Morgunblaðið - 04.08.1983, Page 12

Morgunblaðið - 04.08.1983, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1983 „Fjölfötluðum allar dyr lokaðar“ Rætt við Marlaugu Einarsdóttur, formann foreldrasamtaka barna með sérþarfir „VIÐ EIGUM það sameiginlegt að börn okkar eru fötluð og hið stóra sameiginlega vandamál - það virðist hvergi gert ráð fyrir börnunum okkar, nema ef ske skyldi á pappír- um. Húsnæðismál fatlaðra barna, sérstaklega fjölfatlaðra, eru í lama- sessi. Það eru til stofnanir og skólar fyrir börn með eina fötlun, en þegar búið er að greina bam fjölfatlað lok- ast allar dyr,“ voru orð Marlaugar Einaifpdóttur, formanns foreldra- samtaka barna með sérþarfij, þegar Mbl. ræddi við hana um samtökin og* þau mál sem þar eru talin brýn- ust. Mislitur hópur með sama markmiö „Samtökin hafa starfað frá því í október 1973 og voru stofnendur níu. I dag erum við hópur 140 for- eldra víðsvegar af landinu. öll eig- um við börn á ýmsum aldursskeið- um sem eru fötluð á einn eða ann- an máta. í samtökunum eru bæði foreldrar barna með eina fötlun, foreldrar mongólíta og foreldrar fjölfatlaðra barna. Tilheyri ég þeim hópi, en minn drengur er sextán ára og mikið fatlaður," sagði Marlaug. „Það má því segja að þetta sé mislitur hópur að því leyti að börn okkar eru fötluð á mjög misjafnan hátt. Innan sam- takanna sitja við sama borð for- eldrar barna með eina fðtlun, for- eldrar barna sem eru andlega heil heilsu en líkamlega fötluð og for- eldrar innhverfra barna, spast- ískra og þar fram eftir götunum. Þarna er breitt bil á milli og finnst kannski einhverjum eðli- legra að foreldrar þeirra sem við samskonar fötlun eiga að stríða myndi með sér sjálfstæða hópa. Ástæða þess að svo er ekki gert er sú, að okkar styrkur felst í því að standa saman, miðla reynslu og læra af öðrum. Á annan hátt fáum við okkar málum ekki framgengt." Enginn staður fyrir barnið „Það mál sem við setjum á oddinn er húsnæðisvandinn. Sem stendur eru hér engar stofnanir sem taka við fjölfötluðum börn- um, hvorki til langtíma- né skammtímavistar. Auðvitað reyna allir að hafa börn sín sem mest inni á heimilunum, en í mörgum tilfellum er slíkt erfitt. Börnin þurfa oft hjálpartæki sér til að- stoðar, gott húspláss og það sem mikilvægast er, umönnun allan sólarhringinn. Þetta er nokkuð sem allir foreldrar reyna að veita fötluðum börnum sínum. En ef foreldrar hafa ekki fulla heilsu sjálfir og þurfa sjúkrahúsvist eða af öðrum ástæðum þurfa að hverfa frá í einhvern tíma kemur sú bitra staðreynd í ljós, að engin stofnun er reiðubúin að taka við börnunum. Það er hart til þess að hugsa að ef aðstandendur veikjast eða falla frá er enginn staður til fyrir barnið þeirra. Við höfum dæmi þess innan samtakanna, að móðir veiktist alvarlega og lagðist inn á sjúkrahús til langlegu. Þessi kona átti fimmtán ára gamla fjöl- fatlaða telpu sem eftir nokkurra mánaða þras og betl var hægt að koma inn á stofnun." Stofnanir yfirfullar „Þetta ástand er hræðilegt bæði fyrir aðstandendur og börn. Ef stofnun tekur við fjölfötluðu barni þarf yfirleitt að hliðra til fyrir barnið og er gert í greiðaskyni þannig að foreldrum líður sem þeir hafi verið að biðja um ölm- usu. Neyðarúrræðið er í flestum svona tilfellum að leita á náðir stofnana fyrir vangefna, en þær eru undantekningarlaust yfirfull- ar og oft