Morgunblaðið - 04.08.1983, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1983
Um 0,32% hækk-
un dollaraverðs
í síðustu viku
DOLLARAVERÐ hækkaði um
0,32% í síðustu viku, en við upphaf
viku var sölugengi Bandaríkjadoll-
ars skráð 27,760 krónur, en sl.
föstudag hins vegar 27,850 krónur.
Frá því að gengi krónunnar var
breytt í maílok hefur dollaraverð
hækkað um 2,77%, en sölugengi
Bandaríkjadollars var þá skráð
27,100 krónur.
Það sem af er árinu hefur doll-
araverð hækkað um 67,27%, en
sölugengi Bandaríkjadollars var
í upphafi ársins skráð 16,650
krónur, en 27,850 krónur sl;
föstudag eins og áður sagði.
Brezka pundið
f liðinni viku hækkaði verð á
bresku pundi um 0,36%, en við
upphaf vikunnar var sölugengi
brezka pundsins skráð 42,216
krónur, en sl. föstudag var það
hins vegar skráð 42,367 krónur.
Frá áramótum hefur breska
pundið hækkað um 57,90%, en í
ársbyrjun var sölugengi þess
skráð 26,831 króna.
Danska krónan
Danska krónan lækkaði um
1,24% í verði í liðinni viku. í
vikubyrjun var sölugengi dönsku
krónunnar skráð 2,9648 krónur,
en sl. föstudag var það hins vegar
skráð 2,9281 króna. Frá áramót-
um hefur danska krónan hækkað
um 47,5% í verði, en í ársbyrjun
var sölugengi hennar skráð
1,9851 króna.
Vestur-þýska markið
Vestur-þýska markið lækkaði
um 1,31% í verði í síðustu viku,
en við upphaf hennar var sölu-
gengi marksins skráð 10,6769
krónur. Sl. föstudag var sölu-
gengið hins vegar skráð 10,5365
krónur. Frá áramótum hefur
vestur-þýska markið hækkað um
50,43% í verði, en í ársbyrjun var
sölugengi þess skráð 7,0046 krón-
ur.
GENGISÞROUNIN VIKURNAR 18 22 0G 25 29JULI 1983
».4.
»2-
28,0.
27,«.
1$
27,4
mi. Þr. in&v- fím t661 mi þi. «&v. fiiB.fegt.
1C
«3,5.
«3.8.
«2.5.
«2,8-
«l>.
41.«, , . . . • . . . , .
mé, jir. m&v fwvfftrt mé
mi þr miiv. fim fösl. mi þr miftv fim.fest
1.288 hafa tekið þátt í
„Pepsi-áskoruninni"
Hin svokallaða „Pepsi-áskonin“
hefur nú staðið yfir um nokkurra
vikna skeið. Að sögn Ragnars Birg-
issonar, forstjóra Sanitas, hafa þeg-
ar 1.288 einstaklingar tekið þátt í
áskoruninni, sem fer þannig fram,
að fólki er boðið að bragða á tveim-
ur glösum. í öðru glasinu er Pepsi,
en í hinu Coca Cola og fólk beðið að
segja til um hvor drykkurinn sé
betri, án þess að vita hvaða drykkur
er í hvaða glasi.
„Af þessum 1.288 einstaklingum
hafa 655 sagt Pepsi vera betra og
633 Coca Cola. 55 einstaklingar
tóku ekki afstöðu, þannig að lið-
lega 50% aðspurðra telja Pepsi
betra en Coke,“ sagði Ragnar
Birgisson ennfremur.
„Okkar niðurstaða eftir þennan
tíma er því einfaldlega sú, að fólk
kaupir drykkina ekki eftir bragði,
heldur eftir vana, tízku eða ímynd.
Þessi áskorun hefur farið fram
erlendis síðustu árin og niðurstöð-
ur þar eru mjög samhljóma því,
sem hefur komið í ljós hér á
landi," sagði Ragnar.
Að síðustu kom það fram hjá
Ragnari, að Sanitas stefndi að því
að fá liðlega 5.000 þátttakendur,
en fyrirtækið verður með áskorun-
ina á iðnsýningunni 19. ágúst til 4.
september nk.
Janúar — Júní:
Liðlega 31% söluaukning
hjá Iceland Seafood
SÖLUAUKNING Iceland Seafood
Corporation í Bandaríkjunum var
liðlega 31% á fyrri helmingi þessa
árs, í dollurum talið. Salan var sam-
tals upp á liðlega 61,2 milljónir doll-
ara, borið saman við 46 milljónir
dollara á sama tíma í fyrra. í magni
talið er söluaukningin um 30% milli
ára.
