Morgunblaðið - 04.08.1983, Síða 33

Morgunblaðið - 04.08.1983, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1983 33 Kaupþing hf.: Ráðgjöf í erlend- um viðskiptum FYRIRTÆKIÐ Kaupþing hf. veitir nú ráðgjafarþjúnustu i sviði er- lendra viðskipta. Jafnframt gefur Kaupþing út vikuritið Vísbendingu sem fjallar um erlend viðskipti og efnahagsmál bsði innanlands og erlendis. Færst hefur í vöxt að íslensk fyrirtæki njóti erlendra lána til reksturs og fjárfestingar. Það er því ekki nema eðlilegt að samhliða þessari þróun komi fram sérhæfð ráðgjafarþjónusta sem getur gert þessi viðskipti arðvænlegri. Kaup- þing hf. hefur riðið á vaðið í þess- um efnum og veitir ráðgjöf fyrir- tækjum sem eru að taka lán, eða standa andspænis ákvörðun um lengd vaxtatímabils og vals á gjaldmiðli, en núorðið er oft svig- rúm í samningum til að breyta bæði gjaldmiðli sem lánið er skráð í og vaxtatímabili. Þá eru tölvu- unnar greiðsluáætlanir vegna er- Sigurður B. Stefánsson hagfræðingur og ritstjóri Vbbendingar og Baldur Guðlaugsson stjórnarformaður Kaupþings hf. lendra fjárskuldbindinga og gerð grein fyrir afkomu fyrirtækja eft- ir ófyrirséðum gengis- og vaxta- breytingum. Upplýsingarnar eru gerðar eins aðgengilegar og mögu- legt er til að auðvelda ákvarðana- töku í erlendum viðskptum. Eins og fyrr segir er Kaupþing að hefja útgáfu vikuritsins Vís- bendingar. Ritið verður ekki selt í lausasölu heldur einungis í áskrift. f því verða birtar nýjustu upplýsingar og spár um gengi, verðbólgu og fleiri mikilvægar hagstærðir á íslandi og í helstu viðskiptalöndum okkar. Að auki verða svo greinar og annar fróð- leikur. Ritstjóri Vísbendingar er Sigurður B. Stefánsson prófessor í hagfræði, en hann hefur starfað hjá Þjóðhagsstofnun undanfarin ár og einnig kennt við Háskóla ís- lands. Lenging flugbrautar á Flúðum Hrunamannahreppi, 28. júlí. NÝLEGA var lokið við að lengja flugbrautina á Flúðum um 100 metra, en hún var 600 metra löng. Síðar stendur til að lengja hana í 800 metra. Þá verður möguleiki fyrir minni farþegavélar að lenda þar. Fjármagn til þessara framkvæmda er fengið frá flugmálastjórn og úr sýslusjóði af fjárveitingum ’82 og '83. Reyndar eru flugbrautirnar á Flúðum tvær, sú iengri malarborin en varabrautin er grasi gróin og ligg- ur nær þvert á aðalbrautina en hún er 640 metrar. Nokkur hópur manna hér í sveitinni hefur lært flug á undan- förnum árum og eiga þeir nú sam- tals tvær og hálfa flugvél. Flug- skýli byggðu þeir í fyrra. Á góð- viðrisdögum er hér allmikil um- ferð lítilla einkavéla enda er stutt að fara héðan til að sjá marga fagra staði. Með lengingu flug- brautarinnar opnast möguleikar til að bjóða upp á útsýnisflug frá Flúðum en fjöldi ferðamanna kemur þangað á sumri hverju og svo hefur einnig verið í sumar. Sig. Sigm. Skagafjörður: Góður hey- þurrkur B* á Höfða.strönd, 2. ágúst. í GÆR og dag hefur verið góður heyþurrkur og bændur eru I óðaönn að hirða inn hey í hlöður. í