Morgunblaðið - 26.07.1983, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1983
19
THORITE
Framúrskarandi viðgerðar-
efni fyrir steypugalla.
Þannig sparar það bæði
tíma og fyrirhöfn við móta-
uppslátt ofl. Thorite er til-
valið til viðgerða á rennum ofl
W TLL í
Nyr giæsuegu
syningarsalur
Opiö frá 9—18 daglega
Vegna mikiilar söly undanfariö þá vantar i sal-
inn og á söluskrá notaða Daihatsu-bíla.
Daihatsu-umboÖid,
Ármúla 23. símar 85870 — 81733.
!i
Bviðgerðar og
VATNSÞÉTTINGAR-
EFNI SEM GERA
MEIRA EN AÐ DUGA.
steinprýði
Stórhöfða 16, sími 83340.
ACRYL60
Eftir blöndun hefur efnið
tvöfaldan þenslueiginleika,
tvöfaldan þrýstieiginleika,
þrefaldan sveigjanleika og
áttfalda viðloðun miðað við
venjulega steypu.
WATERPLUG
Sementsefni sem stöðvar
rennandi vatn. Þenst út við
hörnun og rýrnar ekki.
Þetta efni er talið alger bylt-
ing.
THOROGRIP
Thorogrip er sementsefni,
rýrnar ekki, fljótharðnandi.
Þenst út við þornun og er
ætlað til að festa ýmsa
málmhluti í stein og stein-
steypu.
Spáð hækkandi olíu-
verði fram til 1995
Washin^on, 25. júlí. AP.
OLÍUVERÐ verður um miöjan tí-
unda áratuginn á þessari öld oröiö
20% hærra en það var þegar það
náði hámarki áriö 1981 og OPEC-
ríkin verða áfram aðalframleiðendur
olíu. Kemur þetta fram í ársskýrslu
Alþjóðabankans, sem lögö var fram í
dag.
Aukin olíunotkun á eftir að hafa
í för með sér hækkandi verð. Er
því spáð, að olíuverð hækki að
meðaltali um 1,6% umfram verð-
bólgu ár hvert fram til 1995.
Þá er því spáð, að hráolíu-
vinnsla fari minnkandi á öðriim
svæðum heims en þeim er OPEC-
ríkin ráða yfir. Er þar átt við m.a.
Bandaríkin og oliuvinnslusvæði í
Norðursjó.
Þá kom fram i skýrslunni, að
lífskjör hafa enn versnað í fátæk-
ari löndum S-Ameríku og Afríku.
Meðaltekjur fóru á síðasta ári
lækkandi i Brasilíu, Argentínu,
Chile, Mexíkó, Nicaragua og Para-
guay. Um svipaða þróun var að
ræða í mörgum löndum Afriku;
Kenýa, Zimbabwe, Zambfu, Moz-
ambique, Zaire, Burundi, Efri
Volta, Níger, Tanzaníu og Sierra
Leone.
Nokkuð kom á óvart, að ástand-
ið í fátækustu löndum Asiu var
ekki nándar nærri eins slæmt og í
Afríku og S-Ameriku.
89,2 gráðu frost
á heimskautinu
Moskv*. 25. júlí. AP.
SOVÉSKA fréttastofan TASS
sagði á laugardaginn, að sovésk-
ir vísindamenn á Suður-heim-
skautinu hefðu sl. fimmtudag
skráð 89,2 gráðu frost, sem væri
nýtt kuldamet þar um slóðir.
Fréttastofan sagði visinda-
mennina hafa mælt hitastigið
fyrir utan vísindastöðina Vost-
ok, en stöðin er staðsett 3.488
metra yfir sjávarmáli og 1.500
kílómetra inni í landi.
Fyrra kuldametið var skráð
24. ágúst 1960, en þá var 88,3
gráðu frost fyrir utan Vostok-
stöðina.
Hagl skemmir
vínekrurnar
P»rís, 25. júlf. AP.
SAMTÖK vinræktenda í Frakk-
landi skýrðu frá því i dag, að
haglél um helgina hefðu skaðað
vínvið í nokkrum hlutum lands-
ins.
Hagl féll t.d. á hinar frægu
vínekrur í Burgundy-héraðinu sl.
laugardagsnótt. Stóð élið i tvær
mínútur og eyðilagði 80% vín-
berja Vosne-Romanee vínekr-
unnar. Þá sködduðust einnig
vínber á Romanee Conti vínekr-
unni, en vín hennar eru ein hin
dýrustu í Frakklandi.
