Morgunblaðið - 04.08.1983, Page 39

Morgunblaðið - 04.08.1983, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1983 39 Sæmundur E. Ólafsson fæddist að Breiðabólstað í Ölfusi 7. apríl 1899 og voru foreldrar hans ólafur Sæmundsson frá Vindheimum sem er næsti bær við Breiðaból- stað og kona hans Guðrún Jóns- dóttir bónda frá Hrauni í ölfusi. Þeim varð sjö barna auðið en að- eins þrjú komust til fullorðinsára og var Sæmundur þeirra elstur. Sæmundur var um fermingar- aldur er móðir hans fellur frá, og var honum þá eins og títt var komið fyrir í vinnumennsku til að halda lífi í sjálfum sér og aðstoða föður sinn með kornung börn. Áður en þetta gerðist takast með Sæmundi og yngismey af næsta bæ, Vigdísi Þórðardóttur, bernskuástir, kannski við hjásetu yfir fé eða við önnur íslensk sveitastörf þegar íslensk náttúr- ufegurð skartar sínu besta og feg- ursta. Eldur þessarar fyrstu ástar brann aldrei út meðan bæði lifðu og snarkaði hvað mest og fegurst þegar að lokum lífs hans dró. Þau gengu í hjónaband og stofn- uðu sitt heimili þann 17. janúar 1924. Þau eignuðust fjögur börn: Ólaf, fæddan 26. febrúar 1926, dáinn 13. febrúar 1935. Guðrúnu Guðmund, fædda 21. júlí 1932, gifta Þorsteini Bjarnasyni sjó- manni. Ólaf Þórð, fæddan 22. mars 1940, kvæntan Jónínu Sigurðardóttur. Ernu, fædda 4. október 1942. Sorgin heimsótti þau hjón ung að árum er þau misstu frumburð sinn, efnispilt tæpra 9 ára, úr barnaveiki sem á þessum árum herjaði á barnahópinn íslenska. Móðirin var innilokuð í einangrun og faðirinn til sjós svo að hún gat ekki fylgt syni sínum til hinstu hvíldar. Þetta reyndist þungbær byrði, en flest él birtir upp um síðir, og með tímanum varð þetta áfall styrkur fyrir samlíf þeirra. Eins og fyrr sagði réðst Sæ- mundur um fermingaraldur í vinnumennsku og auðvitað hafa fylgt henni róðrar frá Þorlákshöfn eins og þá tíðkaðist hjá vinnu- hjúum. En sjórinn heillaði, og svo fór að um 1919 ræðst hann á tog- ara sem á þessum árum var lág- launuð þrælavinna og enginn munur gerður á degi og nóttu, hvað þá að fólk nyti einhverrar hvíldar. Hann gekk í Sjómannaskólann og öðlaðist þar menntun skip- stjórnarmanna og varð síðar stýrimaður á ýmsum skipum og stundaði fiskveiðar í ís og salt ásamt síldveiðum á sumrin eins og þá tíðkaðist. Hann gekk fljótlega í flokk jafn- aðarmanna og haslaði sér jafn- framt völl innan félagasamtaka sjómanna, og með hans brennandi áhuga og starfi vann sjómanna- stéttin marga sigra, sem urðu stéttinni allri til bóta og heimilum þeirra til trausts og öryggis eins og dæmin sýna okkur ljóslega í dag. Sæmundur var fyrr á árum mjög liðtækur innan alþýðuhreyf- ingarinnar og var um skeið vara- forseti Alþýðusambands íslands. Sæmundur hætti sjómennsku árið 1939 og réðst þá framkvæmda- stjóri Kexverksmiðjunnar Esju hf. sem hann starfaði óslitið við þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. En áhrifa Sæmundar gætti eft- irleiðis hjá sjómannastéttinni þannig að sjómenn sem oft fengu kex með kaffinu nefndu kex aldrei annað en „Sæmund" og er mér ekki kunnugt um að þessi nafngift sé niðurfallin þó að ég dragi í efa að yngri sjómenn viti um uppruna hennar. Kynni mín af Sæmundi hafa varað í meira en 40 ár, bæði vegna frændsemi konu minnar við Vig- dísi konu Sæmundar og ekki síður fyrir hve barngóð þau hjón bæði voru og kunnu að tala við börn og laða þau til sín. Börn mín öll voru kornung er þau tóku að venja komur sínar til þeirra. Þar var þeim tekið opnum örmum af báð- um húsráðendum og veitingar að sjálfsögðu af besta tagi. Einnig voru þau bæði sérstak- lega miklir dýravinir og mátti segja að þau hafi á tímabili rekið athvarf fyrir útigangsketti. Var ÍÉte»i£^'' A FREEMANSof London leiðirþig inn í heim hausttískunnar ’83. Þú pantar-við sjáum um afganginn. FREEMANS pöntunarlistinn, hausttískan ’83, eryfir600síður. FREEMANS í fararbroddi, beint tölvusamband við London. mJ8r Freemon/ það nokkuð sem börnum þótti gaman að fylgjast með, og sjá og heyra að