Morgunblaðið - 11.08.1983, Blaðsíða 1
56 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
179. tbl. 70. árg.
FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Linnulaus stórskota-
hríd í Faya Largeau
Fangar hafðir
til sýnis
Rúmlega 500 fangar úr röðum
uppreisnarmanna í Chad eru hér
saman komnir fréttamönnum til
sýnis. Þeir voru handteknir við
Faya Largeau í síðasta mánuði.
N’Djamena, ('had, 10. ágúst AP.
AÐ SÖGN vestrænna hernaðarsérfræðinga seint í kvöld er hinni mikilvægu
bækistöð stjórnarhersins í bænum Faya Largeau í Chad nú stöðugt ógnað
með linnulausri skothríð frá fjölmennu liði uppreisnarmanna og líbýskra
hermanna. Sagði ennfremur, að stjórnarherinn ætti í vök að verjast og ef
engin breyting yrði á framvindu mála
armanna á hverri stundu.
Kréttir þessar stangast á við yf-
irlýsingu stjórnvalda frá því fyrr í
dag. Þar sagði, að her þeirra hefði
hrundið kröftugri árás tveggja
herfylkinga Líbýumanna og upp-
reisnarmanna, sem gerð var við
sólarupprás. Hefði stjórnarherinn
hafið gagnsókn og hrakið óvininn
á flótta.
Að sögn upplýsingamálaráð-
herra stjórnarinnar, Soumaila
Mahamat, áttu þarna í hlut um
2000 líbýskir hermenn og 3000
hermenn uppreisnarmanna. Nutu
þeir aðstoðar orrustuþota í árás
sinni. Endurtók Mahamat hins
vegar, að árásinni hefði verið
hrundið.
Þriðja útgáfan af málinu barst
síðan er talsmaður uppreisnar-
mannanna í París hélt þvi fram í
gæti bærinn fallið í hendur uppreisn-
dag, að þeir hefðu náð Faya
Largeau fullkomlega á sitt vald.
Árásin á Faya Largeau í morg-
un hófst aðeins nokkrum stundum
eftir að tilkynnt var, að Frakkar
hygðust senda hermenn til lands-
ins. Voru þeir upphaflega sagðir
180, en í kvöld var fjöldi þeirra
sagður vera a.m.k. 500. Voru her-
mennirnir væntanlegir í dag eða á
morgun.
Sagði Mahamat það jafnframt
vera „siðferðilega skyldu" Frakka
með tilliti til samkomulags þjóð-
anna frá 1976 um hernaðaraðstoð
að „beita í það minnsta" flugher
sínum gegn Líbýumönnum.
Frakkar túlka samkomulagið hins
vegar ekki á þann hátt, að þeim
beri skylda til að beita her sínum
gegn Líbýumönnum.
Handjárnaður flugmaður úr líbýska flughernum rekinn áfram í
N’Djamena, raunamæddur á svip. simamynd ap.
Þremur ráðherrum
var rænt af drúsum
— Afsagnar líbönsku stjórnarinnar krafist í skiptum fyrir þá
Beirút, Líbanon, 10. ágúst. AP.
HERMENN drúsa rændu í kvöld þremur ráðherrum í stjórn Amin
Gemayels. Nokkrum stundum seinna kröfftust þeir þess, að ríkis-
stjórn Gemayels segði af sér í skiptum fyrir ráðherrana.
Ráðherrarnir, sem allir voru á
ferð í fjalllendinu í miðhluta
landsins er þeim var rænt, voru
sagðir vera þeir Pierre Khoury,
ráðherra opinberra framkvæmda,
fjármálaráðherrann Adel Hamiy-
eh og heilbrigðis- og atvinnumála-
ráðherrann Adnan Morweh.
Voru ráðherrarnir þrír að koma
af fundi með andlegum leiðtoga
Belgíumaður tilkynnir gerð nýrrar bílvélar:
Þarf 70% minna bensín
Bru.HMcl, 10. ágúst. AP.
