Morgunblaðið - 20.07.1983, Qupperneq 40
BILLINN
BÍLASALA SlMI 79944 SMIOJUVEGI4 KÖRAVOGI .>
■FYR
■Sfas
Laugaveg
IRTÆKI&
FASTEIGNIR
Laugavegí 18 - Sími 25255
Seljum: íbúöarhúsnæöi, fyrirtæki,
verslanir og atvinnuhúsnæöi.
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1983
Ný lánskjaravísitala
íbúðalána í burðarlið
Hugmyndir Seðlabanka kynnt-
ar á ríkisstjórnarfundi í gær
HUGMYNDIR Seðlabankans að
nýrri lánskjaravísitölu við hlið nú-
verandi vísitölu, sem notuð yrði í út
reikningum við íbúðalán og fleira,
voru kynntar á ríkisstjórnarfundi í
gærmorgun samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins, en forsætisráð-
herra hafði látið fara fram lögfræði-
lega athugun á því hversu bindingin
væri mikil við núverandi lánskjara-
vísitölugrunn.
Benedikt Sigurjónsson, fyrrver-
andi hæstaréttardómari, var feng-
inn til að gera athugunina og mat
hans var, að vafasamt væri að
breyta gundvellinum gagnvart
lánum, sem væru með skriflegum
samningi þar að lútandi eins og
ríkistryggðum skuldabréfum og
almennum lánum í bönkum og
sparisjóðum.
Gert er ráð fyrir, að hin nýja
vísitala tengist náið hinum nýju
mánaðarlegu útreikningum á
framfærsluvísitölu, sem teknir
Arnarvarp í meðallagi
„ARNARVARPIÐ virðist vera
sæmilega gott, — eóa í meðallagi á
þeim stöðum sem kannaðir hafa
verið, en þó er eftir að rannsaka
meirihluta Vestfjarða og Djúpið,“
sagði Kjartan G. Magnússon er
hann var spurður hvernig arnar-
varpið hefði tekist í ár.
Hann sagði ennfremur að varp-
ið hefði verið kannað í Breiðafirði
og á Barðaströnd og fljótlega
mundi maður á vegum Náttúru-
fræðistofnunar íslands fara til
Vestfjarða í því skyni. En upplýs-
ingar um innkomuna yfir allt
landið þyrftu að liggja fyrir um
miðjan ágústmánuð.
hafa verið upp og komi breytingar
á verðlagi í landinu fyrr og ná-
kvæmar inn í vísitöluna, en sam-
kvæmt núverandi grundvelli er
lánskjaravísitala reiknuð út miðað
við framfærsluvísitölu að % hlut-
um og byggingarvísitölu að Vs
hluta, en þær vísitölur hafa verið
reiknaðar út á þriggja mánaða
fresti.
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, sagði að vegna
þessa væri í raun nauðsynlegt, að
vera með tvo vísitölugrundvelli,
þannig að það kæmi önnur láns-
kjaravísitala við hlið þeirrar nú-
verandi, sem næði væntanlega
fyrst og fremst til íbúðarlána, þe.
lána hjá Húsnæðismálastofnun
ríkisins.
„Annars er Seðlabankinn með
þetta mál í frekari vinnslu og mun
væntanlega taka upp viðræður við
viðskiptabanka og sparisjóði inn-
an tíðar. Seðlabankinn telur það
reyndar orka tvímælis, að breyta
vísitölugrundvelli þeirra innlána,
sem eru bundin í bönkunum í dag,
en um það eru skiptar skoðanir,"
sagði Steingrímur Hermannsson.
Horfur á lélegri
kartöfluuppskeru
HORFUR eru á að kartöfluupp-
skeran í ár verði mjög léleg ef tíð-
arfar breytist ekki til batnaðar á
næstunni, að því er Yngvi Mark-
ússon að Oddsparti í Þykkvabæ
tjáði Mbl.
Hann sagði jarðveg hafa verið
mjög kaldan í vor og fram á
sumar og því seint farið að setja
niður. „Það vantar sólskin," sagði
Yngvi. „Éf ekki rætist úr veðrinu
eru horfur mjög slærnar."
Á Norðurlandi hefur verið kalt
og í samtali við Mbl. sagði
Sveinbjörn Laxdal, kartöflubóndi
á Svalbarðsströnd, að ef hiti yrði í
meðallagi fram á haust myndi
uppskera að öllum líkindum verða
þokkalega góð. Hann sagði að ekki
hefði verið lokið við að setja niður
kartöflur fyrr en 20. júní í Eyja-
firði og væri það hálfum mánuði
til þrem vikum seinna en vana-
lega.
Vegurinn við Kóngsnef í Almenningum:
Hefur sigið um
þrjá metra síð-
an í fyrrahaust
Um 8.000 lestir fara f uppfyllingu
Morjfunblaðiú/Helgi Bjarnason.
Þeir eru hressir þessir veiðimenn á Patreksfirði þótt fengurinn hafi ekki verið mikill í þetta sinn, lítill marhnútur.
