Morgunblaðið - 26.07.1983, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1983
27
íþróttafélög
Iþróttavellir
Kjalarskokk
— sex trimmarar hlaupa yfir landið
Um næstu helgi munu sex
trimmarar leggja af staö úr
Gaulverjabæjarhreppi og hlaupa
yfir landiö, um Kjöl, og ætlunin er
aö koma til Blönduóss mánudag-
inn 8.ágúst. Hlaupararnir munu
leggja af staö á laugardag úr
Gaulverjabæ og hlaupa eins og
leið liggur í átt aö Skálholti, en
þar munu þeir hafa höfuöstöðvar
á meöan þeir hlaupa í byggö, en
síöan veröur lagt á hálendiö og
komið til Blönduóss mánudaginn
8.ágúst eins og áöur sagöi.
Þaö eru sex trimmarar sem taka
þátt í þessu hlaupi, sem er um 290
km langt og er ætlunin aö vera tíu
daga á leiðinni. Þaö þýöir aö þeir
munu hlaupa 29 km. aö meðaltali á
dag. Þeir sem hlaupa eru Jóhann
Heiöar læknir, Leiknir Jónsson
málararmeistari, Árni Kristjánsson
bankamaöur, Gunnar Kristjánsson
bankamaöur, Sigurjón Andrósson
innkaupastjóri og Stefán Friö-
geirsson námsmaöur. Þeir félagar
hafa hlaupiö mikiö saman og sem
dæmi hittast þeir á hverjum
sunnudagsmorgni í Heiömörk og
hlaupa þá um 20 km auk þess sem
þeir hafa veriö iönir viö aö taka
þátt í víöavangshlaupum.
Til þess aö forvitnast aöeins um
aödragandan aö þessu hlaupi
þeirra félaga og hvers vegna þeir
væru aö leggja svona erfiði á sig
fór blm. Mbl. í Heiömörk sl. sunnu-
dag og ræddi viö hlauparana. Viö
spuröum þá fyrst hvernig hug-
myndin hefði oröiö til og þaö var
Jóhann Heiöar sem varö fyrir svör-
um.
„Þaö hafa margir fengiö þá hug-
mynd aö skokka yfir Kjöl og þaö
eru í raun mörg ár síöan fyrst var
byrjað aö ræöa um þetta og svo
fórum viö aö ræöa þetta betur
þegar viö höfum veriö aö hlaupa
hér í Heiömörk og ákváöum aö
láta til skarar skríöa og nú er þetta
loksins aö veröa aö veruleika."
En hversvegna eruö þið aö
leggja svona erfitt feröalag á ykk-
ur?
„Viö gerum þetta eingöngu aö
gamni okkar, viö reiknum meö aö
þetta veröi hin besta skemmtun,“
sagöi Jóhann Heiöar og Leiknir
bætti viö: „Þetta veröur fjölskyldu-
ferö í leiðinni, viö hlaupum hvern
áfanga trúlega á morgnana og
veröum síöan meö fjölskyldunni
það sem eftir er dagsins. Fjöl-
skyldurnar ætla aö vera á bílum
með okkur eftir því sem hægt er,
þannig aö þetta veröur eins og
besta útilega um leið.“
Hlaupið þiö mikiö saman?
„Ég hleyp alltaf úr vinnunni og
heim, en óg starfa sem læknir á
Landspítalanum og bý í Garöabæ
en þaö munu vera um 8 km þar á
milli, og þegar vel liggur á mér þá á
þeg þaö til aö hlaupa líka í vinn-
una. Þessi hlaup okkar hér í
Heiðmörk hófust eftir Álafoss-
hlaupiö 1980 og viö erum búnir aö
hlaupa hér síðan á hverjum sunnu-
degi, sama hvernig viörar og það
er ekki alltaf eins gott veöur og í
dag. Þeir Leiknir, Arni og Gunnar
eru gamlir sundkappar og hafa
hlaupiö mikið saman, en síðan
komum viö í hópinn 1980,“ sagöi
Jóhann Heiöar.
Haldiö þiö aö ykkur takist aö
hlaupa V* úr maraþonhlaupi einu
sinni á dag í tíu daga, er það ekki„
full mikið ?
„Það er nú einmitt þaö sem er
mest spennandi viö þetta aö sjá
hvort okkur tekst þetta. Þetta
veröur eflaust ansi strembiö en viö
veröum vel útbúnir og auk þess er
læknir með í ferðinni, af hverju
heldur þú aö hann fái aö taka þátt
í þessu meö okkur hinum,“ spuröi
Leiknir um leiö og þeir skokkuöu
hlæjandi af staö, en aö þessu sinni
átti bara aö skokka örstutt eöa 16
km því sumir höföu tekið þátt i
Bláskógaskokkinu daginn áöur, en
þaö er um 15 km og menn því
ekkert aö pína sig áfram svona
eldsnemma á sunnudagsmorgni.
- sus
• Skokkararnir leggja af stað til aö hlaupa 16 km en þeir aögöu aö þaö væri passlega lótt eftir að hafa hlaupið 15 km daginn áöur. Taliö frá
vinstri: Sigurjón Andrésson, Qunnar Kristjánsson, Stefán Friögeirsson, Leiknir Jónsson, Jóhann Heiöar Jóhannsson og Árni Kristjánsson.
Morgunblaöiö/Kriat)in Einaraaon.
• Þaö var púttað af öryggi þegar
þessi mynd var tekin. Þessi kylf-
ingur byrjaði í golfi rúmlega
fimmtugur þannig aö þaö er aldr-
ei of seint að byrja.
• Þeir ættu aö kannast viö sig á þessum staö drengirnir því hóöan
hafa þeir lagt af stað í sunnudagsskokkið síöan áriö 1980. Skokkiö eins
og þeir kalla þaö er aöeins um 20 km í hvert skipti. Næsti áfangi hjá
kÖppunum er Kjölur. Morgunblaðiö/ Kriatfán Einartson
• Ingiríöur krónprinsessa ís-
lands og Danmerkur, verndari
GR. Þessi mynd hangir upp í
skála GR.