Morgunblaðið - 04.08.1983, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1983
11
Haffræðingar kanna sýni um bord f Árna Friðrikssyni. Frá vinstri: Karl
Gunnarsson, Sigurður Jónsson og Sigurður Þráinsson.
Ljósmynd Guöbjartur Gunnarsson.
Þörungum fjölg-
ar við Surtsey
Sums staðar orðin fullmótuð fjara í nýja hrauninu á Heimaey
„SJÁVARLÍF kringum Surtsey fer
heldur vaxandi og í nýafstöðnum
leiðangri þar fundum við um 40 teg-
undir þörunga við eyna, þó ekki
hefði tekist að kanna hana nogu vel
vegna veðurs. Þá könnuðum við líf-
ríkið á nýja hrauninu í Heimaey og
Seglskúta á
Reykjanesi
Midhúsum, Bardastrandarsýslu, 2. ágúst.
í GÆR kom að Staö á Reykjanesi
seglskútan Drífa, en eigandi hennar,
Guðmundur Thoroddsen, kom sigl-
andi frá Hollandi, þar sem hann er
við myndlistarnám. Skipverjar voru
þrír og stansað var á Hjaltlandseyj-
um og í Færeyjum, en þar þurfti
einn skipverja að yfirgefa skútuna.
Þeir voru því tveir sem sigldu skút-
unni frá Færeyjum til Reykjavíkur
og Guðmundur kom einn frá
Reykjavík að Stað og þar tóku
20—30 manns á móti honum. Að-
spurður sagði Guðmundur að þeir
hefðu verið tíu og hálfan sólarhring
á siglingu frá Hollandi til Reykjavík-
ur og hefði hann smíðað skútuna
sjálfur. Hann hafi byrjað á henni
fyrir tveimur árum í Svíþjóð og lokið
við hana í Danmörku og þaöan sigldi
hann skútunni til Hollands. Segl-
skúta Guðmundar er fyrsta skútan
sem kemur hingað á hinni nýju
skútuöld.
FrétUritari.
kom í Ijós, að því hefur fleygt veru-
lega fram og er það komið mun
lengra en við Surtsey,“ sagði Sigurð-
ur Jónsson, þörungafræöingur í sam-
tali við Morgunblaðið.
„Þessi leiðangur var í síðustu
viku og er þáttur í langtímaskoð-
un eyjarinnar, sem hófst 1964. Við
fórum þarna út á Árna Friðriks-
syni og ætlunin var að taka sýni.
Við vorum því með nokkra kafara
með okkur þessa fimm daga sem
leiðangurinn stóð en gátum ekki
kafað nema einu sinni vegna veð-
urs. Þetta er annars að spretta
upp hægt og sígandi, en mikill
sandburður við austurhluta eyjar-
innar hefur fært gróður þar í kaf.
Þessi sandburður kemur sennilega
úr eynni sjálfri og hefur hann
stórspillt gróðri þar. Okkur tókst
ekki að athuga botninn að vestan-
verðu svo ekki er hægt að segja til
um stöðu gróðurs þar.
Til samanburðar könnuðum við
gróður á nýja hrauninu í Heimaey
og hefur það ekki verið kannað áð-
ur. Þar er miklu meiri gróska en í
Surtsey og stafar það sennilega af
því að nýja hraunið er í tengslum
við gróðursvæði, sem ekki eyddust
í gosinu. Þar er sums staðar orðin
fullmótuð fjara og á botninum
fundum við fimm ára gamlar
þaraplöntur. Það var mjög leiðin-
legt að sýnataka við Surtsey
skyldi ekki takast betur, þvi ekki
verður hægt að fara aftur á næst-
unni, en venjan er að skoða þetta á
tveggja ára fresti," sagði Sigurður
Jónsson.
Hvað sem
ferðaskrifstofukóngar
segja
þá er ódýrasta ferðin, innanlands eóa utan, ferð sem þú
ferð á eigin bíl þar sem þú og þínir geta bæði sofiö í og
eldaö. Þú ert engum háður, hvorki hótelum né matsölu-
stöðum. Já, þú þarft að kaupa bensín og mat, en þaö
þarftu líka aö gera heima.
Ef þú átt pallbíl bjóðum viö þér Camper-hús sem sett er á
pallinn þegar þú vilt breyta honum í ferðabíl og þar er allt:
svefnpláss fyrir 4 fulloröna, eldhús, hiti og kæliskápur. Á
ferð er þakið á hæð við bflhúsiö, en svo skrúfaö upp í fulla
hæð.
Ef þú átt sendibfl, þá eigum við fullkomna innréttingu
sem hægt er á fljótlegan hátt að skrúfa úr og I. Þar er
einnig svefnpláss fyrir 4 fullorðna. Þar er eldhúsmubla
með vaski, vatnsdælu, vatnstanki, eldavél og ísskáp fyrir
gas, 12 v og 220 v. Sætisbekkir sem breytast í svefnbekki,
borð, skápa og gardínur og þak á bílinn sem hægt er að
lyfta þegar búiö er í honum.
Nú ef þú átt fólksbíl (eða jeppa) þá höfum við líka ráö til
aö þú getir ferðast ódýrt. Viö setjum bara tjaldvagn eöa
hjólhýsi aftan í bílinn og þú af stað óháöur öllum föstum
plönum og hótelum. Sjálfs þín herra. Góða ferð.
Gísli Jónsson og co. hf.
Sundaborg 44, sími 86644.
í sumarbú-
staöinn og
ferðalagið
Still-Longs
ullarnærföt
Regnfatnaður
Kuldafatnaður
Vinnufatnaður
Klossar
Gúmmístígvél
•
Olíulampar
Olíuofnar
Lampaglös
Olíulamper og luktir ( miklu
úrveli.
Útigrill
GRILLTENGUR — GAFFLAR
VIOARKOL — KVEIKILÖGUR
Gas-ferðatæki
OLÍUPRÍMUSAR
STEINOLÍA, 2 TEG.
PLASTBRÚSAR
Björgunarvesti
ÁRAR — ÁRAKEFAR
SILUNGANET
ÖNLGAR, PILKAR, SÖKKUR.
Handfæra-
vindur
VIDLEGUBAUJUR
SÚÐHLÍFAR, MARGAR ST.
VÆNGJADÆLUR
BÁTADÆLUR
íslensk flögg
FLAGGSTENGUR
FLAGGSTANGARHÚNAR
FLAGGLÍNUR, FESTLAR
VaMljða, tjaldljóa og rafhlöður.
STJÖRNULYKLAR
TOPPLYKLAR
LYKLASETT
TENGUR
PLÖTUBLÝ
FJÖLBREYTT
ÚRVAL
Ananaustum
Simi 28855