júlí var kalsamur heyskapur, en náðist þó inn töluvert hey og virðist mér að • öllu betra hafi verið í úthéraðinu, þó 20 rigningardagar kæmu þann mán- uð. Þrisvar snjóaði í fjöll í mánuð- inum, en ekki hafa kartöflugrös fallið. Töluverð umferð hefur verið um vegi, en þó minna vegna kulda og rigninga og ekki hef ég heyrt um miklar slysfarir. Silungsveiði hefur verið með meira móti í sjó, en þorskafli enginn í Skagafirði. Togarar afla þó mjög sæmilega og er því næg atvinna í frystihúsum. Heilsufar er talið sæmilegt. Björn í B* Hrun í Dyr- hólaey Dyrhólaey er vinsæll viðkomustaður ferðalanga um Suðurland, og þá einkum útlendinga. Nokkuð hefur hrunið úr berg- inu í eynni á síðustu árum, og þá síðast nú í vor. Mbl. hafði samband við Reyni Ragn- arsson, lögreglumann í Vík í Mýrdal, og sagði hann að eitthvað hefði hrunið úr berginu i Dyrhólaey fyrir tveimur ár- um, og kom þá í ljós brestur f brú, sem er gjarnan notuð sem útsýnisstaður á eynni. Reynir sagði að band hefði þá verið strengt ofan við brúna, til að hindra fólk í þvi að fara sér að voða. Hann sagði að eitthvað hefði hrunið úr klettunum i vor, en honum var ekki kunnugt um hvar það hefði verið. Reynir kvað þó ekki þurfa meiri varúð- arráðstafana við, þar sem handið væri strengt fyrir mesta hættusvæðið. SINDRA Pósthólf 881, Borgartúni 31, 105 Reykjavlk, sfmi: 27222, bein Ifna: 11711. SUÐUSKOFT Safflre 3 Sýður allt að 25 mm. Safflre FN Sýður allt að 8 mm. SUÐU-OG SKURÐAR- Þessi auglýsing segir þér ekki hvernig þú átt að logsjóða eða Jogskera. Við viljum vekja athygli þina á vörum til logsuðu og logskurðar frá breska stór- fyrirtækinu BOC. Urvalið er mikið og við nefnum eins fátt eitt. Hjá okkur færð jfllK þu allarnanari upplysingarum VHPMB einföldustu tækin sem og hin sérhæf- SKUROAR- ustu. ijt f SKÖFT Safflre 3 Sker allt að 150 mm með gasi, 75 mm með propangasi. Safflre FN Sker allt að 50 mm. Safflre NM 250. Sker allt að 250 mm stál eða 75 mm steypujárn. •is* SUÐU- GLERAUGU Safflre DH Létt og vel laqað suðu- tæki. 6 suðustútar. Sýðurallt að 4 mm Margar gerðir og úrval glerja tyrir suðu og skurð á ýmsum málmum. öryggi og vellíðan í starfi. TR 3 Kerra fyrir tvo kúta. Þægindi og öryggi fyrir lítið verð. Kvöld og helgarsími: 77988. Safflre 3 Sýður allt að 8 mm og sker allt að 75 mm. 7 suðustutar og 2 skurðar stútar. Stærri stutar fást. PORTAPAK er hannað fyrir suðu og skurð þar sem erfitt er að komast með hefðbundin verkfæri. Heildarþyngdin er aðeins 32 kg og er því auðvelt og fljótlegt fyrir einn mann að bera tækin á viðgerðarstaðinn, upp stiga og þar sem þrengsli eru. Portapak er óviðjafnanlegt tæki til viðgerða fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Portapak er fullbúið til suðu allt að 4 mm og skurðar allt að 20 mm. Stærri stútar fást til suðu og skurðar.(8.2mm/50 mm). BOC ÁHÖLD OG TÆKI SEM JÁRN- IÐNAÐARMENN NOTA TIL ÞESS AÐ VINNA VANDAÐ VERK.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.