Morgunblaðið - 16.08.1983, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1983
15
myndin nú heldur við smekk piltanna
þriggja, James Bond.
Er upp rann föstudagur, var óspart
notuð sólarolía, enda höfðu sumir
nokkurn sviða af sólbrunanum, en
voru þó glaðbeittir og spenntir að
fara á fund dýranna í Zoologisk
Have. Fór hópurinn sem leið liggur i
hinn heimsfræga dýragarð. Þar voru
skoðaðar hinar mörgu tegundir, eða
2000 alls, lengi dags. Mest var eftir-
væntingin eftir að sjá fllana og gír-
affana og var staldrað lengi við girð-
ingar þeirra, en í fílagirðingunni eru
nokkrir ungir fílar, einn fæddur á
þessu ári og gerði hann hvað mesta
lukku. Þá var og spennandi að skoða
apana, sem eru af allmisjöfnum
stærðum og horfðu börnin á einn
simpansann mála myndir af mikilli
eljusemi, en til þess hefur hann sér-
stakt búr eins og vinnustofu. Voru
þar margir áhorfendur. Veðrið er
kaldara í dag eins og áður sagði, en
býflugur og vespur sækja þó mjög i
sætindi og mat, og var bæði eldri og
yngri þátttakendum ami að þeim.
Verið er að endurnýja búr og girð-
ingar hinna ýmsu dýra, og dýragarð-
urinn mjög að breyta um svip við það
og eru falleg gróðursvæði milli hí-
býla dýranna.
Nú á eftir að ljúka innkaupum í
dag og klifra upp í Sívalaturn. Á
morgun liggur leiðin heim aftur og
kannski mun sannast hjá verðlauna-
höfum Morgunblaðsins eins og svo
oft áður, að úti er gott, en heima er
bezt.
Allir ánægöir
með ferðina
Þegar verðlaunahafarnir úr áskrif-
endakeppni Mbl. komu i Jónshús,
spjölluðum við dálítið saman. Þau
voru öll mjög ánægð með ferðina og
sáu ekki eftir fyrirhöfninni við að út-
vega a.m.k. 10 nýja áskrifendur, en
það var takmark keppninnar. Eink-
um rómuðu þau fararstjórn Viktors
og lipuð.
Elín H. Friðriksdóttir er 10 ára og á
heima í Garðinum. Mamma hennar
Kristjana Óttarsdóttir er umboðs-
maður Morgunblaðsins þar. Elín seg-
ist bera út bæði niðurfrá og útfrá, í
allt 25 blöð og er orðin þaulvön. Þeg-
ar Viktor hringdi til að segja henni,
að hún hefði unnið, trúði hún ekki
sínum eigin eyrum né heldur mamma
hennar, sem kom heim skömmu síð-
ar. Mest hlakkaði Elín til að sjá
Tívoli og þar á eftir að koma í Dýra-
garðinn. Hún sagðist hafa þolað vel
hitann í Danmörku, en hafa orðið
þreytt í fótunum fyrstu dagana af að
ganga alltaf á steinsteypunni, og er
hún afar ánægð með ferðina.
Hildur B. Aradóttir er líka aðeins 10
ára og er hún frá Þorlákshöfn. Fóst-
urfaðir hennar er umboðsmaður
Morgunblaðsins þar. Henni er verst
við vespurnar og randaflugurnar, en
segist þola hitann ágætlega. Hildur
hefur áður komið til útlanda, fór þá
til Noregs með mömmu sinni og það-
an með skipi til Kaupmannahafnar.
Hún hefur því áður komið f Tfvolf og
á ýmsa staði aðra og hlakkaði mest
til að sjá Bakkann. Hildur litla hefur
hitt pabba sinn hér og farið víða með
honum, auðvitað báðum til ánægju.
Hún hlakkar samt til að koma heim
til Þorlákshafnar aftur.
Ríkharður Kristjánsson frá Ólafsvfk
er yngstur af hópnum, 9 ára. Hann
ber út Morgunblaðið i Engihlíð, Enn-
isbraut, Bæjartúni og Hjarðartúni
oftast gangandi. Þegar Svava um-
Börnin gengu misjafnlega rösklega fram í sælgætiskaupunum og á meðan sumir Verðlaunafararnir fylgdust með er Iffverðir drottningar skiptu um vörð og hér
kevptu eina dós af Mackintosh, langaði aðra f heldur meira magn. hafa þau raðað sér umhverfis einn þeirra.