136 látnir
úr hitanum
New Vork, 25. júlf. AP.
FÓRNARLÖMB hitabylgjunnar,
sem gengið hefur yfir Bandarik-
in að undanförnu, voru orðin 136
sl. sunnudag. Meðal þeirra er
gamalt fólk, einkum með hjarta-
sjúkdóma, en einnig nokkrir syk-
ursjúklingar. Þetta fólk hefur
haldið sig inni í húsum sínum,
gjarnan með hita á ofnum. Lík-
amshiti fórnarlambanna hefur
farið upp í 42 gráður á Celsíus.
Nú er hins vegar kaldara loft á
leiðinni suður um Bandaríkin.
Hiti hefur víða fallið úr tæplega
40 gráðum niður í um 30 gráður
á Celsius.
Lögregluþjónn
skýtur 11 manns
Delhf, 25. júlí. AP.
INDVERSKA fréttastofan til-
kynnti á miðvikudaginn, að lög-
regluþjónn í bænum Mandsaur
fyrir suðvestan höfuðborgina
Delhí hefði gengið berserksgang
og skotið 11 manns til bana i
hindúahofi bæjarins.
Níu manns slösuðust i skot-
hríðinni, en meðal hinna látnu
er æðstiprestur hindúahofsins.
Ixigregluþjónninn var skotinn til
bana af samstarfsmanni sinum.
Afskipti Strauss
af ungri flóttakonu
Dresden, A-Þýskalandi, 25. júlí. AP.
FRANZ Josef Strauss, formaður
kristilega sósíalsambandsins í Bæj-
aralandi kom í gær í veg fyrir aö
austur-þýskir landamæraveröir
hefðu á brott með sér unga konu
sem reyndi aö ná tali af Strauss.
Strauss var við landamerki
austur- og vesturhluta Þýskalands
við Zwingerhöllina ásamt föru-
neyti sínu. Er flokkurinn var að
fara þaðan, sá sonur hans Max,
hvar landamæraverðir voru að
draga konuna á brott. Greip
Strauss inn í og heimtaði að fá að
ræða við konuna og var orðið við
jæirri beiðni. Sagðist hún heita
Elke Weiss og bað hún Strauss um
að hjálpa sér, eiginmanni sínum
og níu ára dóttur að fá leyfi til að
flytja til Vestur-Þýskalands. Eftir
áheyrnina var hún flutt á brott, en
Strauss tjáði fréttamönnum, að
hann myndi ræða persónulega við
austur-þýsk stjórnvöld um málið.
Vitni að atburðinum sögðu að
ungur maður hefði verið dreginn
nauðugur á brott á þessum sömu
slóðum um sama leyti, en hinir
vestur-þýsku gestir hefðu ekki séð
atvikið. Talið er að atvik þetta
muni reynast Strauss erfitt viður-
eignar, enda hefur hann sætt mik-
illi gagnrýni flokksbræðra sinna
að undanförnu, einkum vegna ný-
upptekinna tengsla sinna við ráða-
menn í Austur-Þýskalandi, en
hann útvegaði A-Þýskalandi ný-
lega lán upp á 400 milljónir doll-
ara til þess að „létta á landa-
mærahömlum". Þessir atburðir
eiga sér stað aðeins þremur mán-
uðum eftir að Strauss kallaði
austur-þýska ráðamenn morð-
ingja, eftir að vestur-þýskur mað-
ur lést úr hjartaslagi er austur-
þýskir landamæraverðir spurðu
hann spjörunum úr á landamær-
unum.
Útgöngubann
í Colombó
('olombó, 25. júlí. AP.
RÍKISSTJÓKN Srí Unka setti í dag
15 klukkutíma útgöngubann í Colombó
og á fleiri svæöum er fregn um morö á
13 stjórnarhermönnum í Jaffna hafði
orsakað óeirðir.
Jaffna er höfuðborg aðskilnaðar-
sinna Tamíl-þjóðarbrotsins í norður-
hluta landsins. Hermennirnir voru
drepnir á laugardaginn af skærulið-
um aðskilnaðarsinna.
Fjöldi fólks fór með gripdeildum
um stræti Colombó og beindist reiði
þeirra gegn aðskilnaðarsinnum, en
einnig gegn öðrum borgarbúum.
Mikið var um íkveikjur og önnur
skrílslæti.