jafnvel löngu eftir að taka viðkomandi mynd- ar hófst. Þegar Gene Kelly braut á sér ökklann í „Easter Parade" var það til þess að Fred Astaire kom aftur fram á sjónarsviðið eftir nokkurt hlé og heilsuleysi Judy Garland, einkum hin síðari ár, varð til að aðrar leikkonur fengu að spreyta sig á hlutverk- um sem henni voru ætluð. Má þar nefna Betty Hutton í stærsta hlutverki sínu um ævina í „Annie Get Your Gun“. Af öðr- um dæmum má nefna hjartaslag Peter Sellers á meðan á töku myndarinnar „Kiss Me Stupid" stóð, sem varð til þess að Ray Walston fékk hlutverkið. Lana Turner líkaði ekki klæðnaðurinn sem ætlaður var fyrir hlutverk í „Anatomy of Murder" og það varð til þess að Lee Remick fékk bæði fötin og hlutverkið og svip- aða sögu er að segja þegar Deb- orah Kerr tók við hlutverki Joan Crawford í „From Here To Eternity". Áfengisvandamál Roberts Mitchum á meðan á töku myndarinnar “Rosebud" stóð varð til þess að sent var eft- ir Peter O’Toole til að taka við hlutverkinu, sem verður þó að teljast undarleg ráðstöfun þar sem O’Toole getur tæplega talist maður reglusamur. Sorglegustu dæmin um mynd- ir sem aldrei urðu að veruleika eru þær sem hætt var við í miðju kafi og aldrei hafa séð dagsins ljós. Má þar nefna „I Claudius" með Charles Laughton í aðal- hlutverki og „Jackpot" með Richard Burton og Charlotte Rampling, en þegar hætt var við töku þeirrar myndar var búið að ganga frá rúmlega klukkustund- arlöngu nothæfu sýningarefni. Kvikmyndin „The Bells of Hell Go Ting-a-ling-a-ling“ með Gregory Peck var aldrei fullgerð og sömu sögu er að segja um „A Man’s Fate“ með David Niven, en hætt var við þá mynd á loka- stigi. Nokkrar mynda Orson Wells eru ófrágengnar og „Don Quixote" í þeirri útgáfu mun aldrei sjá dagsins ljós vegna dauða tveggja aðalleikaranna. En fyrir hverja þá mynd sem aldrei var fullgerð eða varð ein- hverra hluta vegna öðruvísi en upphaflega var gert ráð fyrir hafa álíka margar komið óvænt fram á sjónarsviðið, sumar hverjar stórmyndir, sem brotið hafa blað í sögu kvikmyndanna. Engum getum skal að því leitt hvort þær myndir hefðu engu að síður slegið í gegn eða öfugt. Hefði til dæmis Peter Ustinov náð viðlíka tökum á hlutverki „Inspector Clouseau" og Peter Sellers og hvernig hefði Doris Day spjarað sig í hiutverki „Mrs. Robinson"? Þessum spurningum er erfitt að svara þótt hitt sé vissulega staðreynd, að sumir leikarar eru eins og fæddir í ákveðin hlutverk. Líklega hefur Cary Grant hitt naglann á höf- uðið þegar hann hafnaði hlut- verki Higgins í „My Fair Lady“ með þessum orðum: „Ekki aðeins að ég hafni þessu hlutverki held- ur mun ég ekki fara að sjá myndina ef þið látið ekki Rex Harrison fá það.“ (Þýlt og endursagt — Sv.G.) Ariel ariel Erlendar bækur Jóhanna Kristjónsdóttir Ariel — tímarit um listir og menningarmál í ísrael, berst stundum á Morgunblaðið. Þetta er með vandaðri menningarrit- um sem ég ber augum og jafn mikil ástæða til að geta þess og ýmissa bóka sem skrifað er um í þessum dálkum. Aðalritstjóri er Asher Weill, en nefna má að í ritnefnd blaðsins er þekktur fs- landsvinur, David Rivlin fyrr- verandi sendiherra ísraels á Is- landi og núverandi yfirmaður menningarmáladeildar utanrík- isráðuneytisins í Jerúsalem. í A Raviaw ot Arts and In l*r»*: t Nttmber S3 / Jtj'ussatm /19*3 þessu hefti er margs konar efni, smásagan Berger eftir Yitzhak Ben-Ner er kannski eftirminni- legust. Hún gerist árið 1946 þeg- ar Bretar fóru enn með forræði í Palestínu og fjallar um hand- töku, flótta og eymd einnar af ísraelsku frelsishetjunum. Veru- lega áhrifamikil saga. The Persi- an Jews of Neveh Shalom eftir Jeff Halper er upplýsandi og fræðandi um stöðu persneskra Gyðinga í ísrael og endurvakn- ingu á fornum siðum þeirra nú hin síðustu ár og aukna þjóðern- iskennd. Memories of Gershom Scholem eftir Howard Schwarts og grein Dan Miron Gersho'm Scholem on Agnon eru í hví- vetna hinar læsilegustu greinar. Nokkur Ijóð eru í ritinu, um- sagnir um bækur og ýmislegt fleira efni, sem er fengur að því að lesa. Spyrja má hvaða erindi rit af þessu tagi eigi svo sem hingað og því er auðvitað afar fljótsvarað að þrátt fyrir um- fangsmikla eigin menningu og listir sakar aldrei að kynna sér pínulítið meira en eigin nafla. Israelsk menningarmál eru og hugstæð íslendingum og ritið er ákaflega fallega úr garði gert og útgefendum sínum til sóma.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.