BELGI nokkur, Alfred Ziemba,
uppgjafabyggingaverkamaður, seg-
ist hafa smíðað bflvél, sem sé
minni og léttari en venjulegar vél-
ar. Aðalkost vélarinnar segir hann
vera þann, að hún eyði aðeins 30%
þess eldsneytis, sem aðrar tegund-
ir jafn öflugra véla noti.
Vélin, sem sýnd verður á sér-
stakri samkomu uppfinninga-
manna í Belgíu í desember, snýst
10.000 snúninga á mínútu.
Stimplarnir taka fjögur slög á
hverri hringferð og vinna saman
tveir og tveir eins og í venju-
legum vélum.
Stimplarnir í vél Ziemba eru
hins vegar minni en gengur og
gerist, auk þess sem þeir snúast
um sveifarásinn í stað þess að
ganga upp og niður. Þrátt fyrir
minni stimpla eru slögin lengri.
Það veldur minni núningsmót-
stöðu, meiri þjöppun, meiri
snúningshraða og hreinni
brennslu. Hreinni brennsla kem-
ur m.a. til af því, að sprengihólf-
ið er tiltölulega lítið. Aðeins eitt
kerti er í vélinni. Umfram allt er
bensíneyðslan ekki nema 30% af
því sem venjulega er.
Ziemba sagði í viðtali við AP-
fréttastofuna, að vél sín væri
miklu fullkomnari en Wankel-
vélin svonefnda, sem kennd var
við v-þýska vélasmiðinn Felix
Wankel. Sú vél hefur einkum
verið kunn fyrir gífurlega bens-
ineyðslu og litla endingu.
drúsa, hinum 73 ára gamla Mo-
hammed Abu Shakra, er þeim var
rænt. Aðalumræðuefnið á fundin-
um var átök drúsa og kristinna
hægrimanna. Ætlun þeirra var að
biðja Shakra að reyna að stilla til
friðar.
Þetta voru ekki einu aðgerðir
drúsa í Líbanon í dag. Þeir létu
ennfremur til sín taka svo um
munaði í morgun er þeir gerðu
kröftuga sprengjuárás á alþjóð-
lega flugvöllinn í Beirút. Höfðu
hörð átök drúsa og kristinna
hægrimanna staðið um hríð er
sprengjum tók að rigna yfir flug-
völlinn. Létu fimm manns lífið í
árásinni og a.m.k. 30 aðrir særð-
ust. Á meðal hinna særðu var
bandarískur gæsluliði.
Líbanski herinn svaraði árás-
inni í sömu mynt og er þetta í
fyrsta sinn frá því í borgarastyrj-
öldinni á árunum 1975—76, að
herinn lætur til skarar skrfða
innanlands. Þá voru hinir 1.200
bandarísku gæsluliðar í landinu
sagðir í viðbragðsstöðu og reiðu-
búnir til atlögu. Hefur það ekki
gerst frá því þeir komu til lands-
ins sem hluti friðargæsluliðs Sam-
einuðu þjóðanna fyrir 4 mánuðum.
Þetta er einhver róstusamasti
dagurinn í Líbanon frá því stjórn
Gemayels tók við völdum í sept-
ember á síðasta ári. Hafa deilur
kristinna og drúsa ekki verið jafn
mannskæðar um langa hríð.
Metgengi
dollars
Lundúnum, 10. ágúst AP.
STAÐA Bandaríkjadollars styrkt-
ist enn á gjaldeyrismörkuðum í
Evrópu. Hafði dollarinn aldrei
staðið jafn sterkur gagnvart ít-
ölsku lírunni og franska frankan-
um er gjaldeyrismarkað lokaði.
Þá hafði gengi hans gagnvart öll-
um öðrum Evrópugjaldmiðlum
hækkað frá í gær.
Við lokun markaðs í dag voru
1606,75 lírur í hverjum dollara
en höfðu verið 1592,75 í gær. Þá
stóð dollarinn betur en nokkru
sinni gagnvart frankanum. Voru
8,1775 frankar í hverjum dollara
við lokun markaða í dag, en voru
8,0850.
Verð á gulli og silfri lækkaði í
dag eins og jafnan þegar staða
dollarans styrkist.