Á ströndinni var synt og buslað og skemmtu allir sér vel.
boðsmaður hringdi og sagði fréttirn-
ar, varð mikill spenningur heima hjá
honum og félagar hans fylgdust lika
vel með undirbúningi ferðarinnar.
Ríkharði finnst dönsku krakkarnir
byrja alltof snemma f skólanum, en
skólinn hófst hér sl. mánudag, og öf-
undar þau ekki af þvf. Hann flaug nú
í fyrsta sinn og fór líka f fyrsta sinn f
lest og þótti það þægilegur ferða-
máti, að geta gengið um f lestinni en
verra þó á fleygiferð. Eins og flest
hinna hlakkaði Rfkharður mest til að
koma í Tivoií, en var líka mjög
spenntur að sjá Bakkann.
Sigurður Erlingsson úr Kópavogi er
stillilegur piltur 10 ára. Hann ber út
70 blöð og tekur þau í tveimur pok-
um. Hann bar Ifka út f vetur, enda f
skólanum eftir hádegi. Hann bætti
11 áskrifendum við hjá sér. Sigurður
átti ekki von á að vinna frekar en þau
hin og varð mjög glaður, og félagar
hans kátir, þegar Viktor hringdi og
sagði tfðindin. Hann er mest undr-
andi á hitanum hér og hávöxnu
trjánum upp úr götunum, og hafði
mjög gaman af að fara f lestinni til
Helsingjaeyrar. Bezt skemmti hann
sér í Tfvolí og fór oftar en einu sinni
í „rússibanann". Sigurður var nokkuð
þreyttur f fótunum fyrstu dagana, en
hefur hvflzt vel á nóttunni og hafa
þeir piltarnir þrfr verið saman f
herbergi.
Jón Kr. Arnarson er 13 ára og eini
Reykvíkingurinn í hópnum. Hann
var alveg himinlifandi, þegar hann
fékk fréttina um, að hann væri einn
af þeim útvöldu og gat varla sofið
nóttina áður en þau lögðu af stað.
Þægilegt þótti Jóni að fara f lestinni
norður með strönd, en þó öðruvfsi en
hann hafði fmyndað sér. Tölvuspilin
hér sagði hann ódýrari en heima,
enda keyptu flestir ferðafélagarnir
slíkan kjörgrip. Jóni finnst allt hafa
gengið mjög vel, og varð hann ekki
fyrir vonbrigðum með Tívoll og
baðströndina, en það tvennt hlakkaði
hann mest til að sjá. 1 dýragarðinum
vill Jón helzt sjá fílana og apana,
einkum górillu, enda segir hann, að
sig langi til að eiga stóra og sterka
górillu.
Tvær stúlknanna eru 14 ára og
heitir önnur þeirra Kolbrún Hjartar-
dóttir og á heima f Vestmannaeyjum.
Hún hefur áður komið til Danmerk-
ur, en ekki séð nema fátt eitt af þvf,
sem hún hefur skoðað nú, enda bjó
hún þá með foreldrum sfnum fyrir
utan borgina. Kolbrún segir skipulag
ferðarinnar hafa verið prýðilegt og
Viktor sé mjög góður fararstjóri.
Hún bíður spennt eftir að sjá varð-
mannaskiptin við höll drottningar-
innar, baðströndina og Bakkann og
hefur tekið þó nokkuð af myndum 1
ferðinni. í Tívolí fannst Kolbrúnu
mest gaman á töfrateppinu og fór
þrisvar f það tæki. Hún heldur að
fáir blaðberar i Vestmannaeyjum
hafi reynt að vera með f áskrifenda-
keppninni, en hún útvegaði 10 nýja
áskrifendur og var langhæst þar
heima og hefur nú 59 blöð að bera út.
Hitinn kom Kolbrúnu mest á óvart,
þegar hún kom kappklædd til lands-
ins.
Hin 14 ára stúlkan heitir Hafdís H.