ekki með aðstöðu til að sinna fjölfötluðum. Um valkosti er því ekki að ræða fyrir okkur for- elr1 Ef barn þarf vist verðum aó taka því sem býðst, þó sjaldnast bjóðist nokkuð, burtséð frá því hvort stofnunin er undir það búin að sinna barninu. Á hin- um Norðurlöndunum er hámark átta fatlaðir einstaklingar á einni deild, en hér höfum við allt að fjórtán. Svo er í sumum tilfellum að fjölfötluð börn sem eru andlega heilbrigð eru sett á sömu deild og andlega vanheilir. Fjölfötluð börn eru oft á tíðum erfiðir einstakl- ingar að eiga við og þarf að sinna þeim á allan hátt sem best og gefa þeim nægan tíma. Mörg hver geta á engan hátt tjáð sig, eins og drengurinn minn sem er bæði mállaus og blindur, því verður að vinna traust þessara barna með því að veita þeim tíma til að kynn- ast starfsmönnum, fá að snerta fólkið í kringum sig og umgangast sömu aðila í langan tíma. Þarna kem ég að atriði sem er mjög mik- ilvægt að breytingar verði á, það eru þær tíðu mannabreytingar sem eru afar tíðar á stofnunum fyrir fatlaða. Það má því segja að neyðarástand ríki að öllu leyti í málum fjölfatlaðra, það er sama hvert er litið, alls staðar eru lok- aðar dyr“ Ekki lífvana tuskudúkkur „Það sem yfirvöld verða að gera nú er að ákveða hvort stækka eigi stofnanir sem fyrir eru eða byggja ný heimili fyrir langtíma- og skammtímavistanir, enda er nú fyrirsjáanlegt að á næstu fimm árum koma um sextíu einstakl- ingar til með að þurfa vist á höf- uðborgarsvæðinu einu. Eitthvað verður að gera, það hlýtur öllum að vera ljóst. Þau börn sem við erum að berjast fyrir eru ósjálf- bjarga einstaklingar ef aðstand- endur falla frá - þjóðfélagið verð- Ljósmynd Mbl./ Emilía. Marlaug Einarsdóttir, formaður for- eldrasamtaka barna með sérþarfir ur að gera ráð fyrir þeim og sinna á sama hátt og öðrum börnum. Barn sem er mikið fatlað er ekki lífvana tuskudúkka, það er mann- eskja og ber að sinna því sem slíkri. Von okkar innan foreldra- samtakanna er að sá tími komi að lítil og persónuleg heimili verði byggð og rekin í hverju sveitarfé- lagi. Heimili þar sem fötluð börn og fjölfötluð geta átt skammtíma- og langtímavist. Enn sem komið er er þetta ekkert nema dag- draumur, þó sambýli fyrir van- gefna sé vísir að þessu. Innan samtakanna erum við nokkur búin að mynda hóp sem vinnur að Mest frjósemi blárefa í Botni við Djúp: Besta læðan gaut 16 yrðlingum Toppfóður aðalástæðan, segir Ágúst Gíslason í Botni „Jæja, er það, þetta finnst mér ótrúlegt, því ég var óánægður með þetta hjá mér. Sex læður voru alveg geldar þannig að þetta kemur eftir 34 læður,“ sagði Ágúst Gíslason refabóndi í Botni í Mjóafirði við ísa- fjarðardjúp, í samtali við Mbl. Eins og fram kom í Mbl. þá var besta frjósemi af öllum refabúum í landinu á búi Ágústar, 340 hvolpar eftir 40 læður, sem er 8,5 hvolpar að meðaltali eftir hverja læðu. Ofan- greind tilvitnun var svar Ágústar þegar honum var sagt að frjósemin væri mest í hans búi. Ágúst sagði að margar læður hefðu gotið 12 til 13 hvolpum og ein hefði gotið 16 hvolpum, en það væri það mesta sem verið hefði hjá sér. Þetta er annað árið sem Ágúst stundar refaræktina. Hann sagði: „Annars er ég að gefast upp á þessu og myndi selja þetta á tombólu ef einhver vildi kaupa. Það er útilokað að standa I þessu nema komið verði upp fóð- urstöð einhversstaðar á svæðinu. En