Morgunblaðið - 14.08.1983, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 1983
59
Michail Botwinnik
Paul Morphy
Adolf Anderssen
Francois André Philidor
Siegbert Tarrasch
Aaron Nimzowizsch
exander Aljechin átti erfitt með
að stjórna sjálfum sér, og átti í
miklum erfiðleikum með að um-
gangast áfengi.
Nr. 5
Bobby Fischer (1943) — The
Killer. Fischer, sem er sonur
þýsks eðlisfræðings, varð skák-
meistari Bandaríkjanna aðeins 14
ára gamall og ári seinna tókst
honum að ná stórmeistaratitli.
1972 varð hann heimsmeistari í
einvígi aldarinnar sem haldið var
í Reykjavík. Hann sigraði þar Bor-
is Spasský 7:3. Hann neitaði að
verja heimsmeistaratitilinn, þar
sem Alþjóðaskáksambandið neit-
aði að fara að kröfum hans um
breytt fyrirkomulag á heims-
meistaraeinviginu. Hann var
sviptur heimsmeistaratitlinum ár-
ið 1975. Fischer lagði skák-
mennsku algjörlega á hilluna og
gerðist meðlimur í sértrúarflokki.
Einn þeirra rithöfunda sem hafa
skrifað um Fischer lýsir honum
svo: „Maður finnur hversu með-
aumkunarlaus Fischer er þegar
harkan skín úr svip hans.“
Nr. 6
Anatolij Karpov (1951) — hinn
nýi Capablanca. Hinn ríkjandi
heimsmeistari í skák hefur um
langan tíma verið besti skákmað-
ur heims. Enginn núlifandi stór-
meistara getur státað af jafn góð-
um árangri á stórmótum (alþjóð-
legum). Sjaldan sjást hjá stór-
meistaranum flóknar leikfléttur,
en aftur á móti, eins og hjá Capa-
blanca, hárnákvæm taflmennska.
Karpov, sem er fæddur í Zlatours,
hefur varið titil sinn tvisvar gegn
hinum landflótta Kortschnoi
(1978/1981) og telst til heldri
borgara Sovétríkjanna. „Mér er
tvennt kært,“ segir Karpov „skák-
in og marxisminn." Samt sem áð-
ur ekur Karpov um á Mercedes og
á ekki minna en 1,5 milljónir doll-
ara í peningum og frímerkjum á
reikningi sínum í Sviss!
Nr. 7
Michail Botwinnik (1911) — vls-
indamaðurinn. Botwinnik, fyrrum
heimsmeistari í skák, fyrst 1948
til 1956 og svo 1957 til 1963, er
fæddur í Leningrad. Hann er eini
heimsmeistarinn eftir stríð sem
ekki einungis helgaði sig skáklist-
inni heldur sinnti einnig starfi
sínu. Hann þróaði fyrsta skákpró-
grammið fyrir tölvur. Auk þess
vann hann að vísindalegum að-
ferðum skákþjálfunar. Hann upp-
götvaði Karpov og kenndi Gary
Kasparov, sem er talinn munu
taka við heimsmeistaratitlinum af
Karpov. Allir sem Botwinnik
þekkja telja hann afburða gáfaðan
einstakling.
Nr. 8
Paul Morphy (1837) — fyrsti
skáksnillingurinn. Morphy, sem er
fæddur í New Orleans og var
lögfræðingur að mennt, lét sér
nægja að einbeita sér að skákinni
í eitt ár! 1858 til 1859 ferðaðist
hann um gjörvalla Evrópu og
gjörsigraði alla sterkustu skák-
menn á þeim tíma af miklu öryggi.
Hin svokallaða klassíska skák réði
þá ríkjum og kom hann fram með
mörg afbrigði sem enn eru í fullu
gildi. Hann varð sinnisveikur
(1869) sem margir telja tilkomna
vegna þess að þegar hann tefldi
gegn mörgum meisturum lék hann
á sama tíma við aðra í huganum.
Hann lést árið 1884.
Nr. 9
Adolf Anderssen (1818) — hinn
sígildi skákmaður. Úm miðja síð-
ustu öld lagði hann alla stórmeist-
ara Evrópu að velli við skákborðið.
Hann lærði tafl af föður sínum 9
ára að aldri, en fyrst 21 ári seinna
tók hann þátt í alvöru keppni.
Fram að þeim tíma menntaði
hann sig sem best í stærðfræði og
heimspeki. Skákin varð aldrei í
fyrirrúmi hjá honum. f 12 ár var
Anderssen óopinber heimsmeist-
ari í skák. Hann lést í heimaborg
sinni, Breslau, 1879. Eins og
Morphy var hann óvenjulega hug-
myndaríkur og margar skákflétt-
ur hans voru stórskemmtilegar.
Nr. 10
Francois André Philidor (1726)
— byltingarmaður. Hann telst
upphafsmaður frönsku „gaman-
óperunnar“, léttra ópera. A „Café
de la Regence" í París tefldi hann
við frönsku heimspekingana
Voltaire og Rousseau. Hann tefldi
einnig við Robespierre í tvennum
skilningi, á taflborðinu og í póli-
tík. Hann flutti til Englands
vegna frönsku byltingarinnar (og
lést þar árið 1795). Hann gerði til-
kall til heimsmeistaratitilsins frá
1747 og var að mörgu leyti bylt-
ingarmaður í skákinni, sérstak-
lega hvað varðaði nákvæmar
„sundurgreiningar". Frægasta
setning hans er án efa: „Peðin eru
sálirnar í leiknum."
Nr. 11
Siegbert Tarrasch (1862) —
uppeldisfræðingurinn. A árunum
1885 til 1914 náði hann bestum
árangri á stórmótum allra skák-
manna er uppi voru á þeim tíma.
Hann vann fullan vinnudag sem
læknir rétt við Nurnberg. Tarr-
asch, sem fæddurer í Breslau, er
þó betur þekktur fyrir bók-
menntaverk sín en afrek í skák-
inni. Stuttu fyrir andlát sitt sagði
hann: „Af bókum mínum hefur öll
kynslóðin lært betri skák.“ Tækni
hans var mikil, en honum tókst
aldrei að verða heimsmeistari.
Emanuel Lasker sagði um Tarr-
asch: „Skákkenningar virðast mik-
ilvægari fyrir hann en baráttan
við taflborðið."
Nr. 12
Aaron Nimzowitzsch (1886) —
nýrómantíkerinn. Hann fæddist í
Riga, en bjó í Danmörku. Á árun-
um 1925 til 1929 náði hann frá-
bærum árangri á stórmótum.
Hann er þekktastur fyrir þær um-
breytingar sem hann gerði og
nefndar hefa verið nýrómantík.
Nimzowitzsch lést árið 1935. And-
stæðingar hans kvörtuðu oft sáran
yfir hversu vel hann sá alltaf við
þeim með snjöllum leikjum. Bók
hans „Mitt kerfi" er af mörgum
talið eitt besta verk skákbók-
menrtanna.
verö frá kr. 6.950.-
Gíralaust — 2ja gíra — 3ja gíra — 5 gíra — 10 gíra
og 12 gíra.
D.B.S. reiöhjól hafa margsannað yfirburði sína viö
íslenskar aöstæður.
ÞEKKING - REYNSLA - ÞJÓNUSTA
FALKINN 105 REYKJAVÍK
SUÐURLANDSBRAUT 8 - SÍMI 91-84670