Morgunblaðið - 13.07.1983, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLl 1983
61
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
_ TIL FÖSTUDAGS
‘IrnrvjAfriZ'izsr'iJU
Þjóðveldisbærinn að Stöng í Þjórsárdal.
Hef aldrei skemmt
mér viðlíka vel
Sveinn Sveinsson skrifar:
„Velvakandi.
Hrafnista í Reykjavík og í
Hafnarfirði bauð okkur vistmönn-
unum á báðum stöðum í ferðalag í
síðustu viku. Komið var að Skál-
holti þar sem tekið var fram snarl
og neytt úti á grænni grundu. Síð-
an var haldið að þjóðveldisbænum
að Stöng í Þjórsárdal og sungið
alla leiðina. Þar var fremst í
flokki Jóhanna ráðskona á Hrafn-
istu í Reykjavík og ágætur gítar-
leikari, og síst vildi ég gleyma að
nefna fararstjórann okkar, Ingi-
björgu Ásgeirsdóttur.
Ég er nú orðinn 83 ára gamall
og hef ferðast talsvert um landið
okkar, en aldrei skemmt mér við-
líka vel og í þessari ferð.“
Hvar er séreign þess
sem unnið hefur heima?
Kona skrifar:
„Kæri Velvakandi.
í útvarpsþættinum „Símatími
— Hlustendur hafa orðið" að
kvöldi 27. júní sl. var hreyft máli,
sem ég hef mikið velt fyrir mér,
vegna þess hversu ósanngjarnt
það er og langt frá því að vera í
anda lýðræðis og jafnréttis. Það
lýtur að lífeyrissjóðum og skiptum
hjóna, þegar skilnaður verður.
Skilnaðarmál hlýtur alltaf að
vera tilfinningamál, og fjármál
geta vissulega aukið á erfiðleikana
nema því aðeins ef til vill, að fólk
hafi verið svo skynsamt að gera
kaupmála og haldið öllu sér. Það
ráðlegg ég öllum að gera, þvi að
enginn veit sína ævina fyrr en öll
er. Og margt getur komið manni í
opna skjöldu.
Eftir 28—30 ára hjónaband er-
um við konur enn ofurseldar
duttlungum eiginmanna okkar og
duttlungarnir eru þeirra einka-
mál. En konan situr eftir og kemst
að því, sem hún hefur reyndar
alltaf vitað, en e.t.v. ekki skilið:
Það að vinna á heimili, fæða og
ala upp börn telst ekki til starfa.
Það er ekki einu sinni til umræðu,
svo furðulegt sem það kann að
virðast.
Ef við viljum ekki verða börn-
unum okkar til byrði, sem öll hafa
nóg með sig, eru okkur allar leiðir
lokaðar eftir þetta langt hjóna-
band. En það mál, sem ég hef
mestan hug á í þessu sambandi, er
að brjóta niður hefð þá, sem líf-
eyrissjóðirnir hafa komið á: Karl-
inn á þar falda séreign, sem ekki
má hrófla við, þegar eigum hjóna
er skipt samkvæmt 50%-reglunni
við skilnað. En hvar er þá sérgrein
þess sem unnið hefur á heimilinu?
Lífeyrissjóðirnir eru þannig
heilmikið tromp fyrir karlinn.
Hann getur fengið stór lán,
sjúkrapeninga og dagpeninga, elli-
laun (a.m.k. 65% af launum), dán-
arbætur fyrir maka, ef hann
stofnar til hjúskapar á nýjan leik
o.s.frv.
Og öll þessi réttindi hefur hann
áunnið sér í sambúðinni með
greiðslum af sameiginlegu fé
hjónanna. En konan fær ekkert.
Ég veit til þess, að það hefur
verið farið i mál út af slíku lífeyr-
issjóðsmáli og viti menn: Málið
vannst af hálfu konunnar. En
hljótt hefur verið um það.
Ég skora á allar konur, sem
standa í svona leiðindamáli eftir
mörg og ströng ár, að hugsa um
þetta.“
Skrifið eða
hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til að
skrifa þættinum um hvaðeina, sem
hugur þeirra stendur til — eða
hringja milli kl. 11 og 12, mánudaga
til föstudaga, ef þeir koma því ekki
við að skrifa. Meðal efnis, sem vel
er þegið, eru ábendingar og orða-
skipti, fyrirspurnir og frásagnir,
auk pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn,
nafnnúmer og heimilisföng verða
að fylgja öllu efni til þáttarins, þó
að höfundar óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
Þessir hringdu . . .
Yrðu ekki
lengi að
seljast upp
H.R.H. hringdi og hafði eft-
irfarandi að segja:
— Ég ætla að biðja lista-
hátíðarnefnd að reyna að fá
Duran Duran á listahátíð. Ef
D.D. kæmi hingað mundu
miðarnir ekki vera lengi að
seljast upp. Flestir vina
minna halda upp á D.D. og svo
er um fleiri. Én mér finnst
það alveg út í hött að vera að
fá Kiss hingað á listahátíð.
Krakkarnir sem halda upp á
Kiss halda að það sé eitthvað
flott. Ég er viss um, að það eru
jafnmargir á móti því og með
því að fá þá hljómsveit
hingað.
GÆTUM TUNGUNNAR
Heyrst hefur: Hann sagði, að við ramman
reip væri þar að draga.
Rétt væri: Hann sagði, að þar væri við ramm-
an reip að draga.
(Ath.: ... að þar væri við ramman (mann) að
draga reip(i). Að draga reip við einhvern er
að vera í reiptogi við hann.)
Okkar innilegustu þakkir sendum við öllum þeim sem
glöddu okkur með nærveru sinni og gjöfum í tilefni
gullbrúðkaups okkar. Sérstaklega þökkum við börnum
okkar, tengdabörnum og barnabörnum fyrir góðar gjaf-
ir, hlýhug og alla aðstoð við okkur á þessum tímamót-
um.
Guð veri með ykkur öllum.
Óskar Gudmundsson og Marta Einarsdóttir,
Traðarkotssundi 3, Rvík.
— GEÐVERNDARFÉLAGÍSLANDS k FULLGILT ÖRYRKJABANDALAGSFÉLAG
~ PÓSTGÍRÓ 3-4-5-6-7-9
I Dregiö verður 15. júlí 1983 |
ATHUGIÐ — ÁHUGAVERÐA VINNINGA v .
Hirslur
Hirslur eru til margra hluta nauðsynlegar og hjá okkur
eru til hirslur í hvert einasta herbergi í húsinu þínu.
Veggskápar í einingum og samstæðum i stofur með
geymslurými fyrir dúka, matarstell, hnífapör, uppáhalds-
glösin þín og verðmætustu bækurnar undir gleri, og
margar hillur sem þú getur sett á styttur, skálar og fleiri
hluti sem þú vilt hafa fyrir augunum hvern dag vegna
þess aö þeir eru þér kærir. Skápar í sjónvarpsherbergið,
útvarps- videó- og plötuspilaraskápar, plötuskápar og
raunar skápar fyrir hverskonar tæki og „græjur" sem þú
átt.
Bókaskápar sem allsstaðar eru til prýöi.
Skápar í herbergi barnanna, unglinganna og í herbergi
húsbóndans og húsfreyjunnar. Allt þetta fæst hjá okkur
í ótal stærðum, gerðum og viðartegundum á hagstæðu
verði með góðum greiðslukjörum.
Gefðu þér góðan tíma
UÚSGAGNAHÖLLIN
BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK S 91-81199 og 81410