húsráðendur tala við dýrahóp sinn. Rætur Sæmundar til uppruna síns voru það sterkar að þegar hann var á miðjum aldri fór hann að hafa nokkrar kindur á fóðrum. Umhyggja þeirra hjóna fyrir skepnum sínum var með ein- dæmum og í það minnsta höfðu þau í tvígang heimalning hjá sér og þegar þau hjón birtust hjá þeim var þeim fagnað sem af börnum sínum. Það var ekki lítil skemmtun fyrir börn að koma á slíkt heimili. Við hjónin áttum sjálf mörg sporin til þeirra hjóna að Sjafn- argötu 2, nutum þar í hvert sinn takmarkalausrar gestrisni. „Þar var löngum hlegið hátt, hent að mörgu gaman“. Allar þessar gleði- stundir munu aldrei gleymast okkur, né heldur börnum okkar. Samskipti okkar við þau hjón hafa verið og verða alltaf sólskins- stundir í lífi okkar. Sæmundur var hinn mesti nátt- úrudýrkandi og ferðalangur hinn mesti. Það var heillandi að ferðast með honum um Suðurland og um öræfin þar norður af. Þar gat hann tengt saman sögu og staði og örnefni og uppruna þeirra á eftir- minnilegan og fróðlegan hátt sem aldrei líður manni úr minni. Fyrir þetta færi ég honum mín- ar og minna þakkir fyrir ljúft og gott viðmót og fjölda gleði- og skemmtistunda. Sæmundur var alla tíð tryggur og trúr jafnaðarstefnunni og viss um að það væri vegna sinnuleysis okkar samlanda hans að hún átti ekki meiri hlutdeiid með þjóðinni en raun var og jafnframt á stund- um vegna misheppnaðrar forustu. Aldrei þurfti haninn að gala til að vekja hann sjálfan á vaktinni, svo trúr var hann. En ég er ekki eins viss um að hann hafi gert sér fulla grein fyrir því að mörg hans bar- áttumál voru þegar orðin almenn- ingseign og komin til fram- kvæmda til heilla fyrir allan al- menning. Ég vil svo að lokum fyrir sjálfan mig, konu mína og börn votta Vigdísi vinkonu okkar samúð, og við vitum að hún bíður endur- funda. Jafnframt vottum við börn- um og barnabörnum þeirra samúð okkar. Líf góðs manns líður seint úr minni. Magnús Ingimundarson Afi minn og nafni, Sæmundur Elías Ólafsson, verður borinn til grafar í dag, 4. ágúst. Hér ætla ég að minnast hans nokkrum orðum, enda vorum við nánir frændur og vinir. Afi fæddist á Vindheimum 1 Ölfusi 7. apríl 1899. Hann ólst upp á Breiðabólstað hjá foreldrum sín- um til 13 ára aldurs, en þá missti hann móður sína. 16 ára fór hann í vinnumennsku á nálæga bæi I Ölfusinu og stundaði róðra frá Þorlákshöfn. 21 árs að aldri hóf hann nám í Stýrimannaskólanum í Reykjavík og gerðist togara- sjómaður að því loknu. Árið 1938 hætti hann sjómennsku og hóf störf í Kexverksmiðjunni Esju og tók við stjórn þess fyrirtækis nokkru síðar. Þar vann hann þangað til rekstrinum var hætt árið 1976. Samhliða þessu gegndi hann ýmsum störfum fyrir Sjó- mannafélag Reykjavíkur og Al- þýðuflokkinn. -Árið 1925 giftist hann ömmu minni, Vigdísi Þórðardóttur, og lifir hún mann sinn. Þau byggðu húsið að Sjafnargötu 2 í Reykjavík árið 1931 og áttu þar heima síðan. Þau eignuðust 4 börn, Ólaf árið 1926, Guðrúnu móður mína 1932, Ólaf Þórð 1940 og Ernu árið 1942. Ólaf eldri misstu þau árið 1935, 9 ára gamlan. Einnig var Elín Sjöfn Sverrisdóttir hjá þeim hjónum um nokkurt skeið í bernsku, og var þeim síðan nákomin. Afi átti margs konar hugðar- efni. Ber þar hæst sauðfjárbú- skap, sem hann stundaði frá tæp- lega sextugsaldri og fram á níræð- isaldur. Framan af var búskapur- inn smár í sniðum og fór fram í Reykjavík. Olnbogarýmið óx að mun þegar búið var flutt að Hvassahrauni á Vatnsleysuströnd og taldi þá um 100 fjár. Þykir það gott af Reykjavíkurbónda. í tengslum við búskapinn urðu kynni okkar afa mikil og náin. Við áttum margar góðar glaðværar stundir saman í Hvassahrauni, ég óharðnað ungmenni og hann með stærstan hluta lífsins að baki. Þrátt fyrir þennan mun var ég aldrei látinn finna til míns and- lega vanmáttar, hann hlustaði á mínar skoðanir og rök, og ég á hans. Hann fræddi mig um sveita- lífið þegar hann ólst upp, sjó- mennskuna og kynni sín af ýms- um málefnum og mönnum. Átti hann þá til að setja upp galgopa- legan