því miður eru ekki líkur til þess að það verði á þessu ári því Önfirðingunum og Dýrfirðingun- um sem sóttu um leyfi til að stofna refabú í ár, 11 eða 12 tals- ins, var öllum neitað um leyfi. Það urðu mér mikil vonbrigði. Ég er því ennþá einn í þessu. Norður- tanginn á ísafirði hefur lagað fóðrið fyrir mig, en þetta er ákaf- lega lítið magn og óhentugt fyrir þá að standa í þessu þannig að ég er hálfgerð hornreka í þessu." — Hverju þakkar þú þennan góða árangur þinn í refaræktinni? „Það er fyrst og fremst því að þakka hvað fóðrið er gott. Fóðrið sem þeir laga fyrir mig á ísafirði er toppfóður og sýnir það sig í frjóseminni annarsvegar og hins- vegar í því að ég náði hæsta með- alþunga hvolpa yfir landið í fyrra ásamt Grávöru á Grenivík, og það þýðir stærri skinn. En einnig verður að stunda þetta af ná- kvæmni og samviskusemi." — En þú ert orðinn einmana í þessu, einn á stóru svæði? „Já, ég bjóst við örari þróun í þessari búgrein en orðið hefur. Ég keypti þessa refi í upphafi vegna þess að 1981 varð hér ákaflega mikill grasbrestur og var það ann- að árið með stuttu millibili, því árið 1979 var einnig mjög slæmt. Ég ákvað því að fækka fénu og taka í staðinn búpening sem ekki krafðist grastekju og trúði á að fleiri kæmu í kjölfarið. Það hefur ekki orðið, enda hafa nágrannarn- ir séð hvað ég hef átt í miklu basli með þetta. Það er alveg ljóst að þessari búgrein vex enginn fiskur um hrygg hérna nema til komi fóðurstöð." — Og þú ætlar að hætta? „Ég reikna með að flytja til ísa- fjarðar í sumar eða haust með bú- ið og sjálfan mig. Ég hef fengið þar lóð þar sem ég ætla að byggja yfir búið. Þar verður hægara að annast fóðurgerðina sjálfur. Ég hef verið að hinkra eftir að annar ábúandi komi, því ég kann ekki við að snúa bara lyklinum í skránni og fara.“ Frjósemi blárefa eftir sýslum: 80% iminur á milli sýslna EINS og hefur komið í Mbi. þá hefur frjósemi í íslensku refa- búunum verið mjög góð á þessu ári eða 6,4 hvolpar að meðaltali á hverja ásetta iæðu, sem er um 40% betri frjósemi en í ná- grannalöndunum. En þar kom einnig fram að frjósemin er ákaflega mismunandi eftir búum og héruðum. Kemur þar margt til bæði reynsla bænd- anna, aldur læðanna, aðgangur að sem bestu fóðri og umhirða bændanna. Mbl. hefur fengið lista um frjósemi refalæðanna eftir héruðum til birtingar og fer hann hér á eftir. Fremri talan er fjöldi refahvolpa á hverja ásetta læðu og svigatalan er fjöldi læða í viðkomandi sýslu.: 1. N.-ísafjarðarsýsia 8,5 ( 40) 2. S.-Þingeyjarsýsla 7,3 (653) 3. Rangárvallasýsla 7,1 (260) 4. -5. Eyjafjarðarsýsla 6,9 (560) 4.-5. Gullbr. og Kjósars. 6,9 (420) 6. A.-Skaftafellssýsla 6,3 (100) 7. -8. Skagafjarðarsýsla 6,0 (610) 7.-8. V-Barðarstr.s. 6,0 (200) 9. N.-Þingeyjarsýsla 5,8 (115) 10. Dalasýsla 5,7 (174) 11. Árnessýsla 5,6 (238) 12. Strandasýsla 5,5 (125) 13. Múlasýslur 5,2 (283) 14. Snæfellsness. 4,8 ( 40) 14. A.-Húnavatnssýsla 4,7 (130) Samtals 3948 læður sem gáfu af sér 25.338 hvolpa, 8,5 hvolpa að meðaltali hver ásett læða. Skyndihjálpargögn í bfla Rauði kross íslands hefur látið útbúa púða sem innihalda allra nauðsynlegustu gögn til skyndihjálpar. Þessir púðar eru ætlaðir í bíla. í púðunum er bók um skyndihjálp en auk þess er þar að finna teygjubindi, grisjur, plástra, skæri o.fl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.