VEGAGERÐ ríkisins í Skagarirði er
nú byrjuð að byggja upp veginn við
Kóngsnef í Almenningum, sem hef-
ur sigið um 3 metra á nálægt 100
metra kafla síðan í fyrrahaust. Verð-
ur bæði ýtt upp í veginn og keyrð í
hann fylling, en vegurinn var nánast
orðinn ófær vegna sigsins til end-
anna. Þá hefur sigs orðið vart á
tveimur stöðum sitt hvorum megin
þessa svæðis, en það er mun minna í
sniðum.
Að sögn Jónasar Snæbjörnsson-
ar, umdæmisverkfræðings Vega-
gerðarinnar á Norðurlandi vestra,
er sigið á þessum tíma það mesta,
sem vitað er um til þessa. Fjár-
veiting til verksins nemur um,
400.000 krónum og áætlað er að !
Mjög góðar laxagöng-
ur í eldisstöðvarnar
LAXAGÖNGUR í laxeldisstöðina í
Kollafirði ganga mjög vel og mun
betur en í fyrra og ef svo heldur
fram sem horfir næst það markmið
stöðvarinnar að fá 3000—4000 laxa
í sumar, samkvæmt upplýsingum
sem Morgunblaðið fékk hjá Arna
ísakssyni, fiskifræðingi hjá Veiði-
málastofnun, í gær. Sagði Árni að
tala göngulaxa á sama tíma í fyrra
hefði verið 135, en Árni tók fram
að allar göngur þá hefðu verið sér-
staklega seint á ferðinni. Ennfrem-
ur ber þess að geta að í fyrra var
sleppt um 60 þúsund sjógönguseið-
um, sem eru uppistaðan í göngun-
um í ár, en í hitteðfyrra var aðeins
sleppt um 40 þúsund seiðum.
Um 100 laxar hafa gengið í til-
raunastöð ISNO í Kelduhverfi í
N-Þingeyjarsýslu og er megin-
uppistaðan í þeim afla 2ja ára
lax, samkvæmt upplýsingum sem
Mbl. fékk hjá Eyjólfi Konráði
Jónssyni. Sagði hann að menn
væru að gera tilraunir með
sleppingu seiða úr Laxá í Aðaldal
og hefði 20 þúsund seiðum verið
sleppt í fyrra og hitteðfyrra. í
fyrra hefðu endurheimturnar af
eins árs fiski verið 1%, og hefðu
menn verið ánægðir með það því
Laxárstofninn væri einkum 2ja
ára stofn. Hins vegar tók Eyjólf-
ur Konráð fram, að laxinn gengi
seint í ár nyrðra.
Heldur eru menn óánægðir
með laxagöngurnar í iaxeldisstöð
Pólarlax við Straumsvík, sam-
kvæmt upplýsingum sem Mbl.
fékk í stöðinni, en þangað hafa
nú gengið um 1000 til 1200 laxar,
en í fyrra var sleppt um 100 þús-
und sjógönguseiðum, auk 20 þús-
und sumaralinna seiða í til-
raunaskyni. Hins vegar er vonast
eftir meiri göngum á næstunni.
um 4.000 rúmmetrar eða 8.000
lestir af efni fari í uppfyllinguna.
Nú er byrjað að ýta efni upp að
veginum og reiknað er með að
verkinu ljúki í þessari viku.
Sagði Jónas, að hér væri um
bráðbirgðaviðgerð að ræða eins og
áður hefði verið, því rannsóknir
Vegagerðarinnar á svæðinu væru
enn í gangi og hvorki niðurstöður
né framtíðarlausn lægi fyrir. Að-
alsigið næði ekki langt upp fyrir
veginn, en sprungur virtust þó ná
lengra upp í fjallið en áður. Þar
sem sigið næði alveg niður í sjó
virtist einn möguleikinn vera sá,
að færa veginn ofar í fjallið. Þá
væru komnir áberandi stallar í
veginn á öðrum stöðum á milli
Fljóta og Siglufjarðar. Sem dæmi
mætti nefna Heljartröð og Stíflu-
hól, en það væri ekkert svipað að-
alsiginu, aðeins um 15 til 20 sentí-
metrar frá því í sumar. Væri fyrr-
nefndi staðurinn Fljótamegin en
hinn Siglufjarðarmegin. Vitað
væri að hlíðin öll frá Brúnastöðum
í Fljótum og út í Mánárskriður
væri á hreyfingu, þannig að erfitt
væri að finna þar öruggt vegar-
stæði.
Skattskrá lögð
fram 27. júlí nk.
ÓÐUM líöur aö því að menn fái
senda heim álagningarseðla fyrir
tekjur síðastliðins árs
Áætlað er að skattskrár í öllum
skattumdæmum muni liggja
frammi miðvikudaginn 27. júlí,
næstkomandi, að sögn skattstjór-
ans i Reykjavík, Gests Steinþórs-