svip og herma eftir svo að stórgaman var að, eða kasta fram stöku. Virtist óþrjótandi magn vísna rúmast í minni hans, og átti hann vísu er hæfði hverju tilefni. Samræðurnar voru þó aldrei ein- hliða því afi var maður forvitinn og hafði áhuga á flestu sem mannlegt var. Spurði hann mig í þaula um mínár gerðir, skólann, félagana og áhugamálin. Forvitn- in hafði skilað honum góðri upp- skeru, hann kunni að spyrja og skapaði mönnum ekki leiða með því. Afi var glöggur maður. Fé sitt þekkti hann allt með nafni. E.t.v. þykir það ekki frásagnarvert, en hitt gæti þótt merkilegra að greina sitt fé á fjalli frá öðru, úr fjarlægð. Eitt sinn sem oftar vor- um við saman í sunnudags- skemmtiferð austur í Ölfus. Þá glittir í fé nokkurn spöl frá vegin- um og afi stöðvar bílinn, fer út og kallar „gibba gibba". Brá þá svo við að ein ærin sperrti eyrun og kom, að vísu vör um sig en þáði þó kexköku úr hendi afa. Hann hafði yndi af kindunum sínum, enda voru þær hændar að honum. Hann var dýravinur. Öðru sinni vorum við á skemmtigöngu á Sveifluhálsi á Reykjanesskaga. Allt í einu nemur gamli maðurinn staðar og horfir stíft upp í hlíð all langt í burtu. Ekki sá ég neitt athugavert í hlíð- inni, en þó var haldið í átt þangað. Er nær dró komu í ljós 2 sauðir í sjálfheldu. Höfðu þeir álpast niður á grasi gróna syllu og ekki komist þaðan aftur. Var allur gróður uppétinn og niðurtraðkað- ur og ekkert beið skepnanna nema dauðinn. Björgunarstörf gengu greiðlega. Nefni ég þetta til að sýna hve glöggskyggn afi gat verið með ólíkindum og athugull. Annað hugðarefni átti afi sem hann lagði mikla rækt við. Það voru óbyggðaferðir. Hann var einn af frumkvöðlum þeirra ferða og tók m.a. þátt í fyrstu bílferðinni inn á norður- og austuröræfin. Hann gerði sér mjög far um að þekkja örnefni. Mundi hann það allt og þekkti af myndum mörgum árum síðar, hvaðanæva af land- inu. Þó þekkti hann ekkert svæði betur en Ölfusið og má heita að þar hafi hann kunnað nafn á hverri þúfu. Þessari þekkingu reyndi hann að miðla mér en því hef ég mestu týnt. Þó er það ekki glatað að öllu leyti enda hefur miklu verið komið á kort. Landinu unni hann mjög og fann sér hvíld og uppörvun á öræfum. Um þetta vil ég vitna í orð hans, er hann ritaði í bókina „Hálendið heillar" um óbyggðafara: „í vissum skilningi voru þeir að safna til komandi ára á þessum ferðalögum, safna skemmtilegum endurminningum og dýrmætum í friði og fegurð öræfanna, sem eng- inn gat frá þeim tekið, um leið og þeir voru að afla sér sólskins til vetrarins og heiðríkju og jökul- birtu fyrir skammdegið." Afi kunni vel að meta góðan skáldskap bæði í bundnu og óbundnu máli. Hann átti ágætt safn bóka, mest íslendingasögur og annan þjóðlegan fróðleik. Hann lagði rækt við íslenska tungu og var ágætlega ritfær. Mest skrifaði hann um stjórn- og verkalýðsmál á fimmta og sjötta áratugnum. Glíman við Elli kerlingu sóttist honum lengi vel. Hann vann erfið- isvinnu fram á níræðisaldur, þar sem sauðfjárbúskapurinn var. Góða heilsu sína þakkaði hann því. En ellin hallar öllum leik. Hún náði bráðu taki á honum. Á útmánuðum þessa árs tók honum að þyngjast gangur. Lagðist hann í sjúkrahús í byrjun júní og lést þ. 24. júlí. Afa minnist ég nú með þakklæti og virðingu. Framan af setti lífið honum harða kosti, eins og títt er um hans kynslóð. Það mótaði manninn, og æðraðist hann aldrei út af smámunum. Greindi hann mér frá því að hans stærsti lær- dómur af sjómennskunni væri sá, að láta eigi hugfallast meðan ekki sekkur. Það er boðskapur sem öll- um væri hollt að hlýða. Þeim boðskap fylgdi hann fram á dauðastund. Ömmu minni votta ég dýpstu samúð mína og bið henni blessun- ar og góðra daga. Sæmundur Þorsteinsson Vinsamlega sendiö mér nýja FREEMANS pöntunarlistann í póstkröfu. Nafn: _____________________________________ Heimili: Staður: Sendist til: FREEMANS of London c/oBALCO hf. Reykjavíkurvegi 66, 220 Hafnarfirði, sími 5 39 00.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.