Hjá sölufyrirtækinu Iceland
Seafood Limited í Bretlandi varð
söluaukningin á fyrri helmingi
ársins um 87%. Salan í ár var
tæplega 4 milljónir punda, borið
saman við 2,1 millión punda á
sama tíma í fyrra. I magni talið
varð salan liðlega fjögur þúsund
tonn, og er það ríflega helmingi
meira en á sama tíma í fyrra.
Hjá Sambandsfrystihúsunum
nam heildarframleiðsla allra
frystra afurða frá áramótum og
fram til 9. júlí 20.430 tonnum, á
móti 18.180 tonnum á sama tíma í
fyrra og er það aukning um liðlega
12%. Af þessu var botnfiskur
19.490 tonn, en til samanburðar
um 17.340 tonn í fyrra.
Aætlanir okkar um farþegafjölda
M Hollandi hafa staðist fyllilega
— segir Magnús Oddsson, svæðisstjóri
Arnarflugs í Evrópu
„ÁÆTLANIR okkar um farþega-
fjölda frá Hollandi hafa staðizt fylli-
lega á þessum tíma frá því hófum
áætlunarflugið í byrjun júlí á síðasta
ári,“ sagði Magnús Oddsson, svæð-
isstjóri Arnarflugs í Evrópu, en hann
hefur aðsetur í Amsterdam í Hol-
landi.
„Auk þess hefur vöruflug verið
mun meira en við höfðum látið
okkur í huga koma í upphafi.
Aukningin í vörufluginu hefur í
raun verið með ólíkindum jöfn og
hröð,“ sagði Magnús.
Aðspurður um aðra áætlunar-
staði félagsins í Evrópu, Dússeld-
orf í Vestur-Þýzkalandi og Zúrich
í Sviss, sagði Magnús að flutn-
ingar væru þar heldur minni en
reiknað hafði verið með. „Reyndar
hefur það sínar eðlilegu skýringar.
Við ákváðum þegar í upphafi, að
leggja megináherzluna á Holland
og hreinlega koma því inn á landa-
kortið á íslandi, ef svo má að orði
komast. Meginþungi markaðs-
starfseminnar fyrsta árið var því í
Hollandi".
„Síðan verður þetta tekið koll af
kolli og má reyndar segja, að upp-
byggingarstarfið sé hafið fyrir al-
vöru í Sviss, en félagið opnaði eig-
in skrifstofu þar í vor, en þar
starfa nú tveir íslenzkir starfs-
menn. Við erum ekki í nokkrum
vafa um, að Sviss er framtíðar-
áningarstaður íslenzkra ferða-
manna, auk þess sem ferðamanna-
straumur frá Sviss mun aukast í
framtíðinni. Það er því ljóst, að
aðaláherzlan verður lögð á Sviss á
næstunni og síðan verður farið í
Þýzkaland. Við munum opna
okkar eigin skrifstofu þar, en það
hefur ekki verið tímasett ennþá.
Reyndar erum við með eigin
starfsmann þar, sem sinnir störf-
um fyrir félagið," sagði Magnús.
Magnús sagði að fjölgun hefði
átt sér stað á erlendum ferða-
mönnum, sem heimsæktu ísland
sem aðaláningarstað, en svoköll-
uðum „stop over“-farþegum á leið
yfir Atlantshafið hefði hins vegar
fækkað. „Ferðamenn hafa hingað
til alltaf verið taldir eftir hausa-
tölu, en sú viðmiðun gefur í raun
ranga mynd af hlutunum. Það
væri mun raunhæfara að telja þá í
gistinóttum í landinu. Ef það væri
gert er ég ekki í nokkrum vafa um
að fjölgun hefur átt sér stað. Ef
litið er á Holland sérstaklega hef-
ur farþegum í svokölluðum pakka-
ferðum, sem hollenzkar ferða-
skrifstofur selja í, heldur fjölgað á
síðustu mánuðum, þrátt fyrir þá
staðreynd, að verulega hefur dreg-
ið úr almennri pakkasölu hér í
iandi. Segja ferðaskrifstofumenn,
að um allt að 50% samdrátt sé að
ræða í sölu ferða til sólarlanda.
Við erum því ágætlega ánægðir
með okkar hlut“.
Magnús sagði aðspurður, að
raun hefði ekki orðið umtalsverð
aukning á farþegum til íslands frá