Steingrfmsdóttir og á heima á Hellis-
sandi. Hún og Kolbrún hafa orðið
vinkonur í ferðinni, verið saman f
herbergi á hótelinu og ætla að skrif-
ast á þegar heim kemur. Mamma
Hafdísar, Ingibjörg Óskarsdóttir, er
umboðsmaður Morgunblaðsins á
Hellissandi og bera þær mæðgur út
öll blöðin þar, 48 talsins. Hafdfs varð
hissa, þegar hún varð fyrir valinu, en
vissi þó að 10 nýja þurfti til að vinna,
en hélt að dregið yrði úr vinningshöf-
um, en það var ekki gert, heldur öll-
um boðið með. Hafdfs kom til Dan-
merkur fyrir tveimur árum og heim-
sótti pennavinkonu mömmu sinnar í
Aabybro á Jótlandi. Hafdls hlakkar
til að koma til Bellevue, þótt hún hafi
áður komið á baöströnd, og er ákveð-
in í að synda í sjónum. Hún segir
ferðina vera alveg upplagt ritgerðar-
efni í vetur og er ánægð með allt, sem
hópurinn hefur komizt yfir að skoða.
Svanfríóur G. Bjarnadóttir frá ísa-
firði er aldursforseti ferðarinnar, en
segist hafa orðið eins og barn í anda
að vera með í þessum hópi, einkum
þó í Tívolí, þar sem hún skemmti sér
ekki síður en börnin. Hún ber út 63
Morgunblöð og útvegaði 10 nýja
áskrifendur, og segir að fleiri blað-
berar fyrir vestan hafi reynt að vera
með i samkeppninni, en blaðberar á
öllu landinu hafi fengið eyðublað til
að útfylla. Systir Svanfriðar er um-
boðsmaður Mbl. á ísafirði. — Svan-
fríður er nú f fyrsta sinn í útlöndum
og segist vera mest hissa á veðrinu
og að sjá léttklætt fólk á öllum aldri
hér á götunum meðan fólk heima
verði að vera dúðað í 6—8 stiga hita.
Henni var allt jafn mikið tilhlökkun-
arefni, er hún sá dagskrá ferðarinn-
ar, og segist hafa notið þess alls mjög
vel. Hún bjó með yngri stúlkunum í
herbergi á Park hóteli og hefur
áreiðanlega verið mikill stuðningur
fyrir fararstjórann að hafa Svanfrfði
til aðstoðar við að gæta barnanna.
Þau borðuðu morgunverð á hótelinu,
snarl í hádeginu úti, en sfðan máltfð
á kvöldin, m.a. einu sinni á ftölskum
stað. Áhrifin hafa verið mikil eftir
annasama dagana og hvfldin góð að
kvöldi.
Fyrir hönd þeirra allra vill Svan-
fríður bera fram þakklæti fyrir frá-
bært skipulag og rausn Morgun-
blaðsins, og kveður að ekki hafi verið
hægt að gera betur við þau eða ganga
betur fram í að skemmta þeim. Allt-
af hafi Viktor bætt inn í dagskrána,
ef tími vannst til, og rómar hún mjög
leiðsögn hans og hve vel honum hefur
tekizt að leysa hvers manns vanda.
G.LÁsg.
„Við fórum i ströndina og syntura f
sjónum," sagði Kolbrún Hjartardótt-
ir, „og svo fengum við bit i leigu og
keyrðum niður mann sem var i sigl-
ingu i seglbretti."
Hafdís H. Steingrímsdóttir sagði að
tækin á Dyrehavsbakken hefðu verið
miklu skemmtilegri en tækin í Tívolí
og það væri svo margt sem væri öðru-
vísi í Kaupmannahöfn en í Reykjavík.
Að lokum var rætt við Svanfríði G.
Bjarnadóttur, frá ísafirði. „Ferðin var
í einu orði sagt stórkostleg," sagði
Svanfríður, „það er allt svo gjörólfkt
því sem maður þekkir hér. Og börnin
voru svo skemmtileg þannig að ég
held að mér sé óhætt að sega að ég
hafi orðið barn á nýjan leik.“
*
Það var komið við f Víkingaskipinu f Dyrehavsbakken og kannski að þau hafi
fengið sömu tilfinningu og víkingarnir forðum er þeir sigldu um höfin.